Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1994, Page 9

Víkurfréttir - 14.04.1994, Page 9
AF STARFSEMI KEFLAVÍKURBÆJAR • Mötuneyti Holtaskóla: Nemendum gefst kostur á að kaupa hottun og góðan mat Mötuneyti Holtaskóla var stofnað í janúar 1993 og starfs- menn í mötuneytinu eru þær Ástríður Sigurvinsdóttir og Guðrún Adólfsdóttir. Starf þeirra felst í því að smyrja brauð og sjá um afgreiðslu ýmissa mjólkurvara til nemenda í frí- mínútum á morgnanna. í há- deginu sjá þær um að fullelda mat, sem afhentur er til mötu- neytisins samkvæmt útboði. Jafnframt er það í þeirra verka- hring að útbúa tilheyrandi salöt með matnum og að ganga frá að dagsverki loknu. Hugmyndin með skóla- mötuneytinu var fyrst og fremst að koma til móts við þarfir nemenda, þ.e. að nemendur nýttu sér þann valkost að fá keyptan hollan og góðan mat í hádeginu á viðráðanlegu verði. „I upphafi voru nemendur u.þ.b. 70-80, en í vetur hefur dregið úr því að nemendur nýttu sér þennan valkost og getur þar ýmislegt kornið til greina.“ - Hvernig máltíðir eru í boði? „Venjuiegur hollur heim- ilismatur. Um er að ræða u.þ.b. 30 mismunandi rétti, t.d. fisk- rétti. kjötrétti og pastarétti. Við teljum það mikilvægt að nem- endur fái staðgóðan mat á skólatíma, því ljóst er, að slíkt eykur starfsorku nemenda og ekki er vanþörf á því við lær- dóminn,“ sögðu þær Ástríður Sigurvinsdóttir og Guðrún Ad- ólfsdóttir. wwm IflP e \r\\\ i —s j m Yi; • Saga Keflavíkur: Unnið að full- um krafti Um ritun sögu Keflavíkur er þess að geta, að starfið gengur mjög vel, en það er unnið á vegum Sögu- nefndar. Unnið er að fullum kral'ti við skráningu annars bindis, og er stefnt að þvf að það komi út nú í haust eða í byrjun næsta árs. Eðlilegt hlýtur að ætla, að saga Keflavíkur miðist við stjórnarfarslega sögu stað- arins og ætti ritun hennar þvf að Ijúka við árið 1994. ♦ Þorsteiim Valur Bald- vinsson við störf ofan í skurði á Hringbrautinni. Þar voru ræsi endumýjuð og gagan malbikuð fyrir nokkrum miss- erum. Gatna- og holræsakerfi sem er yfir 50 km. langt Gatna- og holræsakerfi Keflavíkur er yfir 50 kílómetra langt og kostar yftr 2 milljarða króna. Þar af sjá bæjarbúar að- eins 35% því hitt er neðanjarðar. Þorsteinn Valur Baldvinsson er verkstjóri í þessari deild bæj- arins. Við leituðu frétta hjá hon- um. „Þetta var mjög erfiður vetur fyrir gatnakerfið. Frostlyftingar í eldri göturn og slitlög víða orðin hættulega þunn, þannig að þetta hrynur á mjög stuttum tíma. Fresturinn til að leggja yfir eldri slitlög er að renna út. Um 30% lagnakerfisins er yfír 25 ára gamalt og að mjög misjöfnum gæðum. Við höfum sex ár til að sameina lagnir út í sjó og koma upp skólphreinsun, en það er dæmi upp á hundruð milljóna. Gatnadeild byrjaði árið 1992 að ljósmynda holræsalagnir að innan. i dag getum við skoðað lagnakerfið á sjónvarpsskjá og á síðasta ári var farið að mynda nýlagnir verktaka í öllum út- boðsverkum. - Hver eru helstu verkefni þessa árs? „Framlenging á Norðurvöllum að götu sem heitir Heiðarberg og mun liggja með grjótnámunni. Einnig verður Heiðarholt tengt Heiðarbergi. Þetta verða mal- argötur f fyrstu. Við munum endurnýja alit í Brekkubraut og Háholti, malbikum Vatnsholt, Efstaleiti, Nónvörðu, Norð- fjörðsgötu, Háteig og leggjum klæðningu á Aðalgötu milli Fagragarðs og Iðavalla. Norð- urvellir og Kirkjuvegur eiga að klárast, Álsvellir og Eyjavellir fá kantstein og torf og fl. og fl.“. - Hvað með Hafnargötuna? „Við byrjum á endurnýjun Hafnargötu milli Faxabrautar og Heiðarvegar og setjum um- ferðarljós á gatnamót Hafn- argötu og Vatnsnesvegar. Vinnuflokkur hreinsar alla daga milli kl. 06-09 og við munum þvo allt með vorinu eins og síðasta ár“. Gatna- og holræsadeild er þjónustudeild í eigu bæjarins, þar sem hver starfmaður þjónar 1000 fbúum og viðheldur fjárfestingu upp á 286 milljónir. „Við gerum okkar besta og vonum að bæj- arbúar hjálpi okkur áfram með ábendingum og samstarfí við að l'egra og viðhalda sameigninni," segir Þorstcinn Valur Bald- vinsson. ♦ Ástríður Sigurvinsdóttir og Guðrún Adólfsdóttir i mötuneyti Holtaskóla. Þærsmyrja brauð, biía til salöt og fullelda matofan i nemendur, svo þeir verði stórir og sterkir... • Fjárhagsáætlun Keflavíkurbæjar: Hvað verður gert við peningana okkar? Eins og nokkur undanfarin ár er fjárhagsáætlun Kefla- víkurbæjar birt hér í Vík- urfréttum. Uppsetningin er einfölduð frá því scm gerist í bókhaldi bæjarins. í þessu aukablaði er einnig að finna viðtöl við nokkra af starfs- mönnum bæjarins, sem ræða um þau verkefni sem ráðíst verður í á þessu fjárhagsári og ýmislegt fleira. Fyrst og fremst er þetta gert til að upp- lýsa bæjarbúa hvað verður um peningana okkar. ♦ Umferðarljós verða sctt d gatnamót Vatnsnesvegar og Hafnargötu d þessu dri.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.