Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 31

Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum HB-System ABUS kranar í öll verk Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.is Stoðkranar Brúkranar Sveiflukranar Það var snemma sumars 1942 að við Svenni bróðir vorum beðnir um að fara niður að víkum og vitja um netin, eins og það hét hjá okkur á Laxár- bakka, þetta var í lok júní. Fuglar voru í miðju varpi, unaðs- dagar í sveitinni. Við höfðum lengi beðið eft- ir þessu tækifæri, það er að segja, veður alveg eins og við hefðum óskað okkur, þoka, mátulega dimm en vel ratbjart. Við lögðum af stað heima- nað um hádegið, berfættir eins og við vorum vanir ef við ætluðum að lenda í ævintýrum. Það hlakkaði í okkur, loksins. Eins og vanalega löbbuðum við niður með Laxá. Við þurftum að vitja um netin áður en við gleymdum okkur við Glámsflóann. Það var ekki kominn sá tími sem laxinn var geng- inn en nokkrir sjóbirtingar voru í netunum. Laxinn í Laxá kom aldrei fyrr en um miðjan júlí en það var allt- af byrjað að leggja silunganet í byrj- un júní. Við skildum veiðina eftir á góðum stað við hliðið á Sökk og geng- um svo áfram upp með Straumfjarð- ará og fórum svo yfir á brotinu fyrir neðan Hólma. Það hafði verið búið að vera rigninga- laust og því lítið í ánum. Þegar yfir Straum- fjarðará kom löbbuðum við nokkur hundruð metra upp flóann, strax fór að bera á fugla- hreiðrum, voru það að- allega kjóa- og svart- bakshreiður. Svo gengum við fram á ólýs- anlega vin, það voru sökkvandi dý og drulla svo mikil að við urðum að skríða til skiptis yfir og halda í lappirnar hvor á öðrum til að sökkva ekki á kaf. Þarna voru nokk- ur lómshreiður, nokkur flórgoða- hreiður, eitt himbrimahreiður, æð- arhreiður og til að skreyta þetta undur svo voru að minnsta kosti fjög- ur eða fimm óðinshanahreiður. Þetta höfðum við aldrei séð áður og ekkert þessu líkt. Þarna var kominn lykill- inn að öðru enn skemmtilegra undri þegar við vorum iðulega út á hlaði á Laxárbakka á kvöldin á sumrin hljómuðu sífelldir söngvar hjá lóm- unum er þeir voru í varpi. Það getur enginn lýst þessu nema þeir sem hlýtt hafa á. Og í Glámsflóanum hafa þeir orpið, þar hefur verið sá friður sem þeir höfðu á stríðsárunum og þar sungu þeir okkur þann söng sem varð okkur til gleði á sumrin. Oúú, oúú. Eftir allnokkra stund fórum við Svenni bróðir að hugsa til heimferð- ar. Við löbbuðum heim rólega, skrif- uðum lítið upp en geymdum með okkur ferðina. Nú var um að gera að vera trúr og segja ekki frá. En hvar er Glámsflóinn í dag? Ég kom í fyrrasumar í Glámsflóann, þar var hörmungin ein að sjá, grafin hafði verið nokkuð þétt skurðaröð aftur og fram um flóann og allt skraufþurrt og allir fuglar farnir, ekki eitt hreiður. Kannski eitthvað af mófuglahreiðrum, en þau voru mörg miklu nær okkar landi. Glámsflói Eftir Karl Jóhann Ormsson » Þarna voru nokkur lómshreiður, nokkur flórgoðahreiður, eitt himbrimahreiður, æð- arhreiður og til að skreyta þetta undur svo voru að minnsta kosti fjögur eða fimm óðins- hanahreiður. Karl J. Ormsson Höfundur er eldri borgari. Það hefur sýnt sig í skoðanakönnunum síðustu misserin að Sjálfstæðisflokkurinn á langt í land með að ná sínum fyrri styrk. Unga fólkið hefur yf- irgefið Sjálfstæðis- flokkinn og staða hans er verulega slæm í Reykjavík. Einn hóp- ur hefur fram að þessu treyst Sjálfstæðisflokknum. Eldri borgarar hafa sýnt flokknum mikla tryggð og stutt hann í kosningum. Það er því sárt fyrir okkur eldri borgara að horfa uppá framkomuna nú við afgreiðslu fjárlaga. Það svíður undan sparki þingmanna sjálfstæð- ismanna, enda höfðu eldri sjálfstæð- ismenn þá trú allt fram að atkvæða- greiðslu að réttlætið myndi sigra. Það reyndist ekki raunin. Það lítur út fyrir að forysta Sjálfstæðisflokks- ins hafi það sem helsta markmið sitt að hrekja sínu traustu fylgismenn burt úr flokknum. Það er staðreynd að verulega stór hópur innan raða eldri borgara býr við þröngan kost og getur ekki lifað mannsæmandi lífi af þeirri upphæð sem berst í veskið um hver mánaða- mót. Á sínum tíma var eitt helsta mottó Sjálfstæðisflokksins „Gjör rétt, þol ei órétt“. Nú virðist þetta löngu gleymt í hugum forystu flokksins. Meginþorri launafólks fékk leiðrétt- ingu á sínum kjörum afturvirkt frá 1. maí sl. Kjararáð úrskurðaði að þing- menn fengju sína kjarabót afturvirkt frá 1. mars sl. Á meðan þingmenn fá nokkur hundruð þúsund króna í leið- réttingu í sitt veski kemur ekki ein einasta króna í veski eldri borgara. Hvað varð um réttlætiskennd þing- manna Sjálfstæðisflokksins? Hvað með jafnræðisregluna? Ákall til þingmanna Á fundi stjórnar Landssambands eldi borgara var samþykkt að senda ákall til þingmanna áður en at- kvæðagreiðslan fór fram. „Stjórn Landssambands eldri borgara ítrekar fyrri samþykktir um að elli- lífeyrir almannatrygg- inga taki að lágmarki sömu hækkunum og lægstu laun sem samið var um í kjarasamn- ingum síðastliðið vor. Eldri borgarar hafa skilað gifturíku ævi- starfi við að byggja Ís- land og íslenskt sam- félag upp og ákalla þingmenn um að meta það starf að verðleikum við af- greiðslu fjárlaga og fjáraukalaga á yfirstandandi þingi. Landssamband eldri borgara skorar á alþingismenn að greiða því atkvæði sitt að kjör eldri borgara verði bætt í samræmi við hækkun lægstu launa og hækki frá 1. maí á þessu ári eins og laun á almennum markaði. Greiðsla aft- urvirkt frá 1. maí 2015 er réttlæt- ismál því ósanngjarnt er að eldri borgarar séu skildir útundan við að njóta kjarabóta sem þorri almenn- ings hefur þegar notið.“ Vill Sjálfstæðisflokkurinn ekki atkvæðið? Ekki einn einasti þingmaður Sjálf- stæðisflokksins sýndi þá réttlæt- iskennd að greiða atkvæði með aft- urvirkni (Ásmundur Friðriksson sat hjá). Það er með ólíkindum að horfa uppá framkomu þingmanna Sjálf- stæðisflokksins í garð okkar eldri borgara. Ætli Sjálfstæðisflokkurinn áfram að óska eftir stuðningi eldri borgara landsins í kosningum verður flokkurinn að hugsa sinn gang. Eldri borgarar geta ekki endalaust látið sparka í sig. Sparkað í stuðn- ingsmenn Sjálf- stæðisflokksins Eftir Sigurð Jónsson Sigurður Jónsson »Ekki einn einasti þingmaður Sjálf- stæðisflokksins sýndi þá réttlætiskennd að greiða atkvæði með aft- urvirkni Höfundur er formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.