Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 37

Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 ✝ Sighvatur Arn-órsson fæddist að Laugum í Reykjadal 2. ágúst 1926. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Kumbaravogi 24. febrúar 2016. Foreldrar hans voru Helga Krist- jánsdóttir, kennari, f. 1893 í Bakkaseli í Fnjóskadal, d. 1984, og Arnór Sigurjónsson, skólastjóri og rithöfundur, f. 1893 á Sandi í Aðaldal, d. 1980. Börn Arnórs og Helgu voru sex: Steinunn, f. 1923, d. 2007, búsett í Svíþjóð, Erlingur, f. 1924, d. 2006, bóndi á Þverá í Fnjóskadal, Sighvatur, f. 1926, d. 2016, bóndi á Miðhúsum í Biskupstungum, Sólveig, f. 1928, búsett á Dýjabekk í Skagafirði, áður í Útvík, Ing- unn, f. 1930, d. 1961, bjó á Fornhólum í Fnjóskadal og síð- ar Eyvindartungu í Laugardal, og Arnþrúður, f. 1932, búsett í Reykjavík. Auk þess ólu þau hjón upp systurson Helgu, Indr- iða Sigurðsson, son Guðrúnar Kristjánsdóttur og Sigurðar Jónssonar frá Brún, f. 1924, d. 2004, hann bjó í Reykjavík. Seinna tóku þau einnig að sér skólastjóri við Tónlistarskóla Árnesinga, gift Björgvini Eyj- ólfi Björgvinssyni framhalds- skólakennara. Þau búa á Sel- fossi og eiga einn son, Sighvat Örn. 5. Ingunn, f. 1963, um- boðsmaður söngvara og hljóm- sveitarstjóra í Berlín, í sambúð með Cosimo Masi ítölskukenn- ara. Þau búa í Berlín í Þýska- landi og eiga tvö börn, Noru Líf og Natan Arnór. Yngstur og sjötti í röðinni er Hallur, f. 1969, pípulagningamaður, kvæntur Ingibjörgu Ingvadótt- ur sem starfar á nýburadeild sjúkrahúss. Þau búa í Ósló í Noregi og eiga eina dóttur saman, Höllu Maríu. Fyrir á Hallur tvö börn: Lárus Hrafn og Telmu Rós og Ingibjörg á dótturina Rósu Maríu. Sighvatur og Margrét festu árið 1952 kaup á jörðinni Mið- húsum í Biskupstungum og byggðu hana upp frá grunni. Stunduðu þau þar blandaðan búskap í yfir 50 ár. Sighvatur var sjálfmennt- aður fræðimaður. Hann hafði mikinn áhuga á íslenskum fræðum, bókmenntum og list- um, jarðfræði, fornleifafræði, búvísindum o.fl. og eyddi flest- um lausum stundum í lestur. Auk þess hafði hann mjög gam- an af því að fylgjast með íþrótt- um og hvatti börn sín til að iðka frjálsar íþróttir. Sighvatur verður jarðsung- inn frá Skálholtskirkju í dag, 5. mars 2016, kl. 14. Jarðsett verður í Haukadal. dótturdóttur sína, Helgu Jónsdóttur, f. 1959. Sighvatur kvæntist 1. maí 1952 Margréti Grünhagen, f. 1926, d. 1988, frá Hermannsburg í Þýskalandi og eignuðust þau sex börn. Þau eru: 1. Geirþrúður, f. 1953, lyfjafræðingur og bóndi, gift Hallgrími Guðfinnssyni, vélstjóra og bónda. Þau búa á Miðhúsum í Biskupstungum og eiga tvö börn: Ægi Frey og Margréti Björgu. Fyrir á Hall- grímur soninn Þór Fjalar. 2. Hjálmur, f. 1954, píanókennari og tónlistarskólastjórnandi, kvæntur Konstanze Ehlebrecht, bókasafnsfræðingi. Þau búa í Köln í Þýskalandi og eiga einn son, Björn Orra. 3. Arnór, f. 1956, hagfræðingur og aðstoð- arseðlabankastjóri, kvæntur Eddu Hrönn Atladóttur, fram- kvæmdastjóra Leðuriðjunnar Atson. Þau búa í Reykjavík og eiga tvær dætur: Margréti Rut og Renöntu Söru. Fyrir á Edda dótturina Nönnu Elísabetu. 4. Helga, f. 1962, blokk- flautukennari og aðstoðar- Þeir voru erfiðir síðustu metr- arnir í lífsgöngu föður okkar, þegar elli kerling rændi hann völdum, smátt og smátt, yfir jafn- vægi, líkamsstyrk, máli og minni sem eitt sinn var hans mesti styrkur. En hjartað bjó yfir seiglu og neitaði að gefast upp langt fram á nítugasta aldursár; seiglu sem einnig var skapgerð- areinkenni þessa hægláta, hóf- stillta og vinnusama manns. En þrátt fyrir erfið lokaár var lífið föður okkar gott. Hann eignaðist góða konu og átti með henni sex börn sem öll hafa komist til manns, og saman byggðu þau blómlegt bú í sveit þar sem nátt- úrufegurð er einstök og mannlífið gott. Þegar við látum hugann reika til áranna sem við áttum saman gerum við okkur grein fyrir því hve lánsöm við vorum að fá að alast upp undir handarjaðri sam- stilltra hjóna sem gáfu okkur bæði líkamlegt og andlegt vega- nesti, ást og umhyggju, sem nær- ir okkur enn. Faðir okkar var þó ekki maður margra orða þegar tilfinningar voru annars vegar, heldur miðlaði því sem ósagt var með mildri nærveru. Hann var traustur bakhjarl, yfirvegaður og ráðagóður með næmt skynbragð á hið skoplega, þótt seint verði hann talinn mikill gleðimaður. Þess á milli gat hann verið nið- ursokkinn í eigin hugsanir eða lestur og þegar hann var sestur í hornið sitt á bekknum við eldhús- borðið á Miðhúsum við blaðalest- ur var fátt sem raskaði ró hans eða náði athygli. Hann fylgdist með þjóðmálunum af áhuga en var fremur spar á að lýsa skoð- unum sínum og aldrei reyndi hann að innræta okkur systkin- um eigin stjórnmálaskoðanir. Hann var efahyggjumaður, hvort heldur í trúmálum eða stjórnmál- um. Samt þurfti enginn að efast um þann „móralska kompás“ sem réð viðhorfum hans og gerðum og mótaði okkur. Ekki minnumst við þess að hafa heyrt hann tala illa um nokkurn mann, sem segir meira um hans persónu en mörg orð. Þótt hæglátur væri og hlé- drægur gat faðir okkar verið ástríðumaður öðrum þræði, sér- staklega þegar kom að sauðfjár- rækt. Hann var bóndi af Guðs náð og aldrei urðum við vör við að hann efaðist um það hlutskipti sitt að verða bóndi. Það var þó ekki sjálfgefið því hann var af- burðanámsmaður og hafði breitt áhugasvið. Bókaskápur föður hans á Þverá og búskapurinn heillaði þó meira en menntaskól- inn og því fór svo að faðir okkar varð víðmenntaður án þess að ljúka prófi. Námsferlinum var þó ekki alveg lokið því um skeið nam hann við Myndlista- og handíða- skóla Íslands. Mun það hafa verið sumum kennurum hans þar nokkur vonbrigði að hann skyldi afneita listagyðjunni til þess að verða bóndi í Biskupstungum. Við kveðjum föður okkar með sárum söknuði en um leið full þakklætis fyrir að hafa þó fengið að njóta nærveru hans svo lengi. Dauðans líknandi hönd hefur nú bundið enda á þjáningu hans og leitt hann inn á ókunnar slóðir. Við sem eftir lifum yljum okkur við minningarnar. Við viljum að lokum færa okk- ar innilegustu þakkir til starfs- fólksins á Kumbaravogi sem veitti föður okkar ómetanlegan stuðning og hlýju síðustu árin. Geirþrúður, Hjálmur, Arnór, Helga, Ingunn og Hallur Sighvatsbörn. Viska, virðing og vinnusemi eru dygðir sem hefja sig til flugs þegar hugurinn reikar um sam- verustundirnar með Sighvati á Miðhúsum. Eftirfarandi mynd- brot voru honum flutt 85 ára og lýsa að einhverju leyti þessum hlýja manni í því umhverfi þar sem hann naut sín best. Þótt Sig- hvatur hafi fyrst og fremst verið bóndi þá gat engum dulist að þar fór maður sem hlúði að og rækt- aði hvaðeina sem í garði fær gró- ið. Á mýratjarnir merla fer og morgunroða himinn ber. Þar fanga stráin flauelsvind. Og fjöllin – klippimynd. Þá bóndi leysir þarfa þraut og þykkan eldar hafragraut. Úr súru þykir bragða best. Í bekkjarhornið sest. Er sólin hátt í suðrið rís og syngja fuglar lof og prís þá heyrist gegnum búmannsbauk í björtum unaðsgauk. Þar bóndi fyllist blíðri von og beisli sveiflar Ferguson. Í túni jórtrar Ljómalind. Að lambi jarmar kind. Um teig fer golan tær og heit og töðuangan fyllir sveit. Í rjóðu vestri sólin sest á silúettuhest. Með hleðsluvagni hey er sótt um hlýja, mjúka sumarnótt. En hugur bónda um heiðar sér og hagann smala fer. (Björgvin E. Björgvinsson) Við í Makafélagi Miðhúsa- systkina þökkum af heilum hug samfylgdina við þann hægláta og hógværa mann sem tengdafaðir okkar hafði að geyma. Hallgrímur, Konstanze, Edda, Björgvin, Cosimo og Ingibjörg. Lokið er langri og farsælli ævi Sighvatar bróður míns. Við vor- um sex systkinin og fósturbróðir. Sighvatur var miðjubarnið, sem hafði töluverða sérstöðu. Hann var hæglátur, bókelskur, af- bragðs námsmaður og góður teiknari. Bókaormur sem varð snemma læs. Sex ára fékk hann allar Íslendingasögurnar að gjöf frá foreldrum okkar. Ég, sem er sex árum yngri, man hann oft les- andi eða teiknandi. Mér finnst í minningunni að við fjölskyldan höfum séð hann fyrir okkur sem verðandi grúskara og fræðimann. En áhugamálin voru fjölbreytt- ari. Eftir menntaskóla sat hann eitt ár í myndlistarskóla. Þá urðu þáttaskil í lífi hans. Hann hafði kynnst Margréti sinni, sem var frá Þýskalandi. Þau fluttu í Bisk- upstungur og þar biðu þeirra mikil og krefjandi verkefni. Þau eignuðust jörðina Miðhús, sem þá var í eyði, og byggðu þar allt upp frá grunni. Það varð ævistarf þeirra að breyta eyðijörð í blóm- legt býli og koma upp börnum sínum sex til náms og starfa. Sig- hvatur hafði reynslu af sveita- störfum, því búskapurinn á Þverá í Fnjóskadal, jörð foreldra okkar, hafði mikið verið í umsjá þeirra bræðra, Erlings og hans. Sig- hvatur og Margrét kunnu vel við sig í Tungunum og Tungnamenn tóku vel á móti þessu unga fólki. Heimilið var að mörgu leyti sér- stakt. Þrátt fyrir mikla vinnu og langan vinnudag var mikið lesið, hlustað á fréttir, spilað á hljóð- færi og spjallað um margs konar fróðleik enda áhugamálin fjöl- breytt. Uppeldi barnanna var frjálslegt og örvandi, enda öll systkinin vel menntuð og öflugt starfsfólk. Mörg börn áttu líka kost á sumardvöl hjá þeim hjón- um og eiga þaðan góðar minning- ar, þar á meðal dætur okkar Stef- áns, Helga og Auður. Þau Margrét og Sighvatur voru ólík en mjög samhent og báru mikla virðingu og vinsemd hvort til annars. Það var mikið áfall þegar Margrét, sú góða kona, féll frá árið 1988. Sighvatur náði sér raunar aldrei eftir þann mikla missi. Við Stefán erum mjög þakklát fyrir ótal góðar stundir sem við nutum í heim- sóknum í Miðhús og öll samskipti við það góða fólk. Blessuð sé minning Sighvatar bróður míns. Arnþrúður Arnórsdóttir. Sem barn var ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að dvelja lung- ann úr sumrum á menningar- heimilinu Miðhúsum í Biskups- tungum hjá þeim Sighvati og Margréti. Tengsl og vinátta fjöl- skyldna okkar náði langt aftur. Faðir minn og föðurbróðir voru báðir sumarstrákar á býlinu og Arnór faðir Sighvats, skólastjóri á Laugum, hvatti Tómas afa minn til að ganga menntaveginn. Þegar voraði og sauðburður hófst héldu mér engin bönd og fékk ég iðulega að flýta prófum til að komast í sveitina. Ég naut þess að vera innan um dýrin og ganga í verkin. Ekki spillti heldur gleðin sem fylgdi samvistum við börn þeirra hjóna, tengdabörn og barnabörn. Á Miðhúsum gengu allir glaðir til verka og í hey- skapnum unnu margar hendur létt verk. Þegar hann stóð sem hæst var ekki óalgengt að það væru vel á annan tug manna á heimilinu og þótt þröngt væri sof- ið var alltaf pláss og allir vel- komnir. Margrét og Sighvatur voru mjög gestrisin. Ósjaldan bar að garði gesti úr borginni eða ut- an úr heimi. Tónlist var í háveg- um höfð og mikið sungið. Sig- hvatur var bóndi af ástríðu og lét sér annt um velferð dýra sinna. Hann var natinn við skepnurnar, þekkti hverja kind á svipnum og gat rakið ættir þeirra langt aftur. Sighvatur var líka víðlesinn og mikill íslenskumaður. Hann tengdi gjarnan þessi tvö áhuga- mál sín þegar hann nefndi dýrin. Í fjárhúsinu á Miðhúsum kynnt- ist ég fyrst helstu kvenskörung- um Íslendingasagnanna og þegar hann nefndi kýrnar notaðist hann gjarnan við samheiti innan sömu ættar, s.s. nöfn Njarðardætra; Hrönn, Dröfn og Rán. Þannig lærði ég ýmis orð sem ekki voru algeng og seinna komu sér vel við skýringar á dróttkvæðum í menntaskóla. Sighvatur var ekki maður margra orða en þoldi skrafhreifnina í stúlkubarninu sem elti hann á röndum í fjárhús- inu með spurningaflaumi. Hann var þolinmóður og hlýr og aldrei heyrði ég hann segja styggðarorð við nokkurn mann. Sighvatur var líka maður hugsjóna og þó svo að hann bæri ekki pólitískar skoð- anir sínar á borð þá fór ekki á milli mála að hann var jafnaðar- maður. Hann hafði einlægan áhuga á þjóð- og heimsmálum. Sighvatur var strangheiðarlegur og tók hagsmuni fjöldans oft fram yfir sína eigin. Ég man sér- staklega að það sveið þegar hon- um var refsað með minni fram- leiðslukvóta fyrir að hafa farið að tilmælum ríkisstjórnarinnar og dregið úr framleiðni árin fyrir niðurskurð. Mér verður oft hugs- að til þess þegar ég verð vitni að samskonar ákvörðunum stjórn- enda í aðþrengdu heilbrigðiskerf- inu. Af Margréti lærði ég líka margt. Fyrir utan tónlist og heimilisstörf kenndi hún mér um lækningamátt jurta og vakti fyrst áhuga minn á læknisstarfinu. Sjálf var hún læknir af Guðs náð og ég á henni líf mitt að launa fyr- ir það hvað hún var snögg að greina botnlangabólgu og koma mér undir læknishendur. Miðhús voru paradís bernsku minnar og skipa enn stóran sess í hjarta mínu. Ég þakka Sighvati og Mar- gréti fyrir yndislegar minningar. Elsku Þrúða, Hjálmur, Arnór, Helga, Ingunn og Hallur og fjöl- skyldur, innilegustu samúðar- kveðjur. Björg Þorsteinsdóttir. Ef ég mætti yrkja, yrkja vildi ég jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænar gjörð, vorsins söngvaseiður sálmalögin hans. Blómgar akur breiður, blessun skaparans. (Bjarni Ásgeirsson.) Látinn er í hárri elli Sighvatur bóndi Arnórsson á Miðhúsum. Margs er að minnast frá liðnum tíma enda samgangur mikill og náin samvinna á milli bæjanna. Staðfesta og einurð einkenndu Sighvat en jafnframt fylgdi hon- um hæglát rósemi og yfirvegun. Þó vísast hafi honum ungum manni verið flestir vegir færir vildi hann og valdi að yrkja jörð- ina og upplifa söngvaseið vorsins. Árið 1952 kom Sighvatur í Bisk- upstungur í leit að jarðnæði til ábúðar og kaupir jörðina Miðhús sem þá var í eyði. Með honum í þessum búskaparáformum var kona hans Margrét Grünhagen, ein þeirra þýsku kvenna sem hingað komu í kjölfar heimsstyrj- aldarinnar síðari. Með fágætri elju og dugnaði byggðu Sighvat- ur og Margrét jörðina upp og draumurinn um blómlegt bú í fal- legri sveit rættist. Sighvatur og Margrét voru samrýmd og sam- hent þó þau væru ekki sprottin úr sama jarðvegi. Margrét var menntuð í tónlist og með henni fengu Tungnamenn andblæ evrópskrar menningar sem göfg- aði mannlífið og setti svip á sam- félagið. Þau eignuðust sex börn, einstakan hóp hæfileikaríks fólks til hugar og handar. Sighvatur var bóndi af ástríðu og mikill ræktunarmaður, bæði á jörð og fénað. Ærnar voru í miklu uppáhaldi, bæði hyrndar og koll- óttar, og kýrnar mjólkuðu vel. Hestar einkum notaðir til smöl- unar, en oft var Sighvatur gang- andi eða hlaupandi, enda léttur á fæti og jafnan með góða fjár- hunda sér við hlið. Eftir annir dagsins, hvort sem var í smala- mennsku eða heyskap, var gam- an að setjast niður með Sighvati og heyra hann segja gamansögur eða fara með kveðskap af Þing- eyingum, þaðan sem hann var upprunninn. Málfarið var skýrt og hreint, framburður norðlensk- ur og orðfærið stundum framandi Sunnlendingum. Hann var haf- sjór af fróðleik hvar sem borið var niður, víðlesinn og alltaf að bæta við sig þekkingu. Heimilið var raunar einstakt menningar- heimili þar sem ljúfa tóna frá hljóðfæraleik og söng lagði út á hlað, mitt í amstri dagsins. Myndlistin var ekki heldur langt undan en Sighvatur málaði myndir á yngri árum og var völ- undur í höndum. Hjálpsemi og hjartahlýja einkenndi heimilis- braginn og þangað var gott að leita með stórt og smátt, trítla gamla Kóngveginn milli bæjanna með lítið erindi en umfram allt að sækja í trausta vináttu góðra granna. Nú er komið að leiðarlokum, Sighvatur farinn að smala önnur Brúarárskörð. Við kveðjum hann með söknuði og þökk fyrir sam- fylgdina. Fjölskyldu Sighvats vottum við okkar dýpstu samúð. Systkinin frá Úthlíð II, Ólafur, Sigríður, Hjördís, Jónína Birna og fjölskyldur. Sighvatur Arnórsson Elsku besti pabbi minn ég skil bara ekki að þú skulir vera farinn. Maður er svo eig- ingjarn að halda að það að missa einhvern svona mikilvæg- an geti ekki komið fyrir mann sjálfan. Ég hugsa stöðugt til þín og langar svo að koma í heim- sókn og fá mér einn hryllilega vondan senseo kaffi og kvarta aðeins yfir hvað kaffið sé vont og ræða svo um helstu daglegu mál við þig. Það mun aldrei neinn komast í þín spor. Það sem þú gast hamast í öllum systkinabörnunum þínum var stundum engin hemja. Þið gátuð látið alveg eins og vitleysingar og hlóguð manna mest að ykkur sjálfum og alltaf var jafngaman því við erum spes fjölskylda með mjög spes húmor sem eng- inn utanaðkomandi mun nokk- Erlendur Hilmisson ✝ Erlendur Hilm-isson fæddist 9. febrúar 1952. Hann lést 6. febrúar 2016. Útför Erlendar fór fram í kyrrþey. urn tímann skilja. Við vorum svo ótrúlega lík á margan hátt. Við erum bæði róleg þannig að stundum mætti segja að það rynni ekki í okkur blóðið. Við erum ekki hrifin af því að vera í margmenni nema þegar okkar nánasta er með okkur. Við gerðum ekki vesen úr hlutunum, fórum kannski í fýlu í smá tíma en svo varð allt gott aftur, það höfum við nú pottþétt frá Hilla afa. Við þurft- um ekki að tala þegar við vorum saman, sátum bara og gláptum á sjónvarpið eða eitthvað og vorum bara saman. Barnabörnin þín misstu svo mikið þegar þú fórst því betri afa hefði ekkert barn getað hugsað sér. Öll börn elskuðu þig. Krubbið, dóta- teygja og hobbuddur og sudda og öll hin munu aldrei gleyma þér því þú varst þeim alltaf svo góður, elsku pabbi minn. Ég tárast þegar ég skrifa þetta því við höfum öll misst svo mikið. Þú varst hetjan mín og verður alltaf. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig, alveg sama þó þú værir ósáttur við eitthvað sem ég var að gera. Þá léstu mig al- veg heyra það en til staðar varstu samt alltaf. Sem betur fer á ég svo margar minningar um okkur saman. Við fórum á rúntinn um helgar snemma á morgnana því við vorum þau einu sem voru vöknuð. Við fór- um mikið upp á gömlu rusla- haugana sem voru uppi á heiði því mér fannst svo gaman að skoða alla ónýtu bílana sem voru þar. Við fórum oft til Binna því hann var líka vaknaður og gaf okkur kaffi og leyfði mér að leika mér í veggsímanum sínum. Þegar ég skreið uppí til þín á nóttinni ef mig dreymdi illa, þá lagðist ég á rúmendann og þú hélst mér alla nóttina svo ég dytti ekki fram úr og svafst al- veg pottþétt ekki mikið sjálfur þessar nætur en lést þig hafa það og minntist aldrei á það að þetta væri ekki í boði. En minn- ingarnar eru svo miklu, miklu fleiri um þig. En nú verð ég víst að kveðja þig, pabbi minn. Mér þykir svo vænt um þig og mun alltaf varðveita minningarnar og mun alltaf halda minningunni þinni á lofti. Ég reyni að vera eins sterk og ég get miðað við aðstæður þó svo að það sé erfitt. „Sa var sa.“ Þín dóttir, Berglind.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.