Morgunblaðið - 23.12.2015, Page 52
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 357. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Lést í slysi í Ártúnsbrekku
2. Banaslys við Einarsstaði
3. Alvarlegt bílslys við Einarsstaði
4. „Mitt eigið Kylie Jenner …“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Söngkonan Sigríður Thorlacius og
söngvarinn Sigurður Guðmundsson
halda tónleika í kvöld kl. 21 á Kex
hosteli og er aðgangur að þeim
ókeypis. Söngtvíeykið kemur fram
með hljómsveit sinni og flytur lög af
jólaplötum sínum, Nú stendur mikið
til og Jólakveðju, auk hátíðarlaga úr
ýmsum áttum.
Siggi og Sigga syngja
saman jólalög á Kex
Björgvin Hall-
dórsson heldur
tvenna tónleika í
dag, þá fyrri á Ís-
lensku hamborg-
arafabrikkunni,
Höfðatorgi kl. 12
og þá seinni í
kvöld í Bæjarbíói í
Hafnarfirði kl. 22. ´
Björgvin hefur verið önnum kafinn
við jólatónleikahald í mánuðinum,
haldið sína árlegu Jólagesti Björgvins
og verið gestur Baggalúts.
Björgvin á fabrikku
og í Bæjarbíói
Rithöfundurinn Gerður Kristný er
höfundur útvarpsþáttar um íslensku
jólasveinana sem fluttur var á út-
varpsstöð breska ríkisútvarpsins,
BBC 3, á laugardaginn var. Gerður
segir bæði sjálf frá sveinunum sem
og ýmsir sérfróðir.
Þátturinn, Yuletide in
the Land of Ice and
Fire, er aðgengilegur
á vef BBC undir
slóðinni www.bbc.-
co.uk-
/programmes/
b06s75pm.
Íslensku jólasvein-
arnir í þætti á BBC
Á fimmtudag (aðfangadagur jóla) Norðaustlæg átt 8-15 m/s og
él, hvassast fyrir austan en þurrt suðvestan- og vestanlands. Kóln-
andi veður, frost 4 til 15 stig síðdegis, kaldast inn til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 10-18 m/s fyrir norðan með snjó-
komu og skafrenningi en heldur hægari vindur og él með kólnandi
veðri.
VEÐUR
Hólmfríður leikur
út samninginn
„Þótt hún sé ekki eld-
gömul þá hefur hún
ákveðna reynslu sem
hún er dugleg að miðla.
Almennt séð er hún rosa-
lega jákvæð og gott að
hafa hana í liðinu,“ segir
Baldur Ingi Jónasson,
þjálfari körfuknattleiks-
liðs Stjörnunnar, um
Rögnu Margréti Brynj-
arsdóttur, leikmann
umferðarinnar í
Dominos-deild
kvenna. »4
Dugleg að miðla reynslu
sinni til samherja
Körfuknattleiksmaðurinn Jón Arnór
Stefánsson er í tíunda skipti á fjórtán
árum í hópi tíu efstu manna í kjöri
Samtaka íþróttafréttamanna á
íþróttamanni ársins. Hann er jafn-
framt tíundi íþróttamaðurinn í sögu
kjörsins sem kemst á tíu manna
listann tíu sinnum eða oftar. Listinn
með nöfnum tíu efstu í kjörinu í ár er
birtur í blaðinu í dag. »2
Jón Arnór er í tíunda
sinn meðal tíu efstu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég reyni að verða við öllum ósk-
um,“ segir Stella Fanney Guð-
mundsdóttir, sem gefur öllum af-
komendum sínum, um 130 manns,
sokka, sem hún prjónar sjálf, í jóla-
gjöf.
Stella er ættuð af Ströndum. Hún
átti níu systkini og byrjaði í föður-
húsum að prjóna. „Við vorum fimm
systurnar og mamma kenndi okkur
snemma að prjóna,“ segir hún. „Ég
hef því prjónað síðan ég var krakki
og nú orðið er þetta nánast það eina
sem ég geri. Maður verður að hafa
eitthvað gott til að dunda sér við.“
Lengst af átti Stella heima í Súða-
vík, þar sem eiginmaðurinn Björn
Jónsson var bóndi og á sjó annað
slagið. Þau eignuðust átta börn og
eru fimm þeirra á lífi. Eftir snjóflóð-
ið 1995 flutti hún suður og hefur bú-
ið í Reykjavík síðan. „Það er nú bara
þannig að ég hef setið og prjónað
þegar ég hef ekki verið að gera ann-
að,“ segir hún. Lætur þess getið að
þegar hún hafi unnið fulla vinnu í
frystihúsinu hafi hún stundum grip-
ið í prjónana á nóttunni. „Ég hef
ekki þurft mikinn svefn í gegnum
tíðina. Ég hvíli mig reyndar stund-
um á prjónum og þríf þá í kringum
mig.“
Fellur aldrei verk úr hendi
Með öðrum orðum þá er Stella
alltaf að. „Ég er vön því,“ segir hún
og leggur áherslu á að alltaf hafi
þurft að fæða og klæða fólkið og það
hafi gengið fyrir öðru. „Það verður
alltaf að hugsa um börnin,“ segir
hún og bætir við að hún lesi tölu-
vert, einkum á nóttunni, þótt sjónin
sé farin að versna, og hlusti á útvarp
og sjónvarp. „Ég þarf ekki að horfa
því ég er orðin svo vön þessu.“
Á árum áður bjó Stella til lopann
en nú segir hún öll aðföng auðveld-
ari. „Það fæst allt orðið í búðunum,
líka lopi,“ segir hún og gerir lítið úr
innkaupunum, sem geta orðið tölu-
vert mikil í einu. „Áður prjónaði ég
alltaf peysur og vesti en nú er ég að-
allega í sokkum,“ segir hún. Bætir
við að afköstin fari eftir dugnaðinum
hverju sinni, hvað hún haldi sér vel
við efnið, en almennt ljúki hún við
par af karlmannssokkum á einum
degi. „Það var skemmtilegast að
prjóna peysurnar.“
Stellu finnst ekki merkilegt að
prjóna hátt í 150 sokkapör á ári.
Hún segist fá aðstoð við að pakka
þeim inn og merkja gjafirnar. „Ég
man nú ekki öll nöfnin enda orðin
gleymin en allt kemst þetta nú til
skila.“ Þá vísar hún til þess að senda
þarf pakka bæði innanlands og utan,
meðal annars til Norðurlandanna og
Bandaríkjanna. „Svo kemur fyrir að
þau fá líka sokka í afmælisgöf.“
Afkomendur Stellu bíða spenntir
eftir gjöfum hennar og oft panta
þeir sérstakt mynstur og liti og þar
fram eftir götunum. „Ég myndi ekki
gera þetta ef það líkaði ekki,“ segir
hún. „Það fá allir ullarsokka frá mér
í jólagjöf og ég held áfram að
prjóna.“
Allir fá sokka frá Stellu
Prjónar gjafir
fyrir um 130
afkomendur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Jólabarn Stella Fanney Guðmundsdóttir er 92 ára og prjónar jólagjafir handa öllum afkomendum.
Jólagjafir Stella er búin að senda flesta pakkana frá sér en ekki alla.
Norska knattspyrnufélagið
Avaldsnes hefur neitað
landsliðskonunni Hólmfríði
Magnúsdóttur um félaga-
skipti og tilkynnt henni að
ætlast sé til þess að hún leiki
með því á komandi keppn-
istímabili, en hún á eitt ár
eftir af samningi sínum.
Hólmfríður hafði í hyggju að
breyta til. Hún segist vera
búin að jafna sig á synjun fé-
lagsins og mæti til æfinga í
byrjun nýs árs. »1