Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016
Gyulchekhra Bobokulova, 38 ára
gömul kona frá Úsbekistan, hefur
verið ákærð fyrir hrottafengið morð
á barnungri stúlku í Moskvu. Var
konan handtekinn síðastliðinn
mánudag þar sem hún stóð fyrir ut-
an neðanjarðarlestarstöð í borginni
og hélt afskornu höfði barns á lofti,
nærstöddum til mikils hryllings. Er
hún sögð hafa gengið þar upp og nið-
ur götuna og kallað orðin „Allahu
Akbar“ eða „Guð er almáttugur“.
Þegar konan var leidd fyrir dóm-
ara sem síðar úrskurðaði hana í
tveggja mánaða gæsluvarðhald ját-
aði hún sök sína og sagði Allah hafa
skipað sér að myrða stúlkubarnið.
Fréttaveita AFP greinir frá því að
fórnarlambið hafi verið fætt árið
2011. Var Bobokulova barnfóstra
stúlkunnar og hafði gætt hennar í
um tvö ár áður en ódæðið var framið.
Unnið er að sálfræðimati
Greint er frá því í erlendum miðl-
um að verið sé að meta andlegt
ástand konunnar. AFP segir há-
marksrefsingu fyrir brot af þessum
toga vera lífstíðarfangelsi en í Rúss-
landi geti konur hins vegar ekki
fengið þyngri dóma en 25 ár.
khj@mbl.is
AFP
Illska Barnfóstran frá Úsbekistan situr nú í fangelsi á bak við lás og slá.
Fóstran ákærð fyrir
hrottafengið morð
Gekk um með afskorið höfuð barns
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ráðamenn í Pyongyang halda áfram
að sýna klærnar eftir að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti vít-
ur á Norður-Kóreu. Hefur leiðtoginn
Kim Jong-Un nú fyrirskipað her-
sveitum sínum að gera kjarnavopn
landsins tilbúin til notkunar með
skömmum fyrirvara.
„Við þessar öfgakenndu aðstæður,
þar sem bandarískir heimsvalda-
sinnar misnota hernaðaráhrif sín og
knýja önnur ríki til stríðsátaka og
hörmunga, er okkar eina leið fær til
að verja fullveldi og rétt til lífs að
styrkja kjarnorkumátt okkar,“ hefur
ríkisfréttastofan KCNA í Pyongyang
eftir leiðtoga landsins.
Heræfingar á næsta leiti
Á sama tíma og Norður-Kóreu-
menn hóta að beita kjarnavopnum
sínum eru hersveitir nágranna þeirra
í suðri og Bandaríkjanna að undirbúa
heræfingar sem hefjast eiga næst-
komandi mánudag. Verða þetta um-
fangsmestu heræfingar sem haldnar
hafa verið á svæðinu til þessa.
Í frétt breska dagblaðsins The
Telegraph kemur meðal annars fram
að 15.000 bandarískir hermenn muni
taka þátt í æfingunum og eru það
tvöfalt fleiri hermenn en þátt tóku í
fyrra. Verður einnig orrustusveit úr
flughernum send til Suður-Kóreu
auk stórfylkis landgönguliða flotans.
Sjóherinn mun einnig taka þátt í æf-
ingunum en við strendur Suður-Kór-
eu verða meðal annars flugmóður-
skip, herskipafloti og kafbátur. Er
þessum sveitum ætlað að sýna
stjórnvöldum í Pyongyang hernaðar-
mátt Bandaríkjanna.
Þá munu alls 290.000 manns á veg-
um hersveita Suður-Kóreu einnig
taka þátt í heræfingunum, þeirra á
meðal sérsveitir hersins.
Efast um getu norðursins
Sérfræðingar í Pentagon, varnar-
málaráðuneyti Bandaríkjanna, efast
mjög um getu Norður-Kóreumanna
þegar kemur að notkun kjarnavopna
í stríðsátökum. „Mat bandarískra
stjórnvalda hefur ekki breyst,“ hefur
fréttaveita AFP eftir talsmanni ráðu-
neytisins í kjölfar áðurnefndrar
ákvörðunar leiðtogans Jong-Un.
„Við höfum ekki séð tilraun Norð-
ur-Kóreumanna eða getu þeirra til
að minnka umfang kjarnavopna og
setja þau í langdræga eldflaug.“
Bætti þessi sami heimildarmaður því
við að ef skotið yrði á Bandaríkin
með slíku vopni væru hersveitir
landsins vel í stakk búnar til að
granda flauginni áður en hún nær að
skotmarki sínu.
Fyrr í þessari viku skutu hersveit-
ir Norður-Kóreu á loft sex skamm-
drægum flugskeytum sem síðar féllu
í hafið austur af landinu. Og segist
Pentagon nú fylgjast „afar náið með
Kóreuskaga í samvinnu við banda-
menn á svæðinu“.
Þá hvetur Barack Obama Banda-
ríkjaforseti ráðamenn í Pyongyang
nú til að sýna stillingu. „Einum rómi
hefur alþjóðasamfélagið sent Pyon-
gyang einföld skilaboð – Norður-Kó-
rea verður að hætta þessum hættu-
legu tilraunum sínum og velja þess í
stað betri og farsælli braut fyrir
þjóðina,“ hefur AFP eftir honum.
Kjarnavopnin gerð klár
Leiðtogi Norður-Kóreu vill kjarnavopn landsins tilbúin til notkunar með
skömmum fyrirvara 15.000 bandarískir hermenn sendir til æfinga eftir helgi
AFP
Ógn Almenningur sunnan landamæranna er nokkuð uggandi vegna þeirra
fregna sem nú berast frá Pyongyang, en þar hóta menn að nota kjarnavopn.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ættingjar sumra þeirra sem létu líf-
ið er Andreas Lubitz, aðstoðar-
flugstjóri farþegaþotu German-
wings, grandaði vél sinni vísvitandi í
frönsku ölpunum í fyrra hafa ákveð-
ið að stefna flugskóla Lubitz sem
staðsettur er í Bandaríkjunum.
Lögmaðurinn Christof Wellens
staðfestir þetta við fréttaveitu AFP
en kæran verður lögð fram síðar í
þessum mánuði. „Þar hófst þessi
eymd. Aðstoðarflugstjórinn gerði
hlé á þjálfun sinni þar vegna sál-
rænna vandamála,“ hefur frétta-
maður AFP eftir lögmanninum.
„Þeir hefðu átt að meina honum að
halda þjálfun sinni áfram.“
Enginn komst lífs af
Airbus 320-þota Germanwings
flugfélagsins var í áætlunarflugi
milli Spánar og Þýskalands þegar
hinn 27 ára gamli aðstoðarflugstjóri
grandaði henni þann 24. mars á síð-
asta ári. Allir um borð, alls 150
manns, týndu lífi í ódæðinu.
Flugriti þotunnar leiddi síðar í
ljós þá miklu örvæntingu sem ríkti
um borð í farþegavélinni síðustu
mínútur flugsins. Mátti þar meðal
annars heyra flugstjórann, Patrick
Sondheimer, öskra „opnaðu fjárans
dyrnar“ að Lubitz þegar hann gerði
örvæntingafulla tilraun til þess að
brjóta sér leið í gegnum læstar dyr
flugstjórnarklefans.
Ættingjar vilja í mál við flugskólann
Lubitz hefði ekki átt að fá að ljúka þjálfun sinni, segir lögmaður aðstandenda
Ljósmynd/Wikipedia
Sorg Látinna var meðal annars
minnst á flugvellinum í Düsseldorf.
Kappræður frambjóðenda í forvali
Repúblikanaflokksins fyrir banda-
rísku forsetakosningarnar tóku
heldur óvænta stefnu í beinni sjón-
varpsútsendingu hjá FOX í fyrra-
dag. Gerði þar Marco Rubio, öld-
ungadeildarþingmaður frá Flórída,
grín að höndum auðkýfingsins Do-
nalds Trumps. „Þið vitið hvað er
sagt um menn með litlar hendur,“
sagði þingmaðurinn og gaf þannig í
skyn að annar líkamspartur við-
skiptamannsins væri í minna lagi.
Trump var þó ekki lengi til and-
svars, sýndi hendurnar og sagði:
„Horfið á þessar hendur – eru þetta
litlar hendur? Og hann sagði að
fyrst hendurnar á mér væru litlar
þá hlyti eitthvað annað að vera lít-
ið, en ég ábyrgist að það er ekkert
vandamál þar.“ Heldur minna fór
þó fyrir málefnalegri umræðu um
stjórnmál þetta kvöld. khj@mbl.is
AFP
Keikur á velli Trump var öryggið
uppmálað og sýndi hendurnar.
„Eru
þetta litlar
hendur?“
Lars Løkke Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, segir Dani
reiðubúna til að senda orrustu-
þotur, af gerðinni F-16, og allt að
400 manna sérsveit til átaka við
Ríki íslams í Írak og Sýrlandi.
Meirihluti flokka í utanríkis-
málanefnd danska þingsins styður
þessa áætlun ríkisstjórnarinnar.
Danir reiðubúnir í
átök við Ríki íslams
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is