Víkurfréttir - 02.11.1989, Blaðsíða 20
,r
HRAÐ
FRAMKÖLLUN
MTOEmGmK STŒKKUN
I iiafnarBötu 52 - simi 14290, | ¥gir hverri Iramkollun
Rúta og pallbíll ultu:
Níu á sjúkrahús
eftir árekstur
Níu manns voru fluttir á
sjúkrahús eftir harðan árekstur
lítils pallbíls og skólabíls frá
SBK, sem var á leið til Grinda-
víkur mcð nemendur úr Fjöl-
brautaskólanum. Við árekstur-
inn ultu báðir bílarnir.
Átta hinna slösuðu, þ.e. sjö
úr rútunni og farþegi úr pall-
bílnum, sluppu án alvarlegra
mciðsla, en ökumaður pall-
bílsins brotnaði illa á mjöðm
og læri.
Umferðarslys þetta átti sér
staðkl. rúmlega I3áþriðjudag
á gatnamótum Víknavegar og
Reykjanesbrautar á Fitjum í
Njarðvík. Var rútan að koma
úr Kcflavík, en pallbíllinn á
leið í átt að Leifsstöð. Stöðvaði
rútan á gatnamótunum og ók
ökumaðurinn síðan í veg fyrir
pallbilinn, þar sem hann sá
hann ekki. Lenti sá síðar-
nefndi aftan til á rútunni og
lyfti henni upp.
Gjaldtakan í Helguvík:
SímajlBanki
SIMI15828
Það vekur alltaf gleði hjá börnunum þegar sjórinn fellur og öll taka fram sleða sína og renna sér
svo lengi sem færi gefst. Gleðin skein úr andliti þessarar njarðvísku dömu í snjónum á föstudag-
inn, enda hún ánægð með lífið og tilveruna - og að sjálfsögðu vel búin fyrir vetrarveðrið.
Ljósm.: hbb.
LOGBANN?
Óvenjumikil smá-
ýsa í Flóanum
Þó liðn ir séu um tveir mánuð-
ir síðan fyrsta stóra oliuskipið
kom til Helguvíkur hefur reikn-
ingur bæjarsjóðs um gjaldtöku
af olíunni ekki enn fengist
greiddur af hálfu varnarliðsins.
Um það eru þó skýr ákvæði í
samningi bæjarfélagsins við ut-
anríkisráðhcrra frá árinu 1982.
Þá vitnaðist það nú fyrir
helgi að Stapafell, sem koma
átti til Keflavíkur meðolíu fyr-
ir varnarliðið, hefði veriðsnúið
til Helguvíkur. þar sem með
því teldi varnarliðið sig losna
við umrædda gjaldtöku sem er
rúmar tvær milljónir í tilfclli
eins og Stapafellsins.
En hvað ætla bæjaryfirvöld í
Keflavík að draga það lengi að
beita þrýstingi s.s. lögbanni á
aðila? Þá spurningu lögðum
við fyrir Hannes Einarsson,
formann bæjarráðs. „Ég er
vongóður á að f'arsæl lausn sé í
sjónmáli. Ef svo er ekki gæti
lögbann komið til greina. Við
munum halda málinu til
streitu."
Óvenju mikið af smáýsu hef-
ur fundist við rannsóknir á fiski-
stofnum hér í Faxaflóa. Nú ný-
verið var aflétt vikulöngu veiði-
banni linubáta frá Garðskaga
að Gróttu.
Að sögn Viðars Helgasonar
hjá Hafrannsóknarstofnun
reyndist 92% þeirrar ýsu er
veiddist vera undir 50 senti-
metrum á stærð og þykir það
óvenju hátt hlutfall í afla.
„Besti og fljötvirkasti
kosturinn er í Grindavík"
D-álman og viðbygging við Garðvang er ekki lengur inni í myndinni
Besti og fljótvirkasti kostur-
inn varðandi fjölgun á sjúkra-
rúmum fyrir aldraða á Suður-
nesjum er að breyta annarri
álniu heimilis aldraðra i
Grindavik. Kemur þetta fram í
ncfndaráliti úttektarnefndar i
öldrunarmálum sem tók til
starfa í maí og hefur nú lokið
störfum sinum.
Til þess að ná inn á fjárlaga-
frumvarpið, sem nú liggur
fyrir Alþingi, er nauðsynlegt
að afgreiða málið mjög skjótt í
sveitarstjórnunum á Suður-
nesjum. Átti að taka málið fyr-
ir i fjárhagsnefnd SSS nú í vik-
unni og einnig verður það tek-
ið fyrir á aðalfundi samtak-
anna á laugardag.
Kom þetta fram á fulltrúa-
ráðsfundi D-álmu samtak-
anna sem haldinn var í
Grindavík á laugardag. Við
það tækifæri skoðuðu fulltrúar
byggingu aldraðra á staðnum
undir leiðsögn Guðmundar
Einarssonar, formanns bygg-
ingarnefndar, og Ólínu Ragn-
arsdóttur, framkvæmdastjóra
nefndarinnar. Nánar er greint
frá þessu stóra máli á blaðsíðu
3 í blaðinu í dag.
Nýbygging aldraðra í Grindavík. Hjúkrunarheimili aldraðra
yrði vinstra megin í byggingunni. Ljósm.: epj.
TRÉ-X INNIHURÐIR
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR - IÐAVÖLLUM 7 - KEFLAVÍK - SÍMI 14700
Ráðist á
lögreglu-
þjön
Aðfaranótt laugardagsins
tóku lögregluþjónar, sem voru á
eftirlitsgöngu um Hafnargöt-
una, eftir tveimur piltum þar
sem þeir voru veifandi bjórdós-
um. Var um að ræða 16 og 17
ára gamla krakka.
Hafði lögreglan þegar af-
skipti af kauðum en þá bar svo
við að annar þeirra sló annan
lögregluþjóninn í andlitið með
bjórdós og skaddaði hann eitt-
hvað. Fengu báðirungu menn-
irnir gistingu ífangageymslum
lögreglunnar eftir atvikið.
Þessa sömu nótt gerði ölv-
aður maður tilraun til að fjar-
lægja eina hindrunina er lok-
aði Hafnargötunni. Var hann
handtekinn og fékk gistingu í
fangageymslum um nóttina.
MUNDI
Nú er ódýrt að
vera með skalla . . .