Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 14
Framlag í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða á fjárlögum 2017 verður of lágt. Auk þess
hefur framlag frá 2016 ekki nýst af
mörgum ástæðum. Þar hefur t.d. víða
staðið á mótframlögum sveitarfélaga.
Sum eru ekki það burðug að þau hafi
í raun nægt fé til þeirra og önnur
verkefni gengið fyrir. Skipulagsmál
hafa reynst flókin og viðbótarríkis
framlag í sjóðinn kom seint fram.
Hvað sem því líður er alveg ljóst að
mjög margir staðir utan þjóðgarða
eru í sárum, sumir mjög miklum,
og þar þarf að framkvæma bráða
viðgerðir og tryggja snarbætt, stýrt
aðgengi með t.d. stígum, útsýnis
stöðum, og staðbundnum lokunum
innan svæða, eða með ítölu. Til að
koma fram brýnum úrbótum þarf að
setja árlega a.m.k. 3 milljarða króna í
sjóðinn, í þrjú til fjögur ár. Úrbætur á
vegum og öðrum innviðum eru líka
brýn verkefni.
Þjóðgarðar, landvarsla
og fararstjórnun
Hvað sem gleðilegu og auknu fé til
nýrra þjóðgarðsmiðstöðva líður
bíður okkar stórátak í Vatnajökuls
þjóðgarði. Þótt stór sé og ástand
sums staðar gott eru önnur svæði
Ferðaþjónustan: Betur má gera ef duga skal
Ari Trausti
Guðmundsson
þingmaður VG í
Suðurkjördæmi
hans komin að þolmörkum. Þjóð
garðurinn Snæfellsjökull og Þjóð
garðurinn á Þingvöllum eru minni
og orðnir mun skemmdari. Báðir
þarfnast miklu meira fjármagns,
nokkur ár í röð, en látið er af hendi
rakna. Eins þarf aukið fé í land
vörslu í þjóðgörðunum og á frið
uðum svæðum.
Í því sambandi er brýnt að
endurskoða hlutverk og valdsvið
landvarða, bæði ríkisráðinna og
starfsmanna ferðafélaga. Nú hafa
landverðir aðeins leyfi til þess að
vara fólk við og beiðast einhvers
af því en ekki valdsvið til að skipa
fyrir líkt og lögregla, t.d. svipað og
rangers í Vesturheimi. Á því þarf
að gera bragarbót með umræðum,
lögum og reglugerðum, auk þess að
setja meira fé til landvörslu á mörg
um stöðum og koma hluta björg
unarsveita í föst störf. Samhliða
verður að endurskoða hlutverk og
menntun leiðsögumanna í ólíkum
flokkum (alm. leiðsögn, svæða og
staðaleiðsögn og sérhæfð útivistar
leiðsögn) og koma á reglum um
starfsemina og löggildingu starfs
heitisins þar sem við á.
Sjálfbærni og þolmörk
Menningar og náttúrunytjar ganga
ekki upp án verndunar minja og
alls umhverfis. Til þess greina menn
þolmörk, jafnt félagsleg sem nátt
úruleg, jafnt fyrir afmarkaða staði
sem svæði, og loks fyrir landið í
heild. Við viljum að atvinna sé fjöl
breytt en ekki að aðeins þrjár greinar
beri upp langmest af henni, hvað þá
ein atvinnugrein; ferðaþjónusta.
Við viljum að sjálfbærni sé viðmið
í henni og sú stefna hefur réttilega
verið mörkuð. Sjálfbærnihugtakið
nær yfir félagslega og hagræna sjálf
bærni ekki síður en að náttúran verði
nytjuð á þann hátt að hún standi jafn
góð eftir eða betri.
Þegar sumir stjórnmálamenn eða
framámenn í ferðaþjónustu telja að
við getum tekið við miklu fleiri ferða
mönnum, vekur það spurningar. Eru
þá engin þolmörk nytja til? Hvað
merkja orðin miklu fleiri? Engum
dytti í hug að skipuleggja fiskveiðar
með því að tala sífellt um „miklu
fleiri fiska“. Landsáætlun um upp
byggingu innviða var samþykkt sem
lög 2016. Hún er nú vanfjármögnuð
og fyrir henni fer lítið. Meðal fyrstu
skrefa til úrbóta auk viðbótarfjár
magns til þjóðgarða, Landsáætlunar
og til Framkvæmdasjóðs verður til
að efla ferðaþjónusturannsóknir,
breyta skipulagi í greininni og stofn
anaflórunni og endurskoða lög um
ferðaþjónustu.
Ég hef talað fyrir nýju ráðuneyti
ferðamála og ákvörðun þolmarka.
Það ætti að vera til umræðu á næst
unni þegar fjöldi ferðamanna telst í
milljónum og viðvarandi skortur á
vinnuafli er í greininni. Ég tel ekki að
nýtt ráðuneyti leysi fjölda verkefna
eitt og sér en það auðveldar lausnir,
miklu skilvirkar og hraðar en Stjórn
stöð ferðamála getur – auk þess sem
hún starfar tímabundið.
Og beinu gjöldin …
Varla er unnt að leggjast á móti
beinni fjármögnun ferðamanna til
úrbóta á öllu því í umhverfinu sem
þeir notast við. Bílastæðagjöld gera
gagn, t.d. í þjóðgörðum. Gegn komu
gjöldum hafa komið fram viðbárur
um að þau séu ekki leyfileg skv. jafn
ræðisreglum. Hvort sem það stenst
rýni eða ekki, má haga innheimtu
þannig að þau gangi upp, enda
fyrirmyndir um þau annars staðar
í álfunni. Sumir telja að þau muni
bremsa ferðamannafjöldann til
Íslands. Það væri svo sem ekki alvont
en er ofmælt vegna þess að 1,5 millj
arðar manna eru á faraldsfæti um
jörðina og við tökum hingað ríflega
1 prómill, og þá mest úr samfélags
hópum sem ráða munu við lágt gjald.
Þótt vikukostnaður við ferð á
Íslandi, sem er sagður vera um 200
þús. kr., hækki um 1 til 2 þúsund
krónur er til nægt ferðafólk sem
kippir sér ekki upp við það. Við sjálf
myndum flest líka þola þá upphæð.
Hækkað gistináttagjald í 300 kr., sem
ætti auðvitað að vera hlutfallstala af
verði gistingar og ganga að hluta
beint til sveitarfélaga, truflar heldur
ekki flæði ferðamanna. Og eitt er víst:
Hvorki sú upphæð né komugjald
getur komið í staðinn fyrir þolmörk
og aðrar stjórnunaraðgerðir sem er
nauðsynlegt að við ákvörðum fyrr
en síðar.
Þegar sumir stjórnmála-
menn eða framámenn í
ferðaþjónustu telja að við
getum tekið við miklu fleiri
ferðamönnum, vekur það
spurningar. Eru þá engin þol-
mörk nytja til? Hvað merkja
orðin miklu fleiri? Engum
dytti í hug að skipuleggja
fiskveiðar með því að tala
sífellt um „miklu fleiri fiska“.
möndlur
bláber
trönuber
kotasæla
1
6
-0
2
5
0
-H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Nærandi millimál
… er létt mál
Gríptu með þér kotasælu eða gríska jógúrt
Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með
hreinum grunni og hollum og stökkum toppi.
Kotasæla með berjum og möndlum eða grísk
jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum.
1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r14 s k o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
5
-7
2
9
8
1
B
E
5
-7
1
5
C
1
B
E
5
-7
0
2
0
1
B
E
5
-6
E
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K