Fréttablaðið - 10.01.2017, Page 14

Fréttablaðið - 10.01.2017, Page 14
Framlag í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða á fjárlögum 2017 verður of lágt. Auk þess hefur framlag frá 2016 ekki nýst af mörgum ástæðum. Þar hefur t.d. víða staðið á mótframlögum sveitarfélaga. Sum eru ekki það burðug að þau hafi í raun nægt fé til þeirra og önnur verkefni gengið fyrir. Skipulagsmál hafa reynst flókin og viðbótarríkis­ framlag í sjóðinn kom seint fram. Hvað sem því líður er alveg ljóst að mjög margir staðir utan þjóðgarða eru í sárum, sumir mjög miklum, og þar þarf að framkvæma bráða­ viðgerðir og tryggja snarbætt, stýrt aðgengi með t.d. stígum, útsýnis­ stöðum, og staðbundnum lokunum innan svæða, eða með ítölu. Til að koma fram brýnum úrbótum þarf að setja árlega a.m.k. 3 milljarða króna í sjóðinn, í þrjú til fjögur ár. Úrbætur á vegum og öðrum innviðum eru líka brýn verkefni. Þjóðgarðar, landvarsla og fararstjórnun Hvað sem gleðilegu og auknu fé til nýrra þjóðgarðsmiðstöðva líður bíður okkar stórátak í Vatnajökuls­ þjóðgarði. Þótt stór sé og ástand sums staðar gott eru önnur svæði Ferðaþjónustan: Betur má gera ef duga skal Ari Trausti Guðmundsson þingmaður VG í Suðurkjördæmi hans komin að þolmörkum. Þjóð­ garðurinn Snæfellsjökull og Þjóð­ garðurinn á Þingvöllum eru minni og orðnir mun skemmdari. Báðir þarfnast miklu meira fjármagns, nokkur ár í röð, en látið er af hendi rakna. Eins þarf aukið fé í land­ vörslu í þjóðgörðunum og á frið­ uðum svæðum. Í því sambandi er brýnt að endurskoða hlutverk og valdsvið landvarða, bæði ríkisráðinna og starfsmanna ferðafélaga. Nú hafa landverðir aðeins leyfi til þess að vara fólk við og beiðast einhvers af því en ekki valdsvið til að skipa fyrir líkt og lögregla, t.d. svipað og rangers í Vesturheimi. Á því þarf að gera bragarbót með umræðum, lögum og reglugerðum, auk þess að setja meira fé til landvörslu á mörg­ um stöðum og koma hluta björg­ unarsveita í föst störf. Samhliða verður að endurskoða hlutverk og menntun leiðsögumanna í ólíkum flokkum (alm. leiðsögn, svæða­ og staðaleiðsögn og sérhæfð útivistar­ leiðsögn) og koma á reglum um starfsemina og löggildingu starfs­ heitisins þar sem við á. Sjálfbærni og þolmörk Menningar­ og náttúrunytjar ganga ekki upp án verndunar minja og alls umhverfis. Til þess greina menn þolmörk, jafnt félagsleg sem nátt­ úruleg, jafnt fyrir afmarkaða staði sem svæði, og loks fyrir landið í heild. Við viljum að atvinna sé fjöl­ breytt en ekki að aðeins þrjár greinar beri upp langmest af henni, hvað þá ein atvinnugrein; ferðaþjónusta. Við viljum að sjálfbærni sé viðmið í henni og sú stefna hefur réttilega verið mörkuð. Sjálfbærnihugtakið nær yfir félagslega og hagræna sjálf­ bærni ekki síður en að náttúran verði nytjuð á þann hátt að hún standi jafn góð eftir eða betri. Þegar sumir stjórnmálamenn eða framámenn í ferðaþjónustu telja að við getum tekið við miklu fleiri ferða­ mönnum, vekur það spurningar. Eru þá engin þolmörk nytja til? Hvað merkja orðin miklu fleiri? Engum dytti í hug að skipuleggja fiskveiðar með því að tala sífellt um „miklu fleiri fiska“. Landsáætlun um upp­ byggingu innviða var samþykkt sem lög 2016. Hún er nú vanfjármögnuð og fyrir henni fer lítið. Meðal fyrstu skrefa til úrbóta auk viðbótarfjár­ magns til þjóðgarða, Landsáætlunar og til Framkvæmdasjóðs verður til að efla ferðaþjónusturannsóknir, breyta skipulagi í greininni og stofn­ anaflórunni og endurskoða lög um ferðaþjónustu. Ég hef talað fyrir nýju ráðuneyti ferðamála og ákvörðun þolmarka. Það ætti að vera til umræðu á næst­ unni þegar fjöldi ferðamanna telst í milljónum og viðvarandi skortur á vinnuafli er í greininni. Ég tel ekki að nýtt ráðuneyti leysi fjölda verkefna eitt og sér en það auðveldar lausnir, miklu skilvirkar og hraðar en Stjórn­ stöð ferðamála getur – auk þess sem hún starfar tímabundið. Og beinu gjöldin … Varla er unnt að leggjast á móti beinni fjármögnun ferðamanna til úrbóta á öllu því í umhverfinu sem þeir notast við. Bílastæðagjöld gera gagn, t.d. í þjóðgörðum. Gegn komu­ gjöldum hafa komið fram viðbárur um að þau séu ekki leyfileg skv. jafn­ ræðisreglum. Hvort sem það stenst rýni eða ekki, má haga innheimtu þannig að þau gangi upp, enda fyrirmyndir um þau annars staðar í álfunni. Sumir telja að þau muni bremsa ferðamannafjöldann til Íslands. Það væri svo sem ekki alvont en er ofmælt vegna þess að 1,5 millj­ arðar manna eru á faraldsfæti um jörðina og við tökum hingað ríflega 1 prómill, og þá mest úr samfélags­ hópum sem ráða munu við lágt gjald. Þótt vikukostnaður við ferð á Íslandi, sem er sagður vera um 200 þús. kr., hækki um 1 til 2 þúsund krónur er til nægt ferðafólk sem kippir sér ekki upp við það. Við sjálf myndum flest líka þola þá upphæð. Hækkað gistináttagjald í 300 kr., sem ætti auðvitað að vera hlutfallstala af verði gistingar og ganga að hluta beint til sveitarfélaga, truflar heldur ekki flæði ferðamanna. Og eitt er víst: Hvorki sú upphæð né komugjald getur komið í staðinn fyrir þolmörk og aðrar stjórnunaraðgerðir sem er nauðsynlegt að við ákvörðum fyrr en síðar. Þegar sumir stjórnmála- menn eða framámenn í ferðaþjónustu telja að við getum tekið við miklu fleiri ferðamönnum, vekur það spurningar. Eru þá engin þol- mörk nytja til? Hvað merkja orðin miklu fleiri? Engum dytti í hug að skipuleggja fiskveiðar með því að tala sífellt um „miklu fleiri fiska“. möndlur bláber trönuber kotasæla 1 6 -0 2 5 0 -H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Nærandi millimál … er létt mál Gríptu með þér kotasælu eða gríska jógúrt Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með hreinum grunni og hollum og stökkum toppi. Kotasæla með berjum og möndlum eða grísk jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum. 1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r14 s k o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð 1 0 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B E 5 -7 2 9 8 1 B E 5 -7 1 5 C 1 B E 5 -7 0 2 0 1 B E 5 -6 E E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.