Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 20

Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 Málflutningskeppni Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, verð- ur haldin í dómhúsi Hæstaréttar Ís- lands í níunda sinn í dag, laugardag- inn 5. mars. Fjögur lið, skipuð alls nítján laganemum, eru skráð til leiks en í dómarasætum munu sitja bæði hæstaréttardómarar og löglærðir fulltrúar lagadeildar HÍ. Keppnin verður haldin frá klukkan 10 til 14 og er hún opin öllum. „Málflutningskeppnin er mik- ilvægur þáttur í félagslífi laganema en í henni fá lögfræðingar framtíð- arinnar kærkomið tækifæri til að stíga sín fyrstu spor í málflutningi. Hefur hún í gegnum tíðina reynst verðandi lögfræðingum dýrmætur undirbúningur fyrir framtíðarstörf þeirra,“ segir í frétt frá Orator. Samin hefur verið lýsing á mála- vöxtum, sem er rammi umfjöllunar- innar, og verður keppt samkvæmt reglum íslensks réttarfars. Er leitast við að hafa verkefnið eins raunhæft og kostur er. Liðin fjögur hafa undanfarnar vikur unnið af kappi að undirbún- ingi málsins með aðstoð fjögurra lögmanna sem hafa reynslu af mál- flutningi. Laganemar í Hæstarétti Morgunblaðið/Kristinn Hæstiréttur Laganemar mætast í réttinum og reyna hæfni sína. Heimir Örn Hólmarsson til- kynnti í gær- morgun að hann hygðist bjóða sig fram til embætt- is forseta Ís- lands. Heimir Örn er 35 ára gamall. Í tilkynningunni kemur fram að hann sé rafmagnstæknifræðingur að mennt og með meistaragráðu í verkefnastjórnun. „Íslendingar þurfa á forseta að halda sem beitir sér enn frekar fyrir uppbyggingu innviða Íslands og er leiðandi afl innan íslensks samfélags. Forseti verður að vera traustur leiðtogi og sýnilegur á mikilvægum viðburðum þjóðarinnar. Þegar erfiðleikar steðja að íslensku samfélagi á hann að vera leiðandi afl skynsemi og rökhyggju,“ segir m.a. í tilkynning- unni. Heimir hefur opnað heimasíðuna www.xheimir.is. Heimir Örn tilkynnir framboð Heimir Örn Hólmarsson Sunnudaginn 6. mars kl. 14-16 gefst fólki kostur á að koma með eigin gripi til greiningar hjá sérfræð- ingum Þjóðminjasafnsins. Grein- ingin er ókeypis og fer fram á 2. hæð Þjóðminjasafnsins. Hinir svokölluðu greiningar- dagar hafa verið mjög vel sóttir og margt merkilegt komið í ljós, segir í frétt frá safninu. „Greiningar á gripum í einkaeign eru ekki aðeins fróðlegir fyrir eig- endur gripanna heldur gefst Þjóð- minjasafninu einnig einstakt tæki- færi til að fá yfirsýn yfir þá mörgu áhugaverðu og dýrmætu gripi sem til eru á heimilum landsmanna. Sér- fræðingar safnsins skrá upplýs- ingar um gripina niður og einnig eru þeir myndaðir í þeim tilgangi að gripir í einkaeigu séu skráðir hjá safninu,“ segir í fréttinni. Greina gripi í Þjóðminjasafninu ÚR BÆJARLÍFINU Atli Vigfússon Þingeyjarsýsla Fikkahátíð verður haldin um helgina í Ýdölum. Þar verður Frið- riks Jónssonar, bónda, harmoniku- leikara, kirkjuorganista og tón- skálds, minnst með veglegum hætti, en 100 ár eru frá fæðingu hans. Margir kórar munu syngja, m.a. kirkjukórarnir, söngfélagið Sálubót og karlakórinn Hreimur. Kaffiveit- ingar verða í tilefni dagsins og á eftir verður veglegt harmonikuball undir stjórn Harmonikufélags Þingeyinga. Búist er við troðfullu húsi, en Frið- rik á Halldórsstöðum setti mikinn svip á mannlífið í Þingeyjarsýslu á sínum tíma og mörg voru þau böllin sem hann spilaði á og hélt uppi fjöri fram eftir nóttum.    Girðingar eru á svartakafi og vita bændur ekki alveg hvernig þær verða þegar þær koma undan snjón- um. Síðasta stórhríð gerði útslagið, en snjórinn þá var mjög blautur og þungur. Ekkert lát virðist á kuld- anum og telja sumir óvanalegt að ekki skuli hafa komið nein miðsvetr- arhláka eins og stundum. Mikil svell voru komin á tún í Aðaldal og Reykjahverfi í janúar, en ekkert er hægt að segja að svo stöddu um það hvort það muni verða kal í vor.    Hrafnar sveima um svangir enda er lítið að hafa, bara fannir og jarð- leysi. Þeir hafa þó kropp þar sem hestum er gefið úti og halda sig oft þar nærri. Aðrir fuglar eru fáir, en gráhegranum sem tók sér bólfestu á bökkum Laxár í vetur líður ágæt- lega og virðist geta orðið sér úti um næringu. Hann lætur lítið yfir sér en reifst á dögunum við hrafnana út af einum silungssporði sem þeir ætluðu að stela af honum. Allt er hey í harð- indum og það þarf að hafa öll spjót úti til þess að lifa af svona vetur.    Tófur eru farnar að gagga á kvöldin og í froststillunum í vikunni hefur mátt heyra í þeim heim að bæjum. Líklega verður nóg að gera hjá grenjaskyttum í vor, en búast má við að töluvert verði af þessum vágestum í vörpum fugla eins og undanfarin ár. Tófan hefur höggvið stór skörð hjá mófuglinum og mun minna er af lóum og spóum í heiða- löndunum en áður var.    Sauðfjárbændur eru langt komnir með að láta telja fóstrin í án- um og allir eru sammála um að að þessu sé mikið hagræði í sauðburð- inum á vorin. Nokkrir bændur eru byrjaðir að rýja og verða líklega margir búnir að taka snoðið fyrir páska. Á aðalfundi Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga, sem haldinn var á Illugastöðum í Fnjóskadal í vik- unni, fékk Félagsbúið í Baldurs- heimi í Mývatnssveit verðlaun fyrir besta árangur í sauðfjárrækt í hér- aðinu á sl. ári. Hvatningarverðlaunin fengu hins vegar feðgarnir á Auðnum í Laxárdal, þeir Jón Benediktsson og Benedikt Hrólfur Jónsson.    Kúabúskapur gengur vel hjá mörgum og þó búunum hafi fækkað, þá stækka sumir við sig og eru órag- ir að takast á við það. Nýlega var kúabúið á Hellulandi í Aðaldal lagt undir kúabúið í Múla I og kýrnar fluttar í fjósið þar. Hjá Kjartani Smára Stefánssyni og Sonju Rut Jónsdóttur er nú kúffullt fjós og hef- ur gengið mjög vel að venja bása- kýrnar úr Hellulandi við mjaltaþjón- inn í Múla.    Frístundabúskapur blómstrar víða og Sigurður Jóhannes Jónsson, pípulagningameistari á Húsavík, sem nú er hættur að vinna, segir að það sé mjög skemmtilegt að vera með húsdýr. Hann er með hænur, hesta og kindur og eyðir mörgum stundum í að sópa og moka í hús- unum. Svo hreint er þar inni að hægt væri að ganga þar um á sokkaleist- unum án þess að skitna. Skepnurnar eru miklir félagar hans og ærin Frekja kann margar kúnstir. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Gaman Sigurður Jóhannes Jónsson, frístundabóndi á Húsavík, og ærin hans hún Frekja eru góðir félagar. Girðingar í sveitinni eru á svartakafi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.