Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 16
Í dag 11.50 Kína - Ísland Sport 19.55 Man Utd - Hull City Sport ronaldo og lloyd best Cristiano ronaldo og Carli lloyd voru valin knattspyrnumaður og -kona ársins 2016 á verðlaunahátíð FIFa í Zürich í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru veitt eftir að samstarfinu við France Football, sem veitir gullboltann, lauk. ronaldo vann einnig gull- boltann fyrir árið 2016. Claudio ranieri, sem gerði leicester City að englandsmeisturum, var valinn þjálfari ársins í karlaflokki og silvia neid, fyrrverandi þjálfari Ólympíu- meistara Þýskalands, í kvenna- flokki. Mal- asíu- maður- inn Mohd Faiz subri fékk Puskás-verð- launin fyrir mark ársins. dagur haFðI betur gegn PatrekI evrópumeistarar Þjóðverja settu upp sýningu gegn austurríkismönn- um í vináttulands- leik þjóðanna í kassel í gærkvöldi. strák- arnir hans dags sigurðssonar voru miklu sterkari aðilinn og unnu 17 marka sigur, 33-16, á lærisveinum Patreks Jóhannessonar. Þetta var síðasti leikur þýska liðsins fyrir hM í Frakklandi sem hefst á mið- vikudaginn. Fyrsti leikur Þjóðverja á hM er gegn ungverjum á föstu- daginn. Þýskaland er einnig með króatíu, hvíta-rússlandi, síle og sádi-arabíu í riðli á hM. JÓn daðI á anFIeld? Jón daði böðvarsson og félagar í Wolves mæta sigurvegaranum úr endurteknum leik liverpool og Plymouth í 4. umferð ensku bikarkeppninnar. ríkjandi bikar- meistarar Manchester united fá Wigan í heimsókn og arsenal mætir annaðhvort norwich City eða southampton. Möguleiki er á Íslendingaslag en sigurvegarinn úr leik bristol City og Fleetwood town mætir sunderland eða Jóhanni berg guðmundssyni og félögum í burnley. hörður björg- vin Magnússon leikur með bristol og eggert gunnþór Jónsson með Fleetwood. Þá fá ragnar sigurðs- son og félagar í Fulham hull City í heimsókn. gunnhIldur skIPtIr uM lIð landsliðskonan gunnhildur yrsa Jónsdóttir er geng- in í raðir norska úrvalsdeildarliðs- ins Vålerenga frá stabæk. samningur gunnhildar við Våler- enga er til eins árs. hún hefur leikið í noregi frá 2012, fyrst með arna björnar, svo grand bödö, stabæk og nú Vålerenga. gunn- hildur er uppalin hjá stjörnunni og lék með garðabæjarliðinu áður en hún hélt til noregs. gunnhildur hefur leikið 34 landsleiki og skorað fjögur mörk. hún var í stóru hlut- verki hjá íslenska liðinu í undan- keppni eM 2017. 1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r16 s p o r t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð sport Nýliðarnir klárir í bátana Synir landsliðsmanna Óttar Magnús Karlsson, Rúnar Alex Rúnarsson og Albert Guðmundsson eru meðal sjö nýliða í íslenska landsliðinu sem mætir Kína á æfingamótinu China Cup í hádeginu í dag. Feður þeirra voru allir landsliðsmenn á sínum tíma. Karl Þráinsson, faðir Óttars, lék með handboltalandsliðinu og Rúnar Kristinsson og Guðmundur Benediktsson, feður Rúnars og Alberts, með fótboltalandsliðinu. Fréttablaðið/getty HanDBoLtI „Það er enn þá rosalega mikið af spurningarmerkjum þar sem við vitum ekki enn hvernig liðið verður skipað. Það vantar besta manninn og maður er ekki bjartsýnn á að hann spili mikið. ef það gerist fá þessir ungu strákar stórt hlutverk. kannski stærra hlut- verk en við bjuggumst við.“ Þetta segir einar andri einarsson, þjálfari aftureldingar í olís-deild karla og sérfræðingur íþróttadeild- ar, um stöðuna á íslenska lands- liðinu í handbolta sem hefur leik á hM 2017 í Frakklandi eftir tvo daga. Fækkað var í hópnum í gær þegar tandri Már konráðsson var skorinn frá en geir sveinsson landsliðsþjálf- ari á enn eftir að velja endanlegan hóp og gefa út hvort aron Pálmars- son, besti maður liðsins, verði með „Ég hef litlar væntingar en vona það besta,“ segir einar andri. hann er ekki einn á þeim báti. Ákafur og grimmur ungu mennirnir sem einar andri talar um eru Janus daði smárason, 22 ára gamall leikstjórnandi hauka sem er á leið í atvinnumennsku til álaborgar í danmörku í sumar, arnar Freyr arnarsson, tvítugur línumaður kristianstad í svíþjóð, og Ómar Ingi Magnússon, 19 ára gömul hægri skytta danska liðsins Århus. Það virtist nokkuð augljóst að geir sveinsson ætlar þessum strák- um alvöru hlutverk í Frakklandi miðað við spiltímann sem þeir fengu á bygma-mótinu. „Þessir strákar stóðu sig mjög vel um helgina. Þeir voru ákafir og grimmir og létu finna fyrir sér. Maður er bara spenntur að sjá hvernig þessir strákar munu stimpla sig inn í þetta lið. geir er að gefa þessum strákum mikið traust. Þeir eru að fá mínútur og fá leyfi til að gera mistök. Það mun skila sér þegar líður á,“ segir einar andri. en þeir voru ekki fullkomnir: „Janus var virkilega ákafur og grimmur. hann lét til sín taka og þorði að taka af skarið. Það skilaði sér í mörkum en síðan var hin hliðin að við töpuðum boltum og fengum hraðaupphlaupsmörk í bakið. Það vantaði ákveðið skipulag enda strákar þarna að spila í fyrsta skipti saman þannig að það var ákveðið óöryggi í hlutunum. Menn voru að mæta á vitlausum hraða á boltann og losa hann á röngum augna- blikum.“ Ósanngjörn ábyrgð ef spiltími myndi ráðast af aldri eru menn á undan þessum ungu eins og Ólafur guðmundsson, rúnar kára- son og gunnar steinn Jónsson sem hafa beðið lengi eftir að fá tækifæri til að bera uppi íslenska liðið. yngri menn virðast vera mun nær þeim en þessir strákar voru nálægt því að spila þegar þeir sátu á bekknum fyrir gullaldarlið Íslands. „Þeir eru klárlega orðnir reynslu- meiri leikmennirnir í liðinu en eru á sama tíma að taka ábyrgð sem þeir eru ekki vanir. Þeir þurfa að fá tíma til að venjast því. Þeir sýndu um helgina á nokkrum góðum köflum hversu öflugir þeir eru. Við þurfum einfaldlega að fá meira af því til að létta byrðina á ungu leikmönn- unum. Það er ósanngjarnt að biðja þessa ungu stráka um of mikið þó að við vonumst til að fá sem mest. Við þurfum að fá meira frá leik- mönnum eins og Ólafi og rúnari og ég held að þeir geti gert meira,“ segir einar andri. Varnarleikurinn vandræði Ísland fékk á sig 30 mörk að meðal- tali í leik í danmörku en varnarleik- urinn hefur ekki verið góður undan- farin misseri. hann náði ákveðnum lágpunkti í Póllandi fyrir ári og er á hægri leið í rétta átt. „Það eru vandamál í varnarleikn- um sem þarf að tækla. Það þarf að finna réttu blönduna og finna út hverjir virka best í miðju varnar- innar. Það er verið að spila núna svolítið skiptingalaust og þar eru menn í nýjum hlutverkum. hvort sem litið er til sóknar eða varnar er þetta lið nánast alveg nýtt, allavega ef litið er til leikmannanna sem eru í ábyrgðarhlutverkum. Þetta þarf tíma en já, vörnin þarf að lagast,“ segir einar andri. Mikilvægar mínútur einar andri vonast til að ungu mennirnir standi sig á hM og sýni sig og sanni þegar þeir fá tækifærið. hann telur að geir ætli að treysta þeim fyrir stóru hlutverki. „Þetta mót er gríðarlega mikil- vægt fyrir þessa þrjá stráka (arnar, Ómar og Janus). Þeir munu klárlega fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Ég held að það sé bara mjög góð fjár- festing til framtíðar að þessir strákar spili stóra rullu. Það er líka bara tímabært og verið er að gera þetta nokkuð skynsamlega með því að taka þá þrjá inn núna,“ segir hann og bætir við: „Þeir sem eru eldri núna þurfa að standa undir aukinni ábyrgð og sýna þessum ungu að þeir þurfi enn að elta þá. ef þessir strákar stíga upp og þeir ungu halda áfram að setja á þá pressu þá erum við í góðum málum. Við þurfum á þessum tíma- punkti alvöru samkeppni um stöður í landsliðinu,“ segir einar andri ein- arsson. tomas@365.is Góð fjárfesting til framtíðar Strákarnir okkar hefja leik á HM eftir tvo daga. Þrír ungir strákar fengu mikilvægar mínútur á æfingamótinu í Danmörku og stóðu sig vel. Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, tekur stöðuna fyrir Fréttablaðið. Menn voru að mæta á vitlausum hraða á boltann og losa hann á röngum augnablikum. Einar Andri Einars- son, þjálfari Aftur- eldingar -8 Markatala Íslands á Bygma- mótinu þar sem liðið mætti Egyptalandi, Ungverjalandi og Danmörku. 1 0 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B E 5 -8 6 5 8 1 B E 5 -8 5 1 C 1 B E 5 -8 3 E 0 1 B E 5 -8 2 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.