Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.03.1992, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 05.03.1992, Qupperneq 17
Ýmsir halda því fram að hin bókelska, íslenska þjóð sé á góðri leið með að verða ólæs. Kannanir meðal bama og unglinga benda ótvírætl til þess að almennur bóka- lestur æskunnar hafi dregist veru- lega saman og sé á hröðu undan- haldi. Þetta hlýtur að vera öllum áhyggjuefni því reynist grunsemdin rétt er vá fyrir dyrum. Bandaríkja- menn viðurkenna opinberlega að ólæsi sé eitt af höfuðvandamálum þjóðarinnar. Svipaður tónn er farinn að heyrast meðal Evrópuþjóða. Kennarar á íslandi telja sig vera áþreifanlega vara við vaxandi erf- iðleika nemenda við lestur. Afleið- ingarnar eru líka æpandi. Nemendur dragast aftur úr í öllu námi, félags- leg vandatnál spretta upp, heima- lærdómur verður illa læsum börnum erfiður með hörmulegum afleið- ingum fyrir börnin. Gildir þetta bæði um böm í grunn- og fram- haldsskóla. Þó að unglingur geti sæmilega kveðið að þarf hann ekki endilega að vera full læs. Sá er sjaldan grípur til bókar dettur úr allri æfingu, rétt eins og fþróttamenn, með þeim af- leiðingum að honum reynist erfitt að lesa. þó ekki væri nema með- alþunga bók. Vandamál af þessum toga vex hraðbyri meðal íslenskra ungmenna. ÞROTLAUS MÖTUN OG SLJÓLEIKI Hvaða skýringar má svo ftnna á þeirn dapurlegu lýsingum sem gefnar eru hér að framan? Svarið er ekki einhlítt. Rannsóknir benda þó eindregið til þess að vaxandi sjón- varpsgláp, stöðug hlustun á síbylju af hæsta styrkleika og annað í þeim dúr haft hreinlega svipt ungdóminn lönguninni til að lesa bók sér til af- þreyingar. Þetta þýðir m.ö.o. að persónuleg og sjálfstæð upplifun bókalestrar hefur verið leyst af hólnti með sljóvgandi mötun. Vitaskuld getur verið bæði gagn og gaman af fjölmiðlamenningu. Um hana gildir þó eins og flest annað að öfgar geta verið vara- samar. Og þegar við eftirlátum börnum okkar stöðuga mötun og gláp erum við að beygja okkur undir öfgar. Þá erum við hreinlega að svíkja börnin okkar. Þá erum við að ýta undir það að barn okkar verður illa læst með þeim afleiðingum að nám þess og framtíð verður mun erfiðari en ella. Stóra spurningin er því sú: VILJUM VIÐ TRYGGJA FRAMTÍÐ BARNA OKKAR? Enginn efast um svar foreldra við þessari spurningu. Vandinn snýst líklega frentur um það hvað for- eldrar og ástvinir bama og unglinga eru tilbúnir að leggja á sig til að gera æskuna læsa. Og það þarf ekki svo mikið til - vilji er allt sem þarf. SAMSTARF SKÓLA OG HEIMILA Kennarar á Suðumesjum hyggj- ast á næstu misserum snúa vörn í sókn þar sem markmiðið er aðeins eitt: að efla bókalestur og lestr- arkunnáttu. Segja má að bókin, hvaða nafn sem hún ber, sé sá kennari sem bestan árangur gefur. Með því að lesa einhvem texta lærir einstaklingurinn að hugsa, skilja mál, skrifa og þroska vitund sína. Þess vegna ber okkur öllum skylda til að hvetja alla til lestrar. Þess vegna stöndum við að LESTR- ARVAKNINGU Á SUÐUR- NESJUM. Með því átaki er ætlunin að hvetja nemendur hressilega til að lesa bækur í þeirri vissu að bóka- lestur tryggi betri árangur í námi. Þessu markmiði verður aldrei náð nema kennarar og foreldrar taki höndum saman. Nemendur munu verða áþreifanlega varir við aukna áherslu á bókalestur í skólunum. Til þess að einhver árangur náist verða foreldrar og ástvinir barnanna að leggja sitt að mörkum heima við. Það má gera með ýmsum hætti og munu foreldrar fá sendan heim bækling þar að lútandi. Við hvetjum alla Suðumesjabúa til að kynda undir Lestrarvakningu á Suð- urnesjum og stuðla þannig að ham- ingjuríkari framtíð barna okkar. Lestrarkunnátta er almennt við- urkennd sem undirstöðuatriði í allri menntun - á henni mótast sá grunn- ur sem framtíð unglinga byggir á . Sá sem ekki nær góðum tökum á lestri á minni möguleika á að stjórna framtíð sinni. Og þjóð, sem er ólæs, verður undir í harðri alþjóðlegri samkeppni. TÖKUM HÖNDUM SAMAN - LESUM SAMAN. Á næstu vikum verður hægt að fylgjast með á síðum fjölmiðla því helsta sem á döfinni verður í LESTRARVAKNINGU Á SUÐ- URNESJUM. Fólk er hvatt til að fylgjast með þessu og láta í sér heyra. MÆLSKUKEPPNI: Öllum er mjög mikilvægt að geta óhikað tjáð í máli hugsun sína og skoðanir. Mælskukeppni virðist höfða mjög til unglinga. f LESTRARVAKN- INGUNNI verður háð mælsku- keppni milli grunnskólanna á Suð- umesjum. Að undangenginni for- keppni í hverjum skóla mætast lið, skipuð einum fulltrúaúr 8. einum úr 9. og einum úr 10. bekk í átta liða úrslitum. Um er að ræða út- sláttarkeppni. Fyrsta umferð verður 1. apríl nk.. önnur umferð 30. apríl en úrslitin fást þann 8. maí. Þá verður krýnd mælskusveit grunn- skólanna á Suðurnesjum. Dóm- gæslu annast Kormákur. Mál- fundafélag FS. VEGGSPJÖLD: Dagana 5.-20. mars veröur efnt til samkeppni um veggspjöld í skólum á Suðurnesj- um. Viðfangsefnið á að tengjast þema vakningarinnar. bókaleslri. en að auki er ætlast til að á spjöldunum verði minnt á M-hátíð á Suð- urnesjum. Samstarf hefur tekist við M-hátíðarnefndir sveitarfélaganna oe menntamálaráðunevtisins um að LESTRARVAKNINGIN verði hluti af Menningarhátíð á Suður- nesjum. Haldín verður sýning á spjöldunum og þeim bestu dreift um svæðið. LJÓÐASAMKEPPNI: Með Ijóðitsamkeppni skólanna er leitast við að sinna skáldinu sem býr í okkur öllum. Innan skólanna verða nemendur fengnir tii að yrkja og beslu ljóðin úr hverjum skóla síðan geftn út í bókarfonni. I byrjun maí eiga bestu ljóð úr hverjum skóla að liggja fyrir en stefnt er að útgáfu bókarinnar í september næsta haust. SMÁSÖGUR: Um svipað leyti og Ljóðabók skólanna kemur út í september hefst smásagnasam- keppni innan skólanna með svipuðlt sniði og ljóðasamkeppnin. Urval sagna verður gefið út í bók í byrjun desember 1992. LESTRARÞEYSA: Með lestr- arþeysunni er stuðlað að bókalestri nemenda. Ákveðið hefur verið að efna til þeysu milli nemenda fjórðu bekkjar grunnskólanna og fær sá bekkurinn, sem mest les á tilteknu tímabili, vegleg bókarverðlaun sem Félag tslenskra bókaútgefenda leggur til. SKÁLD AHEIMSÓKN: Skól- aniir munu hafa samstarf um að fá vinsæla og þekkta rithöfunda til að koma í heimsókn og lesa úr verkum sínum fyrir nemendur. KYNNINGARRIT TIL FOR- ELDRA: I byrjun mars munu allir nemendur á Suðumesjum bera heim til foreldra sinna bækling með vin- samlegum ábendingum til foreldra um hvernig foreldrar geta stuðlaða að auknum bókalestri barna sinna. Við hvetjum alla til að kynna sér bækling þennan og umfram allt að reyna einhver af ráðum hans. Við- horf og hvalning foreldra skipta mestu máli um áhuga æskunnar á bókalestri. Þannig stuðla foreldrar að velgengni barna sinna í nárni. Hvernig væri að gefa sjálfum sér og barninu smáfrí í viku hverri frá sjónvarpsglápinu? STARFIÐ INNAN HVER.S SKOLA: Auk þess sem hér hefur verið tíundað verður heilmargt ann- að gcrt innan skólanna til að efla þroska nemenda með bókalestri. Má þar t.d. nefna hljóðlestur í ftmmtán ntínútur á degi hverjum þar sem nemendur, kennarar, húsverðir og aðrir í skólunum lesa sér til skemmtunar einhverjar bækur í hljóði, sögubækur, fræðibækur eða aðrar þær bækur sem hver og einn kýs. Þá verður í einhverjum skólum valin bók mánaðarins, hún lesin og rædd. skiptibókamarkaður o.s.frv., o.s.frv. Svo sem sjá má af ofanrituðu verður margt um að vera í því skyni að cfla almennan bókalestur. Mark- miðiö er augljóst. Hins vegar er á- takið dæmt tii að mistakast ef ekki kemur til góð og jákvæð hvatning frá heimilunum og umhverftnu öllu. Verum samtaka um að eila bókina, börnum okkar og okkur sjálfum til yndis, ánægju og aukins þroska. Fyrir hönd SKÓSUÐs Hjálmar Árnason Gylfi GuSmundsson VIÐSKIPTA & ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR AUGLIS FAX 12777 Blómastofa Guðrúnar Hafnargötu 36 - Sími 11350 Opiö virka daga ..9-18 Laugard..........10-16 Sunnud...........12-14 Vikurfréttir SKIPAAFGREIÐSLA SUÐURNESJA KRANALEIGA LYFTARALEIGA SÍMI Opiö í hádeginu Viðtalstímar bæjarstjóra eru sem hér segir: Alla virka daga nema þriöjudaga kl 9.00- 11.00 Viðtalstími forseta bæjarstjórnar: kl. 9-11 á þriöjudðgum Bæjarstjórinn t' Keflavik HÓPFERÐIR 8-20 manna bílar í allar tækifærisferðir FERÐAÞJÓNUSTA SUÐURNESJA SÍMI 985-35075 >r ''TVjk/f VÁTRYGGIVGAFELAG ISIAMIS HF ▼ Umboðsmaður: Hafnargötu 58 - Keflavík Guðiaugur Eyjólfsson Heimasfmi 12293 1 •48,80 GunnajOfUStJ0ri “ * Guðlaugsson Heimasími 12721 14717 ALLAR BYGGINGAVÖRUR Járn & Skip V/ VÍKURBRAUT Sími15405 r: dropinn Sími14790 Málning - Gólfteppi Parket - Flísar EKKI ER VIKA ÁN VÍKUR- FRÉTTA

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.