Morgunblaðið - 05.03.2016, Síða 18
inga. Hann byrjaði á að endurbyggja
gamla Kaupfélagshúsið í Kvosinni,
eða Plássinu, eins og elsti hluti
þorpsins er nefndur. Síðan bættust
við fleiri byggingar, sem hýsa
Vesturfarasetrið í dag.
Til viðbótar hefur Valgeir komið
að endurgerð fjölda annarra húsa á
Hofsósi og nágrenni og eru þau orð-
in hátt í 30 talsins. Gamla íbúðar-
húsið á Kolkuósi er þeirra á meðal,
þar sem Valgeir rekur ferðaþjón-
ustu ásamt fleirum. Við þessa upp-
byggingu alla hefur hann notið góðs
stuðnings og velvildar stjórnvalda,
heimamanna, fyrirtækja, fé-
lagasamtaka og fleiri aðila.
10-12 þúsund manns á ári
Markmið Vesturfarasetursins var
að segja sögu fólksins sem fór utan
og efla tengslin milli afkomenda
þeirra og frændfólksins á Íslandi.
Frá 1996 hafa nokkrar sýningar ver-
ið uppi, auk þess sem ættfræðiþjón-
usta er starfrækt, bókasafn, íbúð
fyrir fræðimenn og fleira.
Valgeir segir þessi 20 ár hafa ver-
ið skemmtileg. Aðsóknin hefur verið
mjög góð og setrið komið Hofsósi á
ferðamannakortið svo um munar.
Gestafjöldinn hefur að jafnaði verið
10-12 þúsund manns á ári, jafnvel
meiri þegar nýjar sýningar hafa ver-
ið settar upp.
Valgeir segist engar áhyggjur
hafa af því að áhugi á samskiptum
Íslands og Vesturheims muni fara
minnkandi. Vitað sé að fólk almennt
fari ekki að sýna uppruna sínum
áhuga fyrr en eftir fimmtugt, þegar
það hefur komið sér upp fjölskyldu
og á meiri frítíma. Einnig sé áhugi til
staðar hjá yngra fólki sem vilji
mennta sig, bæði hér og í Kanada.
Snorraverkefnið sé gott dæmi um
þetta og einnig starf Þjóðrækn-
isfélagsins við að halda tengslunum
gangandi.
„Við þurfum að svara þessum
áhuga hér heima og ég tel að við eig-
um að gera sérstaklega vel við þenn-
an hóp erlendra ferðamanna sem
kemur til Íslands. Þetta er traustur
hópur sem lætur sig land og þjóð
miklu skipta, fólkinu er ekki sama
um þetta land. Þessi tengsl eru okk-
ur mikilvæg og við verðum að við-
halda þeim,“ segir Valgeir og bendir
á að bættar flugsamgöngur til Kan-
ada og Bandaríkjanna skipti miklu
máli. Þannig hafi komið bylgja
ferðamanna til landsins eftir að Ice-
landair hóf flug til Vancouver.
Eins og kemur fram hér til hliðar
verður efnt til hátíðar í Vancouver á
næsta ári. Valgeir segir mikinn
áhuga á vesturströndinni líkt og í
Winnipeg og Manitoba.
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þegar ég byrjaði í þessu 1996
heyrði ég að áhugi á samskiptum við
Vesturheim væri að líða undir lok
með kynslóð þess fólks sem þá var
orðið fullorðið og að enginn myndi
taka við. Það reyndist síðan sem bet-
ur fer ekki rétt. Eftir því sem við
sinnum þessum samskiptum betur
því öflugri verður áhuginn og hann
lifir lengur. Ef við gerum ekki neitt,
þá er þetta fljótt að þynnast út,“ seg-
ir Valgeir Þorvaldsson, forstöðu-
maður og stofnandi Vesturfara-
setursins á Hofsósi, en setrið fagnar
20 ára afmæli sínu á þessu ári. Af því
tilefni verður mikið um dýrðir í ár og
á næsta ári.
Tengslin verði sýnileg fólki
„Með því að setja upp nýjar sýn-
ingar vekjum við athygli á málefn-
inu. Þá viðhelst áhuginn, ekki bara í
Vesturheimi, heldur einnig hér á
landi. Þetta gengur í báðar áttir. Við
þurfum að hafa tengslin myndræn
og sýnileg fólki. Þess vegna er frá-
bært að fá tækifæri til að Vestur-
heimsvæða Hörpu og gera þessa
sögu sýnilega hér í húsinu,“ segir
Valgeir, sem mættur var í Hörpu í
gær til að undirbúa sýningu sem
verður opnuð á afmælishátíð í tón-
listar- og ráðstefnuhúsinu sunnu-
daginn 13. mars næstkomandi.
Um er að ræða sýninguna Þögul
leiftur, sem hefur verið uppi á setr-
inu á Hofsósi nokkur undanfarin ár.
Sýningin hefur að geyma um 400
ljósmyndir af fólki sem voru á meðal
þeirra tugþúsunda Íslendinga sem
fluttust til Norður-Ameríku á árun-
um 1870 til 1914. Flestar myndirnar
eru teknar fyrir aldamótin 1900 en
höfundur sýningarinnar er Nelson
Gerrard, kunnur sagn- og ættfræð-
ingur í Manitoba í Kanada.
Sjálf afmælishátíðin í Hörpu 13.
mars fer fram í Silfurbergi, í sam-
starfi setursins við Þjóðræknisfélag
Íslands og Hörpu. Samkoman hefst
með söng Karlakórsins Heimis úr
Skagafirði, sem staddur verður í
tónleikaferð sunnan heiða þessa
helgi. Að því loknu verður undirrit-
aður samstarfssamningur á milli
Vesturfarasetursins og Hörpu um
ljósmyndasýninguna, sem verður að
sögn Valgeirs höfð uppi í eitt ár eða
svo. Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, mun síðan
opna sýninguna.
Afmælishátíðinni verður fram-
haldið í Silfurbergi. Þar mun Vigdís
Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands
og heiðursfélagi Þjóðræknisfélags-
ins, ávarpa samkomuna. Farið verð-
ur yfir sögu Vesturfarasetursins í
máli og myndum en fagnaðinum lýk-
ur með hvatningarorðum Valgeirs.
Lét draum sinn rætast
Hátíðahöldin halda áfram á Hofs-
ósi í sumar með sérstakri afmælis-
dagskrá í Vesturfarasetrinu laugar-
daginn 9. júlí nk. Þar verður frú
Vigdís Finnbogadóttir aðalræðu-
maður en hún vígði setrið fyrir 20
árum. Var það eitt af hennar síðustu
embættisverkum áður en Ólafur
Ragnar tók formlega við. Sendiherr-
ar Kanada og Bandaríkjanna munu
einnig flytja ávörp og sama dag mun
Illugi Gunnarsson opna sýninguna
Brasilíufararnir í Vesturfarasetr-
inu. Þar verður sögu þeirra Ís-
lendinga minnst í máli og mynd-
um sem fluttu til Brasilíu á
árunum 1863 til 1873, en að-
allega fóru þeir utan frá
Þingeyjarsýslum, nærri
40 manns.
Valgeir er húsa-
smíðameistari og lét
þann draum sinn
rætast fyrir um 20
árum að endur-
gera gömul hús á
Hofsósi og heiðra
um leið minningu
Vestur-Íslend-
Viðhalda þarf tengslunum
Vesturfarasetrið á Hofsósi fagnar 20 ára afmæli Sýning sett upp í Hörpu 13. mars Afmælis-
hátíð á Hofsósi í sumar V-Íslendingar traustur hópur ferðamanna, segir forstöðumaður setursins
Morgunblaðið/Kristján
Vesturfarasetrið Byggingar safnsins sem Valgeir gerði upp á Hofsósi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýning í Hörpu Valgeir Þorvaldsson tók sér hlé frá uppsetningu sýningarinnar í gær og stillti sér upp með vax-
mynd af Jóni Blöndal, ljósmyndara í Vesturheimi, sem tók margar af þeim myndum sem verða sýndar í Hörpu.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016
Vesturfarasetrið efnir til tón-
leika í Eldborgarsal Hörpu 25.
mars árið 2017, í samstarfi við
Karlakórinn Heimi. Þar mun kór-
inn syngja við undirleik félaga
strengjasveitar Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands. Einsöngv-
arar verða þau Kristinn Sig-
mundsson og Þóra Einarsdóttir.
Segja má að tónleikarnir
verði nokkurs konar upphitun
fyrir hátíð sem Vesturfarasetrið
stendur fyrir í Vancouver í Kan-
ada um mánuði síðar, eða 22.
apríl 2017. Þar verður dagskráin
endurflutt af sömu listamönn-
um, auk nokkurra til viðbótar.
Að sögn Valgeirs Þorvalds-
sonar hefur komið í ljós að
sama dag fer fram karla-
kóramót í Vancouver og
hefur Heimismönnum
verið boðið að taka þar
þátt. „Þegar fréttist af
komu okkar var ákveðið
að gera okkur að
heiðursgestum karlakóra-
mótsins,“ segir Valgeir,
sem einnig syngur í kórnum.
Frá Hörpu til
Vancouver
TÓNLEIKAR Á NÆSTA ÁRI
Þóra Einarsdóttir
og Kristinn
Sigmundsson
Verðið vel
Verið velkomin á bás
B1