Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.1989, Page 2

Víkurfréttir - 09.11.1989, Page 2
2 Fréttir _________________________________________________ Fundur á Glóðinni með sjávarútvegsráðherra: Gjaldþrot fyrirtækja hafa kostað þúsund störf „Á undanförnum árum hefur störfum í flskiönaöi fækkað vegna gjaldþrota fyrirtækja um 200-300 störf, sem hefur kostað atvinnulífið á Suðurnesjum um 1000 störf, þar sem talið er að að baki einu starfi í sjávarút- vegi skapist 4-5 störf,“ sagði Jón Gunnarsson, sem rekur fiskverkunarfyrirtækið Islensk- an Gæðafisk í Njarðvík, á fundi með Halldóri Ásgrímssyni, sjávarútvegsráðherra, sem JC Suðurnes stóð fyrir á Glóðinni sl. fimmtudag. Nafni Jóns Gunnarssonar og kollegi, Jón Karlsson hjá Brynjólfi hf. í Innri-Njarðvík, var ásamt sjávarútvegsráð- herra frummælandi á fundin- um. Hann lét móðann mása, enda þekktur fyrir að skafa ekki utan af hlutunum. Jón sagði meðal annars að hans fyrirtæki hefði framleitt fyrir um 260 millj. kr. á árinu 1988, en samt hefði verið tap á rekstrinum. „Það er ekkert gert fyrir fyrirtæki sem hafa verið hér í áratugi, en síðan hlaupa allir upp til handa og fóta og láta pening í Eldey, sem var dauðadæmt frá upp- hafi, og hafði fyrirtækið ekki fyrir þvi að hafa fagmenn í rekstrinum eða menn með reynslu í svona rekstri,“ sagði Jón og bætti því við að hann hefði t.d. þurft að leggja vegi að sínu fyrirtæki sjálfur, svo og fyrir vatni og skoipi. Jón sagði að það ætti að láta allan fisk í gegnum fiskmarkaðina og ef erlendir aðilar hefðu áhuga á að kaupa hann gætu þeir gert það þar. „Best reknu frysti- húsin eru þau sem versla við TEPPAHREINSUN REYKJANESS ER ÞUNGT LOFT HJÁ YKKUR? EF SVO ER HAFIÐ ÞÁ SAMBAND VIÐ OKKUR. HREINSUM HEIMAHÚS, STIGAGANGA OG HÚSGÖGN. MOTTUR SÓTTAR HEIM OG SKIL- AÐ SKÍNANDI HREINUM. MARGRA ÁRA REYNSLA OG POTTÞÉTT VINNUBRÖGÐ. ATH. HÁÞRÝSTIÞVOUM SORP- RENNUR OG SORPGEYMSLUR. PANTIÐ TÍMANLEGA FYRIR JÓL í SÍMA 15077 RAYMOND NEWMAN fiskmarkaðina. Þau vita ná- kvæmlega hvað þau eru með í höndunum og hvað þarf að gera.“ Þá sagði Jón einnig að togarar veiddu í miklum mæli eftirlitslaust og mikið smáan fisk, sem þeir síðan hentu. Jón Karlsson og Gunnars- son voru báðir sammála um það að ekkert pláss væri fyrir endurreista Sjöstjörnu því fyr- irtæki á svæðinu ættu fullt i fangi með að halda uppi at- vinnu og erfitt væri að manna fyrirtækin. Halldór Ásgrímsson ráð- herra sagði að fyrirtæki í sjáv- arútvegi í daggerðu mun hærri arðsemiskröfur, auk þess sem fjármagn væri dýrara en 1983, þegar hann byrjaði í ráðuneyt- inu, en þá var einnig sagt að greinin væri gjaldþrota. „Menn hafa ekki gætt þess að hlúa að því sem þeir eru með í höndunum og margir hafa far- ið of geyst í nýja hluti.“ Hjá Halldóri kom fram að hann væri ekki viss um að það væri rétt að láta allan fisk á mark- aðina en einnig sagði hann að það yrði að viðhafa hagsmúnr ina í landi gagnvart útflutn- ingi, ekki mætti selja allt i er- lendum höfnum. Halldór nefndi þrjú megin atriði sem hann legði áherslu á að ná. I fyrsta lagi fiskveiðistefnu, samþykkta til lengri tíma, í öðru lagi að ná viðunandi samningum við Evrópubanda- lagið og í þriðja lagi að ná starfskjörum sem hægt væri að búa við. Nokkrir aðilar svöruðu frummælendum. Bragi Ragn- arsson hjá Eldey hf. sagði Jón Karlsson vera með tvöfeldni. Hann væri iðinn við að rakka Eldey niður en hefur verið duglegastur við að kaupa afla Eldeyjarbáta á mörkuðunum. Þá hefði hann nánast einn set- ið að aukategundum og fengið þær fyrir lítið verð. „Hann seg- ir að viðsé.um ekki fagmenn og kunnum ekki að stjórna. Hvernig stendur á því að hann, eftir 20 ár í faginu, stjórnar þá sínu fyrirtæki með tapi?“ spurði Bragi. Fleiri tóku til máls á fundin- um, sem varð hinn fjörugasti, þó svo að ekki hafi komið neitt ,,nýtt“ frá ráðherra um vanda sjávarútvegsins á Suðurnesj- l'rá fundinum á Glóðinni með sjávarútvegsráðherra. Ljósm.: pkct. Grunnskóla- krakkarí útvarpsrekstri Vikurfréttir 9. nóv. 1989 Það var í mörgu að snúast í hljóðveri Útvarps Sandgerðis. Ljósm.: hbb Sandgerði: Krakkar í Grunnskóla Sand- gerðis tóku sig saman síðasta laugardag og stóðu fyrir út- varpsrekstri í einn dag. Var út- varp þetta í tilefni inálræktar- viku sem nýverið er lokið, en margir þeir dagskrárliðir er fluttir voru á útvarpsstöðinni voru einmitt unnir umrædda viku, að sögn Bergnýjar Jónas- dóttur, formanns ncmendaráðs og útvarpsráðs Grunnskóla Sandgerðis. Það voru allir nemendur skólans sem lögðu til efni í dagskrána, en 10 nemendur skólans sáu um útsendingu efnisins í hljóðveri. Meðal efn- is var tónlist, sögur, ljóð, leik- rit, viðtalsþættir, fréttir og auglýsingar. Viðbrögð við þessu framtaki nemenda skólans voru yfir höfuð mjög góð og fjölmargir stilltu á stöðina þennan dag. Sagði Bergný meðal annars að krakkarnir hefðu haft sam- band við allar verslanir á svæð- inu og óskað eftir því að út- varpstækin væru stillt á Út- varp Sandgerði og var alls staðar tekið vel í þá ósk. Hamborgarar - á þrjá vegu Pítur - meö grænmeti eða buffi Kínarúllur - ofsa góöar 8” pizzui><,^ - aðeins 460 Heitar samlokur Laukhringir, franskar, ís, gos... Klaki í veisluna, partíið. BOGGABAR VIÐ HÖFNINA SÍMI 15051 Útgefandi: Víkurfréttir hf. --------------------------------------------------------------------------- Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, simar 14717, 15717, Box 125, 230Keflavik. - Ritstjórn: Emil Páll Jónsson, heimas. 12677, bílas. 985-25916, Páll Ketilsson, heimas. 13707, bilas. 985-25917. - Fréttadeild: Emil Páll Jónsson. Hilmar Bragi Barðarson. - Auglýsingadeild: Páll Ketilsson. - Upplag:5600eintöksemdreifterókeypisum öll Suöurnes. - Aðili aö Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráös. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Selning, tilmuvinna og prentun: GRÁGAS HF., Keflavik

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.