Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1994, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 14.04.1994, Blaðsíða 19
VÍfCUÆFRÉTTIR 14. APRIL 1994 19 Þau bestu JÓN KR. GÍSLASON var kjörinn íþróttamaður Suðurnesja 1993. Eydís Konráðsdóttir, sund- kona, var önnur í kjörinu og í þriðja sæti var Karen Sæv- arsdóttir. kylfingur. Önnur úrslit urðu þessi: Fimleikar Ólafía Vilhjálmsdóttir Freyja Sigurðardóttir Hilma H. Sigurðardóttir Júdó Sigurður Bergmann Gunnar Jóhannesson Gunnar B. Björnsson Sund Eydís Konráðsdóttir Magnús Konráðsson Svavar Kjartansson og Guðmundur Unnarsson. Goll' Karen Sævarsdóttir Sigurður Sigurðsson Rut Þorsteinsdóttir Körfubolti Jón Kr. Gíslason Kristín Blöndal Jóhannes Kristbjörnsson Knattspyrna Gunnar Oddsson Óli Þór Magnússon Ragnar Steinarsson Hestaíþróttir Marta Jónsdóttir Sigurður Kolbeinsson Vignir Amarsson Skotfimi Ráll Guðntundsson Reynir Þ. Reynisson Guðmundur Guðlaugsson Badminton Sigurður Þ. Þorsteinsson Gunnar F. Gunnarsson Dagbjört Guðmundsdóttir Keila Brynjar Sigmundsson Unnur Lúðvíksdóttir Steindór Geirdal Viðurkenning fyrir frantgang að íþróttamálum: Jóhannes Haraldsson. Grindvík, júdó. Júlítis Valgeirsson, Njarðvík. körfubolti. • Sparisjóðsmótið í irmanhússknattspyrnu: ÍBK og Fylkir sigursælust IBK og Fylkir voru sig- ursælustu liðin á Sparisjóðs- mótinu í innanhússknatt- spyrnu yngri Uokka í Keflavík nýlega. ÍBK sigraði í4. Ilokki, 5. flokki og 6. Ilokki B. Fylk- ismenn sigruðu hins vegar í 7. flokki A og B og 6. flokki A. Tryggja titilhungraðir Grind- víkingar sér titilinn í kvöld? Grindvíkingar sýndu það og sönn- uðu á þriðjudagskvöldið að þeir ætla sér ekki að gefa neitt eftir í baráttunni við Njarðvfk um Islandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. I þessari þriðju viðureign liðana, sem háð var í Grindavík, tóku heimamenn öll völd í fyrri hálfleik og léku lið UMFN oft grátt. Heimamenn komust í 14-2 og síðan í 22-6 en það hvorki gekk né rak hjá Njarðvíkingum hvort sem það var í vörn eða sókn og þeir náðu illa að koma boltanum inn á Rondey Robinson. I leikhléi höfðu þeir 21 stigs forskot 48- 27. Njarðvíkingar komu öllu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og þegar að ellefu inínúlur voru til leiksloka höfðu þeir minnkað muninn í tíu stig. En heimamenn gáfu ekkert eftir og með Wayne Casey sem skoraði hvert stigið af fætur öðru og Guðmund Bragason sem átti stórleik í vörninni tókst þeim að auka forskotið á ný í 20 stig. Njarð- víkingar misstu Rondey Robinson útaf með fimm villur þegar skammt var til leiksloka og það varð rothögg Njarð- víkinga og heimamenn gerðu endanlega út um leikinn og sigruðu örugglega með 23 stiga mun 90-67. ..Þetta var virkilega sætt og loksins héldurn við haus. Við vorum búnir að skoða hvað fór úrskeiðis í síðasta leik og núna héldum við góðri vöm og það var það sem gerði gæfumuninn. Núna er ekkert stress á okkur og við komum til leiks á fimmludagskvöldið (í kvöld) af- slappaðir og þægilegir með sömu bar- áttuna og stemmninguna og ég er viss um það að áhorfendur eiga eftir að flykkjast í Njarðvtk. Við erum afslappaðir og pressan eröll á þeim og við ætlum okkur að taka þetta." sagði Guðntundur Bragason þjálfari UMFG að leik lokn- um. „Þetta var vörnin og liðsheildin sem sá um þetta og allir stóðu sig frábærlega og gerðu það sem þeir gátu. Leikurinn á fimmtudagskvöldið verður upp á líf og dauða og við ætlum okkur að sigra. Það hefur alltaf verið talað um Njarðvík sem reynslumeira lið en ég hef alltaf haldið því frani að æskan sé sterkari en reynsl- an." sagði Pétur Guðmundsson leik- maður UMFG eftir leikinn. Wayne Casey var stigahæstur í liði UMFG með 29 stig, Marel Guðlaugsson 17 og Guðmundur Bragason 15. Teitur Örlygsson var stigahæstur í lið UMFN með 17 stig. Rondey Robinson 11 og RúnarÁrnason 10. „Það er erfitt að skýra hvað fór úr- skeiðis. Menn gera nákvæmlega ekkert það sem þeim er sagt fyrir leikinn og þeir halda að þetta konti allt af sjálfu sér." sagði Valur Ingimundarson þjálfari UMFN eftir leikinn og var að vonum óhress með sína menn. Staðan í leikjunum er 2-1 Grind- víkingum í vil og nú spyrja menn. tekst Grindvíkingum að sigra í kvöld og hampa titlinum eða ná Njarðvíkingar að jafna 2-2 og knýja fram fimmta leikinn í Grindavík á laugardaginn? GETRAUNALEIKUR ^ SAMVINNUFERÐA 0G VÍKURFRÉTTA Sigurbjörn heldur naumri forystu Eins og í vel flestum úrslitakeppnum er spennan í getraunaleiknum ekki sfðri en í körfuboltanum. I síðustu leikviku fengu þrír tipparar níu rétta, þeir Brynjar, Grétar og Sigurbjörn og Ástráður var með lakasta árangurinn í síðustu leikviku með 8 rétta. Staðan erþvíþannig að Sigurbjörn heldureins leiks forystu fráfyrri viku með 18 rétta (9+9), Brynjar H. Sigurðsson er annar með 17(8+9). Ástráður Gunnarsson og GrétarOlason eru síðanjafnir í 3.-4. sæti með 16 rétta. Þaðgetur þvíallt gerst í næstu leikvikum en þrjáreru enn eftir. Verði tveireðajafnvel fleiri jafnir í efsta sæti að loknum fimm úrslitavikum þá munu þeir tippa einu sinni til úrslita. Verði þeir aftur jafnir þá verður spilin tekin upp og úrslit fengin þannig. Línur eru að skýrast með úrslitaleikinn á Wembley sem eins og öllum ætti að vera kunnugt um. Chelsea sigraði Luton í undanúrslitum og leikur gegn Man. Utd. eða Oldham í úrslitum. Chelsea hefur ekki leikið á Wembley í 24 ár og munaði minnstu að liðið fengi Oldham sem andstæðinga. Júnætitmenn jöfnuðu á síðustu mínútu framlengingar. Liðin þurfa því að eigast við að nýju.... Hacken-Göteborg 2 2 2 2 Landskrona-Malmö 2 12 2 1X2 Norrköping-Hammarby i I i 1 Trelleborg-Örebro X 2 12 2 Öster-Halmstad 1 i 1 1X2 Arsenal-Chelsea i • 8"ts 1 *T5 Coventry-Sheff. Wed. 2 2 1X2 12 Liverpool-Newcastle 1X2 1 12 X2 Man. City-Norwich IX 1X2 ;Í? Oldham-West Ham 1X2 X2 1 1 QPR-Everton 1 1 1X2 1 Southampton-Blacbum 2 2 2 2 Wimbledon-Man. Utd. X2 1X2 2 . 2 ♦ Nökkvi og Valureigastvið i leik liðamm í Njarðvík. Nii er bara spuming hvað gerist i kvöld. Ástráður 16 Brynjar 17 Grctar 16 Sigurbjöm 1S

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.