Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.1989, Qupperneq 3

Víkurfréttir - 09.11.1989, Qupperneq 3
Aðalfundur Ferðamálasamtakanna: „Hér þarf að vakna líf“ I'rá tundi I'erðamálasanitakanna. Marteinn Pedersen í ræðustól. Framtíð Ferðamálasamtaka Suðurnesja virðist ögn bjartari eftir aðalfund samtakanna á Hótel Kristínu á miðvikudags- kvöld í sl. viku. Góð mxting var á fundinn og fundarmenn sam- mála um mikilvægi samtak- anna, enda kom fram að Suður- nesin hafa upp á mikla mögu- leika að bjóða í ferðamannaiðn- aði og framtíðin björt í þeim efnum, en betur má ef duga skal. Það kom greinilega fram í máli Marteins Pedersen, fram- kvæmdastjóra Upplýsinga- miðstöðvar ferðamála, að ferðamenn hafa mikinn áhuga á Suðurnesjum, bæði hvað varðar gistingarmöguleika og skoðunarferðir. „Fólk vill gista hér síðustu næturnar áð- ur en það heldur utan til síns heima. En stór hluti af þessum ferðamönnum gistir ekki á hótelum. Því vantar illilega merkt tjaldsvæði með allri að- stöðu, einnig heimagistingu og svefnpokapláss. Síðast en ekki síst höfum við enga bæklinga af svæðinu," sagði Marteinn og lagði til að sveitarfélögin og hagsmunaaðilar sameinuðust um að gera góðan bækling um Suðurnes. Hjá Marteini kom fram að um 80-90 erlendar ferðaskrifstofur óskuðu árlega eftir bæklingum frá Islandi og því væri bagalegt að geta ekki sent neitt frá Suðurnesjum. „Hér þarf að vakna eitthvað líf,“ sagði hann. Hermann Ragnarsson hjá baðhúsinu við Bláa lónið upp- lýsti að fyrirtæki hans væri í samvinnu við stóra aðila um stofnun fyrirtækis er hefði áhuga á að útbúa tjaldstæði í hrauninu rétt hjá lóninu svo og veitingaaðstöðu og upplýs- ingamiðstöð fyrir Suðurnesin. Þá kom fram að mikið vant- aði upp á að áhugaverðir staðir á Suðurnesjum væru merkti- og eftir miklar umræður um þau mál stóð Steinþór Jónsson á Hótel Keflavík upp og sagð- ist vilja fylgja því máli eftir. Hann bætti um betur og sagði að nú yrði að opna reikning fyrir samtökin þar sem áhuga- aðilar gætu lagt inn framlög og steig hann fyrsta skrefið með 40 þús. kr. framlagi frá Hótel Keflavik. Axel Jónsson veit- ingamaður sagði að það væri kominn tími fyrir sveitarfélög- in að vakna úr værum svefni. Ekki aðeins hefðu þau svelt ferðamálasamtökin ífjárfram- lögum heldur hefði þeim verið bent á merkingar- og upplýs- ingaleysi á Suðurnesjum og þetta væri búið að gera í 5 ár, án árangurs. Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSS, upp- lýsti að 400 þúsund króna fjár- veiting, sem hefði verið áætluð til Ferðamálasamtaka Suður- nesja 1988, hefði „brunnið inni“. „Stjórn SSS taldi sam- tökin dauð og lét því fjárfram- lagið niður falla,“ sagði Guð- jón. Vöktu þessar upplýsingar Guðjóns óneitanlega athygli á fundinum, ekki síst með tilliti til þess að fjármagnsleysi hefur fyrst og síðast staðið samtök- unum fyrir þrifum. Miklar umræður urðu um ferðamálin á fundinum. Allir voru sammála um mikilvægi samtaka sem þessara og nú yrði að lífga starfsemina við. Töldu margir nauðsynlegt að ráða starfsmann og einnig komu upp hugmyndir um að sveitarfélög og hagsmunaaðil- ar stofnuðu saman ferðaskrif- stofu er starfaði einungis fyrir Suðurnesjasvæðið. Ný stjórn var kjörin með níu fulltrúum. Þeir eru: Vilhjálm- ur Grímsson, Hermann Ragn- arsson, Pétur Jóhannsson, Helga Ingimundardóttir, Helgi Hólm, Kristinn Jakobs- son, Steindór Sigurðsson og Halldór Ingvason. Þá voru sjö fulltrúar kjörnir í varastjórn. Ljósm.: pkct. Heilsumiðstöð við Lónið Drífa Sigfúsdóttir upplýsti það á aðalfundi Ferðamála- samtakanna á Hótel Kristínu, að á ferð heilbrigðisráðherra erlendis fyrir skömmu hefðu fulltrúar frá stórri hótelkeðju nefnt það við liann að þeir hefðu mikinn áhuga á að byggja heilsumiðstöð við Bláa lónið, sérstaklcga ætlaða psoriasis- sjúklingum. Talið er að um 80 milljónir manna séu með þenn- an sjúkdóm í heintinum i dag. Tromp Ferða- málasamtakanna Á aðalfundi Ferðamálasam- taka Suðurnesja var samþykkí að opna reikning sem hags- munaaðilar og einstaklingar geta lagt inn á tilað gerast aðil- ar að samtökunum eða til að styrkja þau. Stofnaður hefur verið Trompreikningur í Spari- sjóðnunt og er númer hans 400571. Yíkurfréttir 9. nóv. 1989 SNERTI- LINSUR Gleraugnaverslun Keflavíkur býður nú næstu þrjár vikurnar mjúkar snertilinsur á sérstöku kynningarverði. Tímapantanir í síma 13811. Gleraugnaverslun Keflavíkur AKAI GÆÐI EIGUM FRÁBÆRT ÚRVAL AF AKAI HÁGÆÐA MYNDBANDSTÆKJUM! ORION MYNDBANDSTÆKI VERÐ FRÁ 38.900 Ítístund Hólmgarður 2, 230 Keflavík, Sími 15005 Holtsgata 26, 260 Njarðvík, Sími 12002 TOPP MYNDBÖNDIN FÆRÐU ÖLL í VHS OG BETA í FRÍSTUND! NÚ ER TÆKIFÆRIÐ! á að eignast glæsilegt 14", 16" eða 20" ORION sj ónvarpstæki á sérstöku Frístundartilhoði.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.