Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 26
Heimild: Institute for the Study ofWar, ISW.
Talibanar í Afganistan
100 km
KABÚL
PAKISTAN
ÍRAN
Kunduz
Ghazni
Jalalabad
Herat
Sangin
Bagram-
herflugvöllurinn
Baghlan
AFGANISTAN
HELMAND
Yfirráðasvæði talibana
Svæði þar sem talibanar
njóta trausts stuðnings
Samkvæmt rannsókn
sem hugveitan ISW
birti 10. desember
Svæði þar sem talibanar
njóta ótrausts stuðnings
Talíbanar réðust á bandaríska her-
menn skammt frá Kabúl á mánu-
dag og felldu sex þeirra. Stríðinu í
Afganistan er alls ekki lokið, afg-
anskir stjórnarhermenn hafa und-
anfarna mánuði átt í vök að verjast
vegna fjölmargra árása talíbana.
Akkilesarhæll stjórnarliða er sagð-
ur vera að þeir styðjast ekki við
flugher.
En einnig er ljóst að stjórn
þeirra Ashraf Ghanis forseta og
Abdullah Abdullah, næstráðanda
hans, er afar veik. Fátt bendir til
þess að hún ráði yfirleitt miklu.
Pakistaninn Ahmed Rashid, þekkt-
ur blaðamaður og höfundur bóka
um talíbana, Pakistan og nálæg
ríki, ritar grein í tímaritið Specta-
tor í desember. Hann segir að að-
stoðarhéraðsstjórinn í Helmand
hafi nýlega skrifað athugasemd á
Facebook-síðu Ghanis og beðið um
hjálp gegn talíbönum. Sér hafi ekki
tekist að ná beinu sambandi við
forsetann með öðrum aðferðum.
Lykill að stöðugleika
Rashid segir að ef talíbanar taki
Helmand geti Afganistan orðið nýtt
Sýrland. Stöðugleiki í Afganistan
sé lykillinn að því að hægt verði að
koma á stöðugleika á öllu svæðinu.
„Talíbönum vex ásmegin og aðr-
ir svipaðir hópar stjórna í miklum
hluta landsbyggðarinnar,“ segir
Rashid. „Og þetta – ásamt því að
Ríki íslams [IS] gæti fært út kvíarn-
ar – merkir að ástandið í Afganist-
an er sennilega verra núna en fyrir
innrás erlendu herjanna 2001.
Sáralítið er ritað um þessi mál
vegna þess að flestir vestrænir leið-
togar líta nú á Afganistan sem
gamalt vandamál, viðfangsefni sem
hafi kvalið fyrirrennara þeirra,
vanda sem þeir vilja ekki takast á
við. En þið skuluð búast við því að
heyra meira af Afganistan á næsta
ári vegna þess að slæmt ástand er
að verða miklu verra.“
Rashid segir markmið NATO-
landanna 2001 hafa verið að hrekja
talíbana frá völdum og kom til
valda stöðugri ríkisstjórn. Nóg
væri af hófsömum leiðtogum sem
með smávegis hjálp vestrænna
ríkja myndu tryggja slíka nið-
urstöðu. En nokkur hundruð talíb-
anar hafi nýlega ráðist inn í Kun-
duz, borg með um 300 þúsund íbúa.
Tekið hafi tvær vikur að hrekja þá
á brott. kjon@mbl.is
Gæti orðið annað Sýrland
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Mild og sterk skata
Tindabikkja
Skötustappa tvær
tegundir ( vestfirsk og
hvítlauks stappa)
Saltfiskur
Plokkfiskur
Síldaréttir tvær tegundir
Að sjálfsögðu verða á
boðstólum sjóðandi
heitir hamsar og
hnoðmör, hangiflot,
kartöflur, rófur,
smjör og rúgbrauð.
EFTIRRÉTTUR
Jólagrautur með
rúsínum og kanilsykri
Verð 3.700 kr.*
pr. mann
*Fyrirtæki sem eru í hádegisáskrift hjá okkur,
verð 3.200 kr. verður að panta fyrirfram.
MATSEÐILL
veislulist.is
Vinsamlega pantið tímalega í
síma 555 1810
Skötuveisla 23.des
Í HÁDEGINU Á ÞORLÁKSMESSU
Húsið opnar kl 11:30
Skötuhlaðborð í hádeginu á
Þorláksmessu í veislusal okkar.
Boðið verður upp á skötu fyrir
amlóða upp í fullsterka.
Lengi hefur verið deilt um það hvort
Neanderdalsmenn, sem dóu út fyrir
um 30 þúsund árum, hafi getað talað
eða orðið að láta látbragð, skræki og
urr duga. En alþjóðlegt teymi vís-
indamanna hefur rannsakað vand-
lega steingerð bein úr hálsi eins
frummannsins og notað m.a. rönt-
genmyndir og þrívíddartækni. Þeir
álíta nú mjög líklegt að hann hafi
getað talað, segir í frétt BBC.
Rannsóknin beindist að svo-
nefndu hyoid-beini efst í hálsinum
en það er ekki tengt neinum öðrum
beinum með vöðvum og að því leyti
einstakt. Beinið styður við tungu-
rótina. Staðsetning beinsins í mönn-
um gerir þeim kleift að tala en það
er ekki á alveg sama stað í simp-
önsum og öðrum öpum. Þeir geta
því ekki talað. En 1989 fannst hyoid-
bein, steingert að sjálfsögðu, úr
Neanderdalsmanni og það er mjög
líkt sams konar beini í mannfólki.
Nú hafa tölvumódel sýnt að hann
hafi getað notað þetta bein á svip-
aðan hátt og nútímamenn.
„Margir halda því fram að geta
okkar til að tala sé eitt af þeim
grundvallaratriðum sem gera okkur
mennsk,“ segir einn vísindamann-
anna, Ástralinn Stephen Wroe. „Ef
Neanderdalsmenn áttu sér tungu-
mál voru þeir sannarlega líka
mennskir.“
Yfirleitt er talið að flókið tungu-
mál hafi fyrst byrjað að þróast fyrir
um 100 þúsund árum. En umrætt
hyoid-bein, sem fannst í Kebara-
helli í Ísrael 1989, hefur umbylt
þeim hugmyndum. Neanderdals-
menn eru kenndir við samnefndan
dal í Þýskalandi en þar fundust
steingerðar leifar frummannanna á
19. öld. DNA-rannsóknir sýna að
þeir hafi líklega blandast nokkuð
forfeðrum nútímamanna, Cromagn-
on-mönnum. kjon@mbl.is
Heilmikið spjallað
í Neanderdal?
Kannski gátu frummennirnir talað
Herra heimur Svona gæti fullorðinn
Neanderdalsmaður hafa litið út.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Breskir hermenn hafa verið sendir
til Shorabak-herstöðvarinnar í
Helmand-héraði í Afganistan og
munu aðeins veita ráðgjöf en ekki
taka beinan þátt í bardögum. Liðið
er hluti af mun fjölmennari sveitum
Atlantshafsbandalagsins, NATO.
Bretar hafa enn um 450 hermenn í
landinu. Talíbanar virðast vera að ná
á sitt vald borginni Sangin í Helm-
and en þar eru vopnaðar sveitir lög-
reglumanna og hermenn til varnar.
Liðið er þó í miklum vanda þar
sem talíbanar hafa komið í veg fyrir
alla birgðaflutninga. Vopn og matur
er orðinn af skornum skammti, að
sögn lögreglustjóra sýslunnar, Mo-
hammad Dawood. Talíbanar segjast
nú ráða öllu í Helmand en því neitar
héraðsstjórinn, Merza Khan Rahimi.
„Öryggissveitir okkar eru í Sangin
og það eru átök en svæðið er á okkar
valdi,“ sagði hann. Óljósar fregnir
bárust af stöðu mála í Sangin frá
embættismönnum á staðnum. Sumir
sögðu talíbana þegar hafa lagt hana
undir sig, aðrir að stjórnarliðar verð-
ust enn í lögreglustöð borgarinnar.
Var þetta þess virði?
Bretar voru lengi með mikið lið í
Helmand og þekkja því aðstæður
vel. Sangin var miðstöð um hríð fyrir
allt alþjóðlega herliðið í öllu Afgan-
istan. Ef talíbanar taka hana geta
þeir skorið á flutningaleiðir afganska
hersins til Lashkar Gah, höfuðborg-
ar Helmand. Einnig er mikil ópíum-
framleiðsla í Sangin sem myndi
tryggja þeim öruggar tekjur. Um
900 liðsmenn NATO, þar af um 100
Bretar, féllu í bardögum við talíbana
og aðra vígamenn í Helmand meðan
NATO hafði yfirstjórn baráttunnar
gegn talíbönum á sinni hendi.
Richard Streatfield majór, sem
var hermaður í alls sjö mánuði í
Sangin 2009 og 2010, sagði í viðtali
við BBC að það væru „hrikaleg von-
brigði“ að sjá að borgin væri í hættu
„Ég get ekki neitað því að per-
sónulega fer ég að velta því fyrir mér
hvort þetta hafi verið þess virði,“
sagði Streatfield. Ljóst sé að eitt-
hvað hefur mistekist herfilega fyrst
talíbanar séu nú aftur farnir að ógna
staðnum. Yfirmaður héraðsráðs
Helmand, Muhammad Kareem Atal,
segir að alls hafi um 2.000 liðsmenn
öryggissveita fallið í héraðinu það
sem af er ári.
Talíbanar ógna
á ný mikilvægri
borg í Helmand
Fall hennar yrði mikið áfall fyrir
afganska stjórnarherinn í héraðinu
Óvinsælir stjórnarliðar
» Ekki er víst að auðvelt verði
fyrir talíbana að taka og halda
Sangin. Stjórnarherinn er bet-
ur vopnaður en yfirstjórn hans
er sögð léleg.
» Margir Helmand-búar eru
sagðir vera andvígir stjórn-
arhernum.
» Hann er sakaður um að hafa
staðið fyrir aðgerðum sem
valdið hafi óþarfa tjóni.
Abdullah
Abdullah
Ashram
Ghani