Morgunblaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 56
LAUGARDAGUR 5. MARS 65. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Vann 48,7 milljónir eftir borgarferð
2. Baunadós sprakk framan í Ásdísi
3. Heimir Örn boðar forsetaframboð
4. Veiðiréttur ekki á sumarbústað
Finnski tónlistarmaðurinn Jaakko
Eino Kalevi heldur tónleika á Loft
hosteli í Bankastræti í kvöld kl. 21 og
er aðgangur ókeypis. Gjörninga-
pönktvíeykið Panos from Komodo
hitar upp. Kalevi hélt síðast tónleika
hér á landi á Iceland Airwaves-
tónlistarhátíðinni og voru þeir taldir
einn af hápunktum hátíðarinnar.
Stuttu síðar gaf hann út breiðskífu á
vegum eins virtasta plötufyrirtækis
heims, Domino Records. Hún vakti
mikla athygli og hlaut mikið lof gagn-
rýnenda og þá m.a. í Pitchfork. Kalevi
hefur verið í tónleikaferð um Evrópu
og ákvað að koma við á Íslandi. Á tón-
leikunum í kvöld kemur Kalevi fram
með Magnúsi Tryggvasyni úr hljóm-
sveitinni Moses Hightower og Tuma
Árnasyni úr Grísalappalísu. Tónlist
Kalevi er lýst sem silkimjúku hljóð-
gervlapoppi með dökku ívafi og hefur
verið líkt við tónlist Ariel Pink, Ca-
ribou og Arthur Russel.
Kalevi heldur tón-
leika á Loft hosteli
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustanátt síðdegis, fyrst suðvestantil. Suðaustan 8-13
m/s og slydda eða snjókoma á Suður- og Vesturlandi í kvöld en rigning við ströndina.
Á sunnudag Vestan 8-13 m/s, él og vægt frost. Suðlægari og slydda eða rigning suð-
austanlands en úrkomulítið norðan- og norðaustantil. Á mánudag Vaxandi suðaustanátt
með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu, en áfram úrkomulítið norðan- og norð-
austanlands. Hýnandi um allt land og víða frostlaust um kvöldið.
„Það vita allir hérna í Eyjum hvað
hann getur. Að mínu mati er hann
besti sóknarmaður í deildinni og
langbesta hægri skyttan í deildinni.
Agnar er alla vega okkar lykilleik-
maður,“ segir leikmaður ÍBV um
Agnar Smára Jónsson, örvhenta
skyttu í handknattleiksliði Eyja-
manna, sem er leikmaður umferð-
arinnar hjá Morgunblaðinu. »2
Langbesta hægri
skyttan í deildinni
Haukar hafa ákveðið að
stokka upp í þjálfarateymi
kvennaliðs félags í körfu-
knattleik. Um leið var sam-
þykkt að segja útlenda leik-
manni kvennaliðs, Chelsie
Alexa Schweers, upp störf-
um. Ingvari Guðjónssyni og
Andra Þór Kristinssyni sem
voru þjálfarar liðsins var
sagt upp á miðvikudag.
Ingvar var endurráð-
inn í gærmorgun. »1
Hrókeringar hjá
kvennaliði Hauka
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar er á
morgun og þá verður kvöldmessa
með stjörnustríðsþema í Hjalla-
kirkju í Kópavogi. Öll tónlist verður
úr Star Wars-myndunum og fluttar
verða stuttar hugleiðingar sem allar
tengjast stefjum úr myndunum.
Sigfús Kristjánsson, sókn-
arprestur í Hjallakirkju, segir að sú
hefð hafi skapast í Hjallakirkju að
bregða út af vananum á æskulýðs-
degi kirkjunnar. „Ég er Star Wars-
nörd og Guðný Einarsdóttir org-
anisti, sem er það ekki, er hins vegar
mjög hrifin af John Williams, tón-
skáldinu á bak við alla tónlistina í
Star Wars-myndunum. Okkur lang-
aði til þess að gera eitthvað með tón-
listina, maður Guðnýjar er í Brass-
bandi Reykjavíkur, hann hreifst af
hugmyndinni, bar hana undir félaga
sína í bandinu og þeir vildu vera
með. Því verður 25 manna blás-
arahljómsveit með okkur auk kórs-
ins og þau munu meðal annars
spreyta sig á Duel of the Fates, einu
þekktasta Star Wars-laginu eftir
John Williams.“
Fjórar stuttar hugleiðingar
Í hugleiðingunum, sem allar verða
stuttar, ætlar Sigfús að bera saman
stef í myndunum og Biblíunni. Hann
byrjar á því að fjalla um baráttu
góðs og ills, stóra þemað í gegnum
allar Star Wars-myndirnar, og seg-
ist taka dæmi úr sköpunarsögunni
og frá Maríu og Jósef. „Ég ætla að
tala um að það þurfi að taka bestu
ákvörðunina en ekki þá auðveld-
ustu,“ segir hann og vísar í sam-
anburð á Han Solo, Hans Óla á ís-
lensku, og Jósef.
Í hugleiðingu um óttann tekur
Sigfús fyrir Anakin sem verður
Svarthöfði. „Ferli sem er svolítið
stýrt af ótta,“ útskýrir hann og
bendir á hliðstæðu þegar Pétur af-
neitar Jesú þrisvar. Í hugleiðingu
um kærleikann ber Sigfús saman
Svarthöfða og tollheimtumann, sem
Jesú mætir í Biblíunni.
Í síðustu hugleiðingunni leggur
Sigfús út frá Davíðssálmum númer
átta og 90. „Þeir fjalla um að okkur
sé ætlað stórt hlutverk þó að við
séum lítil,“ segir hann og bætir við
að hann ætli að benda á litla karakt-
era í Star Wars-myndunum sem þó
breyta gangi mála.
„Ég vona að það komi eitthvað
skemmtilegt út úr þessu,“ segir Sig-
fús, en guðsþjónustan hefst klukkan
20. Í lokin munu prestarnir Sigfús
Kristjánsson og Steinunn Arn-
þrúður Björnsdóttir, ásamt Toshiki
Toma, presti innflytjenda, og Ólafi
Jóni Magnússyni fermingarfræðara
flytja bæn og blessun.
Stjörnustríð í Hjallakirkju
Tengir stef
úr Star Wars við
stef í Biblíunni
Morgunblaðið/Golli
Hjallakirkja Guðný Einarsdóttir, Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Sigfús Kristjánsson verða í eldlínunni.
Sjöunda myndin The Force Awakens var frumsýnd ekki alls fyrir löngu.
Systurnar og
sópransöngkon-
urnar Erla Björg
og Rannveig Kára-
dætur koma fram
á tónleikum í
safnaðarheimilinu
í Vídalínskirkju í
Garðabæ á morg-
un kl. 17 með Hrönn Þráinsdóttur pí-
anóleikara. Þær munu töfra fram yf-
irnáttúrulegar verur á borð við álfa,
tröll, skrímsli, sírenur og drauga með
seiðandi tónum við kertaljós í eins-
konar baðstofustemningu, eins og
segir í tilkynningu. Flutt verða verk
eftir Sigvalda Kaldalóns, Jórunni Við-
ar, Clöru, Róbert Schumann o.fl.
Töfra fram yfirnátt-
úrulegar verur
Ísland vann glæsilegan sigur á Dan-
mörku, 4:1, í Algarve-bikar kvenna í
knattspyrnu í gær og liðið stendur nú
vel að vígi í efsta sætinu í sínum riðli.
Hólmfríður Magnúsdóttir innsiglaði
sigurinn í uppbótartíma. „Nú vitum
við hvað þarf
að gera gegn
mjög sterku
liði Kanada á
mánudag-
inn,“ segir
Freyr Alex-
andersson
landsliðs-
þjálfari. »1, 3
Glæsilegur sigur gegn
Dönum á Algarve