Morgunblaðið - 23.12.2015, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.12.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015 Iðnaðareiningar í miklu úrvali Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 Mangójógúrt Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt! • Engin aukefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra • Lífrænn hrásykur Biobú ehf – s. 587 4500 – biobu@biobu.is – biobu.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Ásmundur Friðriksson, alþingis- maður, verður í öðru hlutverki en venjulega á hátíðinni Ferskum vindum í Garði, sem nú stendur yf- ir. Þar er hann á meðal 50 lista- manna af 20 þjóðernum sem taka þátt í þess- ari listahátíð sem er nú haldin í fjórða sinn. Mi- reya Samper er sýningarstjóri hátíðarinnar, sem er haldin annað hvert ár. „Ég er teikn- ari að upplagi og hef haft það áhugamál lengi, sótt fjölda námskeiða og menntað mig í myndlist. Ég var síðast á nám- skeiði núna í haust,“ segir Ás- mundur. „Ég var fyrst í handleiðslu hjá Sigurfinni Sigurfinnssyni sem var teiknikennari í Vestmanneyjum og síðar hjá Páli Steingrímssyni, þeim mikla lífskúnstner, og stofnaði með honum og fleiri góðum mönnum Listafélag Vestmannaeyja,“ segir hann en þetta var uppúr 1970. Ás- mundur stefndi á Myndlista- og handíðaskólann en ekkert varð úr þeim plönum. Rétt fyrir aldamótin fór hann á myndlistarnámskeið og eftir það blossaði bakterían upp að nýju og hann fór að vinna m.a. olíu- málverk en dæmi um verk hans má sjá á vef hátíðarinnar, fresh- winds.com. Til minningar um móður sína Hann hefur þó aldrei pakkað pennanum alveg því hann hefur í um tuttugu ár myndskreytt sín eig- in jólakort. „Ég hef undantekning- arlítið teiknað og málað mín jóla- kort sjálfur,“ segir Ásmundur. Hann er búinn að senda út kortin fyrir jólin. „Í ár er jólakortið mynd sem ég teiknaði af foreldrum mín- um með mig sjálfan eins árs gaml- an,“ segir hann. Hann sendir ekkert endilega jóla- lega mynd heldur segist nota ein- hverja góða mynd sem hafi heppn- ast vel. „Ég hef málað kirkjur, fjöll og ýmislegt,“ segir hann. Myndavalið í ár ræðst af því að móðir hans, Valgerður Erla Ósk- arsdóttir, lést í byrjun nóvember og vildi hann því minnast hennar. Þessi skemmtilega jólakortahefð hefur notið hljómgrunns í vinahópn- um og hafa einhverjir þeirra ramm- að myndirnar inn og hengt upp. „Nú er ég farinn að gera það sjálf- ur,“ segir hann en margar myndir prýða skrifstofu hans í Alþingi. Ásmundur hefur tekið þátt í fjölda samsýninga frá aldamótum en listsýningin í heimabæ hans, Garði, er sú stærsta. „Ég verð þarna amatörinn innan um 50 at- vinnumenn. Þetta er bara eins og íslenskur fótboltamaður fengi að æfa með Manchester United,“ segir Ásmundur sem ætlar að drekka í sig þekkinguna og reynsluna sem hann kemst í tæri við þarna. Ferskir vindar hófust 15. desem- ber og koma listamennirnir á stað- inn til að vinna við listsköpun. Sýn- ingarnar á verkum listamannanna verða síðan opnaðar 9. janúar. „Listafólkið kemur til að skipta um umhverfi og fá nýjar hugmyndir og er oft að gera annað en það er vant að gera,“ segir hann. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin yfir jól og ármót en eitt skiptið fór hún fram yfir hásumarið á bjartasta tímanum. Hann segir að listafólkið fái ekki síður innblástur frá myrkrinu. „Þeim finnst myrkrið og þetta einkennilega veðurfar eig- inlega merkilegra en birtan.“ Ásmundur er nú að vinna að nýj- um verkum fyrir hátíðina. „Ég er með þrjár myndir sem ég er byrj- aður á sem ég ætla að klára,“ segir Ásmundur sem er með fleiri verk í huga sem hann ætlar að vinna að en í þetta sinn einbeitir hann sér að landslagi. Ennfremur verður opnuð yfirlits- sýning á verkum hans í Einarsstofu í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum 6. janúar. Ásmundur gaf síðan út bók- ina Hrekkjalómafélagið - Prakkara- strik og púðurkerlingar fyrir jólin en hann segir þessa áfanga vel við hæfi nú því hann fagnar sextugs- afmæli sínu í janúar. Myndskreytir jólakort  Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, tekur þátt í listahátíðinni Ferskum vindum sem haldin er í Garði Listaverk Síðustu ár hefur Ásmundur einbeitt sér að listinni í meira mæli. Ásmundur Friðriksson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is HS Orka hefur fengið fram- kvæmdaleyfi hjá Grindavíkurbæ til rannsóknaborana í Eldvörpum. Ekki liggur fyrir hvenær það verð- ur nýtt. Hafin er söfnun undir- skrifta á vefnum Avaaz.org þar sem skorað er á Grindavíkurbæ og HS Orku að þyrma Eldvörp- um. HS Orka hefur unnið að rann- sóknum á jarð- hitasvæðinu sem kennt er við gíga- röðina Eldvörp og áformar að bora rannsókna- holur. Þær munu jafnframt nýtast sem vinnsluholur ef til nýtingar kemur. Snertum ekki gígaröðina HS Orka hefur farið í gegn um umhverfismat vegna framkvæmdar- innar og aflað sér nauðsynlegra leyfa, nú síðast framkvæmdaleyfis til rannsóknaborana. Fram kom í umhverfismatsferlinu að helstu um- hverfisáhrif rannsóknanna eru vegna borplana sem raska hraun- inu. Gert er ráð fyrir allt að 5 bor- plönum en ekki er víst að nota þurfi öll. „Verkefnið gengur út á það að rannsaka jarðhitaauðlindina og í góðri samvinnu við Grindavíkurbæ verður þess gætt að snerta ekki við gígaröðinni og skerða hana ekki,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku. Grindavíkurbær og HS Orka leggja ríka áherslu á að hönn- un og frágangur borplana verði með þeim hætti að sem minnst beri á þeim í umhverfinu og að fram- kvæmdin valdi sem minnstu raski. Það er meðal annars gert með því að hafa borplönin sem næst veg- slóða sem þarna liggur um. Fyrir er hola sem Hitaveita Suðurnesja lét bora fyrir rúmlega 30 árum. Háð beiðnum um orkusölu Tilgangur rannsóknanna nú er að auka þekkingu á jarðhitasvæðinu, meta tengsl við jarðhitakerfi Svartsengis og skera úr um hæfi svæðisins til virkjunar. Ásgeir segir að áform um nýtingu svæðisins séu háð niðurstöðum rannsókna og beiðnum um orkusölu til iðnaðar í Helguvík. Hugsanlega verði hafist handa við rannsóknaboranir á kom- andi ári, en hann tekur um leið fram að það taki 5-7 ár að rannsaka svæðið og virkja, komi til þess. Rannsóknaborun í Eldvörpum  Grindavíkurbær hefur veitt HS Orku framkvæmdaleyfi fyrir borun á jarðhitasvæði Eldvarpa  Óákveðið hvenær byrjað verður  Skorað á Grindavíkurbæ og HS Orku að þyrma svæðinu Morgunblaðið/Kristinn Jarðhitarannsóknir Fyrirhugað er að koma fyrir allt að fimm borplönum í Eldvörpum sem eru 5 km frá Svartsengi. Ásgeir Margeirsson Hafin er alþjóðleg undir- skriftasöfnun á vefnum Avaa- z.org gegn framkvæmdum í Eldvörpum. Þeir sem skrifa undir hvetja Grindavíkurbæ til að afturkalla leyfi til tilrauna- borana og HS Orku til að hætta við plön um yfirvofandi framkvæmdir á svæðinu. Þetta er meðal annars rök- stutt með því að mikilvægt sé að svæðið verði óraskað svo núverandi og komandi kyn- slóðir geti notið einstakra upplifana í Eldvörpum. Ásgeir Margeirsson telur mótmælin byggð á röngum forsendum. „Ég held að sumir sem eru á móti viti ekki al- mennilega um hvað þetta snýst. Það hafa verið kynn- ingar í sambandi við umhverf- ismatsferlið en við þurfum kannski að kynna þetta bet- ur,“ segir Ásgeir. Í gær höfðu 1.370 skrifað undir mótmælin en markmiðið er að safna 10 þúsund nöfn- um. Upplifun í Eldvörpum MÓTMÆLI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.