Morgunblaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Næsta vetur mun Háskólinn í Reykjavík í fyrsta skipti bjóða upp á nám til BSc-gráðu í hagfræði. Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR, segir að tvær áherslulínur verði í boði: hag- fræði og fjármál annars vegar og hagfræði og stjórnun hins vegar. Að sögn Katrínar hafa bæði nem- endur og atvinnulíf kallað eftir nám- inu. „Við höfum skipulagt námslínur sem bjóða upp á hagnýta nálgun við hagfræðina og líkt og í mörgu öðru námi við HR verður áhersla lögð á að tengja saman kennsluna og atvinnu- lífið. Einnig nýtum við okkur að skör- un er við mörg námskeið við- skiptadeildar HR en deildin er fyrir löngu alþjóðlega viðurkennd fyrir að bjóða upp á mjög vandað nám.“ Fólk vildi skilja hrunið Námskeið í hagfræði hafa ætíð ver- ið hluti af námi í viðskiptafræði við háskólann en með nýja náminu bæt- ast við námskeið s.s. á sviði vinnu- markaðshagfræði, leikjafræði og al- þjóðahagfræði. Segir Katrín að fyrsta önnin verði eins við báðar deildirnar. „Nemendur geta því haldið valmögu- leikum sínum opnum í byrjun náms- ins og skipt á milli ef þeir hafa á því áhuga.“ Það virðist sem áhugi á hagfræði hafi aukist til muna á undanförnum árum. Katrín nefnir fjármálahrunið sem sennilega skýringu. „Fólk skildi ekki hvað var að gerast og ég fann mikið fyrir þörf hjá almenningi um að átta sig á hvernig öll þessi ósköp gátu dunið á og hvað væri mögulega í vændum,“ segir hún en bætir við að hagfræði sé líka mun skemmtilegra fag en margir halda. „Hagfræðin gef- ur manni tól og tæki sem nýtast mjög víða, hvort heldur til að stjórna fyr- irtæki, kaupa í matinn eða taka vaxta- ákvarðanir fyrir heilt hagkerfi. Stundum reiðir greinin sig á stærð- fræðileg módel, og stundum gengur hagfræðin út á allt aðrar aðferðir en að reikna flóknar formúlur.“ Skoða allar hliðar Segir Katrín að námið við HR muni gera kröfur til stærðfræði- og tölfræðikunnáttu nemenda, en fagið snúist um margt fleira en spálíkön og Excel-skjöl. „Við reynum að innræta nemendum okkar að horfa á fleiri en eina hlið á hverju máli og hugsa hlut- ina aðeins lengra.“ Við skipulag námsins var m.a. leit- að fyrirmynda í Bretlandi, Bandaríkj- unum og á hinum löndunum á Norð- urlöndunum. Segir Katrín að hagfræðigráða frá HR muni greiða leið nemenda í ýmsar áttir. „BSc- gráðan mun veita góðan undirbúning fyrir framhaldsnám, bæði á sviði hag- fræði eða á öðrum fræðasviðum. Sú góða tölfræði- og stærðfræðiþekking sem nemendurnir fá mun opna þeim margar dyr í námi og starfi, s.s. í fjár- málageira, stjórnsýslu og á ýmsum öðrum stöðum í atvinnulífinu.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Fróð Axel Hall, umsjónarmaður hagfræðinámsins, Friðrik Már Baldursson, Katrín Ólafsdóttir og Eva Lazarczyk Carlson sem munu kenna við deildina. Hagfræði með hagnýtri nálgun  Hagfræðideild stofnuð við HR flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Leikstjóri kvikmyndarinnar Fast 8, F. Gary Gray, er kominn til landsins og birti myndband af sér í Mývatns- sveit á samfélagsmiðlum þar sem hann tilkynnir heiminum að hann hafi ekki hugmynd hvar hann sé staddur í veröldinni. Leikstjórinn er duglegur að mynda sjálfan sig á allskonar farartækjum, meðal ann- ars á sleðamótorhjóli. Gray leik- stýrði síðast myndinni Straight Outta Compton, en hann er einnig þekktur fyrir myndirnar Law Abid- ing Citizen, Be Cool, The Italian Job og The Negotiator. Undirbúningur fyrir Fast 8 stendur nú sem hæst og verður tölu- verð öryggisgæsla við Mývatn þeg- ar framleiðandi myndarinnar og stórstjarnan Vin Diesel kemur til landsins en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður það í næstu viku. Umfang myndarinnar er gríð- arlegt og mun meira en heimamenn eiga að venjast. Oblivion, Game of Thrones og aðrar kvikmyndir hafa ekki lagt sveitina jafn mikið undir sig og Fast 8 gerir. Áætlað er að kvikmyndatökur standi yfir í um átta vikur á Mývatni og verður vatn- ið í einu af aðalhlutverkum mynd- arinnar. Í næstu viku kemur einnig afgangurinn af bílunum, sem notaðir verða í tökum á vatninu. Í þeirri sendingu eru meðal annars fjöl- margir litlir skriðdrekar, brynvarðir Dogde-pallbílar og fleiri stórir og miklir bílar. Í fyrri sendingunni komu meðal annars sjö Subaru Imp- reza-rallbílar og ofursportbíllinn Lamborghini Murcielago, sem leik- stjórinn lék sér á á vatninu og birti myndband af. Vaktað af Securitas Mestallt gistirými í Mývatnssveit er uppbókað vegna myndarinnar en fyrir utan kvikmyndatökuliðið eru fjölmargir ferðamenn í sveitinni. Hefur öryggisþjónustan Securitas vaktað tökusvæðið frá því í síðustu viku og gætt þess að enginn fari inn á svæðið í leyfisleysi. Heimamenn kippa sér þó lítið upp við nýja íbúa. Mun öryggisgæsla fara á næsta stig í næstu viku. Ein stór tilraunasprenging hefur verið fyrir myndina en leyfi hafa verið veitt fyrir stærstu sprengingu í kvikmynd hér á landi á Langa- vatni, sem er miðja vegu frá Mý- vatnssveit til Húsavíkur. Til þess þurfti leyfi Fiskistofu og umsögn Veiðimálastofnunar enda fer fisk- urinn úr Langavatni í ár sem renna í sjálfa Laxá í Aðaldal. Eru framleiðendur með sérstakan íssérfræðing sem hefur það starf að fylgjast með ísnum á Langavatni. Áætlað er að frumsýna Fast and the Furious 8 í apríl 2017 en Fast 7 halaði inn 1,5 milljörðum dala í miðasölu um allan heim. Komst hún á listann yfir tíu mest sóttu kvik- myndir allra tíma. Bensínið stigið í botn á Mývatni  Mikil öryggisgæsla frá og með næstu viku í sveitinni Tryllitæki Leikstjóri kvikmyndarinnar Fast 8, F. Gary Gray, er kominn til landsins. Áætlað er að frumsýna Fast and the Furious 8 í apríl 2017. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Kvikmyndataka Búinn hefur verið til n.k. völlur fyrir bíla við vatnið. Öllum snjó var rutt af svæðinu og það hreinsað. Vatni var síðan sprautað yfir. Á aðalfundi Ferðamála- samtaka Íslands í liðinni viku var samþykkt að slíta starfsemi samtakanna. Ferðamála- samtök Íslands hafa verið sam- starfsvettvangur átta landshluta- samtaka sem unnið hafa að fram- gangi ferðamála hvert á sínu svæði. Fram kemur á vefsíðu Ferða- málastofu að ástæðuna megi rekja til breytinga sem átt hafa sér stað í stuðningskerfi greinarinnar á liðn- um árum og vilja til að einfalda stjórn- og stuðningskerfi grein- arinnar. Lögð er áhersla á mik- ilvægi hlutverks markaðsstofa landshlutanna sem víðast hvar hafa tekið við mörgum þeirra verkefna sem Ferðamálasamtökin höfðu með höndum. Eru stjórnvöld hvött til að standa þétt við bakið á markaðs- stofum landshlutanna. Ferðamálasamtök Íslands lögð niður Ferðamenn Sam- tökin lögð niður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.