Morgunblaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 39
að hjálpa öllum í kringum þig og vorum við engin undantekning þar á. Það var lítið mál að renna suður og parketleggja þegar við keyptum okkar fyrstu íbúð. Og þegar við fluttum heim frá Dan- mörku eftir nám var heldur ekk- ert mál að skjótast út og pakka í gáminn til að koma okkur heim. 6. desember 2003 er mér minnisstæður þar sem frum- burðurinn okkar og þitt fyrsta barnabarn var akkúrat eins mánaðar gamalt. Þann dag var jólahlaðborð í vinnunni hjá Jó- hanni og þú tókst ekki annað í mál en að keyra til Reykjavíkur frá Grundarfirði um hávetur til að passa drenginn í tvo klukku- tíma á meðan nýbökuðu foreldr- arnir skruppu á jólahlaðborð. Boðinn og búinn. Alltaf. Svona varst þú. Mikið hefðum við viljað hafa þig lengur hjá okkur, elsku Öddi. Með ást og virðingu, Margrét Lukka Brynjarsdóttir. Í dag þegar ég er að kveðja litla bróður minn finnst mér við hæfi að rifja upp hitt og þetta frá okkar ævi. Þó að níu ára ald- ursmunur væri á okkur bræðr- um kom okkur einstaklega vel saman. Á mínum unglingsárum gat þó fokið í mig við hann þeg- ar ég taldi kæruleysi hans valda mér ómældri fyrirhöfn. Eins og kom fyrir á síldarárunum, en hann dvaldi hjá okkur austur á Seyðisfirði að sumrinu. Ekki var annað betur fallið til að ergja skap mitt en að koma heim frá vinnu klukkan ellefu að kvöldi og vera þá sendur til að leita á bryggjum og síldarplönum að Erni sem hafði gleymt sér í veiðigleði eða öðru skemmtilegu og alltaf var afsökunin sú sama: „Það eru allir að vinna ennþá og ekki farið að dimma.“ Til marks um veiðigleði Arnar má geta þess að sem smástrákur á Bóndastöðum stundaði hann færaveiðar á Liverpolsbryggjun- um og í Fjarðaránni. Hann setti ekki smámuni fyrir sig þegar veiðihugurinn greip hann. Ein- hverju sinni þegar hann kom í hádegismat og var mikið að flýta sér verður Sigríður móðursystir okkar vör við að eitthvað kvikt virðist vera að skríða upp úr buxnavasa hans, henni varð að vonum illa brugðið en hún var einstök snyrtimanneskja. Hún spurði því fósturson sinn nokkuð höstug: „Hvað ertu eiginlega með í vösunum.“ Og Örn svaraði að bragði: „Þetta er bara beitan okkar, við erum að fara út á bryggju strax eftir matinn og fundum ekki dós undir ormana.“ Örn var hrifnæmur sem krakki en vildi þó prófa hlutina sjálfur til öryggis. Eftir að hann, sex ára gamall, hafði séð teiknimynd með Stjána bláa krafðist hann þess af Siggu að hún keypti spí- nat handa honum. Erni þótti spí- natið vera bölvað á bragðið en til mikils var að vinna og að end- ingu lauk hann við skammtinn. Þar sem hann var ekki alveg viss um hvort kraftarnir væru komnir í raun og veru bauð hann fósturmóður sinni í glímu á eld- húsgólfinu svona til að ganga úr skugga um virknina. Með svona hugdettum vakti Örn gleði hjá fólkinu sínu alveg frá barnsaldri. Seinna átti þetta glaða skap ásamt vinnusemi og vandvirkni eftir að gera hann að einhverj- um besta vinnufélaga sem ég hef átt. Strax á unglingsárum fór Örn að stunda sjómennsku, sá atvinnuvegur leiddi hann fljót- lega til Grundarfjarðar þar sem hann kynntist Sigríði Gísladótt- ur, stofnaði fjölskyldu og settist þar að. Ævistarf Arnar varð sjó- mennska á fiskibátum og togara sem gerðir voru út frá Grund- arfirði og er þetta starfsval með- al annars til marks um þraut- seigju hans því að hann kvaldist af sjóveiki meira og minna mörg fyrstu árin. En Örn var aldrei á því að gefast upp við það sem hann ætlaði sér og það sýndi sig ljóslega þegar hann tók upp bar- áttuna við þann illvíga sjúkdóm sem nú hefur haft yfirhöndina. Í þeirri baráttu var öllum vopnum beitt; alþekktri þrjósku, hörku við sjálfan sig ásamt yfirveguðu mati á aðstæðum. Að öllum öðr- um ólöstuðum var Sigga ötulasti og óeigingjarnasti liðsmaður hans, samhent háðu þau þetta stríð til síðasta augnabliks með styrk frá börnum sínum. Þegar komið er að kveðjustund er það huggun harmi gegn að hér er kvaddur góður drengur sem allt- af var samkvæmur sjálfum sér í daglegu lífi. Ég færi Siggu, Jó- hanni, Sirrý og Gísla mínar inni- legustu samúðarkveðjur en jafn- framt vil ég vekja athygli á að Örn mun lifa áfram í góðum minningum okkar sem vorum svo lánsöm að þekkja hann. Reynir. Meira: mbl.is/minningar Árið 1971 hélt hann af stað, tæplega 19 ára strákur úr Reykjavík, á vertíð á Snæfells- nesi. Sjómennskan heillaði og hann hafði fengið pláss á Siglu- nesi SH frá Grundarfirði. Það varð gæfa margra að leiðin hans Ödda skyldi liggja einmitt hing- að, til Grundarfjarðar. Það var gæfa þeirra sem áttu eftir að njóta vináttu hans, gæfa stúlk- unnar sem síðar varð eiginkona hans og ekki síst gæfa hans sjálfs að finna ástina og um- hverfi þar sem hann undi sér vel. Árið 1973 flutti Öddi til henn- ar Siggu sinnar, á Hlíðarveg 15. Þar bjuggu þau Gróa og Gísli með fimm börnum sínum; Sigga var elst, 18 ára, og Hermann yngstur, þá 7 ára gamall. Hemmi leit upp til síðhærða töffarans í bótabuxunum, eins og hann kallaði köflóttu buxurnar hans Ödda, sem voru hátísku- fatnaður á þeim tíma. Töffarinn gaf sér alltaf tíma til að spjalla við guttann og með þeim Hemma og Ödda tókst strax vin- átta sem stóð upp frá því. Það leyndi sér ekki að hér var á ferð ljúflingur sem átti auðvelt með að hæna að sér bæði börn og fullorðna. Hemmi sat um að komast í bíltúr með Siggu og Ödda og það þurfti að tala strák- inn til, um að verða eftir heima, þegar ekki var við hæfi að hann kæmi með á rúntinn. Ef það er eitthvað sem ein- kenndi Ödda öðru fremur var það hjálpsemi. Hann var ein- staklega bóngóður en samt svo langt umfram það, því hjálpsem- in var sjálfsprottin; það þurfti ekki að biðja hann. Án þess að hann væri maður sem tranaði sér fram var hann iðulega mætt- ur þar sem aðstoðar var þörf. Að hluta tengdist það vinnusemi hans, sem var einstök. Öddi var sístarfandi og aldrei verklaus. Ef allt var búið í bili í viðhaldi húss og garðs mátti þó alltaf taka til í bílskúrnum, þvo bílinn eða moppa gólfin. Öddi var verk- laginn og vandvirkur, einstakt snyrtimenni eins og sást á hon- um sjálfum og öllu í kringum hann. En hann var líka mjög smekkvís og hafði auga fyrir fal- legum hlutum. Heimili þeirra Siggu ber vott um það, en einnig um innilega löngun til að hlúa vel að fólkinu sínu og rækta það sem best. Í því, eins og mörgu öðru, voru þau hjónin samtaka. Öddi var glaðlyndur og glettni var eitt hans aðalsmerki. Hann sá mjög gjarnan það broslega og hafði einstakan hátt á tilsvörum, sem voru oft alveg sérstök blanda af hnyttni, glettni og þeirri lífsafstöðu hans að sjá frekar það sem jákvætt var. Hann var fróðleiksfús og sökkti sér ofan í efni um það sem hann hafði gaman af, t.d. tónlist, eða ýmsa praktíska, verklega hluti sem hann vildi kunna skil á. Ekki síst hafði hann þó áhuga á fólki, lag á að spyrja um hagi þess og að hlusta. Það var bæði þægilegt og ánægjulegt að vera í návist hans og að eiga hann sem félaga og vin voru forréttindi. Baráttu síðustu mánaða háði Öddi vopnaður þeim eiginleikum sem voru hans aðalsmerki; að ganga í verkin með jákvæðnina að leiðarljósi og gera sitt besta, þrátt fyrir að brautin væri brött. Við hjónin kveðjum ekki bara mág og svila, heldur traustan og góðan vin, þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samfylgdar og vináttu hans. Blessuð sé minn- ing góðs drengs. Hermann Gíslason og Björg Ágústsdóttir. Það er alltaf erfitt að kveðja vin. Stílvopnin verða þung í höndum. Hugsanir og tilfinning- ar þvælast um í endalausum átökum hjartans og hugans. Hann Örn Jónsson er farinn í ferðina miklu til eilífðarlandsins. Svo snöggt, en eftir sitja ástvinir með sorg og söknuð. En upp úr standa minningarnar og þakk- lætið. Minningar um góðan vin og þakkir fyrir samfylgd góðs félaga. Öddi Jóns kom ungur maður til Grundarfjarðar og blandaðist fljótt okkur heimakrökkunum. Fljótt felldu þau hugi saman, þau Öddi og Sigga. Þau voru glæsilegt par og framundan var líf hinna fullorðnu. Kornung réð- ust þau í húsbyggingu og byggðu sér glæsilegt heimili í Sæbólinu. Glæsileiki, vandað handbragð og einstök snyrti- mennska einkenndi allt sem Öddi kom nálægt. Heimilið og fjölskyldan var honum allt og þar var enginn afsláttur gefinn, allt skyldi vera 100%. Já, hann Öddi var nefnilega 100% maður, óvenju mikið snyrtimenni, glað- sinna og glettinn. Það var gam- an að vera með Ödda, kímnigáfa hans skein alltaf í gegn og kvik- ur gekk hann til allra verka. Hann var einstaklega vandvirk- ur og lagði aldrei illt til nokkurs manns. Hann bar virðingu fyrir lífinu og úr hverju spori lýsir af góðvild og þakklæti. Fátækleg orð megna lítt til þeirrar virð- ingar sem hér ætti við. En héð- an úr heimi fór Örn Jónsson óbugaður. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Sigga mín, börn og barnabörnin, megi ljós minninganna sefa sorgina og þakklæti verða okkur öllum leið- arljós, nú þegar við kveðjum Örn Jónsson. Ingi Hans. Farðu í friði, vinur minn kær. Baráttu vinar, nágranna og samstarfsmanns til margra ára við illvígan sjúkdóm er lokið. Það er þyngra en tárum taki að kveðja mann í blóma lífsins. Margs er að minnast á þeim tíma sem líf fjölskyldna okkar hefur legið saman. Húsbygging- ar hlið við hlið, samstarf á sjó, uppvöxtur barna okkar, ferðalög á erlendri grund og svo mætti lengi telja. Það var gæfa að fá að vera nágranni Arnar og Sigríðar og barna þeirra, minningin geymir gleði, væntumþykju og enda- laust traust. Á þessari samfylgd var ým- islegt brallað, stundum gáfulegt og líka misgáfulegt. Eins og þegar við félagar samþykktum að keyra með eiginkonurnar úr Móseldal í Svartaskóg í Þýska- landi til að skoða sjúkrahúsið í Svartaskógi, sem aldrei fannst. Örn kom ungur að árum til Grundarfjarðar þar sem hann kynntist sinni áskæru eiginkonu, hann varð fljótt mikill Grund- firðingur og öflugur liðsmaður í samfélagi okkar. Örn var kraftmikill sjómaður og handlaginn til allra verka er hann tók sér fyrir hendur og oft mjög úrræðagóður. Hann var hreinn og beinn og talaði um- búðalaust. Með söknuði kveðjum við kæran vin sem ekki þurfti að kveðja svo ungur til að vera tal- inn góður maður. Eiginkonu, börnum og ástvin- um öllum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Runólfur og fjölskylda. Það er með trega í hjarta sem ég kveð gamlan skipsfélaga og góðan vin, Örn Jónsson eða Ödda Jóns eins og hann í dag- legu tali var kallaður. Kynni okkar Ödda byrjuðu árið 2007 þegar ég réð mig um borð í Far- sæl SH. Þó svo að tæp 30 ár skildu okkur að í aldri urðum við fljótt góðir vinir, enda var Öddi léttur í lund, hress og skemmti- legur húmoristi. Þannig mönn- um eru forréttindi að vinna með. Ég veit mætavel að þú varst ekki mikið fyrir væmni og væl, enda af þeirri kynslóð manna sem bitu á jaxlinn og bölvuðu í hljóði ef eitthvað bjátaði á, því ætla ég ekki að ergja þig með þannig skrifum. Klefar okkar Ödda voru hlið við hlið um borð í Farsæl og oftar en ekki þegar við vorum búnir á vakt og Öddi búinn með þrjá kaffibolla fyrir svefninn, enda annálaður kaffi- karl, settist hann á bekkinn í klefanum hjá mér og ræddi mál- in eða hreinlega sat og las í bók eða tímariti. Síðasti kaffibollinn sem við félagarnir tókum saman var á fallegu heimili Ödda og Siggu konu hans. Þá voru veikindin bú- in að taka sinn toll af honum en samt sem áður var hann léttur í lund og með sól í hjarta. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég góðan vin. Mikill er missir og harmur fjölskyldu þinnar. Sendi ég þeim mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Garðar Hafsteinsson. MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur, SIGURÐUR JÓHANNSSON, Heiðarbraut 7, Sandgerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 26. febrúar. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði mánudaginn 7. mars kl. 14. . Ingibjörg Bjarnadóttir, Sigurður Bjarni Sigurðsson, Elfa Björk Erlingsdóttir, Ágúst Már Sigurðsson, Hjörtur Magni Sigurðsson, Katla Vilmundardóttir, barnabörn og Jóhann Guðbrandsson. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA RAKEL SÆMUNDSDÓTTIR, Grænumörk 1, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Fossheimum sunnudaginn 28. febrúar. Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju mánudaginn 7. mars klukkan 14. . Styrmir Hreinsson, Ásdís Styrmisdóttir, Magnús Guðjónsson Öfjörð, Gunnar Styrmisson, Bára Hafliðadóttir, Hjalti Styrmisson, Martha Rut Sigurðardóttir, Sólveig Styrmisdóttir, Viðar Þór Pálsson, Ragnheiður Ásta Styrmisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður og afa, JÓH. GUNNARS PÁLSSONAR, Hraunbæ 103. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Líknardeildar Landspítalans, Kópavogi, og deildar 11-E Landspítalans við Hringbraut. . Hilmar Hlíðberg Gunnarsson, Aðalheiður Svansdóttir, Karólína Gunnarsdóttir, Björn Gíslason, Helga Þóra G. Eder, Peter Eder, Brynja Gunnarsdóttir, Atli Hafsteinsson og afabörnin. Okkar ástkæri maður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS RAGNAR GÍSLASON, fv. yfirtannlæknir, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 2. mars. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. mars klukkan 15. . Gyða Stefánsdóttir, Jóhann Þór Magnússon, Lilja Jóhannsdóttir, Sigríður Dóra Magnúsdóttir, Björgvin Jónsson, Gylfi Magnússon, Hrafnhildur Stefánsdóttir, afabörn og langafabarn. „Nú er hún geng- in, mín skemmti- lega frænka. Það var alltaf líf í kring- um Auði. Hún föðursystir mín var einstök kona. Ég man eftir henni sem barn, þegar hún mætti í barnaafmælin með móð- ur sína og ömmu mína, uppá- klædda í íslenska þjóðbúningn- um. Oft hugsaði ég að það hefði nú tekið tímann sinn að hjálpa ömmu við að klæða sig í slíka múnderingu. Já, amma bjó hjá Auði á Barónsstíg til að byrja með þónokkur ár. Síðar þegar Auður eignaðist mann, Guðjón Júlíusson, hóf hún búskap í Kópavogi á Melaheiðinni og þangað komum við nokkuð oft í afmæli og alltaf var gaman þar. Síðar varð Auður fyrir miklu áfalli þegar hún missti Guðjón langt fyrir aldur fram. En hún Auður Jörundsdóttir ✝ Auður Jör-undsdóttir fæddist 16. júní 1923. Hún lést 17. febrúar 2016. Útför Auðar fór fram 24. febrúar 2016. var gerð úr sterku efni, frænka mín, og hélt áfram næstum eins og ekkert hefði í skorist. Áfram glaðvær, hressileg og litrík. Hún náði alltaf vel til unga fólksins enda talaði hún við það eins og jafningja og það við hana um öll heims- ins málefni. Þegar sonur minn kynntist henni hafði hann mjög gaman af að ræða við Auði. Hún talaði tæpitungulaust um menn og málefni en þó vel. Það er svo stutt síðan hún hélt upp á níræðisafmælið í Turnin- um í Kópavogi fyrir tveimur og hálfu ári. Þá var hún mjög brött að venju. En undanfarna mánuði höfðu mikil veikindi herjað á hana og tekið mjög á hana. Hún hlýtur að hafa orðið hvíldinni fegin enda hafði hún átt gott líf og náð háum aldri. Ég sakna hennar mikið og veit að fjölskylda mín gerir það líka. Ég votta dætrum hennar og syni auk barnabarna innilega samúð mína.“ Egill Þórðarson, frændi. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.