Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 10
ALLT FYRIR HEIMILIÐ Síðumúla 30 - Reykjavík Hofsbót 4 - Akureyri AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is náttúra Ítalski ævintýramaðurinn Alex Bellini hyggst vorið 2018 taka sér bólfestu í björgunarhylki sem verður komið fyrir í rekís úr jöklum Grænlands – en áður en til þess kemur ætlar hann í þessum mánuði að ganga einn síns liðs yfir Vatna­ jökul á skíðum. Alex verður gestur Orkustofn­ unar á fimmtudaginn þar sem hann heldur erindi á málstofu um áhrif loftlagsbreytinga á jökla, en hann er væntanlegur til landsins til undir­ búnings fyrir ferð sína yfir jökulinn. Jónas Ketilsson, yfirverkefnastjóri og staðgengill orkumálastjóra, segir tilgang ferðarinnar vera að vekja mannkyn til umhugsunar um áhrif loftlagsbreytinga og bráðnun jökla. Björgunarhylkið, sem er mikil völ­ undarsmíð, er hannað til að standa af sér náttúruhamfarir og þá sér­ staklega flóðbylgjur. Alex stefnir á að halda á Vatnajökul 20. janúar en verður við æfingar í Landsveit fram til þess tíma, en „helsta aðferð hans við undirbúninginn er að draga tvö jeppadekk á eftir sér í snjóleys­ inu,“ segir Jónas. Alex þessi hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir ævintýralegar tilraunir sínar, og ekki síst þegar hann gerði tilraun til að róa á sérstaklega útbún­ um kajak frá Perú til Ástralíu – eða Ætlar yfir Vatnajökul og verja ári á rekís Bandaríkin Öldungadeild Banda­ ríkjaþings ætlar að hefjast handa í dag við að yfirheyra væntanlega ráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump. Repúblikanar hafa lagt mikla áherslu á að hraða yfirheyrslunum, enda þótt siðaskrifstofa þingsins og margir Demókratar leggi áherslu á að fyrst verði þeir að leggja fram hagsmunaskrá sína, eins og reglur kveða á um. Til stendur að byrja á John F. Kelly sem á að verða heimavarnaráðherra og Jeff Sessions sem Trump ætlar að gera að varnarmálaráðherra. Sessions verður vafalítið spurður út í ummæli sín frá fyrri tíð, sem þóttu bera svo sterkan kem af kyn­ þáttafordómum að árið 1986 þótti hann óhæfur til að gegna embætti dómara. Einna alræmdust urðu þar ummæli frá árinu 1983 þegar hann vann að rannsókn á morði Ku Klux Klan manna á þeldökkum unglings­ pilti. Sessions sagðist þá hafa borið virðingu fyrir liðsmönnum Ku Klux Klan, en sú virðing hafi dvínað mjög þegar hann frétti að morðingjarnir hefðu verið að reykja hass. Á morgun verður svo haldið áfram að yfirheyra ráðherraefnin, meðal annars Rex W. Tillerson sem Trump vill að verði utanríkisráð­ herra ríkisstjórnar sinnar. Fastlega er búist við að Tillerson, sem hefur stjórnað olíufyrirtækinu Exxon Mobil, verði spurður ítarlega út í býsna náin tengsl sín við rúss­ neska ráðamenn, þar á meðal Vlad­ imír Pútín forseta. Pútín hefur ekki farið dult með ánægju sína með að Trump verði forseti Bandaríkjanna. Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns, sagðist hins vegar í gær vera búinn að fá meira en nóg af ásökunum um að Pútín hafi fengið leyniþjónustu­ menn sína til þess að brjótast inn í tölvur bandaríska Demókrata­ flokksins til að hafa áhrif á forseta­ kosningarnar þar í nóvember. Peskov sagði ásakanirnar vera ófagmannlegar og minna sig helst á nornaveiðar. Trump hefur sjálfur sagt umræð­ una um tengsl sín við Rússa vera nornaveiðar, en á sunnudaginn fullyrti Reince Priebus, væntanlegur starfsmannastjóri Hvíta hússins, að Trump hafi alls ekki neitað því að Rússar standi á bak við innbrotin í tölvukerfi Demókrata. Rússar hafi hins vegar stundað slík afskipti árum saman. Það hafi auk þess ekki haft nein bein áhrif á kosninga­ úrslitin. gudsteinn@frettabladid.is Væntanlegir ráðherrar spurðir spjörunum úr Bandarískir þingmenn hefjast handa við að kanna hæfni ráðherraefna Donalds Trump. Dómsmálaráðherraefnið verður vísast spurt út í kynþáttafordóma og utanríkisráðherraefnið spurt út í náin tengsl sín við rússneska ráðamenn. Alex mun halda erindi á málstofu Orkustofnunar á fimmtudag sem er ein af nokkrum sem haldnar verða í tilefni af 50 ára afmæli stofnunarinnar. 18.000 kílómetra leið yfir Kyrrahafið. Þá var hann 295 daga í hafi áður en hann örmagnaðist, örstuttu áður en hann náði takmarki sínu. Þá hefur hann hlaupið þvert yfir Bandaríkin, einn síns liðs. Jónas segir komu ævintýramanns­ ins til landsins viðeigandi, því ef miðað er við Parísarsamkomulagið þá er því spáð að Ísland verði jökul­ laust á næstu 150­200 árum. Nokkrir jöklar munu líklegast hverfa fyrr eins og Snæfellsjökull en búist er við því að hann hverfi á þessari öld Donald Trump tekur í höndina á Jeff Sessions, sem á að verða dómsmálaráðherra í næstu ríkisstjórn Bandaríkjanna. NOrDicphOTOS/AFp og jafnvel innan nokkurra áratuga. „Hvaða efnahags­ og samfélags­ legu áhrif verða fyrir ísþjóðina að hér sé enginn jökull skal ósagt látið. Þetta ætti að vekja fólk til umhugsunar um hvað það geti lagt af mörkum til að draga úr hlýnun jarðar. Fari hlýnun umfram Parísarsamkomulagið geta afleiðingarnar orðið allt aðrar sem erfitt er að spá fyrir um,“ segir Jónas og bætir við að jafnvel geti það gert Ísland óbyggilegt ef veðurkerfi jarð­ arinnar breytast verulega. svavar@frettabladid.is Samfélag Tollayfirvöld munu verða með sérstaka athugun á farþegum sem koma frá Svíþjóð næstu misserin en búast má við smyglbylgju af sænsku neftóbaki til landsins í kjölfar 60 prósenta hækkunar á íslensku neftóbaki. Eftir hækkunina kostar ein neftób- aksdós út úr búð í kringum 3.000 krónur. Kári Gunnlaugsson yfirtollvörð- ur segir að tollurinn sé alltaf með virkt eftirlit gegn smygli á sænsku munntóbaki og oft taki þeir dósir af farþegum. „Það er eins með tób- akið og annað, þegar verðið fer upp þá fer fólk að kíkja í kringum sig. Þetta er eitthvað sem er á okkar borðum og það er virk athugun í gangi. Hvernig hún er get ég að sjálfsögðu ekki gefið upp.“ Kári segir að tollurinn leggi yfirleitt hald á frekar smáar send- ingar til landsins sem séu faldar í töskum farþega. Yfirleitt séu það 10-30 dósir. „Við höfum ekki náð miklu af stórum sendingum. Þær koma yfirleitt í gegnum skipin.“ Ólafur William Hand, upplýs- ingafulltrúi Eimskips, segir að starfsmenn félagsins lúti lögum landsins og smygl sé ólöglegt. Verði starfsmaður uppvís að slíku sé honum sagt upp. Slíkt hafi gerst áður og vinni Eimskip náið með tollayfirvöldum. – bb Reikna með meira smygli á sænsku munntóbaki Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður Um 32 tonn enduðu undir vörinni hjá ungum karlmönnum á síðasta ári. FréTTABlAðið/GVA SimBaBVE Fjórði hver sjúklingur innan heilbrigðiskerfisins í Simb­ abve í Afríku glímir við andleg veikindi. Íbúarnir í landinu er 15 milljónir en þar starfa aðeins tíu geðlæknar og fimmtán sálfræðingar. Ákveðið var að bjóða sjúklingum að setjast á bekk fyrir utan heilsu­ gæslustöð til að ræða þar um vanda­ mál sín við konur, sem eru þjálfaðar í samtölum og kallaðar ömmur. Jafnstór hópur fékk hefðbundna meðferð en alls voru sjúklingarnir, sem flestir voru konur, 573 frá 24 stöðvum. Eftir hálft ár voru sjúklingarnir sem settust á samtalsbekk, svokall­ aðan vináttubekk, með miklu færri einkenni en þeir sem fengu hefð­ bundna meðferð. Nær 30 þúsund hafa nú notið góðs af bekkjunum. Forskning.no greinir frá. – ibs Síður þunglynd á vináttubekk 20. janúar tekur Donald Trump formlega við forseta- embætti Bandaríkjanna af Barack Obama. 1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r i Ð j U d a g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 1 0 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B E 5 -7 7 8 8 1 B E 5 -7 6 4 C 1 B E 5 -7 5 1 0 1 B E 5 -7 3 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.