Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 26
Eitt af því sem undir-
ritaðan langaði mikið að
sjá á þessari sýningu var
eintak af tveggja dyra
Chevrolet Impala 1959,
en faðir minn átti slíkan
bíl á sokkabandsárunum.
T
urkey Run bílasýn
ingin er orðin mörg
u m Í s le n di ngum
vel kunn en hún fær
nafn sitt vegna þess
að hún er haldin á
þakkargjörðarhátíðinni, þar sem
kalkúnn er hátíðarrétturinn þá
helgina eins og flestir þekkja.
Reyndar mætti þýða nafnið á
sýningunni sem Kalkúnakeyrsl
una upp á íslensku en síðustu
helgina í nóvember síðastliðnum
var hún haldin í 43. sinn. Það var
líka í nítjánda skiptið sem Sig
urður Lárusson í samstarfi við
Icelandair var með skipulagða
hópferð á sýninguna vinsælu.
Hópur 54 Íslendinga var með að
þessu sinni og fékk undirritaður
að fljóta með.
Sex þúsund bílar
Sýningin var fyrst haldin árið
1974 og voru þá aðeins 40 bílar
meðlima Daytona Beach Street
Rods til sýnis. Hún fór þó ört
stækkandi og árið 1989 var sýn
ingin í fyrsta sinn haldin á hinni
risavöxnu Daytona Internat
ional Speedway kappaksturs
braut. Sýningin er líka risavaxin
í sniðum og í ár voru yfir 6.000
bílar til sýnis auk annars varnings
sem til sýnis var eða sölu, en stór
hluti svæðisins var þakinn básum
með allt frá gömlum bílútvörpum
upp í endursmíðaðar átta gata
keppnisvélar til sölu. Sýningin
virðist líka vera vinsæl hjá bíla
klúbbum víðsvegar um Banda
ríkin og fjölmenntu margir þeirra
í hópum og voru með afmörkuð
svæði á sýningunni. Sýningin er
skemmtileg fyrir margra hluta
sakir. Þar ægir saman alls konar
gerðum bíla, hvort sem það eru
óbreyttir fornbílar eða mikið
breyttir götukaggar, ryðgaðir Rat
Rods eða gljáfægðir gullvagnar.
Bílarnir virðast líka mikið vera
á hreyfingu því að margir tóku
þá út af sýningarsvæðinu seinni
partinn svo að rúnturinn eftir
Atlantic Avenue þar sem hótel
Íslendinganna var, gat verið ansi
líflegur á kvöldin.
Leitin að gullvagninum
Eitt af því sem undirritaðan langaði
mikið að sjá á þessari sýningu var
eintak af tveggja dyra Chevrolet
Impala 1959, en faðir minn átti
slíkan bíl á sokkabandsárunum og
til eru margar góðar sögur af þeim
gullvagni. Á fyrsta degi rakst maður
strax á nokkur eintök af Impala
1960, bæði tveggja og fjögurra
dyra, með eða án blæju en sá bíll er
nokkuð frábrugðinn 1959 bílnum
og þá sérstaklega ljósin. Á degi tvö
fannst svo í horni sýningarinnar
eintak af 1959 bíl með augnaljós
unum að aftan en þá var það því
miður fjögurra dyra týpa. Það var
ekki fyrr en á þriðja degi sem það
hljóp á snærið hjá undirrituðum
en í pyttinum á brautinni, næst
aðalsvæði sýningarinnar, leyndist
eintak af slíkum bíl sem meira að
segja keppti í Daytonakeppninni
á árum áður. Það var tveggja dyra
bíll af réttri árgerð, með 348 vélinni
og svokölluðum „sixpack“ blönd
ungum og Turboglideskiptingu.
Þannig skilaði bíllinn 320 hest
öflum óbreyttur frá framleiðanda
sem þótti nokkuð gott. Það má
segja nánast öruggt að hver og
einn finnur eitthvað við sitt hæfi á
þessari skemmtilegu sýningu, því
að þessi bíll er ekki mjög algengur.
Afmælisferð í burðarliðnum
Sigurður Lárusson er þegar farinn
að skipuleggja 20 ára afmælisferð
ina og býst við að bryddað verði
upp á einhverju skemmtilegu af
tilefninu. „Við erum þegar komin
með dagsetningar fyrir 2017 en
farin verður tveggja vikna ferð 16.
29. nóvember fyrir þá sem vilja
gera gott frí úr ferðinni, enda margt
skemmtilegt að skoða í nágrenni
Daytona,“ sagði Sigurður í stuttu
viðtali við blaðamann. „Elsti bær
Bandaríkjanna, St. Augustine, er
í aðeins klukkustundar fjarlægð
frá Daytona sem og NASA Kenn
edy Space Center. Einnig er stutt í
skemmtigarða Disney, Universal og
Seaworld í Orlando.
Njáll Gunnlaugsson
KalKúnaKEyrslan í nítjánda sInn
54 manna íslenskur hópur fór á Daytona Turkey Run en á hverju ári í 19 ár samfellt hefur Sigurður Lárusson ásamt Icelandair skipulagt
hópferð á sýninguna vinsælu. Nú þegar er hafin skipulagning á tuttugu ára afmælisferðinni á næsta ári.
Þessir fallegu afturendar eiga það sameiginlegt að vera mismunandi
útgáfur bílsins úr American Graffiti, Deuce Coupé Hot Rod.
Flestir hinna rúmlega fimmtíu íslendinga sem heimsóttu sýninguna í ár samankomnir fyrir hóp-
myndatöku á laugardeginum. Maðurinn með rauðu axlaböndin er stjórnandi sýningarinnar en sigurð-
ur og hann eru perluvinir eins og sjá má.
1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r8 Bílar
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
5
-7
2
9
8
1
B
E
5
-7
1
5
C
1
B
E
5
-7
0
2
0
1
B
E
5
-6
E
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K