Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1994, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 14.04.1994, Qupperneq 13
FRETTIR AF STARFSEMI KEFLAYÍKURBÆJAR • Skólasel Keflavíkur: NOKKUD SÁTT VID SKÓLASELIÐ Þróunin hefur verið hröð í málefnum Skólasels Kellavíkur. Skólaselið var opnað I. nóvember 1992 í 50 frem. gæsluvallarhúsi, en í dag, rúmu árið síðar er Skólaselið komið í 300 fermetra einbýlishús í næsta nágrenni skólans og við stofnunina starfa 6 manneskjur í fullu starfi. Þar af er einn kennari og ein fóstra. Valgerður Sig- urðardóttir veitir Skólaseli Keflavíkur forstöðu. „Börnin sem notað hafa þjónustu okkar í vetur eru 97. Við renndum blint í sjóinn með reksturinn og ekki var vitað fyrirfram hver þörfin væri og fátt var hægt að hafa til hliðsjónar. Þetta átti ekki að vera skóladagheimili fyrir örfáa úr forgangshópum og ekki gátumvið hugsað okkur að þetta yrði ein- hvers konar geymslustaður þar sem allt of mörgum börnum væri hrúgað saman í umsjá örfárra starfsmanna sem hefðu það helst að markmiði að allir lifðu af daginn, svona stórslysalaustl. Með já- kvæðum viðbrögðum bæjaryftrvalda og dugnaði starfsfólks höfum við í dag skólasel sem við erum nokkuð sátt við“. í húsnæði skólaselsins eru níu herbergi sem skiptast þannig: Skrifstofa, fataherbergi, borðstofa og 6 leikherbergi. Auk þess er stórt eldhús í miðju hússins, þvottahús, geymslur, tvö salerni og tvö góð hol. Skólaselið er opið öllum börnum í I .-4. bekk í Myllubakkaskóla, svo framarlega sem húsrúm leyfir. Foreldrar verða að panta pláss og ergjaldið greitt fyrirfram. Opið er frá 7:30 til 17:15 alla daga sem nemendur sækja skóla. • Útideildin: Mikilvægt að ná trúnaði við krakkana Útideildin er sameiginlegt verkefni félagsmála- og æskulýðsráða Keflavíkur og Njarðvíkur og hófst starfsemin 6. mars 1992. I bæj- arskrifstofunni í Keflavík hefur Marfa Kristjánsdóttir umsjón með þessum mála- flokki. Við tókum hana tali. -1 hverju er stafið fólgið? „Starf útideildar er fyrst og fremst leit- ar- og vettvangsstarf og er því mikilvægt að starfsmenn séu á þeim stöðum þar sem krakkarnir safnast saman. Mikilvægt er að ná trúnaði við krakkana og að vinna út frá þeim forsendum. Útideildin leitast við að nálgast þá unglinga sem eru í á- hættuhópum. Einnig er mikið rætt við þá unglinga sem ekki eru í „vandræðum" og fylgst með því sem gerist á meðal þeirra". Útideildin starfar 10 mánuði á ári og er með vaktir á föstu- dagskvöldum. Þrír starfsmenn eru á vakt hverju sinni, tveir frá Keflavík og einn frá Njarðvík. Starfsmenn fara á þá staði þar sem unglingar safnast saman og alltaf fleiri og fleiri koma til starfsmanna sjálfviljug og fara að spjalla og oft endar með því að vandamálin koma upp á yfirborðið. Þá er reynt að hafa samband við unglinga um helgar þegar þau sækja félagsmiðstöðvarnar eða í skólanum. Þau vandamál sem koma upp geta verið t.d. áhyggjur af drykkju, erfiðar heimilisaðstæður eða önnur vandamál sem fylgja unglingum í dag. - Hvernig er samstarf við aðrar deildir eða byggðarlög? „í hverjum mánuði er haldin fundur með lögreglu, fulltrúum frá félagsmálastofnun Keflavíkur og Njarðvíkur, forstöðumönnum Fjörheima og Holtaskóla. A fundinum er rætt um vandamál ung- linga, sem kannski allir þessir aðilareru að fást við. hver í sínu horni og hefur þetta samstarf verið rnjög gott." segir María Krist- jánsdóttir. • Byggöasafn Suðurnesja: Umfang eykst við sameininguna Byggðasafn Suðurnesja var opnað á Vatnsnesi á árinu 1979. Safnið er rek- ið sam- eiginlega af Keflavík og Njarðvík og kostnaður Itefur allur verið borgaður ertir höfðatölureglu. Safnahúsin eru tvö. á Vatnsnesi í Keflavík í íbúðarhúsi Vatnsnesjarðar og í Innri Njarðvík, í íbúðarhúsinu Innri Njarðvík. Einnig leigir safnið stóra geyntslu við Hrann- argötu þar sem munir eru geymdir uns möguleiki er að koma þeim í sýningarsal. Þá hefur Byggðasafn Suðurnesja geymslurými í hólfi Is- landsbanka, þar sem geymd eru verðmæt skjöl, fund- argerðarbækur og fl. þar til skjalasafn Suðurnesja verður að veruleika. Guðleifur Sigurjónsson veitir Byggðasafni Suðurnesja for- stöðu. Starf hans er fólgið í því að taka á móti munum og myndum. ganga frá þeirn til geymslu og skrásetja með skýringum. Hann segir að oft þurfi að leggja tölu- verða vinnu í lagfæringu á mun- um þegar þeir berast til safnsins. Sameining sveitarfélaganna hefur þá breytingu í för með sér að Hafnir korna inn í starfið. þannig að umfangið eykst all verulega. Þau hús sem safnið hefur til umráða í dag eru bæði gjafirtil sveitarfélaganna. Húsin hafa nýlega verið gerð upp, þar sem þau voru farin að láta á sjá eftir að hafa ekki fengið við- unandi viðhald um nokkurt skeið. Guðleifur segir það há mjög starfi og tilgangi safnsins að hafa ekki meira húsrými til sýn- ingarsala. Það hefur alltaf verið von þeirra sem við safnið hafa starláð að og byggt upp, að skilningur yfirvalda myndi smáaukast á starfi þess. Byggðasafnið er opið alla sunnudaga frá kl. 13:30 til 17:00 og eftir samkomulagi. • Félagsstarf aldraðra: ♦ Elsa Kjartansdóttir í fé- lagsstarfinu ásamt nokkrum cldri borgurum sem unnu við dúkamálun. Félaasleg samvera er ölíum nauðsynleg Elsa Kjartansdóttir er for- stöðumaður félagsstarfs aldraðra í Keflavík. Hún sér um yfirstjórn á daglegum rekstri og starfs- mannahald. Þá þarf hún að skipuleggja dagskrá sem þarf bæði að vera Ijölbreytt og höfða til aldraðra. „I félagsstarfinu reynum við starfsstúlkurnar að koma til móts við þarfir og óskir eldra fólksins, Félagsleg samvera af hverju tagi er öllum nauðsynleg og er því reynt að bjóða upp á ýmsa val- kosti og nægir að nefna fjölbreytta handavinnu, leirnámskeið, leik- fimi tvisvar í viku, vatnsleikfimi, bingó, hugvekju. gleðistundir með blönduðu efni sem enda á dansi. Einnig höfum við heitan nuddpott opinn þrisvar í viku, heilsunudd. hár- og fótsnyrtingu, viðtal við hjúkrunarfræðing og félagsráðgjafa, svo eitthvað sé nefnt“. Félagsstarf aldraðra fer fram á þremur stöðum í Keflavík. Að Suðurgötu 12-14 í kjallara fer fram föndur ýmiskonar, sem er stór þáttur í félagsstarfmu. að Hringbraut 57 er leirnámskeið sem er gífurlega vinsælt. Allt annað félagsstarf er í fé- lagsmiðstöðinni Hvammi að Suðurgötu 15-17. Það var árið 1985 sem fé- lagsmálaráð Keflavíkur ákvað að opna athvarf aldraðra og á þeini níu árum sem liðin eru síðan hefur starfsemin þróast mikið. Fólkinu hefur fjölgað sem þegið hefur þjónustu og tekið þátt í starfinu. Elsa sagði að allir þeir sem eru orðnir 67 ára og eldri og einnig öryrkjar hafi heimild til að sækja félagsstarfið. Eldri borgarar í Kellavík hafa verið duglegir að nýta sér félagsstarfið, enda hefur verið töluverð Ijölgun á milli ára. Að endingu vildi Elsa koma á framfæri þakklæti og kveðjum til allra sem lagt hafa félagstarfinu lið í gegnum árin með ýmiskonar starfi. 14. APRÍL 1994 13 • Einar Ingimundarson skrifar: Auðvitað skýrum við nýtt sveitarfélag KEFLA VÍK WKURFRÉTTIR / / PUTTKLUBBUR SUÐURNESJA Púttmót 24. mars. Stuðn- ingsaðili: Keflavíkurverktakar Eldri II. kvenna: Júlíana Jónsdóttir .... 70 Regína Guðmundsdóttir ....71 Elísabet Halldórsdóttir.. ....74 Yngri II. kvenna: Jónína Ingólfsdóttir .... 63 Lory Erlingsdóttir .... 70 Vilborg Stange .... 71 Eldri fl. karla: Kristófer Jónsson .... 67 Stefán Egilsson ....68 Lúðvfk Jónsson .... 68 Yngri II. karla: Jón Isleifsson ....63 Magnús Sigurðsson ....67 Gunnar Jóhannsson .... 68 Púttmót 7. apríl. Stuðnin; gsaðili: Happasæll Eldri II. kvenna: Regína Guðmundsdóttir ....71 Elísabet Halldórsdóttir.. .... 73 Sesselja Þórðarsóttir ....74 Yngri 11. kvenna: Jónína Ingólfsdóttir .... 64 Lory Erlingsdóttir .... 71 Vilborg Stange .... 74 Eldri Fl. karla: Margeir Jónsson .... 63 Stefán Egilsson .... 67 Lúðvík Jónsson ....68 Yngri 11. karla: Magnús Sigurðsson .... 63 Jón Isleifsson .... 64 Ingibergur Jónsson ....64 Konukvöld í Röstinni Síðasta konukvöldið f Röstinni verður haldið 18. aprfl og hefst kl. 20:00. Grindavíkurkonur sjá um þetta kvöld. Konur eru hvattar til að mæta og taka vin- konur með. 33 konur mættu á síðasta konukvöld sem haldið var í Röstinni og tókst vel. Púttklúbbur Suðurnesja. • Lögreglan: Kvartað yfir olykt Nokkuð var um að hringt væri til lögreglunnar á mánu- daginn og kvartað yfir inikilli ólykt sem væri yfir byggðinni í Keflavík og Njarðvík. Óþef- urinn var af bræðslureyk frá fiskimjölsverksmiðjunni í Sandgcrði, en vindátt var þannig háttað að reykurinn eða a.m.k. lyktin af honum lagðist fyrir byggðina í Keflavík og Njarðvík. Þefurinn var heldur ekki góður í Sandgerði. Þá hafa séð dagsins ljós tillögur um nöfn á nýja sveitarfélagið, en þau eru: Suðurnes. Reykjanes, Hafnavík, Fitjar og Nesbær. Svo mörg eru þau nöfn sem um má velja að því viðbættu að skrifa má eitt nafn á kjörseðilinn í þar tilgerða línu. Nú skulum við líta á þau nöfn sem fengið hafa náð fyrir augum þriggja sveitarstjórna og annarra sem um þetta hafa fjallað. Reykja- nes hefur þann ókost að vera nafn á heilu kjördæmi og getur hæglega valdið ruglingi sem gæti valdið ýmsum óþægindum. Sarna er að segja um nafnið Suðurnes sem er samheiti allra sveitarfélaganna sunnan Hafnarljarðar. Ég veit ekki hversu vinsælt það verður í þeim sveitarfélögum sem utan þessarar sameiningar standa að nota nafn á sveitarfélagið sem er jafnframt samheiti þeirra sveit- arfélaga sem standa fyrir utan þetta nýja sveitarfélag. Hafnavík er tilbúið nafn eftir því sem ég best veit. Það nafn er ekki finnanlegt í þessu sameinaða sveit- arfélagi. Sýna má fram á að það er nokkuð föst regla að kaupstaðir heita eftir ömefnum gömlum og góðum, kotum eða höfuðbólum, víkum og voguin eða fjörðum þar sem þeirhafa byggst upp. Hafnavík uppfyllir þetta ekki. Sama má segja um Nesbæ og ýmislegt lleira. Það er bær austur á fjörðum sem heitir Neskaupstaður. Ég veit ekki betur en að kaupstaður og bær séu tvö orð með sömu merkingu a.m.k. í þessu tilfelli. Er þetta ekki óþarflega líkt? Fitjar eru nafn á því svæði þar sem Hagkaup í Njarðvík stendur. Nafnið sem slíkt er þó ekki það gott að Njarðvíkingar sæju ástæðu til að nota það á sitt eigið sveitarfélag, enda höfðu þeir annað nafn og betra. og meira um það nafn: Ibúar Keflavíkur eru Keflvíkingar og ...Þá er það mis- skilningur ef einhver skyldi halda að ekki megi nota nafnið Kefla- vík á þetta nýja sam- einaða sveitarfélag... íbúar Njarðvtkur Njarðvíkingar. Ibúar Fitja yrðu væntanlega FITJ- ungar’ Ekki geta þetta nú talist sérlega vel undirbúnar tillögur. Þegar tillögur bárust um nöfn á þetta nýja sveitarfélag þá var Keflavík í þriðja sæti. Það nafn hlaut ekki náð fyrir augum þeirra sem um þessi mál hafa fjallað. eða réttara sagt það hefur ekki fengist samstaða um að hafa það með vegna andstöðu vissra aðila. Þess vegna er auða lín- an á atkvæðaseðlinum tilkomin. Ég hef haldið því fram að frá praktísku og sögulegu sjónarhomi sé eðlilegt að sveitarfélagið verði látið heita Keflavík og vil ég ítreka að Keflavík er þekktasta nafn sem völ er á. Keflavík er elsti versl- unarstaður á Suðurnesjum og í Keflavík býr um 75% íbúa í þessu nýja sveitarfélagi. Þá má á það RAFMAGN 'j Alhliða rafþjónusta - Nýlagnir Viðgerðir - Útvega teikningar Dyrasímakerfi HJÖRLEIFUR STEFÁNSSON Rafverktaki Vesturgötu 17 - Keflavík sími 15206 - hs. 15589 985-39065 j benda að flestir útlendingar eiga gotl með að bera þetta nafn fram. Þótt við notum nafnið Keflavík þá halda Njarðvík og Hafnir sínum nöfnum. Ef menn efast eitthvað um að nafnið Kefiavík sé eðlilegt, þá við ég benda á eftirfarandi: Fyrir nokkrum árum síðan voru tvö sveilarfélög á Vestfjörðum sameinuð í eitt, þ.e. Isafjörður og Hnífsdalur. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt raddir um það að nýtt nafn þyrfti að konta á það sveit- arfélag. Það heitir í dag Isafjörður og Hnífsdalur og er á sínum stað eftir sem áður. Sama varð þegar Akureyri og Glerárhverfi sam- einuðust, sveitarfélagið heitir eftir sem áður Akureyri, en Glerárhverfi er eigi að síður á sínum stað. Ég ætla ekki að telja upp fleiri rök fyrir því að velja nafnið Kefiavík heldur heiti ég á alla að nota auðu línuna á atkvæðaseðlinum vel og skrifa þar KEFLAVÍK. Það væri alvarlegt slys að kjósa yfir sig eitthvert nafnskrípi sem enginn myndi nota. Þá er það misskilningur ef ein- hver skyldi halda að ekki megi nota nafnið Kefiavík á þetta nýja sam- einaða sveitarfélag. Þá vil ég benda á að þeir sem nota auðu línuna á kjörseðlinum mega ekki merkja við önnur nöfn á seðl- inum, það gerir hann ógildan. Keflavík í apríl 1994, Kinar Ingimundarson. SVÆDISSKRIF:STOFA MALEFNA FATI.AÐRA REYKJANESI FÖTLUTV OG SAMFÉLAG 2 EFNI: FÖTLUN OG LEIKSKÓLI Fyrirlestur og umræöur um fötluð börn í leikskólum. Fjallað verður um tegundir fatlana, almenna þjónustu/sérþjónustu, þjónustuúrræði á Suðurnesjum/Stór-Reykjavíkursvæðinu, mikilvægi þess að fötluð börn séu í almennum leikskóla, stuðningur við starfsfólk og stuðningur við foreldra. TÍMI: 18. apríl 1994, kl. 20:00-22:00. STAÐUR: Þjónustumiðstöðin Hafnargötu 90, Keflavík. ÞÁTTTAKENDUR: Foreldrar og aðstandendur fatlaðra barna á leikskólaaldri, auk starfsfólks sem tengist börnum og leikskólastarfi. FYRIRLESARAR: Hanna Björnsdóttir, deildarsérfræðingur. Jóhann Thoroddsen, yfirsálfræðingur. Sigríður Daníelsdóttir, forstöðumaður. Vinsamlega tilkynnið þátttöku eigi síðar en föstudaginn 15. apríl í síma 12362. lönsveinafélag Suðurnesja AÐALFUNDUR Iðnsveinafélags Suðurnesja verður haldinn í húsi félagsins að Tjarnargötu 7, Keflavík, fimmtudaginn 28. apríl n.k. kl. 20:30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ónnur mál. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með 18. apríl. n.k. Stjórnin. AÐALFUNDUR Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis verður haldinn að Hafnargötu 80, Keflavík miðvikudaginn 19. apríl nk. kl. 20:30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.