Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.03.1992, Síða 24

Víkurfréttir - 05.03.1992, Síða 24
BESTI KOSTURINN 24 MÁN. SPARIREIKNINGUR 7.2% ávöxtun umfram lánskjara vísitölu Sú mesta í bankakerfinu. ðtSPRRISJÓÐURIHH Sundmiðstöðin Keflavík: Vatnsrennibrautin gerði lukku Hin nýja vatnsrennibraut við Sundmiðstöðina í Kefla- vík gerði stormandi lukku hjá ungviðinu í Keflavík sl. sunnudag. Brautin er gjöf frá Vatnsveitu Suðurnesja. O- hætt er að fullyrða að hundruðir ef ekki þúsundir ferða hafi verið farnar á fyrstu klukkustundunum eftir að brautin var tekin í notkun. Það var Drífa Sigfúsdóttir forseti bæjarstjórnar Kefla- víkur og stjórnarkona í Vatnsveitu Suðurnesja sem klippti á borða og opnaði þá brautina fonnlega. Áður fluttu ávörp Hjördís Ámadóttir f.h. íþróttaráðs, Drífa Sigfúsdóttir og Ellert Eiríksson bæjarstjóri. Þá var jafnframt tekið í notkun nýtt tólf manna gufubað. Eftir að brautin hafði verið tekin í notkun var gestum boðið að þiggja veitingar. Þess má geta að sl. þrijudag voru liðin tvö ár frá því Sundmiðstöðin opnaði og á þeim tíma hafa um 200.000 gestir sótt mannvirkið heint. • Drífa klippir á borðann. Hjá henni standa Hjördís Árnadóttir og Sigurður Steindórsson. Ijósm.:hbb Báti bjargað í stórsjó -sjóprófa krafist vegna málsins Grindavíkurbáturinn Þröstur GK 211 fékk nýlega trollið í skrúfuna er hann var að veiðum undan Hafnarbergi í 7-8 vind- stigum. Kallaði skipstjóri báts- ins þegar út og bað um aðstoð. Svaraði skipstjóri Kefla- víkurbátsins Osk KE 5 kallinu og setti þegar á ferð til hans. Eftir að Óskin hafði siglt í um eina klukkustund með Þröst í eftirdragi jókst vindurinn í 10-12 vindstig á suð-austan og lyngdi síðan aftur klukkustund síðar og vindur snérist í suð- vestan. Var báturinn dreginn til hafnar í Njarðvík og tók sú ferð níu og hálfa klukkustund, þrátt fyrir að taug milli skipanna hafi stitnað einu sinn á leiðinni. Koma þessar upplýsingar fram í dagbók m.b. Óskar, en skip- stjóri og útgerðarmaður þess skips hefur nú óskað eftir sjó- prófum vegna björgunarinnar. Að sögn lögmanns útgerðar Óskar KE kemur einnig fram í dagbókinni að þeir á Óskinni hafi „þurft að leggjast mjög ná- lægt Þresti í stórsjó og að erfitt hafi verið í fyrstu að koma taug á milli, þar sem báturinn lá undir áföllum er versti storm- urinn gekk yfir.“ Er blaðið hafði samband við rannsóknarlögregluna í Kefla- vík var málið þar til vinnslu, en að því loknu verður málið tekið fyrir í sjódómi. Ósk KE 5 er 81 tonna stál- bátur í eigu Einars Magn- ússonar, en Þröstur GK 211 er 112 tonna stálbátur í eigu Agn- ars Smára Einarssonar. Er nokkur stærðarmunur milli bát- anna sem hefur gert dráttinn enn erfiðari. Svo skemmtilega vill til að Óskin var áður í eigu Agnars Smára og hét þá Þröstur KE. Vegna björgunarinnar urðu þeir á Óskinni að skilja eftir 40 net í sjó sem ónýttust auk þess sem þeir urðu fyrir einhverjum aflamissi. Botndýrarannsóknir viö Island: Flokkunarstöð sett upp í Sandgerði Tekist hefur samkomulag milli Umhverfisráðuneytis, Haf- rannsóknarstofnunar, Líffræði- Stofnunar háskólans, Náttúru- fræðistofnunar Islands, Sand- gerðisbæjar og Sjávarútvegs- stofnunar háskólans um að standa að sameiginlegu rann- sóknarverkefni á botndýrum hér við land. Verður sett á stofn flokk- unarstöð í Sandgerði, þar sem ráðnir verða 4-8 starfsmenn til að grófflokka sýnin í um 45 helstu hópa dýrarikisins. Sam- GÓI) KJÖK d- euövýcttK &íCocm BÍLAKRINGLAN Grófin 7-8 Sími 14690 hliða grófflokkuninni verður skráð hvaða dýrahópar eru mest áberandi hvað varðar fjölda. Verður stöðin til húsa í húsnæði því sem bæjarfélagið keypti á sínum tíma og var áður í eigu Rafns hf. Er reiknað með að innlend og erlend rannsóknar- skip safni öllum sýnum og að sýnatöku Ijúki á fjórum árum, en rannsóknimar standi yfir í 6 ár. Er talið að milli 60 og 70 er- lendir vísindamenn taki þátt í þessu rannsóknarverkefni en markmið og gildi þeirra er: „Að PASSA- MYNDIR í ÖLL SKÍRTEINI TILBÚNAR STRAX! | l.i«'>sinvniliiM<>l;i | HAFNARGÖTU 52 KEFLAVÍK SIMI 14290 rannsaka hvaða botndýra- tegundir lifa innan íslenskrar efnahagslögsögu, skrá út- breiðslu þeiiTa, magn og tengsl þeirra við aðrar lífverur sjávar. Slíkar upplýsingar um botn- dýralíf skapa nauðsynlegan gagnagrunn sem m.a. nýtist til að: I. Kanna ætuskilyrði fisk- stofna. Á þessu ári hefjast um- fangsmiklar rannsóknir á maga- innihaldi botnfiska sem eru hluti af fjölstofnarannsóknum Haf- rannsóknarstofnunarinnar. GERIÐ GÓÐ KAUPÁ TILBOÐS- TORGINU Botndýr eru mikilvæg fæða botnfiska og upplýsingar um út- breiðslu og magn þeirra eru mikilvægar þegar meta á fæðu- tengsl fiskistofna. 2. Meta áhrif mismunandi veiðarfæra á botndýralíf við landið. 3. Fylgjast með breytingum á botnlífi í kjölfar breytinga á á- standi sjávar, m.a. vegna hugs- anlegra loftslagsbreytinga eða ntengunar. 4. Almennar umhverfisvökt- unar og vemdunar hafsvæða.“ PIZZU" oc KJÚKL- INGA- TILBOÐ Sími14777 MUNDII peningalyktina! Sími14797 Fagleg veitinga- þjónusta fyrir þig Sími 14999 - frí heimkeyrsla á pizzum alla daga!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.