Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.1989, Side 18

Víkurfréttir - 02.11.1989, Side 18
IÞROTTIR Úrvalsdeildin í körfu: FRABÆR NÁGRANNA- SLAGUR - þegar UMFN vann ÍBK 103:88 „Vendipunkturinn í leiknum var þegar við náðum að vinna upp 12 stiga forskot Keflvíkinga í fyrri hálfleik og komast yfir fyrir leik- hlé. Þetta var frábær leikur og skemmtilegt að taka þátt í hon- um,“ sagði Patrick Releford, hinn frábæri leikmaður og þjálfari Njarðvíkinga, sem unnu nágranna sína úr Keflavík í stórskemmtileg- um leik í Njarðvík á sunnudaginn. Lokatölur urðu 103:88 eftir að UMFN haf'ði leitt 54:53 í hálfieik. Já, Keflvíkingar byrjuðu með miklum látum með nýjan Banda- ríkjamann innan sinna raða, Sandy Anderson, ungan blökku- mann en mjögsnjallan. Hann var í miklu stuði í fyrri hálfleik, skor- aði þá !7stigogsýndi skemmtileg tilþrif. Anderson dreif félaga sína áfram og svo virtist sem Njarðvík- ingar væru á leiðinni að tapa sín- um fyrsta leik. En Releford, Teitur og Jóhannes, bestu menn UMI'N í leiknum, héldu uppi merki UMFN þegar liðið vann upp forskot ÍBK í fyrri hálfleik og þegar það jók for- skotið í seinni hálfieik. Releford og Teitur sýndu listatakta og tróðu báðir með tilþrifum við mik- inn fögnuð stuðningsmanna UMFN. Teitur áþaðtil aðhlaupa I átt að áhorfendum og rétta upp hendur til þeirra og ná þannig upp frábærri stemningu. Teitur hélt síðan Anderson mjög vel niðri í seinni hálfleik með frábærum varnarleik. Keflvíkingar eru áréttri leiðeft- ir brottför Veargasons. Þeir unnu tvo leiki án hans en töpuðu nú, en sýndu ,,gamla“ takta í hröðum leik sem þeir, sem og UMFN, hafa verið þekktir fyrir. Þó hafði maður á tilfinningunni að Keflvíkingar væru hálf sprungnir I lokin. En hvað um það, þetta var stór- skemmtilegur leikur, ekki síst fyrir áhorfendur, og þeim mun örugg- lega fjölga á næstu leikjum lið- anna. Erffitt hjá Reyni Reynismenn gerðu lítið án Dav- id Grissoms, sem var ekki meðlið- inu gegn Þór á sunnudaginn, og töpuðu stórt fyrir Þór frá Akur- eyri, 67:99, í úrvaldsdeildinni í körfuknattleik. Gott hjá UIVIFG Grindvíkingar sýndu sitt rétta andlit, sérstaklega á lokamínútun- um, er þeir fengu Tindastól í heim- sókn á sunnudaginn. Heimamenn gerðu ellefu síðustu stigin og sigr- uðu 82:78. Guðmundur Braga var bestur hjá UMFG og skoraði 27 stig. „NJARÐVlKURDRAUGUR í OKKUR" ,,Það virðist vera einhver ars er ég ekkert ósáttur með bjartsýnn áframhaldið. Viðætlum „Njarðvíkur-draugur“ i okkur og frammistöðu okkar. Sóknin var okkur að komast í4ra liða úrslitin hann kom í fyrri hálfleik, þegar við ágæt en við verðum að bæta okkur og ég er viss um að okkur tekst vorum komnir með 12 stiga for- í vörninni. Nýi leikmaðurinn okk- það,“ sagði Magnús Guðfinnsson, skot. Þá misstum við einbeiting- aráeftiraðkomastbeturinniliðið besti maður Keflvíkinga í lciknum una og jafnframt forskotið. Ann- ogokkar leikkerfi, þannig aðéger við Njarðvík. „Geta íslenskra leikmanna kom mér „Skemmtileg- asti leikurinn í vetur“ „Þetta var án efa skemmtileg- asti ieikurinn í deildinni í vetur. Keflvíkingarnir eru alltaf góðir og þeir eiga eftir að verða betri með þessum nýja Bandaríkjamanni, sem er mjög góður. Eg er viss um að þó Keflvíkingar hafi byrjað illa, þá komist þeir örugglega í úrslita- keppnina. Leikur okkar Njarðvík- inga var góður, sérstaklega í seinni hálfleik. Þá náðum við upp frá- bærri stemningu innan liðsins og meðal áhorfenda," sagði Teitur Örlygsson, einn besti maður UMFN gegn ÍBK. IBK - KR I KVÖLD Keflvíkingar fá KR-inga í heirn- sókn í kvöld í úrvalsdeildinni I körfuknattleik. Þá mætir Axel Nikulásson, fyrrum Keflvíkingur, í fyrsta skipti sínuni gömlu félög- um. Það verður einnig fróðlegt að sjá hvernig nýja Bandaríkjamann- inum I liði ÍBK, Sandy Anderson, gengur gegn Rússanum í KR. Leikurinn hefst kl. 20. ,,Kanaslagur“ gæti þessi mynd heitið, en hún sýnir Patrick „Líst vel á nýja manninn“ „Njarðvíkingar geta þakk- að frábærri vörn í seinni hálf- leik þennan sigursinn. Annars er ég ekki óánægður með okk- ar leik nema í fyrri hálfleik, þegar við misstum dampinn eftir að hafa náð forystu. Mér líst vel á nýja leikmanninn. Nú getum við leikið hraðan bolta,' sem við kunnum best við. Þetta er mjög alhliða leikmað- ur og þegar við verðum búnir að slípa okkur saman með honum verðum við erfiðir við- ureignar. Við mætum KR á fimmtudagskvöldið og ætlum okkur auðvitað ekkert annað en sigur,“ sagði Guðjón Skúla- son. Landsliðið gegn Könum Landsliðið í körfuknattlcik leik- ur á morgun æfingaleik við lið er- lcndu leikmannanna í úrvalsdeild- inni í íþróttahúsi Keflavíkur. Hcfst hann kl. 20. Landsliðið er á leiðinni til austurstrandar Bandaríkjanna í æfingaferð, þar sem leiknir verða níu leikir á hálfum mánuði. Sex leikmenn af tólf eru af Suð- urnesjum. Þeireru:GuðjónSkúla- son IBK, Magnús Guðfinnsson ÍBK, Sigurður Ingimundarson ÍBK, Teitur Örlygsson UMFN, Friðrík Ragnarsson UMFN og Guðmundur Bragason UMFG. I leiknum á morgun verða allir helstu Kanarnir ásamt KR-Rúss- anum með, en dómararnir verða bandarískir, ofan af Keflavíkur- flugvelli. á óvart, og áhorfendur eru frábærir“ segir Patrick Releford, bandarlskur ieikmaður og þjálfari UMFN „Þetta var fjörugur og skemmtilegur leikur og áhorf- endur voru frábærir. Þeir tóku virkan þátt i leiknum og eiga stóran þátt í því að hvetja leik- menn og geta þannig haft áhrif á leikinn,“ sagði Patrick Relc- ford, bandartski lcikmaðurinn hjá Njarðvík, en hann þjálfar jafnframt liðið. „Þetta er mikill niunur frá því sem ég kynntist í Argen- tínu, þar sem ég lék síðast,“ bætti Releford við, „þar eru áhorfendur mjög kröfuharðir og eiga það til að henda smá- hlutum í leikmenn inni á vell- inum ef þeir eru ekki ánægðir með frammistöðu þeirra. Hérna cru áhorfendurjákvæð- ir fyrir sitt lið og láta vel í sér heyra, ekki síst þegar ieik- menn gera vel. Sumir leik- menn gera í því að vinna áhorfendur á sitt band og nefni ég þá Teit sem dæmi.“ -Hvað viltu segja um getu ís- lenskra körfuknattleiks- manna? „Hún kom mér satt aðsegja á óvart, ekki síst með tilliti til þess hve seint, margir hverjir, byrja að æfa íþróttina, en eru síðan fljótir að ná tökum á henni. Það sýnir það að hér eru margir með meðfædda hæfi- leika í íþróttinni. Einnig átti ég ekki von á því að leikmenn væru jafn sterkir líkamlega og þeir eru. íslenskir leikmenn virðast stunda æfingar vel, ég veit það fyrir víst hér í Njarð- vík, og það sýnir sig vel í betri árangri.“ -Hvað finnst þér um liðin? „Ég er ánægður með margt í mínu liði og nokkrir leikmenn eru mjög góðir. Þeir eru marg- ir með mikla reynslu, þrátt fyr- ir frekar lágan aldur, enda margoft orðið meistarar. Og við verðum örugglega í barátt- unni um titilinn, það er alveg ljóst. Keflvíkingar eru einnig með marga sterka einstaklinga og léku oft á tíðum mjög vel gegn okkur ásunnudaginn. Ég hef trú á því að þeir eigi eftir að verða enn sterkari þegar líður á tímabilið og þeir verða ör- ugglega erfíðir í úrslitakeppn- inni, sem ég spái að þeir kom- ist í. Leikurinn gegn þeim á sunnudaginn var eins og þeir gerast bestir. Bæði lið sýndu skemmtileg tilþrif en ég held að leikkaflinn, |>egar við unn- um upp 12stigaforskotið, hafi gert útslagið. Við héldum upp- teknum hætti í byrjun seinni hálfleiks og náðum forskoti sem þeir náðu ekki að vinna upp,“ sagði hinn geðþekki, 24 ára gamli leikmaður og þjálf- ari UMFN, Patrick Releford, að lokum.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.