Morgunblaðið - 05.03.2016, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Litlar líkur eruá því að tak-ist að leysa
úr stjórnarkrepp-
unni á Spáni. Á mið-
vikudag kom í ljós
að mikið vantar upp
á að sósíalistinn
Pedro Sanchez njóti
stuðnings á þingi til
að verða næsti for-
sætisráðherra
landsins. Sanchez
tók við umboðinu til stjórn-
armyndunar eftir að ljóst varð
að Mariano Rajoy, leiðtoga Lýð-
flokksins, myndi ekki takast að
mynda stjórn.
Lýðflokkurinn og Sósíal-
istaflokkurinn hafa stjórnað
landinu til skiptis eftir að her-
foringjastjórnin fór frá og lýð-
ræði komst á 1978. Flokkarnir
töpuðu hins vegar báðir fylgi í
þingkosningunum 20. desember.
Tveir nýir flokkar héldu innreið
sína á þingið í kosningunum,
Podemos, sem fékk rúmlega
tuttugu af hundraði atkvæða, og
Ciudadanos, sem fékk 13,9% at-
kvæða.
Sanchez hafði samið við Ciu-
dadanos um að mynda stjórn,
sem varð til þess að Podemos
hafnaði samstarfi. Í atkvæða-
greiðslunni á þinginu á miðviku-
dag fékk Sanchez aðeins 130 at-
kvæði, en 219 greiddu atkvæði
gegn honum og einn sat hjá. Í
gærkvöldi gekk þingið til at-
kvæða á ný um Sanchez og sú at-
kvæðagreiðsla fór á sama veg.
Það hefur ekki gerst frá því að
Francisco Franco hershöfðingi
lést 1975 að vantrausti hafi verið
lýst á forsætisráðherraefni í
tveimur atkvæðagreiðslum á
þingi.
Nú munu forustumenn í
spænskum stjórnmálum fá tvo
mánuði til að mynda stjórn.
Gangi það ekki eftir verður
gengið til kosninga á ný, líklega
26. júní.
Á Spáni heyrast þær raddir að
úrslitin í kosningunum 20. des-
ember hafi verið ómakleg þar
sem sjá megi batamerki í
spænsku efnahagslífi og í fyrra
hafi hagvöxtur verið 3,2%, meiri
en víðast hvar í Evrópu og sá
mesti í löndum Evrópusam-
bandsins. Reyndar mátti heyra
svipaðar raddir eftir að stjórnin
féll í kosningunum á Írlandi í
liðnum mánuði. Staðreyndin er
hins vegar sú að á Írlandi er bat-
inn brothættur og til marks um
ástandið er að þar mælist at-
vinnuleysið um 9%. Á Spáni er
atvinnuleysið rúmlega tvöfalt
meira eða 20,9%. Tvær og hálf
milljón manna glímir við lang-
tímaatvinnuleysi. Það hugtak er
notað um þá, sem hafa verið án
atvinnu í eitt ár eða lengur.
Frá því að kreppan hófst 2007
hafa skuldir spænska ríkisins
margfaldast. Fyrir níu árum
voru skuldir ríkisins 35,5% af
landsframleiðslu, en voru í fyrra
tæplega 100% eða 1,07 billjónir
evra.
Í fréttaskýringu á vefsíðu
þýska tímaritsins Die Zeit eru
veikleikarnir taldir upp. Þar
kemur fram að óvíða í Evrópu
hætti jafn margir
námi án þess að
klára framhalds-
skóla eða há-
skólanám. Fjórð-
ungur íbúa á
aldrinum 18 til 24
ára hafi ekki lokið
framhaldsnámi af
einhverjum toga.
Segir að stefnumót-
un skorti í útflutn-
ings- og atvinnu-
málum. Helmingur útflutnings
sé vörur á borð við landbúnaðar-
afurðir, sem fylgi lítill virð-
isauki. Þau störf, sem sköpuð
hafi verið í tíð stjórnar Rajoys,
séu ekki til frambúðar. Þeir, sem
hafi fengið þessi störf, geti ekki
byggt á þeim til framtíðar og
fyrirtækin hafi lítinn hvata til að
nota þau til uppbyggingar.
Í Die Zeit er vitnað í Angel
Laborda, yfirhagfræðing spari-
sjóðsins Funcas í Madrid:
„Spánn er í dag eins og bíll, sem
af nauðsyn hefur aftur verið lát-
inn líta vel út eftir slys. En það
hefur mjög lítið verið gert til
þess að styrkja vélina eða gera
bílinn öruggari í umferðinni.“
Í greiningunni í Die Zeit er
mikið gert úr því að spænsk
stjórnvöld hafi dregið lappirnar í
að dansa eftir höfði Evrópusam-
bandsins. Þar er einnig vitnað í
sérfræðinga, sem halda því fram
að stefna stjórnmálaflokksins
Podemos í efnahagsmálum „sé
ekki það sem landið þarf nú á að
halda“. Það geti verið hættulegt
„að trúa á eigin áróður“.
Pablo Iglesias, leiðtogi Pode-
mos, hefur talað um að stjórn-
málaforustan í landinu eigi að
„hætta að hlýða óligörkunum“.
Hræðsluáróðurinn minnir á
það, sem gekk á hér á landi þeg-
ar átti að gera ábyrgðina á Ice-
save að þjóðareign.
Ástæðurnar fyrir vanda Spán-
ar eru vitaskuld margvíslegar.
Ein meginástæðan fyrir því hvað
erfitt er að vinna á atvinnu-
leysinu og fá hjól atvinnulífsins
til að snúast á ný er evran, sem
er eins og spennitreyja. Sömu
sögu er hægt að segja af Grikkj-
um, Ítölum, Portúgölum og Ír-
um. Hin sameiginlega mynt get-
ur aldrei hentað öllum
hagkerfunum á evrusvæðinu um
leið. Þegar ofan á bætist hin
stranga krafa Evrópusambands-
ins um aðhald, sem er bein af-
leiðing af aðildinni að evrunni,
er komin uppskrift að kreppu.
Það er ekki að furða að stjórn-
málaflokkar baki sér óvinsældir
þegar atvinnuleysi er í kringum
20% og um helmingur ungs fólks
fær ekki vinnu. Þá eykur það
ekki traust kjósenda á lýðræðinu
þegar stjórnmálaforustan í land-
inu þarf að klæðast spenni-
treyju, sem er saumuð í Brussel
eftir forskrift embættismanna
án lýðræðislegs umboðs.
Það er ekki að furða að á
Spáni skuli vera stjórnarkreppa.
Allt bendir til þess að Spánverj-
ar gangi aftur að kjörborðinu í
sumar og gangi kannanir eftir
má búast við að niðurstaðan þá
verði með svipuðum hætti og
síðast.
Þá eykur það ekki
traust kjósenda á
lýðræðinu þegar
stjórnmálaforustan
í landinu þarf að
klæðast spenni-
treyju, sem er saum-
uð í Brussel}
Stjórnarkreppa á Spáni
M
iðborg Reykjavíkur stendur í
blóma og uppbyggingin þar
er ævintýri líkust. Margt
virðist ætla að heppnast vel í
þeim efnum, til dæmis hótel-
byggingingin sem Icelandair hefur haft veg
og vanda af við Laugaveg 15-21 að ónefndum
öllum þeim veitinga- og kaffihúsum þar sem
boðið er upp á kræsingar og kruðerí af ýms-
um toga. Mestu skiptir þó mannlífið sjálft en
það er bæði fjölskrúðugt og sýnilegra en oft-
ast í seinni tíð. Laugavegur, Bankastræti og
hliðargötur þeirra eru fullar af fólki frá
morgni til kvölds. Mikið er um ferðamenn frá
öðrum löndum sem setja svip á svæðið en í
bland við þann hóp eru það svo Íslendingar
sem leggja leið sína þangað til að njóta alls
þess sem iðandi mannlíf og ótrúlega fjölbreytt
afþreying og þjónusta býður upp á.
Hin mikla uppbygging veldur því að mörg hús sem áð-
ur voru í hálfgerðri eða algjörri niðurníðslu taka nú
stakkaskiptum og ganga í raun í endurnýjun lífdaga. Þá
er leitað allra leiða til að nýta byggingarreiti, sem beðið
hafa síns tíma, með sem bestum hætti. Miðborgin verður
einfaldlega snyrtilegri og fallegri fyrir vikið.
Eitt vekur þó sérstaka athygli þegar gengið er um
miðborgina þessi dægrin. Á það ekki síst við um Lauga-
veginn sjálfan og Hverfisgötuna. Það er hið ótrúlega út-
breidda veggjakrot sem búið er að klína á gríðarlegan
fjölda bygginga á svæðinu. Sé gengið upp Hverfisgötuna
má heita að annað hvert hús, hið minnsta,
hafi orðið fyrir barðinu á krafsi af þessu tagi.
Og vandinn er kannski ekki krotið sjálft,
heldur hversu sneytt það er öllum tilgangi og
í ofanálag ljótt eftir öllum mögulegum mæli-
kvörðum. Virðist það til þess eins gert að
svala skemmdarfýsn þeirra sem fyrir því
standa og merkja þeim þær byggingar sem
fyrir barðinu verða. Að því marki eru gerend-
urnir líkastir húsdýrum sem telja það sinn
helsta starfa að merkja alla staura og hús-
horn með þvagi sínu.
Þetta er hvimleitt, ekki síst þegar hugsað
er til þess að til er fallegt veggakrot, eða
graff, eins og það er oftast nefnt. Það er við-
urkennt sem listgrein og einhver áhrifamesti
listamaður síðari tíma, hinn dulúðugi Banksy,
notast við graff til að koma pólitískum skila-
boðum sínum á framfæri við umheiminn. Listgreinin á
ekkert skylt við það sem tröllríður miðbænum núna og
hið síðarnefnda kemur óorði á listgreinina, og þá sem
iðka hana, að tilefnislausu.
Það er vonandi að lögreglu, og eftir atvikum borgar-
yfirvöldum, takist að ná tökum á ástandinu og komi með
því í veg fyrir frekari skemmdarverk. Eina leiðin til að
ná tökum á vandanum er að löggjafinn tryggi að háar
sektir liggi við eignaspjöllum af þessu tagi. Það er ekki
víst að það verði áhættunnar virði að krota á vegg, eigi
menn það á hættu að þurfa að greiða hundruð þúsunda,
verði þeir gómaðir. ses@mbl.is
Stefán Einar
Stefánsson
Pistill
Virðingarlaust veggjakrot
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Spáð hefur verið áframhald-andi fjölgun ferðamanna tilÍslands og nýverið hækk-aði Isavia spá sína fyrir
þetta ár, úr 1,5 milljónum ferða-
manna í 1,7 milljónir. Á síðasta ári
komu nærri 1,3 milljónir ferða-
manna til landsins og árið þar áður
um 970 þúsund.
En hvað veldur þessum aukna
áhuga? Þar koma til ýmsir þættir,
ekki síst aukið sætaframboð flug-
félaga, bæði íslenskra og erlendra
félaga og umfangsmikið markaðs-
starf þeirra, Íslandsstofu, Isavia og
fleiri.
Þegar erlendir ferðamenn eru
spurðir af hverju þeir völdu Ísland
sýna rannsóknir að langflestir
nefna ósnortna náttúru landsins og
víðerni. Margir rekja aukinn áhuga
til eldgossins í Eyjafjallajökli árið
2010 þegar landið fékk gríðarmikla
umfjöllun í erlendum fjölmiðlum.
Síðan þá hefur fjöldi ferðamanna
þrefaldast og gott orðspor hefur
breiðst út. Nýleg könnun Ferða-
málastofu sýnir að rúm 40% ferða-
manna segjast hafa fengið ábend-
ingu frá vini eða ættingja sem kom
til landsins. Enginn vafi leikur á að
heimsóknir stórstjarna á borð við
Justin Bieber og Ísland sem töku-
staður erlendra kvikmynda hefur
einnig mikið að segja.
Ísland talið öruggt
Viðmælendur blaðsins úr
ferðaþjónustunni nefna einnig að
ferðamenn sjái Ísland sem nokkuð
öruggan áfangastað, þrátt fyrir
undirliggjandi hættu á nátt-
úruhamförum eins og eldgosum og
jarðskjálftum. Hér sé hryðjuverka-
ógn ekki til staðar, enginn flótta-
mannavandi, engar pestir eins og
zika-veiran sem herjar á S-Ameríku
og engir fellibyljir og skýstrókar.
Lönd eins og Tyrkland finna t.d.
fyrir minni áhuga ferðamanna
vegna átaka við landamærin við
Sýrland og slíkt ástand eykur líkur
á að ferðamenn leiti á öruggari
slóðir.
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamála-
stjóri segir Ísland skora hátt í öll-
um alþjóðlegum samanburði hvað
öryggi borgara varðar. Hvort það
ráði miklu í ákvarðanatöku ferða-
manna sé erfiðara að segja til um.
„Ferðamenn taka ákvörðun um
áfangastað á grunni alls konar
fyrirfram hugmynda, sem þeir eru
jafnvel ekki meðvitaðir um. Þegar
menn velja hvert á að fara þá
sleppa þeir úr menginu löndum
sem þeir telja óörugg, frekar en að
byggja meðvitaða ákvörðun á því að
Ísland sé öruggt land og þangað
vilji fólk fara. Svona ákvarðanataka
getur verið byggð á undirliggjandi
vitneskju einstaklingsins, án þess
að það sé meðvitað ferli. Ákvarð-
anatakan getur líka verið mjög ein-
föld, það kemur svo margt inn í,“
segir Ólöf.
Eldgos talin áhugaverð
Með yfirvofandi eldgos í Kötlu
og stóra jarðskjálfta má segja að
ákveðin mótsögn felist í því að tala
um Ísland sem öruggt ferðamanna-
land. Ólöf tekur undir þetta. Eld-
gosin hafi mótað Ísland og því veki
þau áhuga á landinu meðal ferða-
manna. Það geti einnig skipt máli
að dauðsföll vegna eldgosa séu
mjög fátíð, en á undanförnum 100
árum eru aðeins tvö dauðsföll rakin
til eldgosa.
„Ég vil ekki gera lítið úr hætt-
unni sem fylgir eldgosum en þetta
getur mögulega verið ástæðan fyrir
því að ferðamenn líti á eldgos hér á
landi sem áhugaverðan eiginleika
landsins, frekar en eitthvað sem
getur valdið skaða og hættu,“ segir
Ólöf.
Náttúran og orðspor
landsins ræður mestu
Morgunblaðið/RAX
Ferðamenn Þó Ísland sé talið öruggt land fyrir ferðamenn þá geta hætt-
ur leynst víða, eins og dæmin hafa sýnt sig í Reynisfjöru í vetur.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir Ís-
land vissulega njóta þess að hér
á landi sé friðsælt og lítil ógn til
staðar. Hins vegar ráði mestu um
aukinn áhuga ferðamanna hve
margar flugferðir bjóðist til
landsins, stækkað leiðakerfi Ice-
landair og annarra flugfélaga.
Eftirspurnin haldi áfram, svo
lengi sem framboð á gistingu sé
nægjanlegt. Þó að fjölgunin sé
mikil segir Guðjón að ekki megi
slá slöku við í markaðsstarfinu.
Halda þurfi áfram að styrkja inn-
viðina í íslenskri ferðaþjónustu
og halda í við fjölgunina.
Guðni Sigurðsson, upplýs-
ingafulltrúi Isavia, segir breytta
spá vera unna út frá auknu sæta-
framboði og betri sætanýtingu.
Erfitt sé að ráða í nákvæma
ástæðu fyrir auknum áhuga
ferðamanna, þar geti margt
komið til. Kannanir sýni að
ánægja ferðamanna með Ís-
landsheimsókn sé mikil, um
90% þeirra segist vilja koma
hingað aftur.
Styrkja þarf
innviðina
AUKIÐ SÆTAFRAMBOÐ