Morgunblaðið - 23.12.2015, Page 25

Morgunblaðið - 23.12.2015, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015 Opið kl. 10-22 í dag, Þorláksmessu og aðfangadag kl. 10-13. Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 Gjöfin hennar Gjafakort Kígali. AFP. | Frá því að Afríkuríki fengu sjálfstæði á öldinni sem leið hafa margir leiðtogar þeirra knúið fram breytingu á stjórnarskrár- ákvæðum sem takmörkuðu valda- tíma þeirra. Síðasta dæmið er Rú- anda þar sem tillaga um að breyta stjórnarskránni var samþykkt með 98,4% atkvæða í þjóðaratkvæða- greiðslu um helgina. Breytingin ger- ir forseta landsins, Paul Kagame, kleift að gefa kost á sér til endur- kjörs árið 2017 eftir að hafa verið við völd í tvö sjö ára kjörtímabil. Nái hann endurkjöri heldur hann for- setaembættinu í sjö ár til viðbótar og eftir það getur hann gegnt því í tvö fimm ára kjörtímabil. Í níu öðrum löndum hefur þjóðar- leiðtogunum tekist að knýja fram stjórnarskrárbreytingar til að halda völdunum og búist er við að forseti Austur-Kongó fari að dæmi þeirra á næsta ári: Búrúndí: Pierre Nkurunziza forseti var endurkjörinn í júlí sl. í kosning- um sem stjórnarandstaðan sniðgekk vegna deilu um hvort stjórnarskráin heimilaði framboð hans. Deilan leiddi til átaka sem kostuðu hundruð manna lífið og hundruð þúsunda flúðu landið. Simbabve: Ný stjórnarskrá var samþykkt 2013 til að gera Robert Mugabe kleift að gegna forsetaemb- ættinu lengur. Hann hefur verið við völd í 35 ár. Djíbútí: Þing landsins samþykkti stjórnarskrárbreytingu í apríl 2010 til að gera forsetanum, Ismael Omar Guelleh, kleift að bjóða sig fram árið 2011 og aftur á næsta ári. Hann hef- ur verið við völd frá 1999. Alsír: Þingið samþykkti í nóvember 2008 að afnema stjórnarskrárákvæði um að enginn mætti gegna forseta- embætinu lengur en í tvö kjörtíma- bil. Abdelaziz Bouteflika, sem hefur verið við völd frá 1999, var síðan endurkjörinn 2009 og aftur á síðasta ári. Kamerún: Þingið afnam takmörkun á valdatíma forsetans í apríl 2008. Paul Biya, sem komst til valda 1982, var endurkjörinn í október 2011. Úganda: Takmörkun á valdatíma forsetans var afnumin í júlí 2005. Yo- weri Museveni, við völd frá 1986, var síðan endurkjörinn 2006 og 2011. Hann stefnir að endurkjöri á næsta ári. Tsjad: Stjórnarskránni var breytt í júní 2005 eftir umdeilda þjóðar- atkvæðagreiðslu um að afnema ákvæði um að enginn mætti gegna forsetaembættinu lengur en í tvö fimm ára kjörtímabil. Idriss Deby, við völd frá 1990, var endurkjörinn 2006 og aftur 2011. Tógó: Stjórnarskránni var breytt í desember 2002 til að gera forset- anum, Gnassingbe Eyadema, kleift að bjóða sig fram til endurkjörs 2003 eftir að hafa verið við völd frá 1967. Eftir að hann lést í febrúar 2005 heimilaði þingið syni hans að taka við forsetaembættinu. Vestur-Kongó: Stuðningsmenn Denis Sassou Nguesso fögnuðu sigri í þjóðaratkvæði 27. október sl. um breytingu á stjórnarskránni til að gera hann kjörgengan í kosningum á næsta ári. Hann hefur verið við völd í rúm 30 ár. Austur-Kongó: Joseph Kabila tók við forsetaembættinu af föður sínum sem var myrtur í janúar 2001. Talið er að hann reyni að knýja fram stjórnarskrárbreytingu til að hann geti boðið sig fram á næsta ári. Í fjórum löndum Afríku – Búrkína Fasó, Sambíu, Nígeríu og Malaví – hafa leiðtogarnir reynt án árangurs að knýja fram stjórnarskrárbreyt- ingu til að geta haldið lengur um stjórnartaumana. Stjórnarskrá breytt til að halda völdum  Margir þjóðarleiðtogar í Afríku hafa knúið fram stjórnarskrárbreytingu til að gera sér kleift að sitja lengur Þaulsætnir þjóðhöfðingjar í Afríku Tógó Kamerún Tsjad Búrkína Fasó Djíbútí Úganda Rúanda Sambía BúrúndíAustur-Kongó Angóla Simbabve V-Kongó Alsír Malaví Heppnuðust Hafa verið við völd frá Tilraunir til að breyta stjórnarskrá Mistókust Áformaðar Joseph Kabila Hyggur á fram- boð á næsta ári Denis Sassou Nguesso Jose Eduardo dos Santos Vill bjóða sig fram í 3. sinn á næsta ári Blaise Compaore Varð að segja af sér 2014 eftir að hafa verið við völd í 27 ár Faure Gnassingbe Paul Biya 6. kjörtímabil hans hófst 2011 Abdelaziz Bouteflika Idriss Deby Itno Ismael Omar Guelleh Yoweri Museveni Frederick Chiluba Varð að segja af sér 2001 Pierre Nkurunziza Átök blossuðu upp eftir að hann ákvað að bjóða sig fram aftur Paul Kagame Getur boðið sig fram að nýju 2017 eftir að breyting á stjórnar- skránni var samþykkt Bakili Muluzi Var forseti 1994-2004 og reyndi án árangurs að breyta stjórnarskránni til að geta boðið sig fram Robert Mugabe 2000 1999 2005 1999 19802001 1979-92, 1997 1979 2005 1982 1986 1990 XX

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.