Morgunblaðið - 23.12.2015, Síða 44

Morgunblaðið - 23.12.2015, Síða 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015 Sími: 411 5000 • www.itr.is JÓLASUND ITR.IS SKELLTU ÞÉR Í AFGREIÐSLUTÍMI SUNDSTAÐA UM JÓL OG ÁRAMÓT MÁ FINNA Á Laugarnar í Reykjavík Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Skemmtun, rómantík og ánægjulegar stundir eru framundan. Gefðu þér tíma til að hugsa um hlutina svo þú getir brugðist við með viðeigandi hætti. 20. apríl - 20. maí  Naut Lífið er kennslustofa og þú ert frábær nemandi núna þegar stjörnurnar styrkja at- hyglisgáfuna. Stefnir þú í rétta átt eða hef- urðu sætt þig við stefnumótun einhvers ann- ars? 21. maí - 20. júní  Tvíburar Trúðu nánum vini fyrir innstu draumum þínum og þrám, viðbrögðin gætu komið þér á óvart. Farðu vel með þessa blessun. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft ekki að vera með nein láta- læti í umgengni við aðra. Gleymdu ekki þeim sem lögðu þér lið þegar þér lá mest við. Sýndu þolinmæði. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Eitthvað ólgar innra með þér sem þarf að fá útrás. Vertu léttúðugur og – í guðanna bænum – ekki tala um stjórnmál, siðferði eða smekk. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu ekkert ganga fyrir fjölskyldu þinni því hún er grundvöllur lífs þíns og án hennar værir þú ekki það sem þú ert. Ekki láta þetta slá þig út af laginu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Eina rétta leiðin til að ráðast í stórvirki er að ganga til þeirra með jákvæðu hugarfari. Hefnd er eins og að brenna húsið sitt til að losna við rottu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Að kveðjast felur ekki endilega í sér endalok. Taktu samt vel á móti ráðum ættingja þíns því þau munu reynast þér gott veganesti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Framfarir virðast ekki alltaf skref fram á við. Reyndu að ganga frá lausum end- um áður en þú byrjar á einhverju nýju. Mjög skorinortar reglur auka gróða og ánægju í skapandi verkefnum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Vanalega ertu fullur af eldmóði. Mundu að ekkert fæst án fyrirhafnar og sú vitneskja er lykillinn að velgengni þinni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Eitthvað sem vinur þinn lætur út úr sér nær algerum tökum á þér. Njóttu þess að fólk sé farið að meta þig að verðleikum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú vilt skipuleggja umhverfi þitt en um leið kannt þú að fá félaga þinn eða ein- hvern nákominn upp á móti þér. Sýndu þolin- mæði. Karlinn á Laugaveginum var íjólaskapi þegar ég sá hann rölta upp Skólavörðustíginn og taut- aði fyrir munni sér: „Er kyn þótt ég manninn meti?“ sagði Margrét í sinu fleti: „Hann Bjarni á Tröðum tekur glas oft með glöðum og er góður í hangiketi.“ Í Sögu daganna segir að ekki hafi fundist öruggt dæmi um Þorláks- dýrkun fyrr en árið 1876, þegar Ís- lendingar í Kaupmannahöfn höfðu samkomu á Þorláksmessu. – „Þá var lesið úr nýrri jarteiknabók Þorláks um hjálpræði Frónbúa á hættuslóð- um samtímans og Björn M. Olsen orti níu erinda borðsálm undir lag- inu Svend Tveskæg havde sig en mand. Endar hvert þeirra með áskorun um að heita á Þorlák. Ann- að erindið er á þessa leið: Já, – heitum á þann mæta mann sem mítur bar og fjölmörg undur áður vann um aldirnar. Hann benti forðum bljúgri sjót á betra heim og gladdi hugum hrellda snót og hryggan beim. Vér heitum á Þorlák hinn helga. Enn fremur segir Árni Björnsson í bók sinni að skata, megringar eða stappa hafi þótt fátæklegur matur fyrrum þótt nú þyki hann lostæti, – „ríkismönnum fannst lítilfjörlegt að hafa skötuna stappaða í mörfloti og vildu hafa hana í smjöri“: Skötustappa skömmtuð var í Eyjum allir fengu innan ranns utan Bjarni og konan hans. Bóndinn sjálfur borðaði smér og köku en hans kona ystan graut iðra síðan kenndi þraut. Árni segir skötu hafa verið Þor- láksmessumat með allri ströndinni frá Vestfjörðum og suður fyrir Faxa- flóa. Og bætir við: Þessi vísa úr Vopnafirði lýsir Þorláksmessumat langt utan skötusvæðisins: Á Þorláksdag í matinn minn morkinn fékk ég hákarlinn harðan fiskinn hálfbarinn og hákarlsgrútarbræðinginn. Á sunnudaginn var Davíð Hjálm- ari Haraldssyni boðið í sviðalappa- veislu sem hann lýsir á Leirnum: Í gær var okkur bræðrum boðið til sviðalappaveislu. Við vorum báðir lasnir og lystarlausir en af því að maður fær varla betri mat en sviða- lappir var ekki hægt annað en að þiggja boðið. Við bræðurnir vorum í veislu í gær þótt værum við lasnir af kvefpest og slappir og hökkuðum í okkur hækla og lær sem héngu við fimmtíu vel sviðnar lappir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Þorláki og skötustöppu Í klípu „ÞETTA ER TÁLBEITA. RAUNVERULEGI JÓLASVEINNINN MYNDI HAFA FLEIRI LÍFVERÐI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „FÁÐU ÞÉR SÆTI, UNGI MAÐUR. ÞÚ ERT NÆSTUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... allt sem þú vilt um jólin. GRETTIR, BRÉFIÐ ÞITT TIL JÓLA- SVEINSINS ER FORKASTANLEGT! ÞAÐ ER FULLT AF HÁLF- SANNLEIK OG ALGJÖRUM LYGUM! HVAÐ?! HVERNIG KOMST HÁLF- SANNLEIKUR ÞARNA INN?! ÞAÐ ER ERFITT AÐ TRÚA ÞVÍ AÐ JÓLIN SÉU Á MORGUN! SÍÐASTISÉNS!VIÐ LOKUMEFTIRTÍU MÍNÚTUR! ÞAÐ ER KOMINN TÍMI FYRIR MIG TIL AÐ HEFJA JÓLAINNKAUPIN SEGI ÞAÐ Góðkunningi Víkverja hafði sam-band og var mikið niðri fyrir út af verðlaginu í fríhöfninni í Leifs- stöð. Aldrei þessu vant vildi kunn- inginn að Víkverji léti að sér kveða. Kunningi Víkverja byrjaði á að segja að sér væri fyrirmunað að skilja hvers vegna fríhöfnin héti frí- höfn. Nýlega hefði kunninginn keypt þar hangikjöt fyrir vin erlendis, þrátt fyrir að honum fyndist það „hryllilega dýrt“. Kunninginn býr í Danmörku og taldi að svona væri verðlagið einfaldlega á Íslandi og lét þetta yfir sig ganga. Hugsaði um leið að það hefðu þeir, sem byggju á Ís- landi gert um árabil. x x x Nokkru síðar var kunninginnstaddur á Íslandi aftur og sá þá að sama hangikjöt var til sölu í mörgum verslunum fyrir mun minna fé. Í fríhöfninni kostaði kílóið 3.949 krónur, en 2.798 krónur í Bónusi og um 3.200 krónur í Krónunni. x x x Kunningi Víkverja sagðist bæðireiður og svekktur eftir þessi viðskipti og bætti við að sér hefði fundist að sér bæri skylda til að vara fólk við. x x x Vinur Víkverja hafði einnig orð áþví að hann hefði iðulega keypt frosinn fisk í fríhöfninni, en hefði hætt því þegar hann sá verðið hjá nýjum rekstraraðila. „Finnst virki- lega engum þetta undarlegt og af hverju eru þeir ekki látnir svara fyr- ir þetta?“ spurði kunningi Víkverja. x x x Víkverji verslar í fríhöfninni í ferð-um sínum og hefur nafnsins vegna ávallt staðið í þeirri trú að hann hlyti að vera að gera góð kaup, þótt stundum hafi öðru verið hvíslað að honum. Það á hins vegar greini- lega ekki við í öllum tilfellum. Í frí- höfninni geta neytendur ekki leitað annað, blöskri þeim verðið, og oft eru menn í þeirri stöðu að síðustu forvöð eru að kaupa íslenskar vörur handa vinum og ættingjum í útlönd- um. Hér getur einn komið óorði á alla, en spurningin er hvort kaup- menn í Leifsstöð þurfi að hækka verðið um fjórðung til þess að rekst- urinn beri sig? víkverji@mbl.is Víkverji Guð er ljós og myrkur er alls ekki í honum. (1. Jh. 1.5)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.