Morgunblaðið - 05.03.2016, Qupperneq 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það þarf ekki mikið til að fáþessa litlu þjóð upp á aft-urlappirnar. Eða a.m.k. lítur
það þannig út. Fólk í stærri ríkjum
hefur nákvæmlega sömu þörf fyrir
að hneykslast og hrósa og við en í
litlu samfélagi finnst manni eins og
allir og amma þín líka séu að tuða
eða rífast yfir einhverju málinu.
Tilkoma samfélagsmiðla eykur á
þessa tilfinningu, það er eins og all-
ir séu með skoðun á þessu eina máli
– hversu lítilmótleg sem hún kann
að vera. Þannig fannst manni hlut-
irnir vera eftir að Reykjavíkur-
dætur mættu til Gísla Marteins og
fluttu þar lagið „Ógeðsleg“ með til-
þrifum, sveifluðu gervilim og hentu
út línum eins og „Sjúgðu á mér
snípinn, tík“. Ágústa Eva Erlends-
dóttir gekk út úr settinu í miðju at-
riði, lýsti skoðun sinni á því með
tísti á Twitter og barbabrella; allt
fór af stað. Samfélagsmiðlar eru
oft – eins og þið þekkið – orm-
agryfja þar sem umræðuþræðir
leiðast einatt út í hvassyrði, dóna-
skap, almenna vitleysu og, oftar en
ekki, vangaveltur um hvort flug-
völlurinn eigi að vera í Vatnsmýr-
inni eður ei í bland. Þessi umræða
var ekki undanþegin slíku rugli en
innan um voru athyglisverðir
punktar, nema hvað.
En tónlistin?
En það sem vill gleymast í
svona fári er sjálf tónlistin. Þó að
dægurtónlistin hafi alla tíð, frá
Presley og áfram, verið umvafin
öðrum þáttum sem skipta oft sköp-
um (ímynd o.s.frv.) verðum við um
leið að passa að hún verði ekki
gjörsamlega fótum troðin af þeim.
Þannig að, já, tökum hljómsveitina
Reykjavíkurdætur aðeins út fyrir
sviga. Hvað er þetta? Rapp, hipp-
hopp sannarlega, margar raddir og
ólíkar, sumar flottar og aðrar ekki
„Svo ógeðslega nett ...“
Beittar Hver er hræddur við Reykjavíkurdætur?
eins flottar. Eitt það besta í allri
þessari umræðu eru umkvartanir
um að Dæturnar séu lélegar, kunni
ekki að rappa o.s.frv. Snilld, því að
með því feta þær í fótspor mektar-
sveita og byltingaraðila eins og Sex
Pistols, Nirvana, jafnvel Presleys
sjálfs sem þótti bæði óheflaður og
óvandaður. Gagnrýni á þessa vegu
kemur alltaf frá þeim sem „vita“
hvernig á að gera hlutina og
þekkja gott frá lélegu. Og eiga
Dæturnar form- eða fagurfræðileg-
an séns í aðra „lengra komna“
rappara? Í þessu samhengi skiptir
það ekki nokkru einasta máli. Eins
og við þekkjum var færni í öðru
sæti hjá fyrstu pönksveitunum,
málið var hvað þú gerðir frekar en
hvað þú gast svo ég vísi í fræg um-
mæli Einars Arnar. Og bestu og
áhrifaríkustu síðpönkssveitirnar,
tökum feminískt sterkar sveitir
eins og Slits og Raincoats t.d., vissu
ekki hvað sneri upp eða niður á gít-
urum þegar þær byrjuðu. Dæt-
urnar tala sjálfar um að þær séu
með „illað flow“ og maður verður
var við meðvitaða kaldhæðnina.
Dæturnar starfa þá á athygl-
isverðum umbrotatímum hvað tón-
listarútgáfu varðar. Þær hafa nú
verið að í tvö ár, eru stöðugt í um-
ræðunni en engin plata í efnislegu
formi ennþá. Tónlistin liggur hins
vegar á vefsíðum eins og Sound-
cloud, Youtube og Spotify og Dæt-
urnar nýta sér þessa miðla af kost-
gæfni. Eftir tuttugu ár verða
tónlistarupptökur meira og minna
inni á netinu og þetta er tímanna
tákn. Ein besta plata síðasta árs,
Love Hurts með Sturlu Atlas, er
t.d. „ekki til“ og er það ekki eins-
dæmi.
Skot í fótinn
En ég er svona hálfpartinn að
skjóta mig í fótinn með því að ætla
að taka tónlist þessarar tilteknu
sveitar sérstaklega fyrir og ein-
angra því að Dæturnar eru einmitt
afar skýrt dæmi um dægurtónlist
sem er margbrotinn pakki. Það er
ekki einsýnt hvernig á að pinna
þetta niður; þetta er listhópur,
hreyfing, hljómsveit og blanda af
þessu öllu. Meðlimafjöldi er á reiki
og unnið er með mismunandi miðla.
Það má líka alveg segja að hinn
pólitíski tilgangur helgi dálítið
músíkmeðalið. Að því leytinu til
hafa Dæturnar staðið sig með mik-
illi prýði og kynjapólitísk barátta
þeirra hefur verið áhrifarík og
sannarlega vakið athygli. Hlut-
verkum er snúið við, stungið er á
kýlum, rótgrónir hlutir settir í
spánnýtt samhengi. Ef þú ert ekki
fyrir einhverjum ertu ekki að gera
mikið af viti og Dæturnar rekast á
alla þessa fyrirsjáanlegu veggi sem
bíða þeirra sem hrista upp í hlut-
unum. Það er óhjákvæmilegt og ég
dáist að einurðinni. Læt þetta duga
en bendi að lokum á grein Önnu
Marsibil Clausen á mbl.is, „Ekki
þínar Dætur“, sem fer dýpra í
kynja- og menningarpólitíkina en
hér er gert. En ef það er einhver
sem stendur með pálmann í hönd-
unum eftir allt þetta fár þá eru það
Reykjavíkurdætur. Djöfull er það
„illað“!
» Að því leytinu tilhafa Dæturnar stað-
ið sig með mikilli prýði
og kynjapólitísk barátta
þeirra hefur verið
áhrifarík og sannarlega
vakið athygli.
Reykjavíkurdætur gerðu allt vitlaust í þætti Gísla Marteins, sitt sýndist hverjum og samfélagsmiðlar
fóru á hliðina með glans. Dæturnar hafa nú verið starfandi í rúm tvö ár og m.a. beitt sér fyrir hress-
andi kynjapólitík í gegnum margvíslega miðla eins og lög, myndbönd, ljósmyndir og sviðsframkomu.
Morgunblaðið/Eggert
Norska hljómsveitin Band of Gold
hlaut í fyrradag Norrænu tónlist-
arverðlaunin fyrir bestu norrænu
plötu ársins 2015. Tilkynnt var um
verðlaunin á tónlistarhátíðinni By:-
Larm í Ósló. Verðlaunin hlýtur
hljómsveitin fyrir plötu sína sam-
nefnda sveitinni. Meðal þeirra 12
platna sem tilnefndar voru til verð-
launanna voru Vulnicura eftir Björk
og 27 eftir Teit Magnússon.
Í úrskurði dómnefndar segir að
platan, sem er sú fyrsta sem hljóm-
sveitin sendir frá sér, hafi verið sú
besta að samdóma áliti dómnefnd-
armanna. Á henni megi finna
heillandi blöndu ýmissa stíla og hún
byggist í grunninn á klassísku popp-
rokki, allt frá Abba til Fleetwood
Mac. Lagaútsetningar séu heillandi,
lagasmíðarnar frábærar sem og
hljóðfæraleikur.
Verðlaunin hafa verið veitt árlega
frá árinu 2010 og hlaut Jónsi þau
fyrstur fyrir plötuna Go. Verð-
launafé er 30.000 norskar krónur.
Band of Gold er fyrsta norska
platan sem hlýtur verðlaunin.
Ljósmynd/Anthony Huus
Tvíeyki Band of Gold skipa Nina Elisabeth Mortvedt og Nikolai Hængsle.
Band of Gold hlaut Nor-
rænu tónlistarverðlaunin
Brynhildur Krist-
insdóttir opnar
sýninguna Ég læt
til leiðast í Komp-
unni í Alþýðuhús-
inu á Siglufirði í
dag kl. 15.
Brynhildur
sýnir skúlptúra
og myndverk og
eru verkin flest
mótuð úr pappa-
massa og álpappír og fjalla um tján-
ingu mannsins, hvernig hugmyndir
hlutgerast og orð falla í stafi. Bryn-
hildur hefur haldið nokkrar einka-
sýningar og tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum.
Ég læt til leiðast
í Kompunni
Hluti eins af verk-
um Brynhildar.
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík
BROTHERS GRIMSBY 1:50, 6, 8, 10
TRIPLE 9 10
FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 8
ZOOTROPOLIS 2D 2, 3:40, 5 ÍSL.TAL
ZOOTROPOLIS 2D 5:55 ENS.TAL
DEADPOOL 8, 10:20
ALVIN OG ÍKORNARNIR 1:40, 3:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 1:40
TILBOÐ KL 1:50
-T.V., Bíóvefurinn