Víkurfréttir - 14.04.1994, Blaðsíða 17
WffUHFRÉTTIR
14. APRÍL 1994
17
Innbrot í
skip
Tilkynnt var um innbrot í skip
í Njarðvíkurslipp á þriðju-
dagsmorguninn. Hurðir höfðu
verið brotnar upp í skipi sent var
í dráttarbrautinni. Skemmdar-
vargurinn eða skemmdarvarg-
arnir höfðu á brott nteð sér
myndbandstæki. útvarp og út-
varpsntagnara ásamt ýtnsurn öðr-
um varningi. Innbrol í skip hal'a
vcrið algeng að undanförnu. Þar
hafa menn verið að leita bæði af
lyfjum og einnig hlutum sem
auðvelt er að koma í verð.
Ekki frekari
bílakaup
SBK
Vilhjálmur Ketilsson lagði
fram eftirfarandi bókun á síðasta
fundi bæjarstjórnar Keflavíkur,
þriðjudaginn 5. aprfl sl.
„Undirritaður getur ekki mælt
með að farið verði út í frekari
bílakaup fyrir SBK nema að á
móti konii sala annana bíla.
Skuldbreytingin ein nægir ekki
fyrirtækinu eins og staðan er í
dag. Niðurstöður ársreiknings
sýna svo ekki verður unt villst að
fyrirtækið berst í bökkum og
tekjuafgangur fjárhagsáætlana
síðustu þriggja ára hafa ekki
staðist. En þar het'ur verið gert ráð
fyrir allt að 12 milljóna króna
hagnaði fyrir afskriftir. Fyr-
irtækið sent skuldar orðið allt að
því ársveltu sína verður að taka
rekstur sinn. einu sinni enn til al-
varlegrar athugunar áður en illa
fcr". Undir þetta skrifaði Vil-
hjálmur Ketilsson.
STUTTAR
fréttir
Eiríkur endurkjörinn
Eiríkur Hilmarsson var end-
urkjörinn formaður Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum á að-
alfundi félagsins nýverið. Aðrir í
stjórn eru Þórdís Þórmundsdóttir,
Bjarnfríðúr Jónsdóttir, Asa
Kristín Margeirsdóttir, Sæ-
mundur Pétursson, Stefanía
Ólafsdóttir og Steinunn Njáls-
dóttir. I varastjórn eru Halldór
Leví Björnsson, Brynjólfur
Nikulásson og Sigríður Eyjólfs-
dóttir.
Safnast þegar
saman kemur
Það er óhætt að segja að margt
smátt geri eitt stórt. Þroskahjálp
á Suðurnesjum fékk að gjöf tæpar
37 þúsund krónur fá börnum á
Suðurnesjum á síðasta ári. Börnin
söfnuðu peningunum með því að
halda hlutaveltur og afhentu síð-
an ágóðann til Þroskahjálpar. Öll
börn sem gefa peninga til
Þroskahjálpar og Sjúkrahúss
Suðurnesja fá mynd af sér í Vík-
urfréttir.
Bannað að leggja lengur
en í 3 tíma
Frá og með I. apríl sl. tók Bif-
reiðagæslan hf. í Keflavík að sér
rekstur og umsjón með bif-
reiðastæðum við Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Á tímabilinu frá I.
apríl til 30. nóvember er gjald-
skylda fyrir afnot afmarkaðra
langtímastæða norðan og vestan
við flugstöðina. Stæðisgjald er
220 krónur fyrir hvern byrjaðan
sólarhring. Á afmörkuðum stæð-
um frantan við aðalanddyri flug-
stöðvar verður óheimilt að leggja
bifreiðum lengur en í 3 klukku-
tíma samfleytt. Á þessum bíla-
stæðum er hægt að leggja bílum
ókeypis.
2ja herbergja
íbúð. Laus strax. Uppl. í síma
15194 frá og með mánudegi.
Hvít stór
IKEA kommóða. Uppl. í sírna
15194 frá og með mánudegi.
Óskast keypt
Fjallahjól
ekki meira en 12 gíra. Uppl. gefur
Garðar í síma 9U688888 og 92-
12346 á kvöldin.
SUÐURNESJAMENN ATHUGIÐ!
EROBIKKIÐ Á FULLU
Auður, Kristjana og Svanbjörg nýkomnar af nám-
stefnu í þolfimi og pallaleikfimi.
Erum með hádegistíma, síðdegis- og kvöldtíma.
Takið eftir!
Þeir sem stunda líkamsrækt hjá okkur fá 15% afslátt í
Ijós - bestu Ijósabekkirnir.
£•*=
Sólbaðs- og
þrekmiðstoðin
Perlan
Hafnargötu 32
Sími14455
KVOTI TIL
LEIGU
Tilboð óskast í þorsk 53.670 kg.
og ýsu 5.970 kg.
Tilboðum skal skilað fyrir 22. apríl
1994 fyrir kl. 16:00 í pósthólf 25 í
Keflavík.
Þeir tilboðsgjafar einir koma til
greina sem eiga báta, gerða út frá
Keflavík og landa aflanum á Fisk-
markaði Suðurnesja eða til vinnsiu í
Keflavík.
Kvótakaupanefnd
Keflavíkur
Meirihlutinn í Keflavík bókar:
Síðasta bæjarstjórn
sinnti ekki lögboðnum
eftirlitsskyldum
Ellert Eiríksson. Sjálfstæðisflokki, lagði fram eft-
irfarandi bókun meirihlutans á síðasta bæjarstjórn-
arfundi í Keflavík vegna 4. máls bæjarráðs frá 30.
mars 1994:
„Borist hefur bréf frá Félagsmálaráðuneytinu dag-
sett 23/3 '94 varðandi málefni stjórnar Verka-
mannabústaða í Keflavík á árunum 1986-1990. svar
ráðuneytisins er eftirfarandi:"
„Vísað er til bréfs yðar dagsett 7. júní 1993 og II.
janúar sl. varðandi málefni stjórnar Verkamanna-
bústaða í Keflavík á árunurn 1986-1990. Beðist er
velvirðingar á því hve dregist hefur að svara erindi
yðar. Ráðuneytið hefur kynnt sér rækilega ársreikn-
inga ásamt bréfum löggilts endurskoðanda og lög-
manns bæjarins er fylgdu tilvitnuðum bréfum. 1
skýrslunum kemur fram að ntikil óreiða hefur verið á
störfum þeirra aðila sem hlut áttu að máli og að fyrr-
verandi bæjarstjórn hafi ekki sinnt sem skyldi lög-
boðnum eftirlitsskyldum sínum gagnvart þessunt að-
ilum. Þá kemur fram að núverandi bæjarstjórn hafi
unnið ötullega að úrbótum og að löggiltur end-
urskoðandi bæjarins telji þessi ntál nú vera komin í
það horf að vera til fyrirmyndar. Það tilkynnist yður
hér með að ráðuneytið telur með hliðsjón að þeim
tíma sem liðinn er síðan það atferli sem lýst er átti sér
stað og þess að nú hafi málum þessum verið komið í
gott horf sé ekki ástæða til þess að það aðhafist
nokkuð frekar í málinu"
Með hliðsjón af síðbúnu svari Félagsmálaráðu-
neytisins hyggst meirihluti bæjarstjórnar Keflavíkur
ekki aðhafast frekar í rnálinu. Trúnaði hefur verið
aflétt. Undir þetta skrita Ellert Eiríksson. Drífa Sig-
fúsdóttir, Jónína Guðmundsdóttir. Björk Guðjóns-
dóttir og Garðar Oddgeirsson.
Matseðúl
Marenerað heilagfiski
Lambafille með gjLjáðu grœnmeti,
fxaísarkartöflum ogpiparsásu.
Konfektís
með Qrand Mamier-sósu
Húsiö opnaó fyrir matargesti kl. 19.
Verðkr. 3.900,-
Fyrir aöra en matargesti verður opnaö kl. 10.
Verðkr. 1.500,-
Veislustjórar:
Dagbjartur G. Einarsson, útgeröarmaöur,
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttarsemjari.
Miða- og borðapantanir í síma 687111
ÞJOPS
Ert þú af
Járngerðarstaðaætt?
Ættarmót á Hótel íslandi
föstudaginn 15. apríl
Fluttur veröur leikþátturinn
„Innleiöing ætternisins“
Leikstjóri: Þórir Steingrímsson
Sviðsmynd og lýsing: Tolli Morthens
Sögumenn: Álfheiður Ingadóttir,
Árni Bergmann, Elva Ósk Ólafsdóttir
Guðrún Svava Svavarsdóttir
Eftirtaldir tónlistarmenn
úr ættinni koma fram:
Magnús Kjartansson, Magnús Þór
Sigmundsson, Jóhanna Linnet,
Einar Júlíusson, Rúnar Júlíusson,
Pétur Kristjánsson, Edda Sigurðardóttir.
Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar
skemmtir til kl. 03.
ogniðjaraf
Jámgerðaistaðaætt.