Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
þessu og gera skötuna að eftirsóttu
hnossgæti. Það spurðist út og þegar
leið fram á tuttugustu öldina og fólk
úr öllum landsfjórðungum hélt suður
á bóginn náði skötumenningin fót-
festu á Reykjavíkursvæðinu, þar
sem fólk mætir í dag meðal annars á
fínustu veitingahúsin og gerir sköt-
unni góð skil.
sleppa öllu góðgæti og einna helst á
Þorláksmessu. Á Suðurlandi var
sumstaðar soðinn horaður harðfiskur
á þessum degi. En þar sem skatan
veiddist helst vestra á þessum tíma
árs varð hún fyrir valinu, enda ekki
neitt sérstakt ljúfmeti.
Þegar svo liðu fram stundir tókst
matgæðingum Vestfjarða að breyta
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ásatrúarfélagið hefur orðið fyrir
miklu áreiti frá erlendum ferða-
mönnum og fjölmiðlum utan úr
heimi sem og fræðimönnum í ár og
hefur orðið að bregðast við með
því að banna utanaðkomandi fólki
að trufla samkomur með mynda-
tökum og með því að svara raf-
rænum pósti með sjálfvirkum
svörum.
Sem flugur í mat
Hilmar Örn Hilmarsson allsherj-
argoði segir að mikið ónæði hafi
verið í ár. Erlendir blaðamenn hafi
ekki verið flugur á vegg heldur
sem flugur ofan í matnum á sam-
komum ásatrúarmanna. Þennan
ágang megi fyrst og fremst rekja
til byggingar hofs í Öskjuhlíð.
Framkvæmdir við það gangi sam-
kvæmt áætlun og stefnt sé að því
að taka það í notkun í mars 2017.
Útlendingarnir vilji hafa vit fyrir
félagsmönnum og segir Hilmar að
svo langt hafi gengið að fólki hafi
hreinlega blöskrað ágangurinn.
Því hafi verið ákveðið að bregðast
við með fyrrgreindum hætti.
„Ég hef verið í þessu félagi í yfir
40 ár og hef upplifað mikinn
áhuga á því í gegnum tíðina en
þetta er nokkuð sem ég hef aldrei
átt von á,“ segir Hilmar. Hann
bendir á að í byrjun hafi Svein-
björn Beinteinsson, fyrsti allsherj-
argoðinn, verið annar mest ljós-
myndaði Íslendingurinn á eftir
Vigdísi Finnbogadóttur, en áreitið
nú sé enn meira. „Áreitið er því
ekki nýtt en í þessum mæli er það
yfirgengilegt.“
Ásatrúarfélagið
fær ekki frið fyrir
ferðamönnum
Áreitið einnig mikið frá erlendum
fjölmiðlum og fræðimönnum
Morgunblaðið/Arnaldur
Viðbrögð Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði bregst við ágangi.
Skata er karlamatur. Samkvæmt nýrri könnun
MMR eru 42,9% karla jákvæð í garð skötunnar en
28,4% kvenna. Í hópi 18 til 29 ára sögðust 19,8%
ætla að borða skötu en 58% fólks 68 ára og
eldra. Sé horft á mál í stærra samhengi hyggjast
35,8% landsmanna borða skötu í dag, en 42,1%
fyrir tveimur árum.
Vart kemur á óvart að borgarbúar eru minna
hrifnir af þessu fiskmeti en landsbyggðarfólk. Um 45,2% þess síðar-
nefnda kváðust ætla í skötuna á Þorláksmessu, borið saman við um 30%
fólks á höfuðborgarsvæðinu. Þá er stuðningsfólk Bjartrar framtíðar ólík-
legra en það sem styður aðra stjórnmálaflokka til að borða skötu í dag.
Þannig er nærri helmingur framsóknarmanna spenntur fyrir þessu sjáv-
arfangi – og mun borða af bestu lyst.
Framtíð skötu er ekki björt
HÖFUÐBORGARFÓLK VILL KÆSTA FISKINN SÍÐUR EN AÐRIR
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Um leið og maður byrjar að roð-
fletta skötuna gýs ammoníakslyktin
upp og slær fyrir vit. Þetta er óskap-
lega rammt, en svo venst þetta. Í
raun finnst mér þetta vera angan
sjálfra jólanna,“ segir Kári Þór Jó-
hannsson, fisksali í Sjávarfangi á Ísa-
firði. Að undanförnu hefur verið ann-
ríki hjá Kára, sem er eini fisksalinn á
Ísafirði. Á flestum heimilum þar um
slóðir er rík hefð fyrir því að skata sé
á borðum á Þorláksmessu.
Siðurinn á uppruna sinn á Vest-
fjörðum og því þarf fisksalinn að
standa sína plikt. Raunar sendir Kári
skötu til viðskiptavina víða um land
og erlendis – því margir vilja fisk-
metið verkað með vestfirskum hætti.
Sker börð af tindabikkju
Það var í septemberlok sem Kári
hóf að leggja sig eftir skötunni sem
Vestfjarðabátar komu með að landi.
Sú besta er fiskur sem línubátarnir
veiða út af Horni. „Ég tek tinda-
bikkjuna, sker af henni börðin og
legg í kör. Þar kæsist skatan í eigin
safa og lyktin verður æ sterkari eftir
því sem fiskurinn liggur lengur. Fyr-
ir þessa Þorláksmessuvertíð náði ég
einu og hálfu tonni og þetta hefur
rokið út,“ segir Kári. Hann er einnig
í búðinni með hnoðmör sem unninn
er bæði í Hnífsdal og í Dýrafirði, en
mörgum finnst að mörinn skuli skil-
yrðislaust fylgja skötunni.
Ætla má að í dag leggi sterka
skötulykt yfir Eyrina á Ísafirði og
það verður stemning í bænum.
Skötuveisla sú sem slysavarnafélagið
í bænum stendur fyrir er fjölsótt og í
vitund margra hefst jólahátíðin þar
og þá. En síðan er veisla víða á bæj-
um og sjálfur verður fisksalinn í
skötuveislu stórfjölskyldu sinnar,
þar sem 15 til 20 manns mæta. „Það
verður gott að hitta fólkið sitt eftir
vinnudaginn, sem verður vafalaust
langur,“ segir Kári.
Sleppa öllu góðgæti
Í kaþólskum sið var föstutíð fyrir
jólin og átti þá, að því er segir í pistli
á Vísindavef Háskóla Íslands, að
Ljósmynd/Sigurjón J. Sigurðsson
Tindabikkja „Lyktin verður sterkari eftir því sem fiskurinn liggur lengur.“
Eitt og hálft tonn af
tindabikkju á Ísafirði
Mér finnst þetta vera angan jólanna, segir Kári fisksali
Reyktur
og grafinn
lax
Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Samkaup, Sunnubúðin.
• Í forréttinn
• Á veisluborðið
• Í smáréttinn
Alltaf við hæfi
„Það er met já, við vorum með rétt
tæplega 297.000 farþega í fyrra og
295.000 slétt árið þar á undan. Við
höfum verið að bíða eftir þessu og
það tókst í dag þegar við fórum yf-
ir 300.000. Það stefnir í að við för-
um í um 303.000 farþega á árinu,“
segir Gunnlaugur Grettisson,
rekstrarstjóri Herjólfs. Farþegi
númer 300.000 var Guðrún María
Stefánsdóttir og var af því tilefni
leyst út með veglegum gjöfum.
Guðrún María er úr Eyjum og
Gunnlaugur hlær aðspurður hvort
það hefði nokkuð gengið ef einhver
annar en íbúi þar hefði verið sá
300.000. en segir svo að það hafi
verið við hæfi að það skyldi vera
Eyjapæja.
Gjaldskrár Herjólfs hækka um
áramótin um 4,5% til Þorlákshafn-
ar og 1,8% til Landeyjahafnar í
samræmi við ferjuvísitöluna. Gunn-
laugur segir að sú leið hafi verið
farin í stað þess að hækka flatt yfir
til þess að gera hækkanirnar sem
sársaukaminnstar fyrir þá sem
ferðast með Herjólfi árið um kring.
Yfir 300.000 farþeg-
ar með Herjólfi í ár
Gjaldskrár hækka eftir áramót
Átján ára piltur lést í umferðarslysi við bæinn Einarsstaði
í Kræklingahlíð, skammt norðan Akureyrar, síðdegis í
gær. Pilturinn var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri en var
úrskurðaður látinn við komuna þangað. Lögreglan vinnur
að rannsókn málsins en um var að ræða árekstur vöru-
flutningabifreiðar og fólksbíls. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu var ökumaður fólksbílsins sá sem lést og var
hann einn í bílnum. Þrír voru í vöruflutningabifreiðinni og
voru þeir einnig fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri, en meiðsl
þeirra eru sögð minniháttar.
Banaslys við Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á slysstað Mikil hálka var á veginum við Einarsstaði í Kræklingahlíð þegar áreksturinn varð.