Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
tímanlega með
skyrturnar
fyrir jólin
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
ÞVOTTAHÚS – EFNALAUG – DÚKALEIGA
Komdu
Skínandi hrein og strokin skyrta um jólin
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Alþjóðlega fólksflutningastofnunin
(IOM), sagði í gær að rúm milljón
flóttamanna og annarra farand-
manna hefði farið til Evrópu með
ólöglegum hætti það sem af er árinu,
fjórum sinnum fleiri en á síðasta ári.
Fleiri en 972.000 farandmannanna
fóru yfir Miðjarðarhafið, þar af rúm
800.000 frá Tyrklandi til Grikklands.
Um 34.000 manns fóru landleiðina
frá Tyrklandi til Búlgaríu og Grikk-
lands.
Flestir drukknuðu
á leið frá Líbíu
Um helmingur farandmannanna
er frá Sýrlandi, um 20% frá Afgan-
istan og 7% frá Írak, samkvæmt
gögnum Alþjóðlegu fólksflutninga-
stofnunarinnar. Þau byggjast á upp-
lýsingum um skráða farandmenn í
sex aðildarlöndum Evrópusam-
bandsins – Grikklandi, Búlgaríu,
Ítalíu, Spáni, Möltu og Kýpur.
Að sögn stofnunarinnar er talið að
3.695 farandmenn hafi drukknað á
leiðinni yfir hafið á árinu. Flestir
þeirra fórust á leiðinni frá Líbíu til
Ítalíu, eða 2.889 manns. Meira en 700
manns drukknuðu í Eyjahafi á leið-
inni frá Tyrklandi til Grikklands.
Í yfirlýsingu frá IOM og Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóðanna
sagði að meira þyrfti að gera til að
bæta aðstæður flóttamanna, hraða
skráningu þeirra og gera ráðstafanir
til að hægt yrði að bera fyrr kennsl á
þá sem ættu rétt á vernd sem flótta-
menn. „Þetta er prófsteinn á hug-
sjónir okkar Evrópumanna,“ sagði
Kirsty McNeill, talsmaður hjálpar-
samtakanna Save the Children,
Barnaheilla, í Bretlandi. „Þegar
börn deyja við dyraþrep okkar þurf-
um við að grípa til djarfmannlegri
aðgerða. Ekkert annað mál getur
haft meiri forgang.“
Að sögn yfirvalda í Þýskalandi
hefur rúm milljón manna farið þang-
að í ár í því skyni að óska eftir hæli.
Margir þeirra, eða um 40%, eru frá
Albaníu og fleiri löndum á Balkan-
skaga og ekki teknir með í tölum Al-
þjóða fólksflutningastofnunarinnar
og Flóttamannastofnunar Samein-
uðu þjóðanna.
Rúm milljón farand-
manna til Evrópu í ár
Nær 3.700 manns drukknuðu á leiðinni yfir Miðjarðarhafið
AFP
Á flótta Fjölskylda frá Írak í at-
hvarfi fyrir flóttafólk í Hollandi.
Bandaríska geimferðafyrirtækinu
SpaceX tókst að lenda eldflaug heilu
og höldnu í fyrsta skipti á Canaver-
al-höfða í Flórída í fyrradag. Lend-
ingunni var lýst sem tímamóta-
áfanga í tilraun fyrirtækisins til að
draga úr kostnaði og fjársóun með
því að þróa eldflaug sem hægt er að
nota oftar en einu sinni eins og flug-
vélar.
Eldflaug af gerðinni Falcon sneri
aftur til jarðar nokkrum mínútum
eftir að hafa komið geimfari með ell-
efu gervitungl á braut um jörðu.
„Fálkinn er lentur,“ sagði kynnir við
mikinn fögnuð fólks sem fylgdist
með lendingunni í höfuðstöðvum
SpaceX í Hawthorne í Kaliforníu.
Forstjóri fyrirtækisins, auðkýf-
ingurinn Elon Musk, sagði að þetta
væri í fyrsta skipti sem tekist hefði
að lenda eldflaug sem gæti komið
geimfari á braut um jörðu. Hann
bætti við að lendingin væri afrek
sem myndi leiða til „byltingar í
geimferðum“.
SpaceX hafði nokkrum sinnum áð-
ur reynt að lenda Falcon-eldflaug á
pramma á hafi úti en allar tilraun-
irnar misheppnuðust. Fyrir hálfu ári
splundraðist Falcon-eldflaug um
tveimur mínútum eftir að henni var
skotið á loft. Með flauginni eyðilagð-
ist geimfar sem átti að flytja dýr-
mætan farm, meðal annars hátækni-
búnað, í Alþjóðlegu geimstöðina.
Sprengingin var rakin til bilunar í
súrefnistanki en SpaceX tókst að
leysa vandamálið og gera eldflaug-
ina 30% öflugri en fyrri flaugar fyr-
irtækisins, að sögn Musk. Fyrir-
tækið hefur lagt mikið kapp á að
draga úr rekstrarkostnaðinum með
því að þróa eldflaug sem hægt er að
nota oftar en einu sinni.
Mikið var í húfi fyrir SpaceX þar
sem Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, hefur gert samning við
fyrirtækið um að annast flutninga á
förmum í geimstöðina og greiðir fyr-
ir það jafnvirði 210 milljarða króna.
bogi@mbl.is
Heimildir: SpaceX/Space.com/NBC/Jon Ross
Geimferðafyrirtækinu SpaceX tókst í fyrsta skipti að lenda eldflaug
heilu og höldnu í fyrradag
Eldflaug lent í fyrsta skipti
Farmur
Dragon-
geimfar
Tveggja þrepa
eldflaug af gerðinni
Falcon 9
skotið á loft
frá Canaveral-höfða
í Flórída
Áður hafði verið reynt
að lenda eldflaug á
pramma á hafi úti en
það tókst ekki
Fyrsta þrep
losnar af
Hreyflar
koma fyrsta
þrepinu aftur
í lóðrétta
stöðu
Geimfarið flutti
ellefu gervitungl
út í geiminn
Eldflaugin lenti upprétt
á lendingarpalli
Nýtt lendingarsvæði á Canaveral-höfða*
*Svæðið var áður notað til að skjóta eldflaugum í tilraunaskyni
Lendingin sögð
marka tímamót
Gæti leitt til „byltingar í geimferðum“