Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.1995, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 06.04.1995, Qupperneq 10
10 6. APRÍL 1995 vIkurfréttir w Kjósum Hjálmar Arnason skólameistara á þing Senn líður að því að við háttvirtir kjósendur göngum að kjörborðinu. Vai okkar stendur niilli margra góðra manna, sem eru í framboði. Einn skarar þó fram úr sem valkostur fyrir okkur Suður- nesjamenn. Það er Hjálmar Árnason, skólameistari. Það er mjög mikilvægt starf í okkar þjóðfélagi að stjórna 700 nemenda fram- haldsskóla með tilheyrandi starfsliði. Síðast liðin 10 ár hefur Hjálmar Árnason sinnt þessu hlutverki fyrir okkur, sem skólameistari Fjöl- brautaskóla Suðurnesja, með miklum ágætum. Á þessu tímabili hefur skólinn vaxið í áliti sem mjög góð og framfarasinnuð menntastofnun og nemendur skólans liafa náð mjög góð- um árangri á ntörgum svið- um. Hjálmar hefur barist fyr- ir nánari tengslum skóla og atvinnulífs og birt athyglis- verðar tillögur þar um. Glæsilegt skólahús hefur risið og á engan er hallað þó sagt sé að þar hafi fyrst og fremst forysta og dugnaður Hjálmars ráðið úrslitum um að sú bygging reis og það á mjög skömmum tíma. Ég átti þess kost að starfa með Hjálmari um tveggja ára skeið eftir að hann varð skólameistari. Það er mjög á- nægjulegt að vinna með Hjálmari. Hann er skarp- greindur, duglegur og vel menntaður, sem lætur sér ekki nægja að tala um hlutina heldur framkvæmir þá. Hjálmar þekkir vel til ís- Gunnar Svcinsson lensks atvinnulífs, sem trillu- karl, kennari, lögregluþjónn og verkamaður og í gegnum starf sitt sem skólameistari hefur hann kynnst högum fólks hér á Suðurnesjum mjög vel. Hjálmar skipar annað sæt- iðð á lista Framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi og er því í baráttusæti flokksins. Val okkar Suðurnesjamanna er því auðvelt, en það er að kjósa Hjálmar með því að setja X við B á laugardaginn kemur og tryggja þannig góðan mann á þing til starfa fyrir okkur. Gunnar Sveinsson. Trúverðugleiki frambjóðandans! -Opið bréf til Hjálmars Arnasonar Kæri Hjálmarminn! Eg veit að þú vilt hafa það sem sannara reynist og þér er annt um trú- verðugleikaímynd þína, þess vegna vil ég gera nokkrar athugasemdir við grein þína í Víkurfréttum þann 30. mars s.l. Greinin var athyglisverð fyr- ir þær sakir, að af lestri hennar má sjá að þú hefur lengi starfað í vemduðu umhverfi og þekkir því lítið til at- vinnuumhverfis okkar Suðurnesja- manna. Þar sem það er einlæg von mín að væntingar þínar um að verða góður varaþingmaður rætist, vil ég vinsamlega benda þér á að kynna þér betur starfsemi vamarliðsins og flug- vallarins. Ljóst er að þú átt enn langt í land. Mín fyrsta ráðlegging, Hjálmar minn, er að þú kynnir þér rækilega viðfangsefnið áður en þú berð skoð- anir þínar á borð fyrir almenning. Á- gætt er, t.d. að byrja á því að lesa vamarsamninginn frá 1951 sem er í raun einföld lesning. Síðan væri á- kjósanlegt að hefja faglega gagnaöfl- un, en þetta ætti varla að þurfa að kenna þér sjálfum fræðimanninum, með trúverðugleikann að leiðarljósi. En hvernig eigum við Suðurnesja- menn að geta tekið þig eins alvarlega og þú gerir sjálfur þegar þú flaskar á slíkum undirstöðuatriðum. Áður en þú gerist aftur svo djarfur að opinbera visku þína um atvinnu- mál Suðumesja er rétt að þú áttir þig á eftirfarandi atriðum: - Veistu virkilega ekki, Hjálmar minn, að vamarmálanefnd fjallar um öryggis-og vamarmál? Sérstakir full- trúar launþega hafa því aldrei átt sæti í nefndinni þau 44 ár sem nefndin hefur starfað. Mikilvægt er að fram- bjóðendur kynni sér störf vamarmála- nefndar sem fjallar um málefni sem skipta Suðumesjamenn miklu. - Veistu ekki heldur Hjálmar minn, að Framsóknarflokkurinn stofnaði kaupskrámefnd á sínum tíma án þess að setja um nefndina skriflegar regl- ur? Jón Norðfjörð - Hefur þú ekki kynnt þér, Hjálmar minn, reglugerð kaupskrárnefndar sem samþykkt var 30. desember s.l.? Vissir þú ekki að nefndin hefur á far- sælan hátt afgreitt nær öll erindi sem henni hafa borist s.l. þrjú ár? Veist þú ekki um þær breytingar sem urðu ný- lega á skipan nefndarinnar? - Veist þú ekki heldur, Hjálmar minn, að utanríkisráðherra ræður ekki menn í störf hjá vamarliðinu? Getur þú borið vitni um loforð sem veitt voru á fundum sem þú sóttir ekki sjálfur? Styðst þú kannski við sögu- sagnir eingöngu? Hvað með trúverð- ugleikann, Hjálmar minn? - Vissir þú ekki, Hjálmar minn, að hin nýja reglugerð um störf kaup- skrámefndar var samin í nánu sam- ráði við verkalýðsfélögin á Suður- nesjum? Vissir þú ekki heldur af fundi vamarmálaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins með fulltrúum stéttarfé- laga á Suðumesjum þann 21. mars s.l. þar sem almennri ánægju var lýst yftr vegna þeirrar viðleitni utanríkisráð- herra að efla störf kaupskrámefndar og þar sem ákveðið var að láta reyna frekar á störf kaupskrámefndar áður en þess yrði krafist að sérstakur odda- maður úrskurðaði í ágreiningmálum. Myndir þú virða óskir verkalyðsfé- laganna að vettugi í þessum efnum, Hjálmar minn? - Hvað svokallaðir eðalkratar hafa verið ráðnir í störf Flugstöðvarinnar “á kostnað hæfra og menntaðra manna “, Hjálmar minn? Varla áttu við yfirmann rannsóknarlögreglunnar á Keflavíkurtlugvelli. sem utanríkis- ráðherra skipaði ekki fyrir margt löngu? - Hvaða heimildir eru fyrir jreirri einkennilegu staðhæfingu þinni að starfsfólk í Flugstöðinni veigri sér við að láta skoðanir sínar í Ijós af ótta við hefndaraðgerðir? Af hverju hefur þú svona lítið álit á starfsfólki Flugstöðv- arinnar? Er það trúverðugt að niður- lægja fólk með svona dylgjum, Hjámar minn. Eðlilegt er í ljósi þessara vinnu- bragða þinna, Hjálmar minn, að Suð- umesjamenn spyrji þeirrar spuming- ar: Hvort þú hafir gleymt því mikil- væga hlutverki sem þú gegnir á sviði fræðslumála á Suðumesjum? Augljóst er að reynsluleysi háir þér, Hjámar minn. Við fyrirgefum |rér það því við vitunr að þú getur gert miklu betur. þú hlýtur að geta skrifað pólitískar greinar eins og aðrir. Lyk- illinn felst fyrst og fremst í faglegri gagnaöflun og þá reynist eftirleikur- inn yfirleitt auðveldur. Áð lokum vil ég óska þér , Hjálm- ar minn, alls hins besta í framtíðinni. þú gætir hæglega orðið efnilegur stjómmálamaður, ef þú hefur trúverð- ugleikann að leiðarljósi. Með kærri kveðju, þinn vinur Jón Norðfjörð. Úrvalslið á Keflavíkurflugvelli - eftir Jón Baldvin Hannibalsson Jón Baldvin Hannibalsson afhendir Haraldi Stefánssyni viðurkenn- ingu til Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvclli. um. Undanfarna áratugi hefur það verið þáttur í stefnu ís- lenskra stjórnvalda í samskipt- um við Bandaríkjamenn um varnir íslands að Islendingar tækju að sér þau störf sem eðli- legt væri að borgaralegir starfsmenn sinntu tengslum við varnir landsins. fslendingar hafa ekki her og vopnaburður vegna landvarna hefur ekki tíðkast hér á landi. Við getum samt ekki verið varnarlaus þjóð og þess vegna gerðumst við stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu árið | 1949 til að taka þátt í sameig- inlegum vörnum vestrænna ríkja. Sama ástæða lá að baki varnarsamningnum við Banda- ríkin árið 1951 sem fól í sér að Bandaríkjamenn tækju að sér hervarnir Islands í umboði Atl- antshafsbandalagsins og að beiðni íslenskra stjórnvalda. Framlag Islands til landvarna er skilgreint í varnarsamningn- um á þann hátt að það felist í framlagi íslenskra stjórnvalda á aðstöðu fyrir varnarliðið og landrými því sem varnarliðið þarf á að halda. Slökkvilið Slökkvilið varnarliðsins á Kenavíkurllugvelli var í fyrstu skipað Bandaríkjamönnum en íslendingar voru ráðnir til starfa 1952. Árið 1963 varð Sveinn Eiríksson fyrsti útlend- ingurinn sem ráðinn var þar í stöðu slökkviliðsstjóra hjá Bandaríkjaher og frá 1968 hef- ur slökkviliðið eingöngu verið skipað Islendingum. Slökkvi- liðið hefur margsinnis hlotið viðurkenningar fyrir störf sín og hróður þess hefur borist víða. Árið 1975 tók slökkviliðið á Keflavikurflugvelli við snjó- ruðningi og hálkuvörnum á flugbrautum og ber það ábyrgð á því að tryggja að aðstæður alla mánuði ársins séu helst sem líkastar því sem er að sumarlagi. Tveimur árum síðar tók liðið við því verkefni að ferma og afferma herflutninga- vélar auk annarra verkefna sem sfðan hafa bæst við. Þjónusta slökkviliðs varnarliðsins hefur náð út fyrir vallarsvæðið og framlag þess til brunavarna í landinu verður seint fullþakk- að. Fulltrúar liðsins hafa tekið þátt í fræðslu verðandi slökkvi- liðsmanna í landinu, liðið hef- ur útvegað öðrum slökkviliðs- mönnum búnað og nokkrir Jón Baldvin Hannibalssou starfsmanna hafa borið með sér þekkingu þegar þeir hafa flust til annarra slökkviliðssveita. Þessu til viðbótar hafa lengi verið í gildi samningar við ná- grannaslökkviliðin um gagn- kvæma aðstoð og er skemmst að minnast aðstoðar vallarliðs- ins þegar stórbruni varð í tjöl- býlishúsi í Keflavík. Ofan á allt þetta er slökkviliðið hluti af almannavarnakerfi landsins og hefur verið hægt að nýta sér þekkingu þess þótt um lengri veg væri að fara. Þekktasta dæmið er þegar slökkviliðið tók þátt í að kæla hraunflóðið í eldgosinu í Heimaey 1973 og átti stærstan þátt í því að kom- ið varð í veg fyrir gífurlegt eignatjón og að höfnin í Eyjum lokaðist. Starfsmenn slökkviliðsins fengu nýlega löggildingu sem slökkviliðsmenn á Islandi en þeir eru Iíklega líka löggiltir í faginu í Bandaríkjunum. Það var mikið framfaraspor, enda styrkir löggildingin enn frekar samskipti og samstarf starfs- manna slökkviliðsins á Kefla- víkurflugvelli við slökkviliðs- menn annars staðar á landinu og undirstrikar hversu mikil- vægt það er að þekking, sér- hæfing og öflugur tækjabúnað- ur slökkviliðs varnarliðsins haldi áfram að nýtast þjóðinni allri. Ratsjárstofnun Gott starfsfólk hefur verið forsenda þess að íslendingar hafa tekið að sér æ fleiri störf sem varnarliðsmenn sinntu áður. Nýjasta dæmið um slíkt er þegar eingöngu voru ráðnir Islendingar til að starfrækja nýjar ratsjárstöðvar sem stað- settar eru á öllum landshorn- Ratsjárstofnun er íslensk stofnun sem starfrækir ratsjár- stöðvarnar í umboði Atlants- hafsbandalagsins og varnar- liðsins. Fjánnagnið til rekstrar- ins kemur frá Bandaríkja- mönnum en Ratsjárstofnun sinnir framkvæmd í hvívetna. Undirverktaki Ratsjárstofnun- ar, Kögun hf., er með tugi tölvufræðinga í þjálfun í Bandaríkjunum til að undirbúa þá og þjálfa í notkun hátækni- búnaðar fyrir Ratsjárstofnun í framtíðinni. Stjórn íslendinga á Ratsjárstofnun og notkun ís- lensks vinnuafls til rekstrar rat- sjárstöðvanna hefur í för með sér að það fjármagn sem Bandaríkjamenn leggja til rekstrar stöðvanna nýtist til að skapa hátæknistörf sem gagn- ast íslensku atvinnulífi. Þannig mun starfsemi Ratsjárstofnunar verða veigamikil stoð fyrir hugbúnaðarþjónustu og hug- búnaðargerð á íslandi í fram- tíðinni og skapa fjölbreyttari atvinnutækifæri og meiri reynslu og hæfni en ella væri í þessum geira. Fordæmið Sú stefna íslenskra stjórn- valda að íslendingar sinni borgaralegum störfum við varnarstöðina, sem kostur er, er enn við lýði og verður um langa liríð. Hvernig sem á það er litið hlýtur að teljast eðlilegt að íslendingar axli ábyrgð af landvörnum á þennan hátt og sýni þannig í verki vilja sinn til samstarfs um varnir landsins. Tækni á sviði upplýsinga og fjarskipta fleygir fram og það er mikilvægt fyrir íslenskan at- vinnumarkað að hafa aðgang að nýjustu tækni á þessurn sviðum. Aukin þátttaka Islend- inga í störfum af þessum toga verður því æ fýsilegri kostur. Einnig eykur það styrk okkar í samningum og samstarfi við Bandaríkjamenn að reynslan af störfum Islendinga fyrir varn- arliðið er afbragðsgóð. Mikil- vægt er því að hafa í huga hið góða framlag slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli og starf Ratsjárstofnunar, sem nú hefur slitið barnsskónum og miklar vonir eru bundnar við. (Höfundur er utanríkis- ráðherra og formaður Al- þvðuflokksins, Jafnaðar- ntannaflokks Islands)

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.