Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 6

Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýs- is hf., og stjórnarmaður í Rio Tinto Alcan á Íslandi, viðurkennir það með glöðu geði, að hún hafi verið lurkum lamin eftir að hafa unnið við útskipun á áli í Straums- vík í fyrradag. Hún gefur lítið fyr- ir þær raddir sem gera lítið úr af- köstum útskipunarhóps stjórnenda og stjórnarmanna Rio Tinto. „Það hefur verið gert lítið úr okkur og okkar vinnu. Það urðu engin slys á fólki og magnið sem við lestuðum á miðvikudag var 3.470 tonn af áli af 3.700 mögu- legum,“ sagði Katrín heldur hreykin í samtali í gær. Rannveig stýrði verkinu „Rannveig stýrði þessu verki frá a til ö, alveg snilldarvel og það var þvílíkt kapp í fólkinu sem vann við útskipunina, að það var algjörlega frábært. Ég hef sjáldan orðið þess aðnjótandi að vinna með svona flottri grúppu,“ segir Katrín. Katrín segir að fimmtu- dagurinn hafi verið erfiður, en af- skaplega skemmtilegur dagur. „Þetta er ansi erfið vinna, en gam- an var það og skemmtilegur fé- lagsskapur. Ég syndi flesta morgna og hélt að ég væri í ágætu líkamlegu formi, en hafandi við hliðina á mér manneskju eins og Rannveigu Rist, sem stundar „Boot Camp“ fjórum sinnum í viku, sem eru einhverjar ofur- æfingar, verð ég sennilega eitt- hvað að endurskoða þetta sjálfs- mat mitt! Ég var allan tímann að reyna að halda í við Rannveigu. Ég er þess vegna lurkum lamin í dag,“ segir Katrín. Aðspurð hvort hún telji að hún mæti á nýjan leik í útskipun í næstu viku sagði Katrín: „Við vor- um auðvitað að bjarga verðmæt- um. Allt þetta fólk sem vann þarna í gær er í fullu starfi. En ef þörf krefur, þá er alls ekki úti- lokað að við mætum á bryggjuna á nýjan leik.“ Skipið sem lestað var sigldi frá Straumsvík síðdegis í gær. Skipuðu út 3.470 tonnum Morgunblaðið/Golli Valkyrjur Þær Rannveig Rist, forstjóri ÍSAL, og Katrín Pétursdóttir, for- stjóri Lýsis hf., unnu hörðum höndum við útskipun í Straumsvík.  Lurkum lamin eftir útskipun Telja ástand gatna í borginni viðunandi  Borgarstjóri vill engu svara um holurnar  Fáar kvart- anir borist Reykjavíkurborg  Segjast bregðast skjótt við Morgunblaðið/Golli Viðgerðir Unnið að holufyllingum á Kringlumýrarbraut í Reykjavík. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Borgaryfirvöldum hefur tekist að halda götum Reykjavíkur í við- unandi horfi þrátt fyrir að þær komi nú margar illa undan slæmu tíðar- fari í vetur. Þetta er mat Ámunda Brynjólfssonar, skrifstofustjóra framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg, í samtali við Morgunblaðið. Blaðamaður reyndi í gær að fá viðbrögð Dags B. Eggertssonar borgarstjóra við fréttum af holum og öðrum skemmdum á götum borgarinnar, tjóni á ökutækjum og hættu sem þetta skapar í umferð- inni, en hann vildi ekki svara því hvað borgaryfirvöld væru að gera í málinu og hvernig hann brygðist við gagnrýni sem fram hefur komið og vísaði á embættismanninn. Tíðarfar og niðurskurður Ámundi sagði að hann teldi ástæður fyrir bágu ástandi gatna í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og á þjóðvegum annars vegar erfitt tíðarfar undanfarna tvo vetur og síðan mikill niðurskurður opinberra aðila á fjárveitingum til viðhalds og malbikunar á götum frá hruninu 2008. Þó hefði komið myndarleg fjárveiting til viðhalds í Reykjavík í fyrra, 20% aukning frá fjárveit- ingum fyrri ára. Ámundi sagði að þegar ábend- ingar bærust um holur í götum borgarinnar væri ávallt reynt að bregðast við innan sólarhrings og ráðast í bráðabirgðaviðgerðir. Hægt er að senda ábendingar um holur á vef borgarinnar, en fáar hafa borist. Varðandi gagnrýni FÍB á efni og vinnubrögð við malbikun sagði Ámundi að efnið sem notað væri, mölin og bikið, væri hið sama og undanfarin ár. Í einhverjum til- vikum gæti verið að malbik væri lagt við veðurfarslegar aðstæður sem ekki væru góðar, einkum með tilliti til hitastigs, en malbika þyrfti í þurrki og við þokkalegan hita. Hann taldi að í um 90% tilvika væri verið að malbika við réttar að- stæður, enda væri mest framkvæmt yfir sumartímann. „Ég orða það gjarnan svo að við gætum og myndum alveg þiggja að vera með meiri peninga í malbiks- framkvæmdir,“ sagði Ámundi. Hann sagði að tilvik þar sem borgin yrði að greiða ökumönnum fyrir tjón af völdum holnanna væru afar fá, en staðfesti að bótaskylda mynd- aðist ekki nema áður hafi verið til- kynnt um skemmdir á viðkomandi stað. Ámundi sagði að þegar borgin frétti af alvarlegum holum sem gætu valdið hættu væru sett upp aðvörunarskilti. Ekki væri beðið eftir tilkynningum frá almenningi heldur væru starfsmenn borg- arinnar vakandi fyrir þessu. Þessa dagana væri verktaki á vegum Reykjavíkurborgar að vinna að því að lagfæra verstu skemmdirnar á götunum. „Við leggjum þetta svona upp frá degi til dags, eftir því sem við fréttum af skemmdum og met- um hversu alvarlegar þær eru,“ sagði Ámundi. Mikil aukning umferðar Mikil aukning hefur orðið á um- ferð ökutækja á höfuðborgarsvæð- inu að undanförnu en fé til viðhalds á gatnakerfinu hefur ekki fylgt þeirri aukningu. Samkvæmt telj- urum Vegagerðarinnar jókst um- ferðin um 16,6% frá því í febrúar í fyrra og þar til í febrúar á þessu ári. Aukningin á höfuðborgarsvæð- inu fyrstu tvo mánuði þessa árs er 13,9%, „Svæðið okkar er tilbúið. Það eina sem þarf að gera er að stinga mótinu í samband og halda það,“ segir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, formaður Hestamanna- félagsins Spretts í Kópavogi og Garðabæ. Stjórn Landssambands hestamannafélaga (LH) hefur ákveð- ið að halda landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum árið 2020 og hjá Spretti 2022. Það ár fagnar Sprettur 10 ára afmæli félagsins. Landsmót er haldið á tveggja ára fresti. Í sumar, 27. júní til 3. júlí, verður landsmótið á Hólum í Hjaltadal og tveimur árum síðar á félagssvæði Fáks í Reykjavík. Margt sem stýrir valinu Alls bárust fimm umsóknir um þessi tvö landsmót, árin 2020 og 2022 og sóttu sum félögin um bæði mót- in. Meðal annars sóttu Skagfirðingar og Eyfirðingar um að halda mót. Niðurstaða stjórnar er með þeim fyrirvara að samningar náist við mótshaldara um rekstrarfyrirkomulag mótanna. „Það er mjög margt sem stýrir valinu og við lítum á marga þætti en við nýttum vel þær hugmyndir og ábendingar sem komu upp á ráðstefnu um framtíð landsmóta sem við héldum í haust,“ segir Lárus Ást- mar Hannesson, formaður LH. Tilbúið svæði fyrir landsmót Sveinbjörn segir að Sprettur hafi yfir að ráða full- byggðu svæði sem sé tilbúið fyrir landsmót. „Þar er öll aðstaða eins og best verður á kosið fyrir hesta. Við búum líka yfir miklum húsakynnum,“ segir Sveinbjörn og bendir á nýju Samskipahöllina og Hatt- arvallahöllina sem báðar eru í eigu félagsins, auk þess sem félagið hafi aðgang að Kórnum þegar stór- mót eru haldin. Sprettur stefnir að því að halda landbúnaðarsýn- ingu í Kórnum og bjóða ræktunarbúum að kynna sig þar þegar landsmótið verður haldið. Markmiðið er að stækka mótið út fyrir keppnina sjálfa. helgi@mbl.is / thorunn@mbl.is  Landsmót hestamanna á Hellu 2020 og í Spretti 2022 Morgunblaðið/Styrmir Kári Hópreið Undirbúningur undir landsmótið á Hólum í sumar gengur vel. Miðar seljast vel í forsölu. Það eina sem þarf að gera er að stinga mótinu í samband Héraðsdómur Suðurlands féllst í gær á kröfu lögreglustjórans á Suð- urlandi um að framlengja gæslu- varðhald sakbornings í mansalsmáli í Vík í Mýrdal. Gæsluvarðhaldið átti að renna út í gær en var framlengd um fjórar vikur. Fram kemur í til- kynningu frá lögreglunni á Suður- landi að rannsókn málsins sé mjög umfangsmikil, mann- og tímafrek. Rannsókninni miði vel en þó séu enn margir lausir endar og ógjörningur á þessu stigi að segja til um lok hennar. Maðurinn var handtekinn 18. febrúar vegna gruns um að hann hefði haldið a.m.k. tveimur erlend- um konum í vinnuþrælkun. Áfram gæsluvarðhald vegna mansalsmáls

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.