Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 17
fólk
kynningarblað 1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r
Að kúkA á hverjum degi
„Það ætti í raun að vera jafn eðli-
legt að hafa hægðir daglega eins
og að borða,“ segir Hrönn Hjálm-
arsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá
Art asan. „Meltingarfærin okkar
eru undirstaða góðrar heilsu og
það er til mikils að vinna að hafa
þau alltaf í toppstandi. Þau sjá um
að brjóta niður fæðuna þannig að
líkaminn getur tekið upp næring-
arefnin. Því, sem hann nýtir ekki,
skilar hann frá sér í formi hægða.
Það er aðeins mismunandi hversu
oft við þurfum að hafa hægðir
en eðlilegt þykir að hægðirnar
séu mjúkar og að við losum þær
einu sinni til tvisvar á dag. Hjá
sumum gerist það aðeins sjaldn-
ar en þrisvar til fjórum sinnum í
viku ætti að vera algjört lágmark,“
segir Hrönn.
hægðAtregðA Algeng
Harðlífi og hægðatregða er að
sögn Hrannar því miður afar al-
gengt vandamál. Hún segir sífellt
fleiri þjást vegna þess, bæði börn
og fullorðna. „Lausnin ætti þó ekki
að felast í því að nota efni sem
framkalla niðurgang
nema nauðsyn krefji.
Það er alls ekki í lagi
að geta ekki kúkað í
marga daga, né að
hægðalosun valdi sárs-
auka eða kosti áreynslu.
Of tíðar klósettferðir
eru heldur ekki af
hinu góða en í báðum
tilfellum þarf að
finna lausn á vand-
anum. Lausnin felst
þó ekki í einhverju
einu ákveðnu heldur
er margt sem þarf
að huga að, bæði
mataræði, inntaka
lyfja, lífsstíll, inn-
taka á mjólkursýru-
gerlum og stundum
meltingarensímum.“
ensím og gerlAr
Ástæður þess að
meltingin fer í ólag
geta að sögn Hrannar verið marg-
víslegar. „Það kemur fyrir að
okkur vantar meltingarensím en
laktósaóþol er einmitt dæmi um
slíkt. Röskun á þarmaflóru má þó
í flestum tilfellum rekja til lélegs
mataræðis; of mikils af unnum
matvælum, sykurneyslu og allt
of lítils af trefjum. Sýklalyf og
ýmis önnur lyf eins og svefnlyf
og þunglyndislyf hafa sömuleið-
is mjög slæm áhrif á þarmana.
Mikil koffín- og áfengisneysla er
líka slæm sem og streita og óregla
í svefni.“
skortur á meltingArensímum
Matur fer misvel í fólk. Ákveðin
matvæli eða samsetning matar
getur að sögn Hrannar valdið
ónotum og uppþembu og gæti or-
sökin hugsanlega verið skortur
á meltingarensímum. „Þá náum
við ekki að brjóta niður ákveðna
fæðu nógu vel sem getur skap-
að hin ýmsu meltingarvandamál.
Ýmis heilsufarsleg vandamál geta
tengst skorti á meltingarensímum
og eru vindverkir, uppþemba, ónot
og ógleði algengust. Bólur, exem,
höfuðverkur og liðverkir eru einn-
ig þekkt. Meltingarensím eins og
Digestive Enzyme Complex er
hægt að taka inn með mat en þau
hjálpa til við niðurbrot á fæðu í
maganum.“
Öflug þArmAflórA
Ef þarmaflóran er ekki í jafnvægi
hefur það gríðarleg áhrif á heilsu-
farið en ónæmiskerfið er að mestu
leyti staðsett í þörmunum. Hrönn
segir það geta tekið langan tíma
að byggja upp öfluga þarma-
flóru. „Ef hún hefur verið
lengi í ójafnvægi þarf að huga
sérstaklega að því að taka inn
öfluga mjólkursýrugerla því
hollur matur er kannski ekki
nóg.“
hægðir segjA
til um heilsunA
Þar sem allir þurfa að hafa hægð-
ir frá vöggu til grafar þá ætti um-
ræðan um hægðir að mati Hrann-
ar ekki að vera eins mikið feimn-
ismál og raunin er. „Það er mjög
mikilvægt að hafa heilbrigðar
hægðir á öllum æviskeiðum. Við
ættum öll að gera okkur far um að
huga vel að þessum málum, skoða
hvernig þær líta út og keppa að því
að geta losað daglega.“
Hrönn segir heilbrigðar hægð-
ir forsendu þess að þarmaflóran
sé í jafnvægi. „Heilbrigð þarma-
flóra er undirstaða heilsunnar og
hún ver okkur líka gegn óæskileg-
um örverum og hefur margs konar
áhrif á heila- og taugakerfið, þar
með talið geðheilsu.“
heilbrigðAr hægðir frá
heilbrigðum líkAmA
Eðlilegar hægðir eru mjúkar og
hægt að losa þær án nokkurrar
áreynslu. „Ef svo er ekki er lík-
legt að það vanti trefjar í fæðuna en
trefjar fáum við í grófu korni, baun-
um, grænmeti og ávöxtum. Við melt-
um ekki trefjarnar en þær drekka í
sig vökva og því þarf alltaf að huga
vel að því að drekka nóg af vatni.
Trefjarnar gera hægðirnar mjúkar,
tryggja að þær fari hratt gegnum
ristilinn og auðvelda losun.“
Sölustaðir: Flest apótek, heilsu-
búðir og heilsuhillur verslana.
hvernig voru hægðirnAr í dAg?
Artasan kynnir Mjólkursýrugerlar og meltingarensím eru okkur lífsnauðsynleg. Prógastró DSS®-1 er öflugur asídófílus
sem margfaldar sig í smáþörmunum og byggir upp þarmaflóruna og Digestive Enzyme Complex eru meltingarensím
sem auðvelda niðurbrot á mat og draga úr líkum á uppþembu og óþægindum.
Harðlífi og hægðatregða er að sögn Hrannar því miður afar algengt vandamál.
Hrönn Hjálmarsdóttir
hægðir
segjA til um
heilbrigði
svarið býr í náttúrunni
LAUGAVEGI LÁGMÚLA KRINGLUNNI SMÁRATORGI SELFOSSI AKUREYRI NETVERSLUN HEILSUHUSID.IS
Ertu í Djúpum skít?
Opinn fyrirlestur og allir velkomnir! Hvað getum við gert til að hafa
þarmaflóruna í jafnvægi?
- Meltingin og mikilvægi hennar.
-Fyrirlestrarsalur, 1.hæð. - Þarmaflóran, næring og jafnvægið í lífinu.
12. janúar kl. 20:00
World Class, Laugar.
- Fyrirlesari: Hrönn Hjálmarsdóttir
Aðgangur
ókeypis!
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
5
-9
5
2
8
1
B
E
5
-9
3
E
C
1
B
E
5
-9
2
B
0
1
B
E
5
-9
1
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K