Víkurfréttir - 09.11.1989, Page 23
IÞROTTIR
Knattspyrna:
Gestur Gylfa í Grinda-
vlk eða Garðinn
Þrjú lið hafa sett sig í sam-
band við keflvíska knatt-
spyrnumanninn Gest Gylfa-
son. Þetta eru 2. deildar liðin
Grindavík og Víðir, en einnig
hafa Framarar rætt við Gest
og boðið honum að koma í
Safamýrina. Samkvæmt heim-
ildum okkar, þá mun Gestur
ekki hafa verið sáttur við gang
mála hjá IBK í sumar og hugs-
ar sér því jafnvel til hreyfings.
Þá hafa ýmis lið verið orðuð
við markaskorarann Kjartan
Einarsson úr Keflavík. 1.
deildar lið Stjörnunnar hefur
haft samband við Kjartan og
boðið honum í Garðabæinn og
þá munu Víðismenn einnig
hafa borið víurnar í hann.
„Það eru mestar líkur á því að
ég verði áfram í IBK, allavega
ef ég leik í 2. deild, þá kemur
ekkert annað lið til greina,“
sagði Kjartan í samtali við
blaðið í fyrrakvöld.
Handbolti:
Tveir sigar hjá ÍBK
Keflvíkingar hafa byrjað vel
í 2. deildinni í handbolta. Þeir
lögðu ekki alls fyrir löngu hið
sterka b-Iið Vals 19-14, eftirað
hafa leitt 9-8 í leikhléi. Gísli
Jóhannsson var markahæstur
ÍBK-manna með 6 mörk, Ein-
ar Sigurpálsson skoraði 5 og
Björgvin Björgvinsson 4.
ÍBK sigraði síðan Armenn-
inga á útivelli, 27-18, eftir að
hafa leitt í hálfleik, 9-6. Kefl-
víkingar skoruðu sex mörk á
móti einu í upphafi síðari hálf-
leiks og breyttu stöðunni í 16-
9. Með Björgvin Björgvinsson
í miklu stuði jók IBK muninn
enn og í lokin munaði 9 mörk-
um, 27-18. Björgvin skoraði 12
mörk, Einar Sigurpáls 4 og
þeir Gísli, Kristinn og Her-
mann 3 mörk hver.
A morgun, föstudag, leika
Njarðvíkingar gegn UBK í
Njarðvík og hefst leikurinn kl.
18.
Karl Ottesen besti dómarinn
Magnús Daðason var kjör-
inn næsti formaður Knatt-
spyrnudómarafélags Suður-
nesja á aðalfundi félagsins í
Glaumbergi sl. laugardag.
Karl Ottesen hlaut afreksbik-
ar félagsins.
Hin nýja stjórn Knatt-
spyrnudómarafélags Suður-
nesja er þannig skipuð: Magn-
ús Daðason formaður og aðrir
í stjórn Gísli Jóhannsson,
Magnús Gíslason, Haukur Jó-
hannsson og Kári Gunnlaugs-
son.
Hann Gunnar V'ilbergsson
gerir það ekki endasleppt.
Hann og Ólafur Jónsson
gerðu stórmeistarajafntefli í
síðustu leikviku, fengu báðir 5
rétta og reyna því með sér
áfram og er þá Gunnar að
tippa ísjöundaskipti. Meistar-
inn í fyrr, Júlíus Baldvinsson,
náði átta skiptum, þannig að
Gunni er aðeins einu frá því.
„Þettá var bara gálgafrestur,
hann dettur út núna,“ sagði
Ólafur, aðspurður um næstu
spá. „Það væri ekki mikil
skömm að tapa fyrir Ólafi,“
sagði Gunnar, en er ekki málið
að fara að gefa öðrum tæki-
færi...
Gunnar Ólafur
G. Ó.
Coventry-Southampt. X 1
C.Palace-l.uton 1 1
Derby-Man.City 1 X
Everton-Chelsea 1 1
Millnall-Arscnal 2 2
Norwich-Aston Villa X 1
Q.P.R.-Liverpool 2 2
Sheff.Wed.-Charlton 1 X
Tottenham-Wimbledon 1 1
Óournem.-Sheff.Utd. 2 2
Sunderland-Wolves 1 I
W'est Ham-Nencastle 1 1
________23
Víkurfréttir
9. nóv. 1989
Guðmundur Bragason einbeittur, reynir skot að körfu, en James Bow, Haukum, er til varnar.
- segir Guðmundur
Bragason, fyrirliði
Grindvíkinga
Ljósm.: hbb.
„Ég er nokkuð ánægður
með gengi okkar Grindvík-
inga, sérstaklega að undan-
förnu, því við höfum sigrað í
þremur erfiðum leikjum í
röð,“ sagði Guðmundur
Bragason, fyrirliði úrvals-
deildarliðs Grindvíkinga ogað
flestra mati einn besti íslenski
leikmaðurinn í dag.
Ætlum að ná 1. sæti
„Við ætlum okkur að kom-
ast í úrslitakeppnina og erum
ákveðnir í að berjast til síðasta
blóðdropa til að ná 1. sætinu til
þess að mæta ekki Njarðvík
strax. Þeirhafaleikiðgeysivelí
vetur og virðast vera með
sterkasta liðið. Þeir eru með
mjög góða 7-8 menn. Keflvík-
ingar verða örugglega mjög
erfiðir viðureignar eftir hlé. Þá
verður Kaninn þeirra orðinn
kunnari hópnum og Óli Gott
kominn í hann. Það verður þó
að segjast eins og er að það hef-
ur veikt Kefivíkinga talsvert
að missa Jón Kr. Hann gerði
alla í kringum sig svo góða,
vann svo mikið fyrir liðið.
-Hvað með ykkur Grindvík-
inga?
„Þetta hefur gengið ágæt-
lega hjá okkur í vetur að und-
anskildum tveimur leikjum,
sem við töpuðum fyrir IR og
Þór. í síðustu leikjum höfum
við náð mjög vel saman og
leikið eins og lið. Leikur okkar
í upphafi tímabilsins byggðist
of mikið á einstaklingsfram-
taki.“
-Hvað með sjálfan þig?
„Ég er nokkuð sáttur við
mína frammistöðu og hef haft
mjög gaman af deildinni í vet-
ur. Það hefur verið skemmti-
legt að glíma við Kanana, sem
eru fiestir í minni stöðu. Mér
hefur farið fram við það.“
-Hvað finnst þér um til-
komu þeirra?
„Þeir hafa lífgað upp á þetta
pg falla flestir vel inn í liðin.
ÍBK og UMFN eru bæði núna
með sterka Kana en svo eru
fleiri góðir.“
Strembin landsliðsferð
-Nú ert þú í landsliðshópn-
um, sem er að fara í langa æf-
ingaferð til Bandaríkjanna.
Hvernig leggst það í þig?
„Þetta verður örugglega
strembin ferð. Þetta eru mikil
ferðalög og 9 leikir á 14 dög-
um. Við erum að leika við 1.
deildarskólalið sem eru örugg-
lega mjög sterk. Flestir Kan-
arnir hér heima koma úr 2.
deildar liðum, þannig að það
segir sína sögu um styrkleika
þessara skólaliða," sagði Guð-
mundur Bragason að lokum,
en hann og félagar hans í
körfuknattleikslandsliðinu
héldu til Bandaríkjanna á
þriðjudag í þessa erfiðu ferð.