Víkurfréttir - 06.04.1995, Page 18
18
6. APRÍL 1995
VlfCURFRÉTTIR
KJORFUNDUR
í VATNSLEYSUSTRANDARHREPPI,
vegna kosninga til Alþingis laugardaginn
8. apríl1995, hefst kl. 10:00.
Kosiö veröur í Stóru-Vogaskóla.
Kjörstaöur veröur opinn til kl. 22:00.
Sérstök athygli kjósenda er vakin á eftirfarandi
ákvæöi laga nr. 10/1991:
„Er kjósandi kemur inn í kjörfundarstofuna gerir
hann kjörstjórn grein fyrir sér meö því aö framvísa
nafnskírteini eöa á annan fullnægjandi hátt.
Ef hann þannig á rétt á aö greiöa atkvæöi
samkvæmt kjörskránni afhendir oddviti honum
einn kjörseöil. “
Kjósandi, sem ekki hefur meðferðis
persónuskírteini, getur átt von á því að
fá ekki eð greiða atkvæði.
Vogar 5. apríl 1995.
Kjörstjórn Vatnsleysustrandarhrepps.
Stoltur af stelpunum
„Við mætttum í þennan leik
með bakið upp við vegg.
Við urðum að vinna og það
var allt lagt í það en sóknin
hreinlega bilaði alveg eins og í
öðrurn leiknunt og ég veit ekki
hvers vegna.
Ég held samt að þetta sé
afleiðingin af fyrsta leik en þar
töpuðum við stórt. Þær komu
núna í leikinn undir mikilli
Magnús
stigahæstur
Á innanhússmeistaramóti
Islands í sundi sem haldið
var unt miðjan síðasta
múnuð, urðu þau mistök við
útreikninga á stigum fyrir
einstök sund að notuð var
úrelt stigatafla. Var það til
þess að Logi Yes Kristjáns-
son var talinn liafa fengið
flest stig. Þegar stigin voru
svo endurskoðuð og reiknuð
með gildandi stigatöflu kom
í Ijós að Magnús Konráðsson
í Sunddeild Keflavíkur væri
með réttu stigahærri. Þar
sem Eydís Konráðsdóttir var
stigahæst kvenna, voru það
því Keflvíkingar sem áttu
bestu einstöku sundin á
þessu sterkasta móti
landsins, bæði í karla og
kvennaflokki.
IBUAR I HÖFNUM,
KEFLAVÍK OG NJARÐVÍK
Almenn atkvæöagreiösla um nafn fyrir hið sameinaða
sveitarfélag fer fram laugardaginn 8. apríl 1995. Allir kjörstaðir
opna kl. 10, en verður lokað kl. 22 í Keflavík og Njarðvík, en
kjörstað í Höfnum verður lokað er kosningu til Alþingis lýkur þar.
Kjörstaöir:
í Keflavík: Holtaskóli.
í Njarövík: Njarðvíkurskóli.
í Höfnum: Hús Björgunar-
sveitarinnar Eldeyjar.
Keflavík-Njarðvík-Höfnum,
5. apríl 1995.
í kjörstjórn,
Ásgeir Jónsson,
Jón Ólafur Jónsson,
Magnús Haraldsson,
Oddbergur Eiríksson.
ATKVÆÐASEÐILL
Almenn atkvæðagreiösla um nafn fyrir sameinað
sveitarfélag Keflavíkur, Njarövfkur og Hafna,
laugardaginn 8. aprfl 1995.
REYKJANESBÆR
SUÐURNESBÆR
Einungis má greiöa ööru ofangreindra nafna
atkvæði meö þvf aö marka kross ( X ) fyrir
framan það nafn, sem valið er.
Atkvæöiö er ógilt ef ekki veröur séö meö vissu
hvoru nafninu er greitt atkvæöi, einnig ef merkt
er viö bæði nöfnin, svo og ef áletrun á
atkvæðaseðil þennan er önnur en að framan
greinir, eöa rituð eru annarleg merki af ásettu
ráöi til aö gera atkvæðaseöilinn auðkennilegan.
pressu og það er erfitt að spila
undir því. Engu að síður eru
þær búnar að spila vel í vetur,
betur en flestir þorðu að vona
enda nýtt lið þannig að ég er
ánægður og mjög stoltur af
stelpunum," sagði Sigurður
Inginiundarson þjálfari 1.
deildarliðs kvenna eftir að hafa
tapað í þriðju viðureigninni
gegn Breiðabliksstúlkum um
Islandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik 53-66 í Keflavík
á þriðjudagskvöldið.
Þar með fagnaði Breiðablik
sínum fyrsta Islandsmeistarati-
tli í körfuknattleik frá upphafi
en samanlagt sigruðu þær 3-0 í
viðureign sinni gegn Keflavík.
Gestirnir byrjuðu leikinn af
krafti eins og hina tvo og tóku
forskotið en heimamenn náðu
að rétta sinn hlut og jöfnuðu og
voru óheppnar að vera ekki yfir
í leikhléi en þá var staðan 27-
28 Blikastúlkum í vil og allt
virtist stefna í æsispennandi
síðari hálfleik.
En það var eins og heinta-
menn hefðu enga trú á að þeir
gætu sigrað því hver sending
og hvert skotið geigaði og þær
voru á hælunum allt þar til að
flautað var til leiksloka.
„Mér líður alveg stórkostlega
vel. Það bjuggust kannski ekki
margir við þessu í byrjun móts
og ég ekki heldur en síðan fann
ég alltaf stígandan hjá liðinu
með hveiTÍ æftngunni og hverj-
um mánuðinum senr leið og í
restina uppskárum við það sem
við sáðum.
Ég er ntjög ánægð með
veturinn og það er ekki hægt að
vera annað nema ef vera skildi
bikarkeppnin en henni
klúðruðum við illa á móti
Grindavfk og vorum virkilega
óheppnar. En þetta er frábær
endir.
Nú fer maður að undirbúa
sig f fótboltann og í ágúst held
ég til Bandaríkjana í nám
þannnig að ég spila ekki hér á
iandi á næsta tímabili," sagði
Keflvíkingurinn, Olga Færseth,
sem leikur með Breiðabliki.
Anna María Sveinsdóttir var
stigahæst hjá Keflavík með 16
stig og Erla Þorsteinsdóttir 12.
Hjá Breiðabliksstúlkum var
HannaKjartansdóttir atkvæða-
mest með 21 stig og Penní
Peppas skoraði 17 stig.
Éb
UMSOKN UM STÖRF
Sandgerðisbær auglýsir
í eftirtalin störf:
1. í Áhaldahúsið lágmarksaldur 16 ára.
2. Verkstjóra yfir vinnuskólanum, æskilegt er að
umsækendur hafi reynslu í verksjórn og
verklegum störfum í garðyrkju.
3. Leiðbeinendur við Vinnuskólann.
4. Umsóknarblöð liggja frammi í afgreiðslu á
Bæjarskrifstofu og í Áhaldahúsi.
Umsóknarfrestur er til 27. apríl n.k.
Upplýsingar veitir undirritaður.
Bæjarverkstjóri.