Morgunblaðið - 23.12.2015, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Gjafir fyrir börnin og gæludýrin
fást hjá okkur
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
kíktu í heimsókn
L i f and i v e r s l un
Erum í sama húsi en höfum flutt okkur um nokkur verslunarbil
Verð að
eins
13.900
kr.
Elite
fiskabúr 54 l.
DÚNDUR TILBOÐ
• Ljós og ljósastæði
• Lok
• Dæla
• Hitari
Úrval af fóðri
fyrir flest gæludýr
Það bar við fyrir
margt löngu að á jóla-
nótt í fjárhúsi í Betle-
hem fæddist svein-
barn og var sveipað
klæðum og lagt í jötu
þar, sem ekkert gisti-
rými fyrirfannst í
bænum. Sveinbarnið
var frelsari okkar
Jesú Kristur. Fréttir
af fæðingu barnsins
bárust fljótt út um heimsbyggðina
og vitringa austan að dreif að með
góðar gjafir til handa sveininum
unga svo sem reykelsi, gull og
myrru án eftirsjár.
Um þessi jól eru hér á Íslandi
„vitringar“ þrír ráðherrar fjár-
mála, forsætis og félagsmála, sem
virðast ekki hafa hugarfar vitring-
anna austan að til að bera til elli-
lífeyrisþega þessa lands. Stórum
hópi þessa fólks er ætlað að lifa
við sult og seyru þessi jólin. Hvers
lags mannvonska er hér á ferð-
inni? Það liggur við að komi upp í
hugann skítlegt eðli þegar vitað er
að nægir peningar eru til í þessu
landi, sem bruðlað er með helst í
allar áttir. Ráðherrar nýbúnir að
fá hækkun á laun upp á um 107
þús. á mánuði afturvirkt frá mars
sl. og einnig var hagfræðingi
Seðlabankans nýlega rétt ein-
greiðsla upp á 2-3 milljónir, sem
er svipuð upphæð og eins árs bæt-
ur til ellilífeyrisþega. Allar stéttir,
sem samið hefur verið
við á árinu, hafa feng-
ið hækkanir upp á
tugi prósenta og allt
afturvirkt til helst
ekki skemur en átta
mánaða. Á sama tíma
bítur fjármálaráð-
herra höfuðið af
skömminni og ætlar
ellilífeyrisþegum 9,4%
hækkun og það aðeins
frá næstu áramótum.
Það er vitað að ein-
hver hópur þessa
fólks lifir góðu lífi í anda ráðherr-
ans og hans fylgisveina, sem sagt
er að eigi peninga, eignir og verð-
bréf. Ekki skal það lastað og ekki
nema gott eitt um það að segja að
fólk eigi ofan í sig og á og líði ekki
skort. Alltaf er verið að reyna að
koma því inn hjá ellilífeyrisþegum
hvað þeir hafi það gott og nú síð-
ast var í útreikningum hjá liði
Bjarna Ben í minnisblaði þaðan að
meira hefði verið greitt í bætur til
almannatryggingakerfisins sl. tvö
ár sem nemur 17,1%. Ég geri ekki
meira með þessa útreikninga en
þegar sama fólk síðastliðið haust
vanmat tekjur af bönkunum upp á
litla 30,8 milljarða og flokkaðist
undir „fúsk í fjármálaráðuneyti“.
Sögð er líka sagan af kófdrukkn-
um manni, sem kom heim til sín
eftir hressilegt gleðikvöld og sást
til hans vel fram á næsta dag að
reikna út hvernig það hefði getað
átt sér stað að hann hefði kúkað í
ytri buxurnar en nærbrókin slopp-
ið. Sagan segir að niðurstaða hafi
ekki enn fengist enda notast við
prósentureikning í dæminu.
Sorgarsaga en sönn
Ég spila stundum í hópi ellilíf-
eyrisþega og fyrir nokkru talaði
við mig þar eldri maður og þakk-
aði mér fyrir greinarnar í Mbl. og
sagði. „Ég fæ frá Tryggingastofn-
un 165 þús. kr. á mánuði og þetta
er raunar ekkert líf, það er ekkert
eftir þegar ég er búinn að borga í
húsaleigu 120 þúsund á mánuði og
þá er matur og líf eftir og nátt-
úrlega ýmislegt fleira, sem til fell-
ur. Ég t.d. get aldrei farið neitt á
mannamót, leikhús, kóraskemmt-
anir eða neina aðra tónleika, sem
ég hef haft mjög gaman af. Sárast
þykir mér þó að geta ekki lengur
gefið elsku litlu barnabörnunum
mínum ofurlítinn jólaglaðning.
Þetta er ömurlegt,“ sagði þessi
eldri maður.
Nú vil ég segja við „vitringana“,
þessa þrjá ráðherra ,að í öllum
guðs bænum hættið að sýna okkur
ellilífeyrisþegum einhverjar pró-
sentutölur, sem ekkert mark er á
takandi og þetta og hitt hafi batn-
að svo mikið okkur í hag, ég er
þegar búinn að sýna fram á þær
reikningskúnstir. Þið eruð ekki
það skyni skroppnir að gera ykkur
ekki grein fyrir að 5% af t.d. 185
þús. eru 8.250 kr. en 5% af einni
milljón eru 50 þúsund. þetta er
mjög einfalt. Og nú spyr ég á
hvern hallar? „Það er blússandi
góðæri,“ segir ágætur Steinþór
Landsbankastjóri, „lítið atvinnu-
leysi, mikill kaupmáttur, mikill
hagvöxtur, eignastaða mjög góð og
við erum að lifa góða tíma“. En
þetta dugar ellilífeyrisþegum
skammt nema til komi réttlátar og
stjórnarskrárvarðar bætur aft-
urvirkar og 300 þúsund kr.
2018 eins og láglaunahóp-
arnir
Það er ömurlegt ef sá tími er
aftur að renna upp og líkja má við
þegar kotbændurnir hokruðu, sem
leiguliðar á bújörðum hér áður
fyrr bognir og nær tvöfaldir vegna
erfiðis og jafnvel að blóðið spratt
framundan nöglunum en áttu samt
varla til hnífs og skeiðar.
Ráðherrar! Það eru líka að
koma jól hjá ellilífeyrisþegum
Eftir Hjörleif
Hallgríms » „Sárast þykir mér þó
að geta ekki lengur
gefið elsku litlu barna-
börnunum mínum
ofurlítinn jólaglaðning,“
sagði þessi eldri mað-
ur.“
Hjörleifur Hallgríms
Höfundur er eldri borgari.
Í Bændablaðinu frá
3.12. má lesa frétt frá
markaðsráði kinda-
kjöts, þar sem kynnt
er nýtt vörumerki
undir heitinu „Ís-
lenskt lamb hefur ráf-
að frjálst um landið
síðan 874“, ætlað til að
heilaþvo útlendinga.
Þar er m.a. sagt að
saga kindarinnar á Ís-
landi sé „alveg einstök“. Það er að
vísu hárrétt, því hvergi í heiminum
hefur einni dýrategund tekist eins
vel upp við gróðureyðingu og kind-
inni. Það er alveg einstakt.
Svo er því haldið fram að féð sé
alið á sjálfbæran hátt í „óspjall-
aðri“ náttúru. Þetta eru alveg ótrú-
lega ósvífin ósannindi. Hér er
stærsta manngerða eyðimörk í
Evrópu og þótt víðar væri leitað og
kindin hefur verið, og er enn, notuð
til þess. Þó að gróðri hafi farið fram
þar sem beit er ekki lengur, t.d. í
vegköntum, er langt í land að búið
sé að laga allar skemmdirnar sem
þessi skepna hefur valdið hér á
landi. Enn eru t.d. flestar fjalls-
hlíðar gapandi eyðimörk og flestir
móar gatslitnir, nema þar sem lúp-
ínunni hefur tekist að græða þá
upp. Aðeins 4% gróðurþekjunnar
eru heil, allt hitt mismunandi mikið
götótt.
Þá er því haldið fram að íslenski
fjárstofninn sé „óspilltur“ og „ein-
stakur“. Er þetta ekki alveg dæmi-
gert Íslandsmont? Allt er best hér,
meira að segja kindin! Hver man
ekki eftir kynbótahrútunum sem
fluttir voru til landsins til að lappa
upp á rolluna? Og í kaupbæti feng-
um við riðuna sem enn tröllríður
þessum „óspillta“ fjárstofni. Hvað
um hinn árlega vor-
fjárdauða? Ber hann
vott um góða heilsu
stofnsins?
Í fréttinni er því
haldið fram að kinda-
kjötið sé „þjóðar-
réttur“ okkar. (Eins
og það sé bara mat-
reitt á einn hátt.) Áður
fyrr var ekkert val,
það var ekkert annað
kjöt að hafa, nema þá
helst ögn af hrossa- og
nautakjöti. Kindakjötið er ekki
einu sinni nothæft á jólunum leng-
ur, nema margreykt. Nei, sala
kindakjöts dalar frá ári til árs en
aðrar tegundir kjöts hafa náð vin-
sældum.
Og svo eru nýir samningar við
bændur í kortunum sem ýta undir
umframframleiðslu og meiri ágang
á gróður landsins. Hvar endar
þetta? Jú, sjálfsagt úti í
mýri … sem minnir mig á allan
skurðgröft bænda. Sumir segja að
samanlögð lengd skurðanna nái í
kringum hnöttinn og að aðeins séu
um 14% í notkun.
En aftur til fréttarinnar frá
Markaðsráði kindakjöts. Ég skil
vel að það verði að auglýsa kinda-
kjötið því sala þess fer minnkandi
en ég fer fram á það, við ráðið, að
það noti sannleikann til þess því
það er ósatt að lömbin alist upp á
óspjölluðu landi.
Ósvífin ósann-
indi markaðsráðs
kindakjöts
Eftir Margréti
Jónsdóttur
Margrét Jónsdóttir
» Þá er því haldið fram
að íslenski fjárstofn-
inn sé „óspilltur“ og
„einstakur“.
Höfundur er eftirlaunaþegi
á Akranesi.
Jólin nálgast, oft
kölluð hátíð barnanna
og eiga svo sann-
arlega að vera það,
dýrmæt öllum þeim
sem kærleika og rétt-
læti unna.
Bindindissamtökin
á Íslandi vekja nú eins
og alltaf áður athygli
fólks á þeirri nauðsyn,
þeirri lífsskyldu í
raun, að tryggja það
að víman nái ekki að varpa skugg-
um sínum á þessa miklu hátíð ljóss
og friðar.
Áhrif hvers konar neyzlu vímu-
efna, áfengisins ekki sízt þar sem
það er mikilvirkast, eru skelfileg og
þeirra sér svo alltof víða stað í sam-
félaginu. Þegar básúnað er hversu
þarft það sé að auka svokallað frelsi
er aldrei til skuggahliðanna horft
heldur er eintóna lofgjörðaróður
kveðinn í sífellu.
Á sama tíma erum við ítrekað
minnt á mannlega eymd af vímu-
nnar völdum svo sem í fjölmiðlum
og í bókum og nær alls staðar er
áfengið örlagavaldur sem upphaf
neyzlunnar. Þetta er svo augljóst
en þaggað niður með frelsisskrumi
um ágæti þess að eiga við það fund,
„gleðja mannsins hjarta“ eins og oft
er til vitnað, innistæðulaust glamur
þó.
Það er ákall okkar í Bindindis-
samtökunum til allra að forðast það
að vanhelga jólin með
vímuefnaneyzlu og
auðvelt ætti það öllum
að vera utan þeim því
miður of mörgu sem
hafa orðið vímunnar
viðjum bundnir. Og þó
er það fólk einmitt í
mestri þörf fyrir gleði-
rík jól. Börnin okkar
eiga allt annað skilið en
að jólin þeirra séu með
slíkum skelfingarbrag
sem vímuefnaneyzla
setur oft á samfélagið en þó allra
helzt á nánasta umhverfi hvers og
eins. Gefum börnunum hlýjar og
bjartar minningar um bernskujólin
sín og fáar gjafir þar dýrmætari en
að eiga þær utan allra minninga um
neyzlu áfengis sem og annarra
vímuefna.
Um leið og Bindindissamtökin
IOGT óska íslenzkum fjölskyldum
gleðilegra jóla og gifturíkrar tíðar á
nýju ári heita þau á liðsstyrk ykkar
gegn vímunnar vá alltaf og æv-
inlega. Þá mun bjart yfir bernsku-
myndum komandi ára.
Til heilla
á hátíð ljóssins
Eftir Helga Seljan
Helgi Seljan
» Gefum börnunum
hlýjar og bjartar
minningar um bernsku-
jólin sín
Höfundur er formaður fjölmiðla-
nefndar IOGT.
—með morgunkaffinu