Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 8
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
7
-0
0
1
3
Arnhild Gjönnes, lögmaður hjá NHO
og sérfræðingur á sviði opinberra innkaupa
Public procurement and the way forward
Dagmar Sigurðardóttir, yfirlögfræðingur Ríkiskaupa
Kröfur opinberra aðila til fyrirtækja í útboðum
– ýmis álitaefni
Ragnheiður H. Magnúsdóttir, stjórnarformaður
Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja
Mun næsta tæknibylting hafa áhrif
á opinber innkaup?
Theódóra Þorsteinsdóttir, þingmaður Bjartrar
framtíðar og formaður bæjarráðs Kópavogs
Opinber innkaup eiga að vera stjórntæki – til að ná
fram hagkvæmari rekstri, trausti og bættri hegðun
Fundarstjóri er Ásdís Kristjánsdóttir,
forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins
Opinber innkaup
- getum við gert betur?
Opinn fundur Samtaka iðnaðarins
fimmtudaginn 12. janúar kl. 8.30–10.30
á Grand Hótel Reykjavík
Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.
Skráning á www.si.is
Dagskrá
Grikkland Miklir kuldar með snjó-
komu hafa hrjáð íbúa í suðaustan-
verðri Evrópu undanfarið. Tugir
hafa látið lífið.
Flóttafólk á grísku eyjunum við
Tyrkland hefur átt erfitt í kuld-
unum, enda hefst það við í flótta-
mannabúðum þar sem húsnæðið
er einungis hugsað til bráðabirgða.
Svipaða sögu er að segja af flótta-
fólki víðar á Grikklandi, í Ungverja-
landi, Serbíu og Búlgaríu.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch segja stjórnvöld
í þessum ríkjum engan veginn
standa í stykkinu. Sama megi segja
um Evrópusambandið, sem ásamt
stjórnvöldum ríkjanna ber ábyrgð
á því að aðstæður flóttafólksins séu
sómasamlegar.
Í Grikklandi var í gær spáð enn
harðnandi frosti, allt niður í sextán
stiga frost.
Gríska dagblaðið Kathimerini
skýrir frá því á fréttavef sínum að
vatnsskortur hrjái einnig mörg
heimili í Þessalóníku vegna frost-
skemmda á vatnsrörum. Þá hafi
flestir skólar á þeim slóðum verið
lokaðir vegna veðurs í gær. – gb
Flóttafólk í vanda vegna
kulda í Suðaustur-Evrópu
Töluvert hefur snjóað í Istanbúl í Tyrklandi með frosti undanfarið. FréTTablaðIð/EPa
Tækni Bílarisinn Volkswagen kynnti
hönnun nýrrar útgáfu rúgbrauðsins
víðfræga á bílasýningunni North
American International Auto Show í
gær. Volkswagen T1, rúgbrauðið svo-
kallaða, er sendiferðabíll sem gerði
garðinn frægan á sjötta og sjöunda
áratug síðustu aldar.
Nýja útgáfan kallast I.D. Buzz og
er nútímalegri uppfærsla. Ef bíll-
inn verður framleiddur mun hann
ganga fyrir rafmagni og verða sjálf-
stýrður.
Bíllinn á að komast um 435 kíló-
metra á fullri hleðslu. Þá verða fram-
sætin þannig útbúin að þegar bíllinn
styðst við sjálfstýringu sé hægt að
snúa þeim aftur á við svo farþegarnir
geti setið augliti til auglitis.
I.D. Buzz er enn á hugmyndastigi
svo ekki er víst hvort hann verði nokk-
urn tímann framleiddur. Hins vegar
hefur Volkswagen heitið því að selja
milljón mismunandi rafbíla árlega þar
til 2025. Því gætu áform um nýtt rúg-
brauð orðið að veruleika. – þea
Sjálfkeyrandi rúgbrauð
T1 og I.D. buzz sem mun verða sjálfstýrður rafmagnsbíll. MynD/VolkswagEn
Vinnumarkaður Alls hafa 36 fyrir-
tæki í fiskvinnslu sagt upp fleiri en
einum starfsmanni vegna vinnslu-
stöðvunar á fiski sökum verkfalls
sjómanna sem staðið hefur yfir
síðan 14. desember síðastliðinn.
Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir
að um hálfum milljarði verði varið
úr atvinnuleysistryggingasjóði í
janúarmánuði einum vegna verk-
falls sjómanna.
Sjómannaverkfallið hefur að
sögn Samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi haft skaðleg áhrif á markaði
erlendis og eru margir hverjir í
hættu vegna verkfallsins og útflutn-
ingstekjur hafa dregist saman.
Um 1.100 manns hefur verið sagt
upp í fiskvinnslum landsins og eru
flest störfin á Norðurlandi eystra.
Allt að því jafnmörgum starfsmönn-
um hefur verið sagt upp á höfuð-
borgarsvæðinu og á Suðurnesj-
unum samanlagt og á Norðurlandi
Greiða hálfan milljarð vegna verkfalls
Atvinnuleysistryggingasjóður áætlar að greiða hálfan milljarð króna í janúar vegna verkfalls sjómanna. Ellefu hundruð starfsmönnum
í fiskvinnslu hefur verið sagt upp. Markaðir erlendis eru sagðir vera í hættu. Nýr fundur boðaður í deilunni hjá ríkissáttasemjara í dag.
sjómenn hafa ítrekað hafnað nýjum kjarasamningi. FréTTablaðIð/sTEFán
eystra. Á Vestfjörðum hafa á annað
hundrað misst vinnuna vegna verk-
falls sjómanna sem verður að teljast
mjög stórt hlutfall starfandi ein-
staklinga á Vestfjörðum.
Sjómenn boðuðu til mótmæla
fyrir utan Karphúsið í gær er fundur
í deilunni fór fram. Bryndís Hlöð-
versdóttir ríkissáttasemjari segir það
fagnaðarefni að menn skuli enn tala
saman en þó beri enn mikið í milli.
Boðað var til annars fundar í dag og
mun því samtalið halda áfram.
Einnig verður að taka fram að
fiskvinnslur geta haldið fólki enn
við störf þó hráefnisskortur sé við-
varandi en kostnaður við laun
starfsmanna er greiddur úr atvinnu-
leysistryggingasjóði á grundvelli
laga. Fyrirtæki sækja þá um styrk
eftir á fyrir launum starfsmanna
sinna. Vitað er að bæði HB Grandi
og Síldarvinnslan í Neskaupstað
munu fara þá leiðina og því eru tölur
um atvinnuleysi í fiskvinnslu frekar
van- en ofáætlaðar.
Samherji er það fyrirtæki sem sagt
hefur upp flestum starfsmönnum,
eða um 200 bæði hjá Samherja og
ÚA, en Samherji tók yfir þá land-
vinnslu árið 2011.
Athygli vekur að rúmur helmingur
þeirra sem sagt hefur verið upp vegna
verkfalls sjómanna eru erlendir ríkis-
borgarar. Þar eru Pólverjar í miklum
meirihluta, eða tæplega fjórir af
hverjum tíu þeirra sem sagt hefur
verið upp. sveinn@frettabladid.is
✿ atvinnulausir vegna
verkfalls sjómanna
30
25
20
15
10
5
0
n Höfuðborgarsvæðið
n Suðurnes
n Vesturland
n Vestfirðir
n Norðurland
eystra
n Austurland
n Suðurland
15
7 16
7
41
11
6
31
7
59
21
6
Heimild: Vinnumálastofnun
1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r i ð j u d a G u r8 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
5
-8
B
4
8
1
B
E
5
-8
A
0
C
1
B
E
5
-8
8
D
0
1
B
E
5
-8
7
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K