Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.1989, Side 19

Víkurfréttir - 09.11.1989, Side 19
19 Víkurfréttir 9. nóv. 1989 Njarðvíkurbær: Verktaka- mál endur- skoðuð Jón B. Olscn, verktaki hjá Njarðvíkurbæ, hefur sagt upp starfi sínu hjá bæjarfélaginu. Var uppsögnin tckin fyrir á bæjarráðsfundi í siðustu viku. Þar var jafnframt ákveðið að taka til endurskoðunar verk- samning við Vgrkfræðistofu Njarðvíkur um byggingafull- trúaþjónustu í bæjarfélaginu. Hafa komið upp hugmynd- ir um að samrænta störf þessi en Jón hafði á sinni hendi verktöku í verkstjórn m.a. Hafgull hf., Vogum Stofnsctt hefur verið í Vatnsleysustrandarhrcppi nýtt fyrirtæki á sviði ftsk- vinnslu pg útgerðar. Stofnend- ur eru Arni Gíslason, Einar Kristinsson, Haraldur Árna- son, allt þckktir aðilar i þess- ari atvinnugrein. ásamt fleír- um, búscttum utan svæðis. Heiti fyrirtækisins cr Haf- gull h.f. Einar Leifs kaupir Jökul Nýtt fyrirtæki hefur fcst kaup á hraðfrystihúsinu Jökli í Kefla- vík. Heitir viðkomandi fyrir- tæki Jökulhantrar og er í eigu Einars Leifssonar og fjölskyldu hans. Hefur Einar þegar tekið við rekstri hússins af fyrrum eig- endum, þeim Erni og Þorsteini Erlingssonum. Umrætt frysti- hús er eitt af elstu frystihúsun- um á Suðurnesjum. Bragi GK til j ísafjarðar \ Fimmtán tonna eikarbátur, Bragi GK 49 frá Sandgerði, hefur verið seldur burt af Su5* urnesjum. Kaupandi er aðili á Isafirði sem gera mun bátinn út á rækjuveiðar undir nafninu Auðunn ÍS 110. Bílvelta í sviptivindi Bifreið valt á Grindavíkur- vegi, móts við Svartsengi, á þriðjudag fyrir rúmri viku. Taidi ökumaður bifreiðarinn- ar sig hafa fengið sviptivind á ökutækið með fyrrgreindum afleiðingum. Að sögn lögreglu í Grinda- vík eru vindstrengir algengir þarna við rætur fjallsins. Bif- reiðin stórskemmdist i velt- Virðisaukaskattur tekur við af söluskatti um næstu áramót. Hann tryggir að skattkerfíð mismunar ekki samkeppnisvörum hérlendis og styrkir þannig stöðu íslenskrar framleiðslu gagnvart imrflutningi. Virðisaukaskattur stuðlar að heilbrigðara atvinnu- og við- skiptalífi í landinu. Þá safnast skattur ekki lengur upp í vöruverði. í gamla söluskattskerfinu getur skattur lagst ofan á skatt með þeim afleiðingum að söluskatturinn sairi- ast upp í verðinu á leiðinni til neytenda og er þar með farinn að hafa áhrif á samkeppnisstöðu einstakra framleið- enda. Uppsöfiiun skatts raskar stöðu íslenskrar ffam- leiðslu í samkeppni við erlendar vörur sem eru óháðar slíkum uppsöfriunaráhrifrim. Þegar virðisaukaskattur leysir söluskattinn af hólmi er skatturinn gerður upp á hverju stigi ffamleiðslunnar og verða uppsöfriunaráhrifin því úr sögunni. Skattur sem leggst á innfluttar vörur verður jalrihár og skattur á sam- bærilega innlenda ffamleiðslu. Virðisaukaskattur styrkir því stöðu íslenskrar ffamleiðslu gagnvart erlendri í harðri samkeppni á heimamarkaði. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.