Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Friðrik Vignir Stefánsson organisti stendur
fyrir notalegri orgelstund við kertaljós í
Seltjarnarneskirkju í kvöld kl. 22-23. Hann
mun leika jólatónlist eftir Bach, Buxtehude,
Reger og aðra þekkta jólasálma.
Þetta er í 25. skipti sem Friðrik heldur
orgelstund á Þorláksmessukvöld. Sú fyrsta
var haldin í Grundarfjarðarkirkju á Þor-
láksmessu árið 1988 og hefur orgelstundin
verið haldin í Seltjarnarneskirkju frá 2007.
Eygló Rúnarsdóttir messósópran syngur
jólasálma og jólalög á tónleikunum og verð-
ur kirkjan aðeins lýst upp með kertaljósi.
Orgelleikur og söngur við kertaljós
Orgelstund Friðrik Vignir
Matthías Bergsson hefurlifað viðburðaríka æviog komið svo víða viðað hann gæti rétt eins
verið margir menn. Í Munaðarleys-
ingjanum segir Matthías Sigmundi
Erni Rúnarssyni sögu sína og er
frásögnin hröð
og skemmtileg,
þótt ekki hafi líf
hans alltaf verið
dans á rósum.
Bókin hefst á
voðaviðburði
þegar tveggja
mánaða gamall
bróðir Matthías-
ar lætur lífið.
Þessi atburður verður foreldrum
Matthíasar ofviða og fjölskyldan
sundrast. Ekki bætir úr skák að
hann og Ómar bróðir hans halda
jafnvel að þeir hafi átt sök á andlát-
inu og kemur aldrei fram hvort það
er ímyndun drengjanna eða ekki.
Foreldrarnir skilja, móðirin
hverfur til Ameríku og bræðurnir
fara hvor í sína áttina. Matthías fer
úr einum stað í annan, er ýmist hjá
vandalausum eða skyldfólki. Matur
leikur stórt hlutverk og er sérlega
skemmtilegt að lesa hvernig banda-
rískur veislukostur heillar drenginn
unga þegar hann dvelur hjá föður
sínum í nokkra mánuði þar sem
hann vinnur fyrir varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli. Maturinn verð-
ur að tákni fyrir annan heim alls-
nægta og nýjabrums.
Þar sér hann Dwight Eisenho-
wer, sem heimsótti Ísland fyrstur
Bandaríkjaforseta 1955, bregða
fyrir og á einhvers konar frægra-
mannaleikur eftir að verða einn
þráðurinn í margslungnu lífi hans.
Á vegi hans verða Marlene Diet-
rich, Barack Obama, O.J. Simpson
og Axl Rose og eru þá aðeins fáeinir
taldir. „Mér hefur verið líkt við
Forest Gump,“ segir Matthías.
Matthías er fullur af lífskrafti og
athafnaþrá og hefur ferðast víða um
heim. Hann leitar móður sína uppi í
Bandaríkjunum og dvelur þar lengi,
gengur í herinn og heldur á vit æv-
intýra á Havaí.
Í Bandaríkjunum lendir hann
einnig tvívegis í djúpum öldudal,
fyrst þegar hann kemur úr hernum
og aftur þegar hann fer að sinna
bróður sínum sjúkum. Í bókinni er
sagt frá þessum skeiðum í lífi hans,
en þau eru í raun ekki útskýrð. Í
bókinni er sjálfsbjargarviðleitnin
og stoltið aðalsmerki Matthíasar og
kemur það ekki heim og saman við
hvernig hann missir tök á lífi sínu.
Í fyrra skiptið ýjar hann að því að
reynslan úr hernum hafi sett allt úr
skorðum. Vissulega var aginn í
hernum slíkur að jaðrar við
grimmd, en Matthías var vanur erf-
iðisvinnu og aldrei fór hann á víg-
völlinn og upplifði þær blóðsúthell-
ingar, sem gerðu að verkum að
fjöldi hermanna varð aldrei samur.
Í tvígang rífur þessi rótlausi
maður sig hins vegar upp og nær
sér á strik á nýjan leik. Mun-
aðarleysinginn er lipurlega skrifuð
bók þar sem lýst er ævintýralegu
lífi rótlauss heimshornaflakkara,
sem á endanum finnur æskuástina
og hamingjuna í vestfirsku sjáv-
arþorpi.
Höfundurinn „Munaðarleysinginn er lipurlega skrifuð bók þar sem lýst er æv-
intýralegu lífi rótlauss heimshornaflakkara,“ segir gagnrýnandi um ævisögu
Matthíasar Bergssonar sem hér sést með höfundi, Sigmundi Erni Rúnarssyni.
Ævintýralegt lífshlaup
Ævisaga
Munaðarleysinginn – Örlagasaga
Matthíasar Bergssonar bbbmn
Eftir Sigmund Erni Rúnarsson.
Veröld, 2015. Innbundin. 268 bls.
KARL BLÖNDAL
BÆKUR
Lífið er ekki alltaf skemmti-legt og stundum þróastfjölskyldulíf út í ótrúleg-ustu áttir. Þó að fjöl-
skyldan hangi saman af gömlum
vana tvístrast hún. Ágúst Borgþór
Sverrisson lýsir þessari vegferð
ágætlega í bókinni Inn í myrkrið, en
eins og oft vill verða, þegar ástvinir
ganga ekki í takt er endirinn eins og
úr annarri sögu en lagt var upp með.
Fjölskyldufaðirinn Óskar, helsta
persóna sögunnar, lifir tilbreytinga-
lausu lífi vorið 2011, en eiginkonan
Sigrún er orku-
mikil. Bæði fara
sínar eigin leiðir
og þá er ekki von
á góðu.
Ágúst dregur
upp raunsanna
mynd af fjöl-
skyldunni, lífinu,
vinnunni og nán-
asta umhverfi. Óskar dregst inn í
ákveðna atburðarás, eitt leiðir af
öðru og allt í einu verður ekki aftur
snúið. Þarna er eitthvað ekki í lagi,
ókyrrð í sálinni, og Ágúst kemur því
vel til skila.
Sagan heldur ágætlega og spenn-
an er nokkur á stundum, en endirinn
er ekki í takt við það sem á undan er
gengið. Hugsanlega hugsar höf-
undur sér tengingu við liðna tíð en
hvort sem svo er eða ekki virkar
uppgjörið ekki á þessum stað.
Það er kannski lýsandi fyrir heild-
ina að ætla mætti að bókin héti
Myrkrið því fyrstu orð titilsins sjást
mjög ógreinilega á kápu. Það er í
takt við ruglið sem heltekur helstu
persónur.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ágúst Borgþór „Sagan heldur
ágætlega,“ segir um Inn í myrkrið.
Eins og á röngum vegarhelmingi
Skáldsaga
Inn í myrkrið bbbnn
Eftir Ágúst Borgþór Sverrisson.
Draumsýn bókaforlag 2015.
Kilja, 293 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Samfélag þar sem svindl ogsvínarí ráða ríkjum hefurverið yrkisefni margra höf-unda, ekki síst eftir banka-
hrun. Lilja Sigurðardóttir hendir
sér út í þessa ormagryfju með
spennusögunni Gildrunni og kemur
ekki aðeins ósködduð upp heldur
tekst vel til og lofar góðu um fram-
haldið.
Sagan gerist að mestu í Reykjavík
og nágrenni á fjögurra mánaða tíma-
bili frá árslokum 2010 til ársbyrj-
unar 2011. Eitur-
lyfjasmygl er sem
rauður þráður í
gegnum söguna
og síðan eru það
tengsl helstu per-
sóna og áhrif
þeirra á fram-
vinduna.
Spennan er
mikil frá byrjun og helst út í gegn.
Söguþráðurinn heldur vel og per-
sónulýsingar eru nokkrar vel gerð-
ar. Í aðalatriðum er sagan trúverðug
og helstu persónur sömuleiðis.
Vandamálin eru einnig kunnug og
lausnirnar yfirleitt ekki fjarri lagi.
Samt er skautað of létt yfir helstu
erfiðleikana og við það missir sagan
aðeins marks.
Í auglýsingu er bent á að leggja
nafn höfundar á minnið. Það er vel
til fundið vegna þess að Gildran er
góð spennusaga og ætla má að Lilja
Sigurðardóttir eigi eftir að gera enn
betri hluti á þessu sviði.
Morgunblaðið/Eggert
Lilja Rýnir segir Gildru Lilju Sig-
urðardóttur vera góða spennusögu.
Gildra Lilju lofar góðu
Spennusaga
Gildran bbbmn
Eftir Lilju Sigurðardóttur.
JPV-útgáfa 2015. Innbundin, 344 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Njála (Stóra sviðið)
Mið 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 10/1 kl. 20:00 6.k Fim 21/1 kl. 20:00 11.k
Lau 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 13/1 kl. 20:00 7.k Sun 24/1 kl. 20:00
Sun 3/1 kl. 20:00 3.k Fim 14/1 kl. 20:00 8.k Fim 28/1 kl. 20:00 12.k
Mið 6/1 kl. 20:00 4.k Sun 17/1 kl. 20:00 9.k Sun 31/1 kl. 20:00
Fim 7/1 kl. 20:00 5.k Mið 20/1 kl. 20:00 10.k
Njáluhátíð hefst í forsalnum klukkan 18 fyrir hverja sýningu
Hver er hræddur við Virginíu Woolf? (Nýja sviðið)
Fös 15/1 kl. 20:00 Frums. Sun 24/1 kl. 20:00 6.k Fös 5/2 kl. 20:00 11.k
Lau 16/1 kl. 20:00 2.k Fim 28/1 kl. 20:00 7.k Lau 6/2 kl. 20:00 12.k
Sun 17/1 kl. 20:00 3.k Fös 29/1 kl. 20:00 8.k Sun 7/2 kl. 20:00 aukas.
Fim 21/1 kl. 20:00 4.k Lau 30/1 kl. 20:00 aukas. Fim 11/2 kl. 20:00 13.k
Fös 22/1 kl. 20:00 aukas. Sun 31/1 kl. 20:00 9.k
Lau 23/1 kl. 20:00 5.k Fim 4/2 kl. 20:00 10.k
Margverðlaunað meistarastykki
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Fös 15/1 kl. 19:00
Sun 27/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 16/1 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - sýningum lýkur í janúar
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 27/12 kl. 13:00 Sun 3/1 kl. 13:00 Sun 10/1 kl. 13:00
Sýningum lýkur í janúar
Flóð (Litla sviðið)
Fim 21/1 kl. 20:00 Frums. Mið 27/1 kl. 20:00 3.k. Sun 31/1 kl. 20:00 5.k
Sun 24/1 kl. 20:00 2 k. Fim 28/1 kl. 20:00 4.k. Mið 3/2 kl. 20:00 6.k
Nýtt íslenskt verk um snjóflóðið á Flateyri
Sókrates (Litla sviðið)
Sun 27/12 kl. 20:00 Sun 10/1 kl. 20:00 Sun 17/1 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Þri 29/12 kl. 20:00 Lau 9/1 kl. 20:00 Lau 16/1 kl. 20:00
Mið 30/12 kl. 21:00 Fös 15/1 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Lau 23/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn Fim 14/1 kl. 19:30 42.sýn Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn
Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn Sun 24/1 kl. 19:30 43.sýn Lau 13/2 kl. 19:30 48.sýn
Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn Fös 29/1 kl. 19:30 44.sýn Sun 21/2 kl. 19:30 49.sýn
Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn Lau 30/1 kl. 19:30 45.sýn
Sun 10/1 kl. 19:30 41.sýn Fös 5/2 kl. 19:30 46.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 19:30
Frumsýning
Lau 9/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 7/2 kl. 19:30 9.sýn
Sun 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 16/1 kl. 19:30 6.sýn Sun 14/2 kl. 19:30 10.sýn
Sun 3/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 7.sýn
Fös 8/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 31/1 kl. 19:30 8.sýn
Eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar
Um það bil (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 19:30 Frums. Lau 9/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 21/1 kl. 19:30 7.sýn
Sun 3/1 kl. 19:30 2.sýn Fös 15/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 22/1 kl. 19:30 8.sýn
Fös 8/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 6.sýn
Glænýtt verk eftir þekktasta samtímaleikskáld Svía, bráðfyndið og harkalegt í se
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Fim 7/1 kl. 19:30 12. sýn Fös 15/1 kl. 22:30 13.sýn
Mið 13/1 kl. 19:30 aukasýn Fim 21/1 kl. 19:30 15.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Lau 23/1 kl. 13:00 Frums. Lau 6/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 7/2 kl. 13:00 6.sýn
Sun 31/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 6/2 kl. 16:00 5.sýn
Eldfjörug barnasýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 10/1 kl. 14:00 aukasýn Sun 17/1 kl. 14:00 aukasýn
Sun 10/1 kl. 16:00 aukasýn Sun 17/1 kl. 16:00 aukasýn
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu