Morgunblaðið - 23.12.2015, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Norræna siglir
í allan vetur
Bókaðu
núna!
Norræna siglir vikulega yfir vetrartímann frá Seyðisfirði til Færeyja og
Danmerkur. Hægt er að bóka ferðir í allan vetur á frábæru verði.
Þeim sem bóka sig er sérstalega bent á að kynna sér vel aukaskilmála vegna vetrarsiglinga.
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
St. Gudmund er ný kirkja norsks
kaþólsks safnaðar sem kenndur er
við Guðmund góða Arason Hóla-
biskup (1161-1237). Sungin verður
messa í kirkjunni í fyrsta sinn á að-
fangadagskvöld. Hún er í Jessheim,
skammt frá Gardermoen flugvelli
við Ósló. Þetta er fyrsta kirkja safn-
aðarins og verður vígð í vor þegar
altarið verður komið á sinn stað.
Á vef kaþólsku kirkjunnar í Nor-
egi (katolsk.no) segir að sveitarfé-
lagið Ullensaker hafi gefið út tíma-
bundið notkunarleyfi vegna
kirkjunnar. Byggingu hennar lauk
fjórum mánuðum á undan áætlun og
var hún afhent 17. desember sl. Í
kirkjuskipinu eru 300 sæti auk 70
sæta með veggjum. Einnig er hægt
að bæta við 80 sætum á kórlofti. Við
kirkjuna er safnaðarheimili.
Íslenskur hornsteinn
Kirkjan er kölluð St. Gudmund á
heimasíðu kaþólsku kirkjunnar í
Noregi. Hai-Nam Vy, sem sér um
fasteignir Óslóar-biskupsdæmis
kaþólsku kirkjunnar, sagði að bisk-
upinn hefði ekki enn lagt blessun
sína yfir að kirkjan bæri formlega
það nafn. Séra Hjalti Þorkelsson,
prestur á Akureyri, sagði að þáver-
andi prestur í Jessheim hefði haft
samband við sig fyrir nokkrum árum
og greint frá því að þeir ætluðu að
helga kirkjuna Guðmundi góða. Það
yrði þá fyrsta kirkjan sem er helguð
íslenska biskupnum.
„Þessi norski prestur spurði mig
hvort ég gæti útvegað þeim stein,
hornstein, úr Hólabyrðu. Ég hafði
samband við Jón A. Baldvinsson, þá-
verandi vígslubiskup á Hólum, og
það var mjög auðsótt. Ég fór að Hól-
um og þeir áttu afgang af steinum
frá því að gert var við Hólakirkju.
Við létum saga steininn til í þeirri
stærð sem þeir óskuðu eftir. Prest-
urinn kom um sumarið og náði í
steininn,“ sagði séra Hjalti. Horn-
steinninn var svo blessaður og lagð-
ur á sinn stað þann 30. október sl.
Guðmundur góði flóttamaður
„Kirkjan er í útjaðri Óslóar.
Presturinn sagði mér að þeir hefðu
orðið sammála um að helga kirkjuna
Guðmundi góða vegna þess að á
þessu svæði byggi fjöldi innflytjenda
og flóttamanna. Guðmundur góði
hefði um tíma verið flóttamaður í
Noregi eftir að hann var hrakinn
héðan.“ Guðmundur góði átti í hörð-
um deilum við hérlenda höfðingja og
var hann rekinn til Noregs þar sem
hann dvaldi í fjögur ár. Einnig var
kapella þarna nálægt á miðöldum
sem var helguð Guðmundi góða.
Hjalti sagði að kafli væri um Guð-
mund góða Hólabiskup í bókinni
Nordiske helgener eftir Nóbels-
verðlaunahöfundinn Sigrid Undset.
Hann sagði það merkilega vera að
Guðmundur góði hefði aldrei verið
tekinn formlega í heilagra manna
tölu hjá kaþólsku kirkjunni. Þess má
geta að viðurnefnið „góði“ merkir
helgur maður. Alþingi Íslendinga
samþykkti að taka þá Þorlák helga
og Jón Ögmundsson í heilagra
manna tölu. Vatíkanið viðurkenndi
seinna helgi Þorláks og útnefndi
hann verndardýrling Íslands.
„Mér skilst að Norðmennirnir hafi
brugðið á það ráð að helga kirkjuna
Guðmundi góða og heilagri Sunnivu
en hún var tekin í heilagra manna
tölu, þótt sumir efist um að hún hafi
nokkurn tíma verið til,“ sagði Hjalti.
Unnið var að því á sínum tíma að fá
Guðmund góða tekinn í heilagra
manna tölu en það lognaðist út af
eftir siðaskipti. Guðmundur góði var
mjög vinsæll á meðal fólks á sinni
tíð.
Í Biskupasögum eru tiltekin mörg
undur og kraftaverk sem áttu að
hafa gerst fyrir hans fyrirbænir.
Hornsteinninn er úr Hólabyrðu
Söfnuður kaþólskra í Jessheim í Noregi er kenndur við Guðmund góða Hólabiskup Messað í
nýrri kirkju safnaðarins á jóladag Óskað var eftir því að hornsteinninn kæmi úr Hólabyrðu
Ljósmynd/www.katolsk.no, birt með leyfi
Kirkja Guðmundar góða St. Gudmund-söfnuður kaþólskra í Jessheim er að taka í notkun nýja kirkju. Á svæðinu
búa margir flóttamenn og hælisleitendur en Guðmundur góði var einmitt flóttamaður í Noregi í fjögur ár.
Friðsúlan í Viðey var tendruð í
fyrrakvöld og mun hún lýsa upp
kvöldhimininn til loka mánaðarins.
Vetrarsólstöður eru þegar sól er
lægst á lofti á norðurhveli jarðar og
dagurinn stystur. Sólhvörfin miðast
við þann tímapunkt þegar norðupóll
jarðar snýr hvað lengst frá sólinni,
en þetta gerðist á fimmta tímanum í
fyrrinótt.
Friðarljósinu hefur verið vel tekið
á þessum dimmu vetrarkvöldum og
er um leið góð áminning um að upp
úr þessu fara dagarnir að lengjast,
segir í frétt frá Reykjavíkurborg.
Ljós Friðarsúlunnar sést vel á
höfuðborgarsvæðinu en einnig má
sjá það í beinni útsendingu á vefsíð-
unni www.imaginepeacetower.com.
Elding býður kvöldferðir tileinkaðar
Friðarsúlunni og baráttu John Len-
nons og Yoko Ono fyrir heimsfriði.
Ef heppnin er með má sjá norður-
ljósin dansa yfir eyjunni og Frið-
arsúlunni.
Siglt er með Eldingu í Frið-
arsúluferðir í tengslum við vetr-
arsólstöður frá Ægisgarði klukkan
18 dagana 28-31. desember. Bókanir
og frekari upplýsngar má nálgast
með því að senda tölvupóst á vid-
ey@elding.is.
Ljósmynd/Bragi Þór Jósefsson
Friðarsúla tendruð
á vetrarsólstöðum
Mun lýsa kvöldhimininn til áramóta
Guðmundur Arason, sem kall-
aður var hinn góði, fæddist í
Hörgárdal 1161. Hann lést á Hól-
um í Hjaltadal 1237 þar sem
hann var biskup á Sturlungaöld,
frá 1203 til dánardags.
Guðmundur var umdeildur og
deildi mjög við veraldlega höfð-
ingja og hélt lögum og málstað
kirkjunnar mjög á lofti.
Mikið orð fór af helgi Guð-
mundar og voru honum þökkuð
ýmis kraftaverk. Hann þótti
bæði mildur og mjúkur maður.
Guðmundur var fenginn til að
vígja jafnt brunna sem björg
víða um landið sem bera nafn
hans enn í dag eins og Gvend-
arbrunnar í Reykjavík og Gvend-
arbrunnur á Hólum.
Guðmundur
góði Arason
HÓLABISKUP
Ljósmynd/Francis Subramaniam
Hornsteinn Óskað var eftir því að hornsteinn kirkjunnar kæmi úr Hóla-
byrðu í Hjaltadal. Hann var lagður þann 30. október síðastliðinn.