Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 10

Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hef lengi verið aðteikna og skrifa, bæðiljóð og annað, en ég sam-einaði það allt í byrjun þessa árs þegar ég fór markvisst að gera myndasögur í skólanum, en ég er á öðru ári í Menntaskólanum við Hamrahlíð,“ segir Erna Mist sem sendi nýlega frá sér sína fyrstu bók, Fáfræði, en hún geymir safn af ör- myndasögum. Erna Mist segir mjög misjafnt hvernig hugmyndir að myndasögum komi til sín. „Stundum er þetta eitthvað sem kemur til mín þegar ég ligg uppi í rúmi og get ekki sofnað. Stundum heyri ég fólk segja eitt- hvað skrýtið þegar ég er í sundi, eða einhver sem ég þekki gerir eitthvað eða segir sem kveikir hugmynd.“ Ólst upp við Casper og Gretti Stíllinn hennar Ernu Mistar er einfaldur og minnir nokkuð á stílinn hjá Hugleiki Dagssyni. „Þetta er vissulega kaldhæðnis- legur stíll, en þó ekki eins svartur og hjá Hulla, það er alveg hægt að gefa ömmu sinni mína bók í jólagjöf,“ segir hún og hlær. „Fólkið á mynd- unum var fyrst í mjög einföldum stíl hjá mér, svona Óla prik-karlar, en mér fannst það of líkt Hulla svo ég gerði aðeins mannlegri fígúrur.“ En hvers vegna heitir bókin Fáfræði? „Af því að þessi bók mun kenna fólki mjög lítið, en líka af því að margir brandararnir eru byggðir á fáfræði sem ég verð vitni að í um- hverfi mínu,“ segir Erna Mist sem gerir mikið af því að lesa myndasög- ur annarra. Af íslenskum nefnir hún Hugleik og Lóu, en hún les líka mikið á netinu. „Cyanide and Happiness er í miklu uppáhaldi hjá mér, og alls kon- ar myndasögur aðrar á netinu, þar er mikið framboð og allir að deila slíku efni út um allt á sam- skiptamiðlum.“ Erna Mist ætlar að halda ótrauð áfram í myndasögunum og hún er með aðra bók á leiðinni, Fáfræði 2, sem kemur út í vor. Hugur hennar stend- ur til listnáms í framtíðinni, þótt hún sé ekki búin að ákveða hvort hún einbeiti sér að myndlist eða skap- andi skrifum. Bók Þórodds Bjarnasonar heit- ir Réttarríkið, en í henni eru heldur kaldhæðnislegar myndasögur af sauðkindum, sem margir kannast við af síðum Morgunblaðsins, þar sem þær hafa birst einu sinni í viku undanfarin tæp sex ár. „Ég hef allt- af haft gaman af teiknimyndasögum og ólst upp við myndasögurnar í dagblöðunum, Casper, Gretti, Her- mann og fleiri, sem ég klippti út til að eiga. Viggó viðutan, Ástríkur og Tinni eru líka klassík. Af þeim sem ég sé á netinu kann ég best að meta Richard Crumb, Dinosaur comics, XKCD og fleiri. Ég teiknaði stund- um brandara þegar ég var í Mynd og hand í gamla daga og gerði litla bók í skólanum. En ég hætti nánast alveg að teikna brandara þar til kindin kom til sögunnar, það var þegar ég var heima í rólegheitum með yngsta barninu mínu. Þetta var algerlega sjálfsprottið og hefur ver- ið það síðan.“ Kemur áreynslulaust Orðaleikir einkenna texta Þór- odds í bókinni, enda bjóða orð tengd kindum sannarlega upp á það, eins og ær, kind og fé. En verður hann aldrei uppiskroppa með brandara um þessa einu skepnu? „Nei, reyndar ekki, þó ég haldi það stundum, því ég er að gera ótal margt annað, er í fullri vinnu og með fjölskyldu. Þetta væri geðveiki ef það væri erfitt fyrir mig að búa til brandara um kindur, en þetta kem- ur frekar áreynslulaust. Ég leyfi þessu að gerjast inni í hausnum á mér í viku,“ segir hann og bætir við að það sé ágætt að hafa pressuna sem fylgir því að þurfa að skila ein- umbrandara á viku. Að vera and- styggilegur undir rós Það eru engin mörk þegar unnið er með húmor, það má grínast með nánast allt. Í myndasögum Þórodds Bjarnasonar um kindur er m.a. undirliggjandi ádeila á sauðshátt mannfólksins og fjármálaruglið. Brandararnir hennar Ernu Mistar eru byggðir á fá- fræði sem hún verður vitni að í umhverfi sínu. Elísabet Jökulsdóttir er ólíkindatól og nú hefur hún sent frá sér nýja bók korteri fyrir jól. Bókin heitir Anna á Eyrarbakka og segir frá Önnu sem fer á Eyrarbakka og ætlar að skrifa barnasögu um kvíðann. En það kemur í ljós að hún er sjálf haldin þessum fjanda og þegar lítil stúlka bankar uppá hjá henni með eyra á bakka, fer ýmislegt fullorðinslegt að gerast. Þetta er gamansaga, hrollvekja, Völu- spá, Batmanblað, mannkynssaga, leikrit, þjóðsaga, fréttablað. Bókin er ríkulega skreytt teikningum og aðal- teiknari er Jóhanna Líf Kristjóns- dóttir, ömmustelpa Elísabetar. Einnig eru teikningar eftir Unni Þóru Jökuls- dóttur, systur Elísabetar, sem og eftir hana sjálfa. Jón Óskar hannaði útlit. Bókin fæst hjá höfundi, í Melabúð og á Feisbúkk, í Eymundsson í Austur- stræti og í Bókakaffinu á Selfossi. Ný bók frá Elísabetu Anna fær eyra á bakka Morgunblaðið/Eggert Rithöfundur Elísabet Jökulsdóttir. Kringlunni - 103 Reykjavík - Sími 578 8989 - www.myrinstore.is Óskum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Stór flóamarkaður á vegum Ferðaleikhússins Light Nights verður í dag frá kl. 14-17.30 að Baldursgötu 37, jarðhæð, á horni Lokastígs og Baldursgötu. Þar verður hægt að kaupa nánast allt milli himins og jarðar, jólagjafir, jólaskraut, föt, skó, skrautmuni, sérstaka hluti með sögu og ótal margt fleira. Nú er lag að gera góð kaup fyrir jólin og gleðja með pökkum með óvæntu innihaldi. Allskonar dótarí á flóamarkaði Sérstakir hlutir með sögu ofl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.