Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 30

Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 fjármálaráðherra kom, var þegar hann neitaði ellilífeyrisþegum um afturvirka hækkun frá 1. maí 2015 eins og öðru láglaunafólki. Það eru um 30 þúsund eldri borgarar í landinu, sem hafa ekki í sig og á svo vel sé. Það hefði ekki kostað nema ca. 3-4 milljarða að greiða öldruðum afturvirkt og öðru eins hefur nú verið sóað í fjár- málaráðherratíð Bjarna. Nú vill hann borga niður skuldir ríkisins á næstu tíu árum en væri mjög eðlilegt að hafa það t.d. næstu 15- 20 árin, nákvæmlega eins og þeg- ar fólk er að kaupa sér húsnæði og greiðir upp á e.t.v. 25-40 árum. Bætur gætu hækkað til þeirra, sem virkilega þurfa á því að halda og mætti þar fara eftir skatta- skýrslum því vitað er að nokkur hópur eldra fólks lifir við ríkidæmi og vellystingar. Það er t.d. rík ástæða til að fara að ná í 80 millj- arðana, sem stolið hefur verið af Fyrir skömmu í Kast- ljósi RÚV sat Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins fyr- ir svörum og bað þar um m.a. um að fá að njóta sannmælis og vera dæmdur af verkum sínum. Bjarna hefur svo sannarlega orðið að ósk sinni því samkvæmt skoðanakönnunum hef- ur fylgi Sjálfstæðisflokksins hrap- að úr tæpum 40% í um 20%. Þar með hefur hann heldur betur verið dæmdur af verkum sínum, þ.e. tapað um 20% af fylgi flokksins. Svo fátt eitt sé nefnt ætlaði hann að hækka matarskattinn í 14%, en Framsókn- armenn komu í veg fyrir að skatturinn var þó ekki hækk- aður nema í 11%. Þetta gerði stórum hópi ellilífeyrisþega, líklega nokkur þús- und manns, erfiðara fyrir að ná endum saman og lifðu þó við hungurmörk fyrir. En mesta svívirðingin, sem frá Bjarna skattsvikurum og glæpamönnum, sem eru í felum í skattaskjólunum. En ekkert gert. „Einhver sagði fúskað í fjármálaráðuneyti“ Í bréfi, sem Bjarni Benedikts- son sendi í aðdraganda síðustu al- þingiskosninga og byrjar svo „Ágæti kjósandi“, má líta eftirfar- andi: „Fái Sjálfstæðisflokkurinn umboð til að leiða næstu rík- isstjórn munum við setja eftirfar- andi mál í öndvegi“ og þar segir m.a.: Stjórnvöld eiga að hlúa að öldruðum en ekki íþyngja með ósanngjarnri skattlagningu. Við ætlum að afnema eignaskattinn. Sá skattur er ekkert annað árás á eldra fólk, sem býr í skuldlausu eða litlu húsnæði. Við ætlum að lækka fjármagns- tekjuskattinn, sem kemur einna harðast niður á eldri borgurum landsins. Með vinsemd, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins.“ Dettur einhverjum í hug til hverra annarra en ríka fólksins, eldri borgara, þessari hugvekju er beint? Nei, þarna er átt við þann hóp eldri borgara, sem á eignir og peninga og lifir í velsæld. Hrekkjalómurinn Ási Friðriks Vestamannaeyingurinn og þing- maðurinn Ásmundur Friðriksson, títtnefndur Ási Friðriks, var á sín- um tíma félagi í svokölluðu Hrekkjalómafélagi í Eyjum ásamt fleiri ungum mönnum þar. Þeir voru þekktir fyrir ýmsa góðlátlega hrekki, sem engum varð svo sem meint af en fólk gjarnan hló að uppátækjunum. Einu sinni sturtuðu þeir íshlassi fyrir framan Tótaturn til að stríða Halla syni Tóta. Einnig tjóðruðu þeir eitt sinn svín, sem átti að grilla, á lóð- inni heima hjá Sigurgeiri þá ljós- myndara Morgunblaðsins við litla hrifningu ljósmyndarans, að sagt var. Einnig færðu þeir eitt sinn Bryndísi Schram lopapeysu (þori ekki að segja frá í hvaða tilgangi) og Jóni Baldvini drullusokk, sem varð til þess að Sigmund, teiknari Morgunblaðsins, teiknaði Jón Baldvin æ síðan með drullusokk í hendinni. En nú hefur Ási Frið- riks snúið við blaðinu því hann hrekkti illa skjólstæðinga sína, þ.e. þroskahefta á Suðurnesjum, með því að greiða þeim ekki at- kvæði með afturvirkri uppbót. Það var slæmur hrekkur, Ási, og ekki í anda þinna gömlu félaga í Eyjum. Það er slæmt, Ási minn, að vera undir járnhælnum á Bjarna fjár- málaráðherra. Eftir Hjörleif Hallgríms » Bjarni fjármálaráð- herra og formaður Sjálfstæðisflokksins er ekki að beina orðum sín- um til bláfátæka gamla fólksins með bréfinu „Ágæti kjósandi“. Hjörleifur Hallgríms Höfundur er eldri borgari á Akureyri. Bað um að vera dæmdur af verkum sínum Fólk er rautt í framan af reiði vegna hugmynda um einka- rekstur í heilbrigð- isþjónustunni hjá Kristjáni Þór og fé- lögum vegna fjölgunar heilsugæslustöðva. Gjarnan er nefnt sem slæmt dæmi svo- kallað sjúkrahótel í þessu sambandi. Það klúður var vegna „misskilnings“ Sjúkratrygginga Íslands á hlutverki sjúkrahótela þar sem óskað var eftir tilboði í gistiheimili án þjónustu en það gengur ekki. Þetta endurtóku þeir nýlega á Akureyri. Auðvitað þarf að vera ljóst frá upphafi hvernig reksturinn á að vera að lágmarki og hvaða verk skuli unnin af rekstraraðilanum. Ekki eitthvað kannski og ef til vill. Sem notandi heilsugæslu þá fagna ég allri fjölgun úr- ræða og vonandi gengur reksturinn svo vel, eftir að allur kostnaður hefur verið greiddur, laun, við- hald húsnæðis og tækjakaup t.d., að þá geti þessir starfsmenn og rekstr- araðilar borgað sér góðan arð af stofnkostnaði við reksturinn. Ef ég borga það sama eða minna og á ríkisrekinni heilsugæslu þá má mér vera flatt sama um rekstr- arformið. Það er ekki sjálfgefið að við rekum hér sérhæfða þjónustu fyr- ir allar mögulegar og ómögulegar sjúkdómstegundir. Hvort tauga- lækningadeild er einkarekin eða ríkisrekin skiptir mig engu máli. Þjónustan fyrir mig og mína er það sem skiptir máli. Ríkisgreidd en einka- eða ríkisrekin skiptir engu. Það er ákaflega mikilvægt fyrir okkur öll að vel sé farið með það fé sem fer í velferðarþjónustu á Íslandi. Við verðum að gæta þess að ausa ekki fé í botnlausa tunnu. Það sem skiptir okkur máli er að kostnaður við góða velferðarþjón- ustu sé greiddur af okkar sköttum og á niðurskurðartímum sé alltaf endað á niðurskurði þar. Sá hluti er ákveðið stór og þann hluta verður að verja. Verjum velferðina og fjölgum valmöguleikum þar. Eftir Guðjón Sigurðsson Guðjón Sigurðsson » Sem notandi heilsu- gæslu þá fagna ég allri fjölgun úrræða... Höfundur er notandi heilsugæslunnar. „Markaðssetning og einka- væðing“ heilbrigðiskerfisins Á fasteignamiðluninni Thorkild Kristensen Erhverv starfa 7 manns, sem eingöngu sinna fjárfestingareignum. Í yfir 30 ár höfum við verið einn af umsvifa- mestu söluaðilum á fjárfestingareignum og bara á árinu 2015 miðluðum við 66 eignum að verðmæti allt að 500.000.000 DKR. Nánari upplýsingar á www.erhverv.thorkildkristensen.dk Fjárfesting í Danmörku Danski fasteignamarkaðurinn er af mörgum álitinn mjög vænlegur í augnablikinu. Verðið á fasteignum hefur ekki enn náð sömu hæðum og í nærliggjandi löndum, og ávöxt- unin er mjög álitleg. Í augnablikinu eru við með þó nokkur verk- efni sem henta vel til fjárfestinga með hárri ávöxtun. Komið og fáið nánari upplýsingar um fjárfestingarkostina á opinni skrifstofu á Grand Hótel, Reykjavík, þriðjudaginn 8. mars kl. 10-12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.