Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 28

Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ríkisútvarpiðhefur tekiðþá afstöðu, ólíkt öllum öðrum fjölmiðlum, að reyna ekki að laga fjárhagsstöðu sína með því að taka til í rekstrinum heldur með því að reka áróður gegn eiganda sín- um á opinberum vettvangi. Á undanförnum vikum og mán- uðum hefur þetta verið mjög áberandi og má teljast með miklum ólíkindum hvernig Rík- isútvarpið gengur fram í bar- áttunni fyrir auknu framlagi frá skattgreiðendum en gerir ekkert til að leggja fram áætl- anir um sparnað í rekstri. Lengi hefur legið fyrir að lögum samkvæmt yrði útvarps- gjaldið lækkað úr 17.800 krón- um á þessu ári í 16.400 krónur á því næsta. Í hefðbundinni rík- isstofnun, og að sjálfsögðu í öll- um öðrum fyrirtækjum sem stæðu frammi fyrir minnkandi tekjum, hefði þetta þýtt að unnið hefði verið að því að laga reksturinn að fyrirsjáanlegum samdrætti tekna. En Ríkis- útvarpið telur að um það eigi að gilda önnur lögmál og fyrir- mæli en þau sem Alþingi gefur. Þess vegna kom það því mið- ur ekki á óvart, að jafnvel þeg- ar langt var liðið á desember og lækkun útvarpsgjalds var að verða að veruleika innan nokk- urra daga, þá svaraði útvarps- stjóri spurningum um fyrirhug- aðar aðgerðir til að mæta minnkandi tekjum á þann veg að ekki væri farið að huga að niðurskurði. Þess í stað fór tími stjórn- enda Ríkisútvarpsins í að reka áróður sinn fyrir auknu ríkis- framlagi í þinginu, gagnvart þingmönnum og ráðherrum og fór sú vinna bæði fram beint og óbeint í gegnum fréttaflutning eins og jafnan tíðkast á þeim bænum. Þetta viðhorf til rekstrar Ríkisútvarpsins og framlags skattgreiðenda er í sama anda og það að Ríkisútvarpið sá aldrei ástæðu til þess í ár að leggja fram sannfærandi rekstraráætlun, sem þó var skilyrði sem ríkisvaldið hafði sett fyrir viðbótarfjárveitingu. Þetta skilyrði var hunsað og áróður og þrýstingur á þing- menn og ráðherra látinn koma í staðinn. Og þessi aðferð dugði, þrátt fyrir að vilji þingmanna meirihlutans og fjárlaganefnd- ar væri skýr um að Rík- isútvarpið skyldi sæta þeirri lækkun útvarpsgjaldsins sem ákveðin hafði verið löngu áður. Stjórnendur Ríkisútvarpsins sluppu við að leggja fram rekstraráætlun um hagræð- ingu og þeir sluppu við að huga að niðurskurði. Þess í stað kom fram tillaga um að útvarps- gjaldið skyldi ekki hækka en skattgreiðendur skyldu í gegnum aðra skatta leggja fram upphæð sem er litlu lægri. Með þrýstingi og pólitískum klækja- brögðum tókst stjórnendum Ríkisútvarpsins þannig að kreista fram tekjur frá ríkinu umfram það sem ætl- að hafði verið og gert var ráð fyrir í lögum. Þrátt fyrir þetta eru stjórn- endur Ríkisútvarpsins ekki fyllilega sáttir, því að þeir hefðu viljað enn meira, eins og alltaf. En er Ríkisútvarpið svona illa haldið á tekjuhlið- inni, eða getur verið að eitt- hvað annað valdi fjárhagsvand- anum? Í athyglisverðri grein eftir Friðrik Friðriksson hagfræð- ing hér í Morgunblaðinu bendir hann á að Ríkisútvarpið hafi „fram að þessu ekki þurft að hafa áhyggjur af sveiflum í gjaldstofninum þar sem fjölgun hefur orðið í greiðendahópnum og tekjur því hækkað án þess að það kæmi rekstri RÚV nokkuð við. Bæði vegna bætts árferðis þar sem fleiri greiða tekjuskatt og fjölgunar í greið- endahópnum vegna breytinga í aldurssamsetningu. Ekki fór hátt á síðustu dög- um þegar Alþingi samþykkti að 92 milljónir aukalega rynnu til RÚV vegna bættrar innheimtu útvarpsgjaldsins (fleiri voru í hópi greiðenda en áætlað var). Hvergi var þessi lottóvinningur settur í það samhengi að hann kæmi til mótvægis við lægri tekjur vegna hagræðingarkröf- unnar. Fram til þessa hefur RÚV því notið góðs af fjölgun greiðenda og fengið aukatekjur undir radar.“ Í áróðri sínum fyrir auknu framlagi skattgreiðenda nefna stjórnendur Ríkisútvapsins aldrei þessi atriði sem fram komu í grein Friðriks. Þeir nefna ekki heldur að ríkið hef- ur ákveðið að afhenda Ríkis- útvarpinu 1,5 til 2 milljarða króna sem gert er ráð fyrir að fáist í tekjur af lóð við hlið út- varpshússins. Hinn „hlutlausi“ miðill, rekinn „í almannaþágu“ og sagður „okkar allra“ er not- aður með öllum tiltækum hætti í einhliða áróður fyrir auknu ríkisframlagi. Nú hlýtur að vera nóg komið. Ekki er lengur hægt að una við það að þessi ríkisstofnun fari sínu fram, hunsi lagafyrirmæli og beygi þingmenn og ráðherra undir vilja sinn. Almenningur kaus ekki stjórnendur Ríkis- útvarpsins til að fara með opin- bert vald og kjörnir fulltrúar verða að standa í lappirnar og hætta að láta fjárlagavaldið frá sér af ótta við áróðurinn. Jafnvel þó að hann sé á stundum hávær. Ríkisútvarpið notar krafta sína í áróður fyrir auknu skattfé í stað þess að laga reksturinn} Ríki í ríkinu Á ður en ég hóf störf hjá Morgun- blaðinu fyrir langa löngu var ég háseti, þá netamaður og loks bátsmaður á togara. Þar sem troll er alla jafna dregið eftir sjávarbotni slæðist stundum eitt og annað upp í það sem þar liggur og er híft upp á þilfar. Mér er til að mynda minnisstætt þegar kvikindi eitt sat fast í belgnum á trollinu við hífingu, ógreinilegt um hvaða skepnu var að ræða, þar sem það var svo rotið og illa út leikið – hugsanlega var það hnýðingur eða hnísa eða jafnvel smávaxinn beinhákarl. Slíkt og þvílíkt kom fyrir, að dauð smáhveli þvældust upp með trollinu, en ég man svo vel eftir þessu at- viki þar sem lyktin af skepnunni var svo slæm þegar við vorum að hreinsa hana úr netinu að múkkar sem flugu nærri skipshliðinni duttu dauðir niður þegar fnykurinn barst út yfir borðstokkinn. Svo hætti ég á sjónum og gleymdi þessu atviki, eða bældi það líklega með mér, en það rifjaðist rækilega upp fyrir mér eitt sinn þar sem ég sat í bankaútibúi á Þor- láksmessu fyrir nokkrum árum og beið eftir afgreiðslu. Þá gaus nefnilega skyndilega upp stækur fnykur, svo stækur að skepnan forðum stóð (lá) ljóslifandi fyrir mér og það hvernig hún var orðin svo rotin að hún lak eig- inlega í gegnum netmöskvana þegar við bösluðum við að hreinsa belginn. Við nánari skoðun kom þó í ljós að lyktin kom af manni sem komið hafi inn í bankann rétt í þessu. Hann var snyrtilega klæddur, í Burberry-frakka að mér sýndist, með leðurhanska og í top notch- skóm. Viðkomandi tók greinilega eftir að allir í bankanum litu til hans og allmargir með ygglibrún því hann lyfti upp höndunum eins og í uppgjöf og sagði stundarhátt svo heyrðist yfir útibúið: „Fyrirgefið þetta. Ég var á gangi upp Laugaveginn þegar vinur minn kom út og lagði höndina á öxlina á mér augnablik til að heilsa mér. Hann var að koma úr skötu- veislu og ég er á leiðinni heim að skipta um föt.“ Nú hefur þú kannski lent í öðru eins, kæri lesandi, og kannski hefur þú meira að segja séð bláma eiturgufunnar liggja yfir Kvosinni þegar gengið er niður Bankastræti í kyrrlátu veðri síðdegis á Þorláksmessu. Þú getur þó tekið gleði þína því vísbendingar eru um að sá dagur muni upp renna að fólk hætti að borða úldinn fisk. Það kom nefnilega fram í könnun markaðsrannsóknafyr- irtækisins MMR í gær að æ færri leggja kæsta skötu sér til munns á Þorláksmessu. Á síðustu fjórum árum hefur hlutfall þeirra sem borða skötu til hátíðabrigða þennan dag þannig minnkað úr 41,8% í 35,8%. Þegar rýnt er í könnunina kemur einnig í ljós að yngra fólk er ólíklegra til að storka bragðlaukunum á þennan hátt en þeir sem fullorðnir eru. Sú stund mun þá kannski renna upp að óhætt verður að heilsa fólki á förnum vegi á Þorláks- messu án þess að þurfa að afklæðast úti á tröppum þegar heim er komið og skilja fötin eftir úti. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Eiturgufa og úldinn fiskur STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslenska djúpborunarverk-efnið hefur verið endurvakið.Fengist hefur styrkur árannsóknaráætlun Evrópu- sambandsins, Horizon 2020, til rannsókna og þróunar á jarðhita- nýtingu á Reykjanesi og í Suður- Frakklandi. Ein af vinnsluholum Reykja- nesvirkjunar verður dýpkuð í 4-5 kílómetra. Tilgangurinn er að sýna fram á að framleiða megi orku úr djúplægum hitakerfum beint eða með örvun. HS Orka leiðir rannsóknaverk- efnið auk þess standa ÍSOR, Lands- virkjun og GEORG – rannsóknar- klasi í jarðhita að verkefninu ásamt þátttakendum frá Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu og Noregi. Styrk- urinn sem fæst á Horizon 2020 er tæpar tuttugu milljónir evra sem svarar til rúmlega 2,8 milljarða ís- lenskra króna. Er þetta stærsti styrkur Horizon sem veittur hefur verið til verkefnis sem Íslendingar stjórna. Um 45% af styrknum, eða um 1,3 milljarðar króna, nýtast beint til rannsókna á Íslandi. Holan dýpkuð í 5 km Styrktímabilið er fjögur ár. Á komandi vori er fyrirhugað að hreinsa 2,5 km djúpa vinnsluholu á Reykjanesi, fóðra með steyptri stál- fóðringu niður fyrir 3 km og dýpka niður í 4-5 km dýpi. Líklegast er að risaborinn Þór hjá Jarðborunum Ís- lands verði notaður. Hann er lang- stærsti bor sem hingað hefur komið. Guðmundur Ómar Friðleifsson, yfirjarðfræðingur hjá HS Orku, segir að vinnslutæknin ráðist af því hvernig jarðhitavökvi finnst á botni bolunnar. Ef unnt verði að vinna yf- irhitaða orkuríka gufu beint verði það fyrsti valkostur. Ef efnasam- setning vökvans reynist ekki viðráð- anleg verði vatni frá yfirborði dælt ofan í holuna til að efla orkuvinnslu í grynnri nærliggjandi holum. Mun niðurdæling og vinnslutilraunir standa næstu tvö árin á eftir borun. „Þetta er mjög áhugavert rann- sóknarverkefni til að kanna hvað er undir jarðhitasvæði, framsækið og metnaðarfullt,“ segir Ásgeir Mar- geirsson, forstjóri HS Orku. „Þess er vænst að þar sé jarðhitavökvi með meiri hita og þrýsting og þar með meira orkuinnihaldi. Það gæti leitt til aukinnar orkuvinnslu með minna flatarmáli og minni umhverf- isáhrifum.“ Franski hluti verkefnisins gengur út á að sýna fram á slíka vinnslu á tveimur stöðum í Suður- Frakklandi þar sem berghiti er mun lægri, eða um 200 gráður en áætlað er að hitinn undir Reykjanesi sé um 500 gráður á 4-5 kílómetra dýpi. Ef lekt í djúpi jarðlögunum á Reykja- nesi eða í Frakklandi reynist ekki nægjanleg verður beitt örvunar- aðgerðum til að auka vatnsleka og er umtalsverður hluti styrksins ætl- aður í þróun og rannsóknir á þeim. Styrkveiting ESB tengist áherslu á endurnýjanlega orkugjafa í Evrópu. Áhugi er á að víkka út nýtingu á jarðhita með því að fara á svæði sem hafa lægra hitastig. Guð- mundur Ómar segir að víðar sé ver- ið að hugsa djúpt, eins og hann tek- ur til orða, meðal annars á Ítalíu, í Japan og á Nýja-Sjálandi og hvatt sé til þess í Bandaríkjunum. Morgunblaðið/RAX Kraftur Ef hægt er að nýta orkuna sem liggur dýpra á jarðhitasvæðunum fæst meiri kraftur úr hverri borholu og hægt að nota færri holur. „Þetta er þróunarverkefni sem miðar að því að kanna hvort ná megi umtalsvert meiri orku upp úr hverri holu með því að bora dýpra,“ segir Guðmundur Ómar Frið- leifsson um tilgang Íslenska djúpborunarverkefnisins (IDDP). Hann vísar til fyrsta hlutans sem var á Kröflu- svæðinu. Á árunum 2008 til 2009 var fyrsta djúpbor- unarholan boruð þar og lenti hún í 900 stiga heitri kviku á 2,1 km dýpi. Þar tókst að sýna fram á að vinna mætti mikla orku úr yfirhitaðri gufu úr berginu rétt of- an við bráðna bergkviku. Landsvirkjun áformar að halda áfram tilraunum með slíka orkuvinnslu þar á næstu árum. „Ef hægt er að endurtaka þetta á öðrum jarðhitasvæðum hér og er- lendis, að fara í háorkuástand, má afla meiri orku og á umhverfisvænni hátt. Hægt verður að dýpka holur eða bora nýjar og síður þarf að breiða úr sér á ný svæði. Þetta er því mikilvæg tilraun til breytingar á orkunýt- ingu,“ segir Guðmundur Ómar. DJÚPBORUNARVERKEFNIÐ Guðmundur Ómar Friðleifsson Mikilvæg tilraun til breytinga Leitað djúpt undir jarðhitasvæðunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.