Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 6

Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Tugir þúsunda fólks leggja leið sína í kirkjugarða á Þorláksmessu og að- fangadag að vitja leiða látinna ást- vina. Þórsteinn Ragnarsson, for- stjóri Kirkju- garða Reykja- víkurprófasts- dæma, sagði þessa daga vera langannasömustu daga ársins í kirkjugörðunum. Starfsfólk kirkjugarðanna var í gær að und- irbúa móttöku alls þess fjölda sem von er á í dag og á morgun. Undir Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma heyra Fossvogskirkjugarð- ur, Gufuneskirkjugarður, Hóla- vallagarður og Kópavogskirkjugarður. „Fólk kemur í garðana jafnt og þétt allt árið en þessa tvo daga rís toppurinn langhæst og umferðin margfaldast. Margir koma bara einu sinni á ári í kirkjugarð og láta verða af því fyrir jólin,“ sagði Þórsteinn. „Þeir sem eru klókastir fara snemma dags og yfirleitt komast þeir leiðar sinnar greiðlega.“ Starfsmenn kirkjugarðanna verða til taks til að liðsinna fólki og stuðla að því að allt gangi hratt og vel. Starfsmenn verða við í kirkjugörð- unum milli klukkan 9.00 og 15.00 í dag og á morgun, aðfangadag. „Það er bannað að aka inn í Foss- vogskirkjugarð á aðfangadag, nema fyrir þá sem eru hreyfihamlaðir. Þeir verða þá að sýna P-merkið því til sönnunar,“ sagði Þórsteinn. Hann sagði því beint til fólks að það gengi inn í Fossvogskirkjugarð ef það gæti. Ástæðan væri sú hvað garðurinn væri þröngur. Hægt er að leggja bílum bæði við Fossvogskirkju að norðan og við Suðurhlíðaskóla að sunnan og ganga þaðan inn í garðinn. Ekið er inn í Gufuneskirkjugarð frá Hallsvegi að sunnan og út úr garðinum að norð- anverðu. Því er beint til fólks að vera vel búið til fótanna vegna hálku og snjóhrauka sem eru víða um kirkju- garðana. Yfirleitt eru kirkjugarðarnir opnir frá 07.00 til 21.00. Á aðventunni og fram á þrettánda eru þeir opnir allan sólarhringinn. Góð samvinna er á milli kirkjugarðanna og umferð- ardeildar Lögreglu höfuðborg- arsvæðisins, að sögn Þórsteins. Lög- reglan stjórnar umferðinni í kringum kirkjugarðana. Starfsmenn kirkjugarðanna vilja vekja athygli á að mjög hált er í görðunum og þeir sem leggja leið sína þangað eru hvattir til að vera vel búnir til fótanna, segir í tilkynningu. Margir heimsækja kirkjugarðana fyrir jól  Fólk er beðið um að aka ekki inn í Fossvogskirkjugarð Morgunblaðið/Árni Sæberg Kirkjugarður Margir vitja leiða ástvina á Þorláksmessu og aðfangadag. Gott er að mæta tímanlega til að losna við mestu örtröðina. Þórsteinn Ragnarsson BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Yfirstjórn Seðlabanka Íslands vísar til „óvenjulegra aðstæðna“ í kjölfar bankahrunsins í umfjöllun sinni um setningu bráðabirgðaákvæðis vegna gjaldeyrisreglna bankans. Yfirstjórn bankans hefur sent frá sér greinargerð, að beiðni banka- ráðs Seðlabanka Íslands, og er til- efnið bréf Umboðsmanns Alþingis í byrjun október. Eins og komið hefur fram var tilefni bréfs Umboðsmanns kvartanir og ábendingar sem honum höfðu borist vegna framkvæmdar Seðlabankans á umræddum gjald- eyrisreglum og rannsókna á meint- um brotum á reglunum. Tryggvi Gunnarsson, umboðs- maður Alþingis, segir málið til með- ferðar hjá Seðlabankanum. Það sé ekkert nýtt í greinargerðinni sem kalli á viðbrögð hans á þessu stigi. Yfirstjórnin rifjar upp setningu reglnanna í greinargerðinni: „Í þessu sambandi verður einnig að hafa í huga að bráðabirgðaákvæði I var lögfest við afar óvenjulegar að- stæður. Ljóst var að bregðast þurfti með skjótum hætti við aðstæðum, sem e.t.v. var ekki unnt að sjá fyrir að öllu leyti. Þá áttu reglurnar upp- haflega aðeins að gilda tímabundið í sex mánuði, en þegar fyrirsjáanlegt var að fjármagnshöftin yrðu lengur í gildi en ætlað var í upphafi voru reglurnar færðar í lög nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.“ Heimild til að gefa út reglur Yfirstjórn Seðlabankans rifjar upp í greinargerðinni að með lögum númer 134/2008, frá 28. nóvember 2008, hafi bankanum verið veitt heimild með ákvæði til bráðabirgða til að gefa út reglur, að fengnu sam- þykki viðskiptaráðherra til að tak- marka eða stöðva tiltekna flokka fjármagnshreyfinga á milli landa. Yfirstjórn bankans telur svo upp 1. til 6. tölulið 1. mgr. umrædds bráðabirgðaákvæðis, sem og 2. mgr. Með þeim hafi „löggjafinn tekið af- stöðu til þess í meginatriðum hvaða háttsemi gat varðað refsingu.“ Umboðsmaður Alþingis skrifar hins vegar í bréfinu að „reyndin var því … að efnisreglur um hvaða við- skipti væru óheimil og þar með hvaða háttsemi gat leitt til viðurlaga og rannsókna af því tilefni komu fram í reglunum en ekki lögunum“. Umboðsmaður athugaði fram- kvæmd reglnanna í árslok 2010 og taldi þá „vafa á því að þetta fyrir- komulag uppfyllti þær kröfur sem leiða af áðurnefndum reglum um lögbundnar refsiheimildir, og þá sér- staklega um takmarkanir á heimild stjórnvalda til þess að mæla í al- mennum stjórnvaldsfyrirmælum fyrir um að háttsemi sé refsiverð og skýrleika refsiheimilda“. Hann rifj- aði upp að með frumvarpi haustið 2011 hefðu verið sett í lög um gjald- eyrismál „þau efnisákvæði sem þá var að finna í reglum Seðlabanka Ís- lands um gjaldeyrishöftin“. Með því hefði verið brugðist við áðurnefnd- um athugasemdum umboðsmanns. Gaf ekki tilefni til tafa Umboðsmaður vék einnig í bréfi sínu að óvenjulegum aðstæðum eftir hrunið haustið 2008. Þrátt fyrir þær fær hann „ekki séð að tilefni hafi verið til þess að draga það jafn lengi og raunin varð að setja í lög skýrari reglur um meginatriði þeirrar hátt- semi sem gat varðað refsingu ef brotið var gegn gjaldeyrishöftum“. Eins og rakið hefur verið í Morgunblaðinu telja lögmenn aðila í svonefndum Aserta- og Ursus- málum, sem Seðlabankinn kærði fyrir meint brot á gjaldeyris- reglunum, að meðal annars vegna skorts á lögáskildu samþykki ráð- herra hafi gjaldeyrisreglurnar ekki getað talist viðhlítandi refsiheimild. Þá var haft eftir Ólafi Þór Hauks- syni, sérstökum saksóknara, í Morgunblaðinu 9. október að það hefði haft áhrif á hvernig ákæran var byggð upp í Aserta-málinu, ef sú niðurstaða hefði þá verið ljós að lögáskilið samþykki ráðherra hefði ekki legið fyrir við setningu reglna nr. 1130/2008 um gjaldeyrismál. Til upprifjunar óskaði umboðs- maður Alþingis eftir upplýsingum um samþykki ráðherra hjá stjórn- völdum í ársbyrjun 2011. Fram kem- ur í bréfi hans að hann telji sig þá ekki hafa fengið réttar upplýsingar. Sérstakur saksóknari féll vorið 2014 frá þeim hluta ákærunnar í Aserta-málinu sem sneri að reglun- um. Voru þá fjögur og hálft ár liðin síðan mennirnir voru handteknir. Þeir voru svo sýknaðir fyrir Héraðs- dómi Reykjaness 18. desember 2014 vegna þess sem eftir stóð af málinu. Því var áfrýjað til Hæstaréttar. Þórunn Guðmundsdóttir, formað- ur bankaráðs Seðlabanka Íslands, segir bréf Umboðsmanns Alþingis hafa verið til umræðu á fundum ráðsins síðan það var afhent í byrjun október. Fjórir viðtakendur voru að bréfinu; bankaráð Seðlabankans, fjármála- og efnahagsráðherra, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al- þingis og seðlabankastjóri. Höfðu umræddir aðilar frest til 15. apríl 2016 til að svara bréfinu og þá hvort það „hafi orðið tilefni viðbragða af þeirra hálfu og þá hvaða“. Greinargerðin verður skoðuð Í kjölfarið samþykkti bankaráð Seðlabankans að láta gera athugun á framkvæmd gjaldeyrisreglnanna. Spurð um stöðu málsins segir Þórunn utanaðkomandi sérfræðinga munu vinna þessa athugun og hafa nýja greinargerð yfirstjórnar bank- ans til hliðsjónar. Hún segir ekki öruggt að verkinu verði lokið áður en fresturinn rennur út 15. apríl. Vísar til „óvenjulegra aðstæðna“  Yfirstjórn Seðlabankans segir ákvæði í gjaldeyrisreglum hafa mótast undir tímapressu eftir hrun  Umfjöllun stjórnarinnar um skýrleika refsiákvæða er þvert á niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis Morgunblaðið/G.Rúnar Til rannsóknar Framkvæmd Seðlabanka Íslands á gjaldeyrisreglum verður yfirfarin af óháðum sérfræðingum. Þórunn Guðmundsdóttir Tryggvi Gunnarsson Ógleymanleg bók sem heillað hefur lesendur um víða veröld. Hjartnæm dæmisaga um gjafmildi og ást fyrir börn á öllum aldri. Það sem af er árinu hafa nýskrán- ingar ökutækja aukist mjög hér á landi að því er kemur fram í til- kynningu frá Samgöngustofu. Þannig hafa verið skráð rúmlega 18.600 ökutæki í ár í samanburði við tæplega 13.000 á sama tímabili í fyrra. Skráning ökutækis fer fram í nokkrum skrefum sem hefst á for- skráningu þess, en forskráningum hefur fjölgað um tæp 50% á milli ár- anna 2014 og 2015. Í tilkynningunni segir einnig að nú í desember hafi orðið ljóst að mikla samvinnu þyrfti milli bílainn- flytjenda og Samgöngustofu til þess að unnt yrði að forskrá sem flest ökutæki á árinu. Brugðust flestir innflytjendur vel við beiðni þess efnis og gengu mun fyrr frá öllum gögnum en stundum áður. Gott samstarf hefur leitt af sér yfir 1.600 forskráningar í mánuðinum saman- borið við tæplega 1.000 í desember 2014. Mikil fjölgun í nýskráningum ökutækja Morgunblaðið/Árni Sæberg Bílar Forskráningum hefur fjölgað um 50%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.