Víkurfréttir - 05.03.1992, Síða 23
Iþróttir
________23
Ví kurfróttir
5. mars 1992
KORFUBOLTI
Rúllað yffir Þórsara
Keflvíkingar unnu öruggan sigur
á Þórsurum frá Akureyri sl. sunnu-
dagskvöld. Það var aldrei spurning
hvort liðið mundi sigra, heldur að-
eins hversu stór sigurinn yrði. Stað-
an í hálfleik var 76-42, en leikurinn
endaði 139-87. Brynjar Harðarson,
sem hefur þurft að sitja fullmikið á
bekknum, fékk loksins tækifæri til
að sýna hvað hann getur. Brynjar
átti mjög góðan leik, skoraði 9 stig
og hirti 12 fráköst. Sex þeirra voru
sóknarfráköst. Enginn leikmaður á
vellinum náði fleiri sóknarfrá-
köstum. Þessi hluti leiksins er eitt
mesta vandamál Keflavíkurliðsins.
og því furðulegt að Brynjar fái ekki
að leika meira. Bow náði 13 frá-
köstum, en öll voru þau tekin í
vörninni. auk þess skoraði hann 24
stig og átti 11 stoðsendingar. Að-
eins tvö skot geiguðu hjá Bow í
leiknum. Joe Harge, Kaninn í liði
Þórsara, átti nokkrar glæsilegar
troðslur. Það var það eina við leik
þeirra sem gladdi augað.
Stigin: Nökkvi 24. Bow 24, Jón
Kr. 19, Albert 18, Kristinn 17,
Guðjón 13, Hjörtur 9, Brynjar 8,
Jón 4. Böðvar 3.
Öruggir sigrar hjá
UMFG
Þór 90 - UMFG 107
Grindvíkingar gerðu góða ferð á
Akureyri sl. föstudag. Þeir mættu
þar neðsta liði Japisdeildarinnar,
Þór. Þórsarar höfðu frumkvæðið
framan af fyrri hálfleik, en UMFG
snéri leiknum sér í vil, og hafði eins
stigs forystu í hálfleik 52-53. í
seinni hálfleik stungu Grind-
vtkingar hreinlega af, og náðu 17
stiga forskoti. Þessum tnun héldu
þeir alveg til leiksloka. Stigin:
Guðmundur 28. Joe Hurst 23,
Pálmar 13, Hjálmar 12, Rúnar og
Bergur 11 livor, Marel 5. Pétur 4.
UMFG 104 - Haukar 83
Grindvíkingar fengu Hauka t
heimsókn sl. sunnudagskvöld. Er
Haukarnir rnættu til leiks. eygðu
þeir enn von um sæti í úr-
slitakeppninni. Leikurinn var jafn
og spennandi í fyrri hálfleik. I leik-
hléi skildu aðeins þrjú stig milli
liðanna. UMFG 45 - Haukar 42.
Grindvíkingar börðust af mikilli
hörku í seinni hálfleik. Svo fór að
þeir völtuðu yfir Haukana. og gerðu
vonir þeirra um sæti í úr-
slitakeppninni að engu. Joe Lewis
Hurst átti enn einn stórleikinn, auk
þess sem Marel og Guðmundur Iéku
mjög vel. Grindvíkingar virðast nú
vera komnir í sitt gamla form. en
því miður aðeins of seint. Stigin:
Joe Hurst 33. Guðmundur 25. Marel
22, Bergur 9. Rúnar 7, Hjálmar og
Pétur 4 hvor.
r
S^°^^lu^rdar8on launches a ^pointer.
Falur Harðarson, körfu-
knattleiksmaður úr
Keflavík, hefur leikið í
bandaríska háskólabolt-
anum nú í vetur. Hann er við nám
í Charleston Southern háskólan-
um. Falur hefur leikið hreint út
sagt frábærlega með liði sínu
Bucs. Þjálfari liðsins, Gary Ed-
wards er yfir sig hrifinn af Fal.
Hann hefur sent Torfa Magnús-
syni landsliðsþjálfara bréf, þar
sem hann óskar eftir fleiri ís-
lenskum leikmönnum. Það má því
segja að með góðri frammistöðu
sinni hafi Falur opnað leið að
bandaríska háskólaboltanum fyrir
unga og efnilega leikmenn.
Gary Edwards, þjálfari, hafði
þetta að segja um Fal: „Það er
góður andi í kringum hann og
hann leggur mikinn metnað í
leikinn. Hann hefur fært liðinu
þann þroska sem okkur vantaði
sárlega í stöðu leikstjórnanda.
Falur vinnur af sania krafti á
æfingum og í leikjum. Þú getur
alltaf verið viss um að hann
spilar með hjartanu. Sjálfsálitið
er honum heldur ekki ijötur um
fót. Fal er alveg sama hvort
hann skorar tvö stig eða tutt-
ugu."
Aður en Falur gekk til liðs
við Bucs, var þeim spáð neðsta
sæti í sínum riðli. I riðlinum
eru 13 lið, og í dag er Bucs í
þriðja sæti. I síðasta leik liðs-
ins jafnaði Falur eldgamalt
skólamet. Hann skoraði sex
þriggja stiga körfur í fyrri
hálfleik. Eftir það lögðu and-
stæðingarnir allt kapp á að
passa Fai seni best, svo hann
hafði sig lítið frammi það sem
eftir var leiksins. Falur hefur
snúið ófáum Ieikjum Bucs í
hag í vetur, svo ekki er skrítið
að Gary Edwards sé ánægður
með hann.
Nú í dag fimmtudag, Ieik-
ur lið Fals, Bucs, úrslitaleik
um það hvort liðið komist í
64 liða úrslitakeppnina í há-
skólaboltanum. Það væri
mikill sigur fyrir skólann að
komast í þessa úrslita-
keppni. Hún er það sem allt snýst
um í háskólaboltanum.
Bucs fínd
a winner
in íceland
■ IT’S WHO YOU KNOW: Gienn
J homas, an assistant coach for
iceland's natíonal basketball
team, recommended Falur Har-
darson to Charleston Southern
coach Gary Edwards, who now
owes his friend a favor.
sraswFll ~—~
01 The Ppst and Covrier staff
Being a basketbail coach at a small NCa a
Division I schooi like Charleston S,uthern is
I and™ salesmanship as knowledge 0f Xa
rv."ssrÆ-:a¥S.».i.
^ «t <m playtng be/orelellout «owds a?
pssss
ttó^eíS3 í,°P,a> atFharleston Southe™n
« hP“hn an answer 10
uo":rs,,aalrs^r^ffXtcnaí‘„
5SKSSs«ík
asSSSSsSn
eipressed his .nterest in playmg1^°"
sprssráiiSr
rrov,déd £%* hZl'l
“'’craging almost 10
ÍT . “ »ame> and has proven to be a
as well as a séíld défende/
2?Bte PiCked t0 ,mKh la« ín
Pétur of sterkur fyrir UMFN
- „Gæöingurinn“ Valur skoraöi sigurstig Stólanna í Njarövík í toppleik
íslandsmeistarar UMFN biðu
ósigur gegn gæðingnum Val Ingi-
mundarsyni og liði hans Tindastól
sl. föstudagskvöld. Leikur þessi
var hreint út sagt frábær skemmtun
fyrir alla þá sem fylgdust nteð.
Stólarnir höfðu frumkvæðið í fyrri
hálfleik, og leiddu í leikhléi 34-39.
Njarðvíkingar keyrðu upp hraðann
í síðari hálfleik, og náðu að jafna
um hann miðjan, 57-57. Leikurinn
var í járnum. Leifur Garðarsson.
dómari. tók þá upp á því að flokka
látbragð Kristins Einarssonar sem
mótmæli, og gaf honunt tækni-
villu. Kristinn, besti maður UMFN
í þessum Ieik, fékk þar með sína
fimmtu villu og var þar með úti-
lokaður frá leiknum. Njarð-
víkingar létu þetta ekki á sig fá.
heldur breyttu stöðunni í 70-65. I
þessum frábæra leikkafla tróð
Rondey Robinson þrisvar sinnum,
og héldu áhorfendur nú að Njarð-
vflcingar væru að stinga af. „Stól-
arnir" voru hinsvegar á öðru máli.
Eftir mikla baráttu. spennu og læti.
var staðan 81-81. Gæðingurinn
Valur stendur á vítalínunni. Bón-
usskot, 6 sek. til Ieiksloka. Valur
skorar úr báðum skotunum.
Njarðvíkingar ná ekki að svara.
Leikmenn Tindastóls eiga mik-
ið lof skilið fyrir þennan leik. Sér-
staklega af því breidd liðsins er
engin. Öll keyrslan lendir á sömu
fimm mönnunum. Valur og Einar
Einarsson léku vel hjá „Stólunum"
í þessum leik. Einar og Pétur Guð-
mundsson ná mjög vel saman, og
virðist Pétur í gríðargóðu formi
þessa dagana. Eins og áður sagði
var Kristinn bestur Njarðvíkinga,
og söknuðu þeir hans greinilega á
lokamínútunum. Rondey og Teitur
léku einnig vel. Stigin: Rondey 19,
Kristinn 18, Teitur 12, Ástþór 11,
Friörik 10, Sturla 5, Gunnar 4 og
Jóhannes 2.
__________________________/