Morgunblaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 26. apríl í 11 nætur Flogið með Icelandair Á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2–11 ára í íbúð með einu svefnherbergi. 99.900 kr. á mann m.v. 2 fullorðna í stúdíói. Án fæðis. *Verð án Vildarpunkta 99.900/109.900 kr. Verð frá og 12.500 Vildarpunktar 89.900 kr.* Tenerife Hótel Tenerife Sur  Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Í gær var haldið upp á að 30 ár eru síðan læknar urðu hluti af áhöfn björgunarþyrlna Landhelgis- gæslunnar Af því tilefni hittust þyrlulæknar, bæði núverandi og fyrrverandi, auk starfsmanna Gæsl- unnar. „Við vorum fjórir sem byrjuðum þetta,“ segir Guðmundur Björnsson læknir en í fyrstu var það hópur unglækna sem sinnti verkefninu og fékk heimild samkvæmt samningi til að fara af vöktum á sjúkrahúsinu. „Þessi mál voru í molum og það var verið að sækja lækna í sloppum og klossum til að fara upp á fjöll. Við ákváðum að skipuleggja vakt og sóttum um fjárveitingu, sem við fengum ekki, þannig að við settum á vakt í sjálfboðavinnu í eitt ár og læknir varð hluti af áhöfninni. Þetta var fljótt að sanna sig.“ 30 ár frá fyrstu þyrlulæknavaktinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Hópur unglækna setti á vakt í sjálfboðavinnu í eitt ár og það var fljótt að sanna sig Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Verkefnið er góðra gjalda vert og í samræmi við framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks. Það virðist hins vegar vera algerlega óundirbúið og tilkynning ráðuneytisins á Þor- láksmessu málamyndagerningur, eintómt loft,“ segir Bergur Þorri Benjamínsson, varaformaður Sjálfs- bjargar og gjaldkeri Öryrkjabanda- lags Íslands, um tilraunaverkefni um að styðja við möguleika fatlaðs fólks til að nýta sér almenningssamgöng- ur. Tilkynnt var um verkefnið á vef velferðarráðuneytisins á Þorláks- messu. Ráða átti starfsmenn til að vinna með fötluðu fólki sem nú notar ferðaþjónustu fatlaðra og skoða hvort það geti í einhverjum mæli nýtt sér almenningssamgöngur. Þá var því lýst yfir að Eygló Harðar- dóttir, félags- og húsnæðismálaráð- herra, hefði ákveðið að veita tvær milljónir króna til verkefnisins. Ekkert samráð Tilkynningin kom starfsfólki og stjórnarfólki Sjálfsbjargar og Ör- yrkjabandalagsins á óvart. Ekkert samráð var haft við þau við undir- búning þessa tilraunaverkefnis. Að því komst Stefán Vilbergsson, starfsmaður Öryrkjabandalagsins, þegar hann fór að grennslast fyrir um málið. Hann hefur litlar eða engar upp- lýsingar fengið frá velferðarráðu- neytinu og Reykjavíkurborg þótt borgin væri tilgreind sem samstarfs- aðili, þrátt fyrir ítrekaðar fyrir- spurnir. Þá fékk hann þau svör frá framkvæmda- stjóra Strætó að verkefnið hefði ekki komið inn á hans borð. Niðurstaða samantektar Stefáns kemur fram í minnisblaði: „Margt bendir til þess að þetta verkefni sé mála- myndagjörningur, enda hefur eng- inn fengið upplýsingar um það sem ætti að koma að því, auk þess að frétt um verkefnið birtist aðeins á vef vel- ferðarráðuneytisins á Þorláks- messu.“ Bergur Þorri tekur fram að hann styðji þetta verkefni en það sé greinilega ekki tilbúið til fram- kvæmdar. Sveitarfélögin auralaus Hann bendir á að hann hafi verið að reyna að koma í framkvæmd öðru verkefni, af svipuðum toga. Teknar verði fyrir þrjár leiðir strætó og þær gerðar sérstaklega aðgengilegar fyr- ir fatlaða, bæði vagnarnir og bið- stöðvarnar. Hann segist vera búinn að gera þrjár atrennur að því. Til hefði staðið að reyna þetta í fyrra- sumar en ekki orðið úr. Sveitarfélög- in beri því við að þau séu auralaus. Hann segir nauðsynlegt að 100% vissa sé fyrir því að biðstöðvar og all- ir vagnar á viðkomandi leið séu að- gengileg. Að öðrum kosti sé ekki til neins að hefja verkefnið. Vanbúið tilraunaverkefni  Forystumenn fatlaðra telja margt benda til þess að verkefni sem velferðarráðu- neytið tilkynnti um fyrir jól sé málamyndagjörningur  Litlar upplýsingar fást Bergur Þorri Benjamínsson Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Samkvæmt bókhaldi Landspítala eru heildarkröfur spítalans vegna sjúklingagjalda nú um 576,2 millj- ónir króna. Þar af eru útistandandi kröfur vegna erlendra ferðamanna um 161,7 m.kr. og þar af eru gjald- fallnar kröfur um 154,2 m.kr. eða tæp 27% heildarkrafna. Ekki fékkst uppgefið hlutfall gjaldfallinna krafna Íslendinga. Kröfur teljast gjaldfallnar þegar þær eru komnar 30 daga yfir gjalddaga. Sigrún Guðjónsdóttir, deild- arsstjóri fjármálasviðs Landspít- alans, segir að hátt hlutfall gjald- fallinn krafna vegna erlendra ferðamanna, sem eru eðli málsins samkvæmt ekki í sjúkratrygg- ingakerfinu, megi skýra með því að gjarnan taki nokkuð langan tíma að fá kröfurnar greiddar í gegnum er- lend sjúkrasamlög. „Það gengur alltaf mun hægar að innheimta er- lendu kröfurnar þar sem þetta fer í gegnum tryggingafélög og annað, “ segir Sigrún. Hún segir stundum erfitt að ná á fólk sem farið er úr landi. Ekki liggja fyrir tölur um það hversu stóran hluta krafna á hend- ur erlendum ferðamönnum þarf að afskrifa en alla jafna þarf að af- skrifa 3-4% krafna í heild að sögn Sigrúnar. „Kröfurnar eru misháar. Hæsta krafan sem ósjúkratryggður ferðamaður hefur fengið er yfir 16 milljónir kr,“ segir Sigrún en sá sjúklingur lá lengi á gjörgæslu. Alþjóðlegir innheimtumenn Innheimtuferli spítalans er þann- ig að allir fá greiðsluseðil og fá 30 daga til að greiða hann. Í kjölfarið er sent áminningarbréf. Sé ekki greitt er sent ítrekunarbréf áður en krafan fer svo til lögfræðings. „Kröfur á íslenskar kennitölur fara á íslenska lögmannsstofu. Erlendar kröfur fara á aðra lögmannsstofu sem er í samstarfi við alþjóðlega innheimtulögmenn,“ segir Sigrún. Ferðamenn greiða seinna Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Erlendir ferðamenn eiga 27% gjaldfallinna krafna.  Ógreidd sjúklinga- gjöld nema 576 millj- ónum króna Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að ráða Ólaf Rúnar Ólafsson, hæsta- réttarlögmann á Akureyri, sem næsta sveitarstjóra. Ólafur tekur við starfinu í vor, en hann er þó mörgum viðfangsefnum þess kunnugur eftir störf í lögmennsku mörg undanfarin ár. Það sem gerir ráðningu Ólafs Rúnars annars athyglisverða er að hann er bróðir Ármanns Kr. Ólafs- sonar, bæjarstjóra í Kópavogi, en báðir eru þeir Akureyringar í húð og hár. „Aðdragandinn að ráðningunni var mjög skammur, aðeins um ein vika. Mér þótt þetta strax mjög spennandi tækifæri til að gera eitthvað nýtt og ég hlakka til nýrra verkefna. Nei, þó að Ármann sé bæjarstjóri hefur það ekkert með það að gera að ég stígi nú inn á þetta sama svið,“ segir Ólafur Rúnar sem er fertugur fjöl- skyldumaður. Auk lögmennsku hefur hann sinnt ýmsum félags- og trún- aðarstörfum og kennslu. Halda ró og leita lausna „Ég veit að Eyfirðingar eru að fá góðan sveitarstjóra,“ segir Ármann Kr. Ólafsson. Spurður um góð ráð til bróður síns í nýju starfi segir Ár- mann það mikilvægt að geta sett sig í spor íbúanna og gleyma ekki upp- runa sínum. „Viðfangsefni í sveit- arstjórnarmálum eru fjölbreytt, en oft flókin og stöðurnar sem uppi eru snúnar. Við þær aðstæður skiptir mestu að halda ró sinni og leita lausna.“ Eftir því sem best er vitað eru systkini ekki annars staðar á landinu í störfum sveitarstjóra. Dæmi í þá áttina eru þó til. Má þar nefna feðg- inin bæjarstjórana Sturlu Böðv- arsson í Stykkishólmi og Ásthildi dóttur hans í Vesturbyggð. Þá eru bæjarstjórar svilarnir Kristinn Jón- asson í Snæfellsbæ og Kjartan Már Kjartansson í Reykjanesbæ. sbs@mbl.is Bræður eru við stjórn- völinn Ármann Kr. Ólafsson  Eyjafjarðarsveit og Kópavogurinn Ólafur Rúnar Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.