Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 26
 Eitt af því sem undir- ritaðan langaði mikið að sjá á þessari sýningu var eintak af tveggja dyra Chevrolet Impala 1959, en faðir minn átti slíkan bíl á sokkabandsárunum. T urkey Run bílasýn­ ingin er orðin mörg­ u m Í s le n di ngum vel kunn en hún fær nafn sitt vegna þess að hún er haldin á þakkargjörðarhátíðinni, þar sem kalkúnn er hátíðarrétturinn þá helgina eins og flestir þekkja. Reyndar mætti þýða nafnið á sýningunni sem Kalkúnakeyrsl­ una upp á íslensku en síðustu helgina í nóvember síðastliðnum var hún haldin í 43. sinn. Það var líka í nítjánda skiptið sem Sig­ urður Lárusson í samstarfi við Icelandair var með skipulagða hópferð á sýninguna vinsælu. Hópur 54 Íslendinga var með að þessu sinni og fékk undirritaður að fljóta með. Sex þúsund bílar Sýningin var fyrst haldin árið 1974 og voru þá aðeins 40 bílar meðlima Daytona Beach Street Rods til sýnis. Hún fór þó ört stækkandi og árið 1989 var sýn­ ingin í fyrsta sinn haldin á hinni risavöxnu Daytona Internat­ ional Speedway kappaksturs­ braut. Sýningin er líka risavaxin í sniðum og í ár voru yfir 6.000 bílar til sýnis auk annars varnings sem til sýnis var eða sölu, en stór hluti svæðisins var þakinn básum með allt frá gömlum bílútvörpum upp í endursmíðaðar átta gata keppnisvélar til sölu. Sýningin virðist líka vera vinsæl hjá bíla­ klúbbum víðsvegar um Banda­ ríkin og fjölmenntu margir þeirra í hópum og voru með afmörkuð svæði á sýningunni. Sýningin er skemmtileg fyrir margra hluta sakir. Þar ægir saman alls konar gerðum bíla, hvort sem það eru óbreyttir fornbílar eða mikið breyttir götukaggar, ryðgaðir Rat Rods eða gljáfægðir gullvagnar. Bílarnir virðast líka mikið vera á hreyfingu því að margir tóku þá út af sýningarsvæðinu seinni­ partinn svo að rúnturinn eftir Atlantic Avenue þar sem hótel Íslendinganna var, gat verið ansi líflegur á kvöldin. Leitin að gullvagninum Eitt af því sem undirritaðan langaði mikið að sjá á þessari sýningu var eintak af tveggja dyra Chevrolet Impala 1959, en faðir minn átti slíkan bíl á sokkabandsárunum og til eru margar góðar sögur af þeim gullvagni. Á fyrsta degi rakst maður strax á nokkur eintök af Impala 1960, bæði tveggja og fjögurra dyra, með eða án blæju en sá bíll er nokkuð frábrugðinn 1959 bílnum og þá sérstaklega ljósin. Á degi tvö fannst svo í horni sýningarinnar eintak af 1959 bíl með augnaljós­ unum að aftan en þá var það því miður fjögurra dyra týpa. Það var ekki fyrr en á þriðja degi sem það hljóp á snærið hjá undirrituðum en í pyttinum á brautinni, næst aðalsvæði sýningarinnar, leyndist eintak af slíkum bíl sem meira að segja keppti í Daytona­keppninni á árum áður. Það var tveggja dyra bíll af réttri árgerð, með 348 vélinni og svokölluðum „sixpack“ blönd­ ungum og Turboglide­skiptingu. Þannig skilaði bíllinn 320 hest­ öflum óbreyttur frá framleiðanda sem þótti nokkuð gott. Það má segja nánast öruggt að hver og einn finnur eitthvað við sitt hæfi á þessari skemmtilegu sýningu, því að þessi bíll er ekki mjög algengur. Afmælisferð í burðarliðnum Sigurður Lárusson er þegar farinn að skipuleggja 20 ára afmælisferð­ ina og býst við að bryddað verði upp á einhverju skemmtilegu af tilefninu. „Við erum þegar komin með dagsetningar fyrir 2017 en farin verður tveggja vikna ferð 16.­ 29. nóvember fyrir þá sem vilja gera gott frí úr ferðinni, enda margt skemmtilegt að skoða í nágrenni Daytona,“ sagði Sigurður í stuttu viðtali við blaðamann. „Elsti bær Bandaríkjanna, St. Augustine, er í aðeins klukkustundar fjarlægð frá Daytona sem og NASA Kenn­ edy Space Center. Einnig er stutt í skemmtigarða Disney, Universal og Seaworld í Orlando. Njáll Gunnlaugsson KalKúnaKEyrslan í nítjánda sInn 54 manna íslenskur hópur fór á Daytona Turkey Run en á hverju ári í 19 ár samfellt hefur Sigurður Lárusson ásamt Icelandair skipulagt hópferð á sýninguna vinsælu. Nú þegar er hafin skipulagning á tuttugu ára afmælisferðinni á næsta ári. Þessir fallegu afturendar eiga það sameiginlegt að vera mismunandi útgáfur bílsins úr American Graffiti, Deuce Coupé Hot Rod. Flestir hinna rúmlega fimmtíu íslendinga sem heimsóttu sýninguna í ár samankomnir fyrir hóp- myndatöku á laugardeginum. Maðurinn með rauðu axlaböndin er stjórnandi sýningarinnar en sigurð- ur og hann eru perluvinir eins og sjá má. 1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r8 Bílar 1 0 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B E 5 -7 2 9 8 1 B E 5 -7 1 5 C 1 B E 5 -7 0 2 0 1 B E 5 -6 E E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.