Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 38
Mér finnst líka skeMMtilegt við þetta að sviðið er nánast eins og hliðarsýningarsvið á karnivali. Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is Séra Ingileif Malmberg fjallar um barnsmissi á fræðslukvöldi Nýrrar dögunar miðvikudaginn 11. janúar kl. 20:00 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Að missa barn Leikhús hún pabbi HHHHH Borgarleikhúsið í samstarfi við Trigger Warning Listrænn stjórnandi: Kara Hergils Höfundar: Halla Þórlaug Óskars- dóttir og Kara Hergils í samstarfi við leikhópinn Leikstjóri: Pétur Ármannsson Leikari: Hannes Óli Ágústsson Frumsamin tónlist: Högni Egilsson Leikmynd: Þórdís Erla Zoëga Ljósahönnun: Kjartan Darri Kristjánsson Dramatúrg: Andrea Vilhjálmsdóttir Á mörkum sviðsetningar og raun­ veruleikans mætast leikarinn Hannes Óli Ágústsson og pabbi hans, transkonan Anna Margrét Grétars­ dóttir, sem fór í kynleiðréttingu á sextugsaldri. Hún pabbi var frum­ sýnt síðastliðinn föstudag og er sam­ st a r f sve r ke f n i sviðslistahópsins Trigger Warning og Borgarleik­ hússins. Eftir 57 ára feluleik gafst Anna Margrét upp og tilkynnti fjölskyldu sinni að hún ætlaði að hefja kynleið­ r é tt i n g a r f e r l i . Á yfirborðinu fjallar Hún pabbi um þetta ævi­ langa ferðalag Önnu Margrétar að sínu sanna sjálfi, frá því að vera fædd karl­ maður en að vera kona, og viðbrögð sonar hennar þegar h e i m s m y n d hans umturnast. Sýningin fjallar samt sem áður um miklu meira: Fjölskyldubönd, felu­ leiki og samfélagslegar væntingar. Sviðsetningin er einföld, nánast í kabarettstíl, og leikstjórinn Pétur Ármannsson gerir nokkuð vel að afmarka sviðið og setja allan fókus á leikarann þó að Litla sviðið sé ekki endilega nægilega vel nýtt. Ljósa­ hönnun Kjartans Darra Kristjáns­ sonar er að sama skapi vafninga­ laus en hugvitsamlega brotin upp með skörpum lýsingarbreytingum. Sömuleiðis er leikmynd Þórdísar Erlu Zoëga fagurfræðilega skýr og látlaus. Hannes Óli hikar ekki við að kryfja fjölskyldusamskipti til mergj­ ar með góðri aðstoð Köru Hergils og Höllu Þórlaugar Óskarsdóttur sem halda utan um handritið, en Kara er einnig listrænn stjórnandi sýn­ ingarinnar. Góðri viðbót af fínum húmor er stráð inn í frásögnina og sviðshreyfingarnar eru hressandi og hjartnæmar. Sviðsverund og nærvera Hann­ esar Óla er einlæg og laus við alla tilgerð. Hann er hér til að segja áhorfendum sögu konunnar pabba síns frá sínu eigin sjónarhorni með aðstoð fjölskylduljósmynda, popp­ laga og bíómynda barnæskunnar. Tímasetningar hans eru gríðar­ lega góðar og samband hans við áhorfendur traust. Kvikmynda­ brotin eru hugvitsamlega saumuð inn í frásögnina þar sem nostalgía æskuáranna er skoðuð upp á nýtt og endurskilgreind. Atriðið þar sem faðir, móðir og sonur halda upp á aðfangadag í síðasta sinn saman er gjörsamlega ógleymanlegt og sprenghlægilegt. Þarna endurspeglast spennitreyja hefðanna, íslenska listin að ræða alls ekki um hlutina og leikritið sem fjölskyldur leika, jafnvel þegar tilvist þeirra er að hrynja allt í kringum þau. Einhver þarf bara að rétta grænu baunirnar, hrósa hryggnum og láta eins og allt sé í lagi. Högni Egils­ son semur tón­ list sýningar­ innar sem er lágstemmd og lætur lítið fyrir sér fara framan af en nær algjör­ um listrænum hápunkti þegar Hannes Óli frem­ ur eins konar helgisið með því að ganga um sviðið á háum hælum bókstaf­ lega íþyngdur ævisögu pabba síns. Þarna small allt saman í ein­ staklega áhrifaríku atriði þar sem ekkert er sagt en öllu komið fyrir í einfaldri gjörð. Í heildina er Hún pabbi hnit­ miðuð og hreinskilin sýning um flókið málefni, hún hefði jafnvel mátt vera lengri og grafa dýpra en slíkt er kannski til of mikils mælst. Hannes Óli Ágústsson er sérlega hæfileikaríkur leikari sem vert er að gefa fleiri tækifæri. Sviðshópurinn Trigger Warning kemur sterkur til leiks með hjálp Borgarleikhússins og áhorfendur eru hvattir til þess að ljá þessari áhrifaríku sýningu bæði eyru og augu. Sigríður Jónsdóttir NiðursTaða: Afhjúpandi sýning sem er í senn sorgleg, hjartnæm og bráðfyndin. Sonurinn og konan pabbi hans V ið Hverfisgötuna í Reykjavík er rekið skemmtilegt gallerí sem kallast Wind and Weather Wind­ow Gallery sem gæti útlagst Gluggagalleríið út í veður og vind. Galleríið er listamanna­ rekið en núna þessa dimmustu daga árins ætla nokkrar gjörningakonur að sýna þar seríu í þremur hlutum. Það er gjörningalistakonan Kathy Clarke sem heldur utan um verk­ efnið og hún segir að fyrsta verkið hafi fengið góðar viðtökur þegar það hóf göngu sína um síðustu helgi. „Fyrsta verkið, þá vinnum við Ásdís Sif Gunnarsdóttir gjörninga­ listakona þetta saman. Hún ætlar að koma fram alls fimm sinnum á því tímabili sem hún er með gallerí­ ið. Það er öllum velkomið að koma og taka þátt en Ásdís Sif býður fólki að setjast fyrir framan gluggann en hennar persóna er völvan Madame Lilith sem kemur frá öðum tíma og rúmi jafnvel. Madame Lilith mun svo bjóða upp á spádómsfundi og færa fólki upplýsingar um óendan­ lega nærveru með aðstoð upplýs­ ingatækni. En þegar völvan er ekki til staðar í líkama þá verður hún til staðar fyrir tilstilli upptökutækni.“ Einnig er hægt að panta tíma hjá völvunni í gegnum netfangið asdissifgunnarsdottir@gmail.com en sýningarnar eru einnig allar straumspilaðar í beinni útsendingu á artzine.is. „Mér finnst líka skemmtilegt við þetta að sviðið er nánast eins og hliðarsýningarsvið á karnivali. Í þessari innsetningu situr Madame Lilith í hásæti sínu innan um allt sitt hafurtask. Mér finnst þetta vera áhugaverð og skemmtileg leið til þess að lýsa upp skammdegið þessa dimmustu dagar vetrar og færa fólki eitthvað skemmtilegt sem er bók­ staflega frá öðrum heimi.“ Kathy segir að síðasta sýningin hjá Madame Lilith verði þann 20 janúar og í framhaldinu taki Ásta Fanney Sigurðardóttir við. Sýning Ástu nefnist Ráðgjafinn og þar mun verða boðið upp á þjónustu í gluggaskrifstofu innra eftirlits. Ráðgjafinn kemur til með að skoða ýmsar ráðgátur sem leynast í strúkt­ úrum hversdagsins. „Ásta Sigríður er myndlistarkona en einnig tón­ listarkona og ljóðskáld. Þessi sýn­ ing er því óræð blanda af alls konar miðlum sem safnast saman í fyrir­ bæri sem hún nefnir Zolta, þar sem mynstur glundroðans er gert að við­ fangsefni.“ Í febrúar tekur svo þriðja lista­ konan við en það er Katrín Inga Jónsdóttir. Þessi þriðja sýning serí­ unnar kallast Nuddarinn. „Katrín Inga ætlar að kynna núning lista með þeirri nánu þjónustu sem fótanudd er. Hún leggur upp með að miðla einlægninni sem listin vinnur að í þjónustu við samfélagið. En fótanuddið er myndhverfing yfir það sem listamenn gera á öðrum sviðum og miðlar djúpri nærveru með sambærilegum hætti.“ magnus@frettabladid.is Gjörningar gegn skammdegi þrjár gjörningalistakonur sýna á næstunni seríu gjörninga í skemmtilegu en óvenjulegu galleríi við hverfisgötuna. Hannes Óli Ágústsson er sérlega hæfi- leikaríkur leikari sem vert er að gefa fleiri tækifæri, segir í leikdómi. FréttabLaðið/anton brink Ásdís Sif Gunnarsdóttir og kathy Clark fyrir framan Wind and Weather Window Gallery við Hverfisgötuna. FréttabLaðið/SteFÁn 1 0 . j a N ú a r 2 0 1 7 Þ r i ð j u D a G u r22 M e N N i N G ∙ F r É T T a B L a ð i ð menning 1 0 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B E 5 -6 8 B 8 1 B E 5 -6 7 7 C 1 B E 5 -6 6 4 0 1 B E 5 -6 5 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.